Morgunblaðið - 21.09.2002, Side 54
54 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SÝNINGIN ber heitið Hætt-a-telja!
og vísar þar í „Royi Roggers“, upp-
hafslag hinnar vinsælu plötu Fyrr
má nú aldeilis fyrrvera frá 1977. Það
lag er svo aftur á móti titillinn á 23
laga safndiski, sem tekur yfir þær
fjórar plötur sem þeir bræður gáfu
út á árunum ’75 til ’80. Það er því
margt og mikið á seyði hjá bræðr-
unum grínaktugu um þessar mundir.
„Það er nokkuð langt síðan við
höfum komið fram,“ segir Halli,
Haraldur Sigurðsson, þar sem við
sitjum þrír inni í forláta reykher-
bergi í Loftkastalanum. Engar eru
retturnar þó. „Við höfum samt kom-
ið fram í sýningum með öðrum und-
anfarin ár.“
Laddi, Þórhallur Sigurðsson, seg-
ir þá hafa byrjað að starfa saman
1972, er þeir unnu saman í sjónvarp-
inu, eins og frægt er orðið.
„Kannski ekki alveg Halli og
Laddi í byrjun,“ viðurkennir Laddi.
„Við byrjuðum á því að ljá Glámi og
Skrámi raddirnar okkar en seinna
fórum við svo að skemmta.“
Á þessum tíma þóttu þeir bræður
æði djarfir í gríninu, stunduðu eitt-
hvað sem sumum þótti varla tækt.
„Já…það má segja að fólk hafi
ekki almennilega áttað sig á þessu,“
segir Laddi. „Við vorum með svona
atriði þar sem við hreyfðum varirnar
í takt við grínistann Spike Jones.
Eldra fólkið var t.d. ekki alveg með á
nótunum og einu sinni stóð roskinn
maður upp og sagði „Hvurs lags
fíflalæti eru þetta eiginlega!?“ Við
tókum bara dótið okkar saman, fór-
um út og hringdum í Ómar Ragn-
arsson og báðum hann um að redda
þessu!“
„Sýning er þetta!“
Bræðurnir eru spurðir hvort þeir
séu sammála því að þeir hafi aldrei
náð þeim vafasama árangri að verða
hallærislegir. Það er greinilegt á
svörum þeirra að þeir eru ekki réttu
mennirnir til að svara því.
„Ja…“ segir Halli. „Kannski höf-
um við alltaf verið það, ég veit það
ekki (hlær).“ Blaðamaður, sem ólst
upp við Halla og Ladda-plötur,
ákveður því bara með sjálfum sér að
þeir séu sígild snilld.
Sýningin verður byggð upp eins
og téður diskur; s.s. brot af því besta.
„Þetta verður söngur og gleði,“ segir
Laddi. „Og við miðum þetta út frá
því að koma sem flestum persónum
fyrir.“
Á árunum ’75 til ’80 réðu Halli og
Laddi lögum og lofum í skemmti-
bransa Íslands. Þá komu og út plöt-
urnar Látum sem ekkert C (’76 með
Gísla Rúnari Jónssyni), Fyrr má nú
aldeilis fyrrvera (’77), Hlúnkur er
þetta (’78) og Umhverfis jörðina á 45
mín. (’80).
„Það má eiginlega segja það já,“
segir Laddi þegar hann er inntur eft-
ir meintu alræði þeirra bræðra á
þessum tíma.
„Eftirspurnin var gríðarleg,“ sam-
sinnir Halli. „Þetta fór upp í þetta
13–14 skemmtanir á viku stundum.
Ég man að einn laugardaginn vorum
við með átta sýningar.“
Það er því greinilega ekkert gam-
anmál að vera gamanleikari. Annað-
hvort virka hlutirnir…eða ekki. Halli
jánkar þessu og segir þá hafa rennt
blint í sjóinn með þetta.
„Við vissum hvað við vorum að
fara að gera en hins vegar vissum við
ekkert hvað myndi gerast.“
Laddi segir að Saxi læknir, sem
var fyrsta persónan þeirra, hafi t.d.
ekki virkað.
„Hann sat á bak við borð og til
hans kom sjúklingur. Fólk horfði
bara forviða á. Það var ekki nógu
mikið fjör í gangi þannig að við fór-
um að sprella meira, vera með hopp
og hí. Keyrðum atriðin hraðar og
höfðum skrýtlurnar styttri. Þá man
ég að einn akureyrskur áhorfandi
sagði (talar með norðlenskum hreim)
„Þetta er ekki brandari. Þetta er
alltof stutt!“
Sýning bræðranna verður frum-
sýnd næsta föstudag og verður
keyrð áfram eins lengi og þörf þykir.
Það auðsjáanlegt að Halla og Ladda
líst prýðilega á þetta og þeir útiloka
ekki neitt um áframhaldandi sam-
starf.
„Við höfum aldrei sagt aldrei,“
segir Laddi að lokum og glottir.
30 ára afmælissýning Halla og Ladda í Loftkastalanum
„Flikk flakk heljarstökk,
hnakka- og hliðarstökk!“
Morgunblaðið/Kristinn
Konungar
kómedíunnar
Halli og Laddi eru efalaust vinsælasta grín-
par sem fram hefur komið hér á landi. Arnar
Eggert Thoroddsen spjallaði við bræðurna
vegna yfirvofandi afmælissýningar, sem
frumsýnd verður um næstu helgi.
arnart@mbl.is
Halli og Laddi: Meira grín, meira gaman!
ARI Í ÖGRI Liz Gammon.
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi
Hljómsveitin Traffic.
CAFÉ AMSTERDAM Vítamín.
CAFÉ CATALÍNA Sváfnir Sigurð-
arson trúbadúr.
CAFÉ ROMANCE Ray Ramon og
Mete Gudmundsen spila.
CATALÍNA Stórsveit Péturs Krist-
jánssonar.
CELTIC CROSS Bjarni Tryggva.
CHAMPIONS
CAFÉ Léttir
sprettir.
EGILSBÚÐ Tón-
leikar með
Bubba Mort-
hens og Heru.
FESTI GRINDA-
VÍK BSG.
FYLKISHÖLLIN
Bítlavinafélagið.
GAUKUR Á
STÖNG 6 ára afmæli Undirtóna.
Mínus, Vínyll, Daysleeper og Jet
Black Joe.
GRANDROKK Trabant.
GULLÖLDIN Svensen og Hall-
funkel.
HAFNARBARINN SkuggaBaldurs.
HÓTEL BORG Nökkvi S.
INGHÓLL Buff & Bjórbandið.
KAFFI REYKJAVÍK Sniglabandið.
KAFFI-LÆKUR Njalli í Holti.
KAFFI-STRÆTÓ Dansi-dúóið Siggi
Már og Íris.
KAFFISETRIÐ Taílenskt kvöld.
KRINGLUKRÁIN Úlfarnir.
NIKKABAR Mæðusöngvasveit
Reykjavíkur.
O’BRIENS Sigurður Þórólfsson pí-
anóleikari.
ODD-VITINN Stuðsveitin Bahoja.
PAKKHÚSIÐ Heiðursmenn og Kol-
brún.
PLAYERS-SPORT BAR Manna-
korn.
RABB-BARINN Tríóið MÁT spilar
á opnunarhátíð.
RÁIN Hafrót.
SJALLINN, Ak Á móti sól.
STAPINN Papar.
VIÐ POLLINN Hljómsveitin PKK.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Páll Rós. úr
Jet Black Joe.
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14.
Sýnd kl. 2 og 4.
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Yfir 14.000 MANNS
Sýnd kl. 6 og 8.
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.
HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 2, 4 og 6. með ísl. tali.
Allir áttu þeir eitt
sameiginlegt.........ekki neitt
Sýnd kl. 3.30 og 5.30.
miðaverð aðeins 350 kr!
STUTTMYND
HL Mbl
Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 2.30, 5.15, 8, 9 og 10.40. B.i. 14.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. með ísl. tali.
HL Mbl
Yfir 14.000 MANNS
kl. 2, 4.45, 7.30 og 10.10.
Kvikmyndir .com
DV
Sýnd kl. 8.
The Sweetest Thing
Sexý og Single
miðaverð aðeins 350 kr!
STUTTMYND HJ Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 2, 2.45, 3.30 og 4.15.
Sýnd með íslensku tali.
Ný Tegund Töffara
HK DV
„ARFTAKI
BOND ER
FUNDINN!“
Sýnd kl. 5, 8 og 10. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. með ísl. tali.
FRUMSÝNING