Morgunblaðið - 21.09.2002, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert kappsfullur, með
áhuga á mörgum sviðum og
átt auðvelt með að fá aðra til
að vinna með þér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gættu þess að einhver
augnablikshrifning leiði
þig ekki afvega svo þú
ratir ekki í áfangastað
með verkefni þitt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þótt þú hafir í mörg horn
að líta máttu ekki gleyma
vinum þínum. Njóttu
hans og deildu með þín-
um nánustu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Sumir hlutir virðast svo
flóknir og fjarlægir að
þér finnst þú hafir ekkert
í þá að gera.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vertu ekki með neitt
múður þótt vinir þínir séu
ekki akkúrat eins og þú
vilt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér finnst að þér sótt úr
öllum áttum svo þér er
nauðsynlegt að finna ein-
hverja vörn gegn um-
hverfinu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gættu þess að skapa ekki
stærri vandamál með
framkomu þinni heldur
en þau sem þú ætlar að
leysa.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Eitthvað hvílir þungt á
þér og hindrar þig í að af-
reka mikið. Láttu ekki
aðra fara í taugarnar á
þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert óvenju góðhjartað-
ur og samúðarfullur
þessa dagana. Sinntu því
vinum þínum og gefðu
þér tíma til að hlusta á þá.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú munt sjá að hæfileiki
þinn til að láta þig
dreyma getur skilað ríku-
legum árangri.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er gaman að sigla
fyrir fullum seglum en
vertu viðbúinn því að
vindurinn geti blásið úr
annarri átt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þér finnst þú hafa gert
skýra grein fyrir þinni af-
stöðu og skilur ekki við-
brögð sumra.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ættir að láta slag
standa og framkvæma
hlutina eins og þú sérð
fyrir þér að best verði.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
REYNSLAN er ólygnust
og hún kennir þá lexíu að
það borgi sig yfirleitt að
segja satt og rétt frá spil-
unum. Ávinningurinn af
því að blekkja mótherjana
vegur engan veginn upp
kostnaðinn sem hlýst af því
að villa um fyrir makker.
Þetta er hin almenna
reynsluregla, en stundum
koma þó upp stöður sem
beinlínis kalla á blekkingu.
Skilyrðið er þá alltaf hið
sama – makker er óvirkur
þátttakandi í sögnum.
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ K107
♥ ÁG3
♦ ÁKD974
♣2
Vestur Austur
♠ Á9862 ♠ DG53
♥ 92 ♥ 64
♦ 852 ♦ G1063
♣1075 ♣D43
Suður
♠ 4
♥ KD10875
♦ –
♣ÁKG986
Vestur Norður Austur Suður
– 1 tígull Pass 1 hjarta
Pass 3 hjörtu Pass 4 spaðar *
Pass 5 tíglar * Pass 7 hjörtu !
Pass Pass Pass
Spilið kom upp í Spin-
gold sveitakeppninni á
sumarleikum Bandaríkja-
manna í júlí. Í NS voru lítt
þekktir spilarar utan
Bandaríkjanna, Roger
Lord og Peggy Kaplan.
Það var Lord sem hélt á
spilum suðurs.
Eftir tígulopnun og
hjartasvar, valdi Kaplan að
stökkva í þrjú hjörtu, þrátt
fyrir að eiga aðeins þrílit.
Hinn möguleikinn var að
segja þrjá tígla og eiga á
hættu að tína 5-3 samlegu í
hjarta. Það kom sér vel
fyrir Lord í suður að fá
stuðning við hjartað og
hann ákvað þar og þá að
leggja snöru fyrir vestur.
Hann stökk í fjóra spaða
sem er kerfisbundið spurn-
ing um ása (lykilspil) FYR-
IR UTAN spaðann. Þessi
sagnvenja heitir „exclusion
Balckwood“ á ensku og er
notuð þegar spyrjandi er
með eyðu í viðkomandi lit
og kærir sig þar kollóttan
um þann ás. Norður sýndi
tvo ása fyrir utan spaðann
og Lord stökk í alslemmu.
Víkur nú sögunni til
vesturs, sem hélt á spaða-
ásnum. Hann spurði vel og
vandlega út í sagnir, en
ákvað svo að spila út
hjarta, því ekki vildi hann
láta trompa spaðaásinn og
fría hugsanlega slag eða
slagi á spaða í blindum.
Þetta var hugmyndarík
blekking, sem átti skilið að
heppnast. En í raun er hún
betri með blankan kóng í
spurnarlitnum, því þá er
öruggt að útspilarinn er
ekki með ÁK.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
SUMARVÍSUR
Sumarið þegar setur blítt
sólar undir faldi,
eftir á með sitt eðlið strítt
andar veturinn kaldi.
Felur húm hið fagra ljós,
frostið hitann erfir,
væn að dufti verður rós,
vindur logni hverfir.
Lýðum þegar lætur dátt
lukku byrinn mildi,
sínum hug í sorgar átt
sérhver renna skyldi.
Þorlákur Þórarinsson
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6.
Bg5 e6 7. Dd2 a6 8. 0–0–0 h6
9. Be3 Bd7 10. f3 b5 11. Rxc6
Bxc6 12. Re2 Dc7 13. Kb1
Be7 14. h4 Bb7 15. Rd4 Rd7
16. g4 Re5 17. Be2 Hc8 18.
b3 Dc3 19. Dxc3 Hxc3 20.
Bd2 Hc8 21. h5 d5 22. f4 Rc6
23. Rxc6 Bxc6 24. e5 f6 25.
exf6 gxf6 26. Bd3 Kd7 27.
Bg6 d4 28. Hhf1 Bd5 29. Be1
Bc5 30. c3 f5 31. gxf5 Be4+
32. Kb2 exf5 33. b4
Be7 34. Hxd4+ Ke6
Zigurds Lanka
hafði hvítt í stöð-
unni gegn stór-
meistaranum
Konstantin Lerner
í þýsku deilda-
keppninni 1998. 35.
Hxe4+! fxe4 36.
f5+ Kd5 37. f6 Bd6
38. Bf7+ Kc6 39.
Hf5 e3 40. Bd5+
Kd7 41. f7 Hh7 42.
Hf3 Hf8 43. Hxe3
Hhxf7. Með þessu
kýs svartur að gefa
skiptamuninn til baka en
engu að síður er staða hans
töpuð. Framhaldið varð: 44.
Be6+ Kc6 45. Bxf7 Hxf7 46.
Bg3 He7 47. Hd3 He2+ 48.
Kb3 Be7 49. Bf4 He6 50.
He3 Hxe3 51. Bxe3 Bf8 52.
c4 Bg7 53. a4 Bf8 54. cxb5+
axb5 55. a5 Kd5 56. a6 Kc6
57. Bc5 Bg7 58. Kc2 Bf6 59.
Be3 Bg7 60. Kd3 Bf8 61.
Bc5 Bg7 62. Ke4 Bc3 63.
Kf5 Bd2 64. Ke6 Bf4 65. a7
Kb7 66. Kd7 Bd2 67. a8=D+
Kxa8 68. Kc6 Kb8 69. Kxb5
Kb7 70. Kc4 Kc6 71. b5+
Kd7 72. Kd5 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 21.
september, er sjötugur
Bjarni Sæmundsson, pípu-
lagningameistari, Kirkju-
lundi 6, Garðabæ. Eigin-
kona hans er Gíslína
Vilhjálmsdóttir. Þau eru að
heiman í dag.
60 ÁRA afmæli. Sl.fimmtudag 19. sept-
ember varð sextug Svan-
hildur Jónsdóttir, bóndi í
Flatey á Breiðafirði. Svana
bóndi er í göngum þessa
dagana og dvelst í bústöðum
Starfsmannafélags Land-
helgisgæslunnar í Djúpa-
firði, Gufudalssveit (sími
853-0000) ásamt afkomend-
um, ættingjum og vinum.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, 22. septem-
ber, er fimmtug Helga M.
Steinsson skólameistari,
Neskaupstað. Af því tilefni
taka hún og eiginmaður
hennar, Einar Már Sigurð-
arson, á móti gestum í Blús-
kjallaranum í dag, 21. sept.,
kl. 17–19.
BRIDSSKÓLINN
Námskeiðin hefjast í næstu viku:
Byrjendur: Hefst 25. september og stendur
yfir í 10 miðvikudagskvöld,
þrjár klukkustundir
í senn, frá kl. 20-23.
Framhald: Hefst 23. september og stendur yfir
í 10 mánudagskvöld, þrjár klukkustundir
í senn, frá kl. 20-23.
Staður: Síðumúli 37 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247
milli kl. 13 og 18 laugardag og sunnudag.
ATH. Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði.
yogawest.isSeljavegi 2
fyrir
BARNSHAFANDI
sími: 511-2777D þri. og fim. kl. 16.15-17.15
GAY O
YOGASTÖÐ VESTURBÆJAR
3.-31. október
fimmtudaga. kl. 18.45-20.15 Yuri Musatov
fyrir K A R L M E N N
Leiðbeinandi:
GAY O
yogawest.isSeljavegi 2 sími: 511-2777
YOGASTÖÐ VESTURBÆJAR
Skráning og upplýsingar í síma 562 1132 og 562 6632
og á www.samskipti.org
Hugo Þórisson Wilhelm Norðfjörð
Nú er að hefjast nýtt námskeið fyrir foreldra í samskiptum foreldra og barna.
Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir Hugo Þórisson og Wilhelm Norðfjörð.
www.samskipti.org
Hef flutt
rekstur tannlæknastofu minnar
í Hlíðasmára 14, Kópavogi.
Allar almennar tannlækningar.
Tannplantar.
Tímapantanir í síma 555 1070.
Júlíus Helgi Schopka, tannlæknir.
NÝBAKAÐIR FORELDRAR
TAKIÐ EFTIR!
Næstu námskeið fyrir foreldra barna á fyrsta ári
AÐ NJÓTA FORELDRAHLUTVERKSINS
hefjast 3. okt., 17. okt. og 31. okt.
Námskeiðin standa í 2½ tíma í þrjú skipti og
eru haldin í BORGUM, safnaðarheimili
Kársnessóknar v/ Urðarbraut, kl. 19.30-22.00.
Allir foreldrar velkomnir burtséð frá búsetu.
Takmarkaður fjöldi á hvert námskeið.
Upplýsingar og skráning hjá Herthu
í síma 860 5966, netfang hertha@mi.is
og hjá Kristínu í síma 865 7970,
netfang kristingud@isl.is alla daga.