Morgunblaðið - 21.09.2002, Qupperneq 48
48 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÓHÆTT er að segja að notendur
bíla hafi numið land hér með áþreif-
anlegum og sýnilegum hætti. Land-
námið hefur haft með sér lærð nú-
tímaþægindi en einnig haft
neikvæðar afleiðingar. Stöðugt
meira landsvæði fer undir bílvegi,
bílastæði og tengd mannvirki. Meng-
un vegna notkun-
ar bílsins er stað-
reynd sem öll
þéttbýlissvæði
hafa þurft að
glíma við. Sóun
kristallast í
„einka“bílnum
þar sem saman
fer léleg nýting á
samgöngumáta,
mikil notkun á
hráefni og marg-
vísleg mengun
sem er samfara flóknu framleiðslu-
ferli. Bílar eru fjárhagsleg sóun,
hvort sem mið er tekið af þjóðhags-
legri hagkvæmni eða þyngd pyngju
þegnanna. Eins og önnur nútíma-
þægindi á borð við sjónvarpið getur
óhófleg notkun bitnað á heilsu- og
holdafari. Sú staðreynd að bíllinn er
hættulegasti samgöngumáti sem völ
er á, hefur slegið stór skörð í okkar
samfélag og verið hvati að gagnrýn-
inni umræðu um hvernig við getum
haft samgöngur okkar sem örugg-
astar.
Neikvæðir fylgifiskar mikillar bíl-
notkunar hafa enda gert það að
verkum að víða hefur verið mörkuð
sú stefna að vinna markvisst gegn
neikvæðum áhrifum hennar. Hluti
þeirrar stefnumörkunar er sú við-
leitni sem yfirvöld víða í Evrópu
sýna með tilurð bíllausu vikunnar
sem fram fer 16.–22. september. Er
lögð sérstök áhersla á að fólk taki frá
næsta sunnudag, og bregði undir sig
betri fætinum en þá nær vikan há-
marki. Umhverfisráðherra hér á
landi hefur staðfest þátttöku okkar
Íslendinga í nánustu framtíð og telj-
umst við nú þátttakendur í þessu.
Þema vikunnar í ár snýst um al-
menningssamgöngur, hjólreiðar og
lífvænlegar götur fyrir mannvist.
Með þessu er verið að benda á þá já-
kvæðu valkosti sem okkur bjóðast til
samgangna. Í Reykjavík þýðir þetta
að við erum hvött til að taka strætó,
hjóla og ganga. Þannig verða breyt-
ingarnar. Fólkið sjálft tekur ákvörð-
un um hvernig samgöngur það vill
sjá í sínu samfélagi og styður þannig
í verki þá jákvæðu valkosti sem bjóð-
ast. Því fleiri sem hjóla því betur
verður búið að hjólreiðum. Því fleiri
sem velja strætisvagninn því betra
verður almenningsvagnakerfið.
Þetta ber stórbætt stígakerfi og
heildrænni hugsun í almennings-
samgöngum vott um. Í ljósi stefnu-
mörkunar umhverfisráðherra er
tækifæri til að verða samferða í
þeirri viðleitni að stuðla að hreinna
andrúmslofti, auka umferðaröryggi
og eyða meiru í uppeldismál og
minna í malbik. Fyrir 6 árum var
haldinn hvíldardagur bílsins í
Reykjavík. Hann gaf tóninn og er
ástæða til að endurvekja hann og
enn ríkari ástæða til að taka frá heila
viku. Best væri ef við hvíldum bílinn
sem oftast, allan ársins hring!
ÓSKAR DÝRMUNDUR
ÓLAFSSON,
nefndarmaður skipulags- og
byggingarnefndar Reykjavíkur.
Bíla má hvíla
Frá Óskari Dýrmundi Ólafssyni:
Óskar
Dýrmundur
Ólafsson
Morgunblaðið/Ómar
Óhófleg notkun einkabílsins getur bitnað á heilsu- og holdafari.
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060