Morgunblaðið - 21.09.2002, Qupperneq 26
NEYTENDUR
26 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HEILSA
MEÐALVERÐ á kílói af gullauga
hefur hækkað um 42% frá því í
febrúar, samkvæmt nýjustu könn-
un Samkeppnisstofnunar á verði
ávaxta og grænmetis. Meðalverð á
tveimur kílóum af gullauga hefur
hækkað um 12%. Meðalverð á kílói
af premier-kartöflum er 36% hærra
nú en í febrúar og 19% hærra á
sama magni af rauðum kartöflum.
Verðkönnunin var gerð hinn 10.
september síðastliðinn.
Bent er á að meðalverð á öllum
tegundum ávaxta hafi lækkað frá
því fyrsta könnun Samkeppnis-
stofnunar var gerð 8. febrúar,
nema á grænum, rauðum og bláum
vínberjum, þar sem meðalverð hef-
ur hækkað um 6–8%. „Einnig vek-
ur athygli þegar litið er á með-
alverð á tilbúinni salatblöndu að
þrátt fyrir töluverða lækkun á með-
alverði flestra grænmetistegunda,
hefur meðalverð á þessari vöru
haldist nær óbreytt frá því í febr-
úar,“ segir í niðurstöðum Sam-
keppnisstofnunar.
64% hækkun á gulrófum,
71% lækkun á tómötum
Meðalverð hefur hækkað um
64% á gulrófum á tímabilinu, um
26% á vorlauk, 24% á íslenskum
gulrótum, 14% á kínakáli, 12% á
skalottulauk, 8% á lauk og 6% á
sætum kartöflum svo fleiri dæmi
séu nefnd.
Flestar tegundir grænmetis hafa
hins vegar lækkað í verði og tóm-
atar hvað mest, þar sem meðalverð
hefur lækkað um 71% á íslenskum
tómötum frá því í febrúar. Þá hefur
meðalverð á íslenskum agúrkum
lækkað um 58%, meðalverð á
grænni papriku um 45% og blað-
lauk um 41%.
„Samkeppnisstofnun hefur um
nokkurt skeið gert mánaðarlegar
verðkannanir á ávöxtum og græn-
meti til þess að fylgjast með
verðþróun eftir afnám tolla á ýms-
um grænmetistegundum síðastlið-
inn vetur. Fyrsta verðkönnunin var
gerð í febrúar og náði til 11 mat-
vöruverslana á höfuðborgarsvæð-
inu. Meðalverð úr þeirri könnun
hefur verið notað til samanburðar á
verðþróun á þessum markaði. Það
er rétt að taka fram að verð á
grænmeti og ávöxtum er sveiflu-
kennt og ræðst meðal annars af
verði á erlendum mörkuðum, upp-
skeru og árstíma,“ segir Sam-
keppnisstofnun.
Í meðfylgjandi töflu er birt með-
alverð á nokkrum tegundum af
ávöxtum og grænmeti eins og það
var 10. september og borið saman
við meðalverð úr verslunum 8.
febrúar síðastliðinn. „Þá er einnig
gefið upp lægsta og hæsta verð
hverju sinni en eins og sjá má er
oft um verulegan verðmun að
ræða,“ segir Samkeppnisstofnun
ennfremur.
Allt að 42%
hækkun á
kartöflum
!
"
"
"
"
" $
%
%
&
'
%#
!
%#
(
%
)
%
*%#
* %
+"
,%
%
,)
,)
,)
,)
,)
,)
%#
-". - %
- / .,)
%
%
%
%
%
/ %
! %
!
!% %
!
!
! 012,%
!
%
,)
%
*
3
.4
56,% !
"
829
:;;
008
0:1
028
:;8
028
:<2
:=1
>0;
>=2
00:
1>2
:=>
0>;
:=<
:7810
12>
8<=
12>
1::
9<<
801
8<0
18=
0>1
1<9
082
:08
>>9
:9<
9>
122
:=0
:><
00<
:12
:82
0>;
>2>
0:;
9>
0>9
81;
12>
8>0
1>0
>29
029
>91
8:0
>2=
:1:
991
==<
9:>
=90
0<0
0=<
!
0;<
<1
:><
<<
<<
<1
:0<
:91
=<
:=<
0;<
9<
:1<
=<
:0<
<<
;81
01<
01<
01<
:0<
:0<
0;<
:;<
0;<
:=<
><<
:==
:8<
0;=
9<
81
:><
<<
:1<
:01
:=<
:1<
:01
0:<
:0<
8<
:<=
:01
:9<
:8<
>;=
<<
<<
0>1
:0<
::;
:>>
19<
;:9
18>
=0<
01<
08<
#
$
Meðalverð á vínberjum hefur
hækkað um 6–8% frá febrúar.
NÝ rannsókn sem meðal annars
byggist á gögnum frá Íslandi
bendir til að MS sjúkdómurinn
smitist m.a. við kynmök. Sam-
kvæmt rannsókninni er sjúkdóm-
urinn, sem veldur hægfara löm-
un, algengari í samfélögum þar
sem frjálslyndi ríkir í kynferð-
ismálum og þar sem skyndilega
hefur aukist straumur ungra
karlmanna, eins og til dæmis á
stríðstímum.
Leiddar eru líkur að því að MS
sé algengari meðal ungs fólks
sem stundar mikið kynlíf og vitn-
að er m.a. í danska rannsókn sem
sýnir aukinn fjölda MS tilfella á
þeim tíma er getnaðarvarn-
arpillan kom til sögunnar og kon-
ur nutu þar með meira frelsis í
kynferðismálum.
Rannsóknina kynnti Christ-
opher Hawkes ráðgjafi í miðstöð
taugasjúkdómafræða í Romford
á Bretlandi í Journal of Neuro-
logy.
Dr. Hawkes segir meðal ann-
ars að aukning hafi orðið á sjúk-
dómnum á Íslandi á árunum 1945
til 1954 þegar 50.000 hermenn
voru staðsettir á landinu. Það
sama á við um Færeyjar auk
Orkneyja og Hjaltlands þar sem
MS tilfelli fjórfölduðust á ár-
unum 1954 til 1974 eftir komu
breskra hersveita þangað árið
1940.
MS er sjaldgæfari hjá maórum,
inúítum, svörtum Suður-
Afríkubúum, norskum sömum og
indíánum að því er Dr. Hawkes
segir. Hawkes heldur því þó ekki
fram að MS smitist einungis við
kynferðislega snertingu heldur
aukist líkur á sjúkdómnum við
það.
Dr. Hawkes segir þar enn-
fremur að MS tilfelli hjá börnum
undir 16 ára séu tvisvar til þrisv-
ar sinnum algengari hjá stúlkum
en drengjum sem mögulega má
tengja kynferðislegri misnotkun.
Þessi ummæli Hawkes hafa
verið harðlega gagnrýnd m.a. af
Alastair Compston prófessor í
taugasjúkdómum við Cambridge
háskólann sem telur hana vera
skaðlega og særandi, sér í lagi
fyrir fjölskyldur þar sem nokkur
dæmi sjúkdómsins eru þekkt.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Aukning varð á tíðni MS-sjúk-
dómsins á Íslandi á árunum
1945 til 1954 þegar 50.000 her-
menn voru staðsettir á landinu,
að því er segir í rannsókn á
vegum dr. Hawkes á Bretlandi.
Smitast
MS-sjúk-
dómur við
kynmök?
.... og afköstin margfaldast!
www.h.is