Morgunblaðið - 21.09.2002, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Mána-
foss kemur og fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Staris og Haslo komu í
gær, Ljósafoss fór í gær.
Mannamót
Furugerði 1 og Norður-
brún 1. Haustlitaferð á
Þingvelli verður farin
fimmtud. 26. sept. Lagt
af stað frá Norðurbrún 1
kl. 12.45, síðan teknir far-
þegar í Furugerði 1.
Kaffiveitingar í Hótel
Valhöll. Ekið verður í
gegnum Grímsnes og
Hellisheiðin heim. Leið-
sögumaður Tómas Ein-
arsson. Skráning í s.
568 6960 Norðurbrún og
s. 553 6040 Furugerði.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Morgun-
ganga kl. 10 frá Hraun-
seli, rúta frá Firðinum kl.
9.50. Leikfimi eldri borg-
ara í íþróttamiðstöðinni
Björk á þriðju-, fimmtu-
og föstud. kl. 11.30,
skráning í Hraunseli, s.
555 0142.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Farin verður
hópferð til Akureyrar á
vegum FEBK vegna
þátttöku í 20 ára afmæli
Félags eldri borgara á
Akureyri, laugardaginn
12. október í Íþróttahöll-
inni á Akureyri. Uppl. og
skráning í Gjábakka (s.
554 3400) og Gullsmára
(s. 564 5260). Ferða-
nefndin: Bogi Þórir (s.
554 0233 og Þráinn (s.
554 0999). Almennur fé-
lagsfundur í félagsheim-
ilinu Gullsmára, í dag kl.
14. Benedikt Davíðsson,
form. LEB, ræðir kjara-
mál og samskipti við
stjórnvöld. Starfsemi og
stefnumál félagsins
verða einnig á dagskrá.
Félagsmenn eru hvattir
til að mæta.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Mánud. kl. 9.30
stólaleikfimi, kl. 10.15 og
11.15 leikfimi, kl. 12 leir-
vinnsla. Snyrtinám-
skeiðið byrjar 30. sept.
Þriðjud. kl. 9 vinnuhópur
gler, kl. 10.30 boccia, kl.
11.40 leikfimi karla, kl. 13
málun, kl. 13.30 tréskurð-
ur og spilað í Kirkjuhvoli.
Leshringurinn byrjar 1.
október. Miðvikud. kl.
9.30 stólaleikfimi, kl.
10.30 og 11.15 leikfimi, kl.
13.30 trésmíði nýtt og
notað og tréskurður, kl.
14 handavinnuhornið.
Fimmtud. kl. 9 vinnuhóp-
ur gler, kl. 10.30 boccia,
kl. 13 leikfimi karla, búta-
saumur byrjar 3. okt. og
postulínsmálun 10. okt.
Föstud. kl. 14.15
spænska, leirmótun byrj-
ar í okt. Félagsvist 26.
sept í Kirkjuhvoli kl.
19.30 í umsjá Félags eldri
borgara, Garðabæ.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Grafarvogi. Púttað
er annan hvern fimmtu-
dag á Korpúlfsstöðum kl.
10, og annan hvern
fimmtudag er leikin keila
í Keilu í Mjódd. Þriðju-
dagar kl. 9.45 og föstu-
dagar kl. 9.30 vatnsleik-
fimi í Grafarvogslaug,
byrjar þriðjudaginn 1.
okt. Síðasta miðvikudag í
hverjum mánuði eru
haldnir fræðslu- og
skemmtifundir í fundar-
sal Miðgarðs við Langa-
rima 21. Aðrir atburðir
eru auglýstir í Morgun-
blaðinu, á www.graf-
arvogur.is Nýir félagar
velkomnir. Uppl. í s.
5454 500, Þráinn Haf-
steinsson.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfir kór eldri
borgara í Damos. Laug-
ard.: kl. 10–12 bókband,
línudans byrjar 5. okt. kl.
11. Námskeið í postulíns-
málun byrjar 18. nóv.
Uppl. og skrán. Svanhild-
ur s. 586 8014 e.h.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is. Sunnudagur.
Dansleikur kl. 20. Má-
nud.: Brids kl. 13.
Þriðjud.: Skák kl. 13 og
alkort kl. 13.30. Miðvi-
kud.: Göngu-Hrólfar fara
í göngu frá Ásgarði kl.
10. Söngfélag FEB kór-
æfing kl. 17. Söngvaka kl.
20.45. Fyrirhugað er að
halda námskeið í fram-
sögn ef næg þátttaka
fæst. Uppl. á skrifstofu
FEB.
Haustlitaferð að Þing-
völlum 28. sept. Nesja-
vallavirkjun heimsótt.
Kvöldverður og dans í
Básnum. Skráning á
skrifst. FEB. Silfurlínan
opin á mánu- og miðvi-
kud. kl. 10–12. Skrifstofa
félagsins er flutt í Faxa-
fen 12, s. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í Ás-
garði, Glæsibæ. Uppl. á
skrifst. FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug á mánud.
og föstud. kl. 9. 30, boccia
á þriðjud. kl. 13 og
föstud. kl. 10. Fimmtd.
26. sept. „kynslóðir sam-
an“ í Breiðholti kl. 13.15,
félagvist, heimsókn frá
Seljaskóla, verðlaun, allir
velkomnir. Myndlist-
arsýning Brynju Þórð-
ardóttur opin í dag og á
morgun kl. 13–16 lista-
maðurinn á staðnum.
Veitingar í Kaffi Bergi.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Vesturgata 7. Haustlita-
ferð verður farin miðvi-
kud. 25. sept. kl. 10.
Steina- og íþróttasafnið á
Akranesi skoðað,
Byggðasafnið opið. Há-
degisverður í Hreða-
vatnsskála, súpa, brauð
og kaffi. Ekið að Para-
dísarlundi og fossinn
Glanni skoðaður. Komið
við í Borgarnesi á heim-
leið. Farmiðar óskast
sóttir fyrir mánud. 23.
sept. Glerlistarnámskeið
byrjar 10. okt. Jóga-
námskeið hefst mánud.
23. sept. kl. 10.30–11.30,
einnig verður kennt á
miðvikud. 10.30–11.30.
Glerlistarnámskeið byrj-
ar fimmtud. 10. okt. kl.
9.15–12. Getum bætt við
okkur nemendum í búta-
saumi á þriðjudögum.
Skráning í námskeið í s.
562 7077.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Púttað á
Listatúni í dag, laug-
ardag, kl. 10.30.
Gönguklúbbur Hana-nú.
Morgunganga kl. 10
laugardagsmorgna frá
Gjábakka. Krummakaffi
kl. 9. Allir velkomnir.
Hæðargarður. Mál-
verkasýning Gerðar Sig-
fúsdóttur er opin virka
daga frá kl. 13–16 til 31
okt.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánudags-
kvöld kl. 20.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Opið virka daga kl. 9–17
hádegismatur, kaffi og
heimabakað meðlæti.
Félag fráskilinna og ein-
stæðra. Fundur í kvöld
kl. 21 í Konnakoti, Hverf-
isgötu 105. Nýir félagar
velkomnir. Munið göng-
una mánu- og fimmtu-
daga.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s. 530 3600.
Stuðningsfundir fyrrver-
andi reykingafólks. Fólk
sem sótt hefur námskeið
gegn reykingum í Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hvera-
gerði, fundur í Gerðu-
bergi á þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í Sel-
tjarnarneskirkju (kjall-
ara), kl. 20.30 á fimmtu-
dögum í fræðsludeild
SÁA Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis, fund-
ir mánudaga kl. 20 á Sól-
vallagötu 12. Stuðst er
við 12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Kattholt. Flóamarkaður í
Kattholti, Stangarhyl 2,
er opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Leið 10 og 110 ganga að
Kattholti.
Digraneskirkja Kirkju-
starf aldraðra, starfið
hefst með ferðalagi
þriðjud. 24. sept. Farið
verður með Guðrúnu Ás-
mundsóttur á slóðir Ein-
ars Benediktssonar, lagt
af stað frá kirkjunni kl.
13 áætluð heimkoma kl.
22. Skráning hjá Önnu, s.
554 1475
SVDK, Hraunprýði,
Hafnarfirði, heldur auka
aðalfund þriðjudaginn
24. sept. kl. 20 í húsi
deildarinnar í Hjalla-
hrauni 9. Dagskrá kosn-
ing nýs formanns.
Í dag er laugardagur 21. sept-
ember, 264. dagur ársins 2002.
Mattheusmessa. Orð dagsins:
Sé því líkami þinn allur bjartur
og hvergi myrkur í honum, verður
hann allur í birtu, eins og þegar
lampi lýsir á þig með loga sínum.
(Lúk. 11, 36.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 horskur, 4 fámál, 7
lengjan, 8 hyggur, 9
skyggni, 11 vætlar, 13
fræull, 14 klukkunni, 15
konum, 17 sitjandi, 20
rösk, 22 slétta, 23 gerir
hrokkið, 24 veðurfarið,
25 daufa ljósið.
LÓÐRÉTT:
1 heiðra, 2 lengdarein-
ing, 3 brún, 4 hreinsar, 5
lögmæta, 6 nemur, 10
vafinn, 12 rekkja, 13 son-
ur, 15 á, 16 fjandskapur,
18 fjármunir, 19 undir-
nar, 20 veit, 21 svanur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 göfuglynd, 8 suddi, 9 kopar, 10 nóa, 11 rúman,
13 norna, 15 hrygg, 18 smala, 21 rok, 22 fagni, 23 aurum,
24 valdafíkn.
Lóðrétt: 2 öldum, 3 urinn, 4 lúkan, 5 napur, 6 Æsir, 7
þráa, 12 arg, 14 orm, 15 hafi, 16 yngra, 17 grind, 18
skarf, 19 afrek, 20 aumt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Lambakjöt
HVERNIG stendur á því
að það er hrein hending að
finna ókryddlegið íslenskt
lambakjöt í hillum mat-
vöruverslana?
Á okkar heimili er
ókryddlegið íslenskt
lambakjöt í mestu uppá-
haldi. En það er einfaldlega
mjög sjaldan fáanlegt. Eftir
að hafa fengið grillað
kryddlegið lambakjöt allt
sumarið (af því að það fæst
ekki ókryddlegið) fer heim-
ilisfólkið að biðja um
ókryddlegið lambakjöt þeg-
ar líður að hausti.
Annað slagið sjást fyrir-
sagnir í blöðum um að sauð-
fjárbændur séu í vandræð-
um með að selja kjötið sitt.
Við hjónin fórum saman út
að kaupa í matinn um dag-
inn og þá var fáanlegt
svínakjöt og nautakjöt bæði
sem lundir, snitsel, gúllas
og hakk. Lambakjöt var
hvergi sjáanlegt.
Nokkrum dögum síðar
kom auglýsingabæklingur
frá ákveðinni verslun inn
um bréfalúguna þar sem
auglýst var ferskt lamba-
kjöt á niðursettu verði.
Þegar í búðina kom var
lambakjötið í stórri frysti-
kistu úti á miðju gólfi, súpu-
kjöt innpakkað í stóra
plastpopka, minnst hálfur
skrokkur í hverjum poka,
og var 1⁄3 hlutinn hreint kjöt,
en afgangurinn bein og fita.
Okkur finnst það algjör
þversögn að bændur skuli
sitja uppi með óselt lamba-
kjöt, en samt er það ekki fá-
anlegt í kjötverslunum.
Getur einhver útskýrt
þetta?
Stína og Geiri.
Skattlagning
lífeyrissjóðstekna
Í TILEFNI af fyrirspurn í
Velvakanda hinn 13. sept-
ember sl. vill stjórn Félags
eldri borgara í Reykjavík
með ánægju upplýsa hér
með að undirbúningur
málsins vegna skattlagn-
ingar lífeyrissjóðstekna sé
á lokastigi. Nokkrar tafir
hafa orðið á málinu vegna
álitaefna um hvernig heppi-
legast sé að leggja málið
fyrir dómstóla, en gert er
ráð fyrir að málinu verði
stefnt inn á næstu dögum.
Reykjavík, 18. septem-
ber 2002.
Stjórn Félags eldri
borgara í Reykjavík.
Fréttaflutningur
FRÉTTIR í fjölmiðlum eru
fluttar margoft á dag og sí-
fellt sömu fréttirnar dag
eftir dag. Þetta er afar leiði-
gjarnt og fréttamenn ættu
því að takmarka endur-
tekningar sínar svo sem
mögulegt er. Ég er ekki
sérlega fréttasjúkur maður
og þetta finnst mér of mikið
af því góða hvað varðar
endurtekningar.
Það eru vinsamleg til-
mæli mín að á þessu verði
ráðin bót. Ekki meir um
það að segja, en þetta finnst
mér svo sannarlega.
Páll Hannesson,
Ægisíðu 86.
Tapað/fundið
Nokia 6210 týndist í
miðbænum
AÐFARANÓTT sunnu-
dagsins 1. september týnd-
ist svartur Nokia 6210 í
miðbæ Reykjavíkur. Hann
var í svartri leðurtösku og
það er sprunga í skjánum.
Finnandi er vinsamlegast
beðinn um að hafa samband
í símum 695-0120 eða 699-
4853. Góð fundarlaun í boði.
Byssuskefti týndist
BYSSUSKEFTI týndist í
Reykjavík. Skeftið var í
bláum kassa sem var á
toppi bíls. Þeir sem hafa
fundið byssuskeftið vin-
samlega hafi samband í s.
895 7951 eða 568 5599.
Dýrahald
Dimma er týnd
DIMMA týndist frá Garð-
húsum 14 30. maí sl. Hún er
brúnsvört, frekar lítil og
var með rauða ól sem gæti
verið dottin af henni. Þeir
sem gætu gefið uppl. um
Dimmu hafi samband í s.
557 9224 og 847 0794.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
EFTIR magurt sjónvarpssumarer vetrardagskráin óðum að
hefja innreið sína og kennir þar
margra grasa að vanda.
Sjónvarpið ætlar sem oft áður að
leggja traust sitt á gamla og seiga
góðkunningja. Víkverji hefur átt erf-
itt með að gera upp við sig hvort end-
urkoma Spaugstofunnar sé góð eða
slæm tíðindi. Hafi Spaugstofumenn
endurnærst í hinu kærkomna og
löngu tímabæra fríi frá skjánum og
náð að uppgötva á ný neistann sem
einkenndi samstarfið fyrstu árin, svo
ekki sé talað um þegar þeir Örn, Siggi
og Karl Ágúst kættu landann undir
yfirskriftinni Sama og þegið, þá er í
vændum hinn gleðilegasti vetur. Taki
þeir hins vegar upp þráðinn í ná-
kvæmlega sama ásigkomulagi og
þegar við hann var skilið er æði lík-
legt að Víkverji muni brátt fara að
sakna Fóstbræðra sárt.
x x x
ÞAÐ mætti segja Víkverja að þeir íEfstaleiti bíði þess dags í ofvæni
er Gísli Marteinn snýr aftur á skjáinn
og stýrir nýjum spjallþætti sínum
sem verður á laugardögum í vetur.
Eftir að hann hvarf úr Kastljósinu
hefur það einungis verið smátíra og
þeir sem hann hafa leyst af engan
veginn náð að fylla það skarð sem
hann skildi eftir sig. Vafalaust binda
menn miklar vonir við þátt Gísla Mar-
teins enda hefur hann þegar sýnt það
með framgöngu sinn í Kastljósinu að
hann er sá fyrsti sem virðist hafa tök
á að þræða meðalveg gamans og al-
vöru, gæddur þeim sjaldgæfu hæfi-
leikum að vera jafnvígur á hvort
tveggja, geta spjallað við skemmti-
krafta á alvarlegum nótum og stjórn-
málamenn á léttum.
x x x
Á SKJÁ einum virðist innlendadagskrárgerðin að komast í
fastar skorður, tilraunastarfsemin
orðin hófstemmdari og þáttagerðin
markvissari og vandaðri. Alltaf
ánægjulegt að sjá þegar menn læra af
reynslunni. Innlit-Útlit hefur klár-
lega sannað sig sem best heppnaði
þátturinn sem stöðin hefur getið af
sér. Vala Matt hefur líka haldið svo
um taumana að stöðug endurnýjun
hefur átt sér stað – þátturinn tekið
breytingum frá vetri til vetrar og sér-
deilis vel til fundið að skipta svo
reglulega um meðstjórnendur. Þeir
hafa verið æði misjafnir. Þorsteinn
Gunnarsson og Fjalar Sigurðarson
höfðu sáralítið til málanna að leggja
og maður velti oft fyrir sér hvað þeir
væru að gera þarna með Völu. Inn-
koma Friðriks Weisshappel var því
eins og ferskur blær, kunnátta hans
hefur verið þættinum gagnleg, en
innskotin reyndar misjafnlega áhuga-
verð og innihaldsrík. Arthúr Björgvin
Bollason átti hins vegar aldrei heima í
þætti sem þessum, kom fyrir eins og
honum fyndist hann vera að taka nið-
ur fyrir sig, brá sér enda í gamla
menningarvitagírinn og virtist hafa
ætlað að gera úr alvörugefinn þátt
um menningu og listir. Víkverji hefur
séð Kormák Geirharðsson í einum
þætti og lofar hann svo sannarlega
góðu. Kormákur sýndi þegar hann
stýrði hinum fantagóða dægurmenn-
ingarþætti Vélinni að þar færi fædd-
ur sjónvarpsmaður, afslappaður,
öruggur og öðruvísi. Lúmskur húm-
oristi er hann svo einnig en það var
einmitt það sem þurfti í Innlitið því
viðfangefnið – allur þessi hégómi og
prjáldýrkunin – er náttúrlega bráð-
fyndið ef út í það er hugsað, nokkuð
sem Vala og hinir stjórnendurnir
virðast engan veginn hafa fattað.
ÞESSI mynd var
sett í innrömmun
hjá Rammagerð-
inni fyrir mörg-
um árum. Var
hún aldrei sótt og
er verið að leita
að eiganda
myndarinnar.
Upplýsingar gef-
ur Einar í síma
893 2946.
Hver á
myndina?