Morgunblaðið - 21.09.2002, Qupperneq 60
ÞESSI fallegi hundur var ánægður
með að komast aðeins út undir bert
loft og gekk ákveðnum skrefum út
götuna. Eigandi hans fylgdi fast á
eftir og þurfti nánast að hlaupa við
fót. Heldur votviðrasamt hefur ver-
ið um sunnan- og vestanvert landið
að undanförnu. Það breytir ekki því
að hundarnir þurfa að fá sinn
reglulega göngutúr.
Morgunblaðið/Kristinn
Úti að
viðra
hundinn
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
LANDSVIRKJUN undirritaði í
gær samning við norska fyrirtækið
Statnett og verkfræðistofurnar Afl
og Línuhönnun um að vinna með
starfsmönnum Landsvirkjunar að
ítarlegri athugun á því hvernig
auka megi nýtingu raforkuflutn-
ingskerfis fyrirtækisins betur.
Statnett á og rekur flutningskerfi
raforku í Noregi og hefur nýlokið
svipaðri athugun á sínu kerfi sem
tók þrjú ár. Leiddi sú athugun í ljós
að hægt var að auka orkuflutning
umtalsvert, eða um 20-47%, með
frekar litlum tilkostnaði og nýjum
vinnureglum við stjórn kerfisins.
Verkfræðistofurnar hafa sömuleiðis
mikla reynslu af því að vinna út-
tektir sem þessar á raforkukerfum
hér heima og erlendis.
Í tilkynningu frá Landsvirkjun
kemur fram að ákveðið hafi verið að
leita nýrra og óhefðbundinna leiða
til að lækka kostnað við rekstur og
uppbyggingu raforkuflutningskerf-
isins með það að markmiði að nýta
betur það kerfi sem fyrir er, með
aukna hagkvæmni að leiðarljósi.
Megintilefnið er aukin þörf fyrir
orkuflutning vegna frekari upp-
byggingar stóriðjuvera hér á landi,
þ.e. álverið í Reyðarfirði og stækk-
anir álveranna á Grundartanga og í
Straumsvík.
Leiðirnar sem verða farnar eru
einkum þær að auka flutningsgetu
kerfisins með uppsetningu nýs bún-
aðar í spennistöðvum, breyta línum
þannig að þær þoli meiri orkuflutn-
ing, setja upp vöktunar- og stjórn-
búnað sem gerir kleift að ganga
nær þolmörkum búnaðar og kerf-
iseininga og breyta vinnubrögðum
og auka þjálfun þeirra sem stýra
raforkukerfinu.
Gæti tekið nokkur ár
Landsvirkjun telur að sú vinna
sem nú er að hefjast muni leiða til
hagkvæmari uppbyggingar flutn-
ingskerfisins á næstu áratugum og
muni lágmarka þörf á nýjum línum.
Er það sagt í samræmi við um-
hverfisstefnu fyrirtækisins. Ómar
Imsland, verkefnisstjóri hjá Lands-
virkjun, sagði við Morgunblaðið að
með samningnum væri Landsvirkj-
un að fá til liðs við sig góða og
reynslumikla sérfræðinga. Verkefn-
ið væri líka umfangsmikið og gæti
tekið nokkur ár.
Ómar sagði að þolmörk þess bún-
aðar, sem notaður væri við flutning
raforku, væru yfirleitt skilgreind af
framleiðendunum. Norska fyrir-
tækið hefði unnið rannsóknir sem
sýndu að búnaðurinn þyldi yfirleitt
meiri flutning en framleiðendur
gæfu upp.
„Ef notendur eru tilbúnir að taka
áhættuna með auknum flutningi,
sem gæti þýtt útleysingu raforku
um einhvern tíma, þá er það talið
þess virði. Til að þetta verði hægt
þarf að fara fram ítarleg athugun á
flutningskerfinu í heild,“ sagði Óm-
ar.
Aðspurður hvað mætti reikna
með mikilli aukningu á flutnings-
getu Landsvirkjunar sagði Ómar
erfitt að segja það á þessari stundu.
Norðmenn hefðu náð allt að 47%
aukningu og ekki væri óeðlilegt að
Landsvirkjun setti sér í upphafi
svipuð markmið á vissum flutnings-
leiðum. Útkoman myndi síðan koma
í ljós.
„Grundvallaratriði í þessu er að
auka flutningsgetuna ekki það mik-
ið að kerfið láti undan. Af þeim sök-
um getur svona athugun tekið lang-
an tíma þar sem huga þarf að
fjölmörgum þáttum. Við megum
heldur ekki gleyma því að við höf-
um viðkvæma viðskiptavini eins og
álverin sem þola ekki rafmagnsleysi
í langan tíma,“ sagði Ómar.
Landsvirkjun með samning við norskt fyrirtæki og íslenskar verkfræðistofur
Markmiðið að auka flutn-
ingsgetu raforkukerfisins
EINN skólastjóri er nú við Ás-
landsskóla í Hafnarfirði. Að sögn
Magnúsar Baldurssonar, fræðslu-
stjóra Hafnarfjarðarbæjar, hefur
Skarphéðni Gunnarssyni, sem var
skólastjóri Íslensku menntasamtak-
anna, verið gerð grein fyrir afstöðu
bæjaryfirvalda og að litið sé svo á
að hann sé starfsmaður Hafnar-
fjarðarbæjar. Í því felst að hann
mun ekki gegna skólastjórastöðu
þar sem bæjarstjórn hafi ráðið nýj-
an skólastjóra en jafnframt var ósk-
að eftir að hann sinnti kennslu sam-
kvæmt stundaskrá ásamt öðrum
skyldustörfum.
Magnús segir að þannig hafi
gærdagurinn gengið fyrir sig og að
Skarphéðinn hafi kennt sína tíma
samkvæmt stundaskrá. Ekki náðist
í Skarphéðin í gær.
Ákveðið að hvíla ákveðna
þætti skólastarfsins
Að sögn Magnúsar mætti Sunita
Ghandi, framkvæmdastjóri Ís-
lensku menntasamtakanna og Ás-
landsskóla, til vinnu í dag. Magnús
segir að ÍMS hafi enn aðstöðu í
skrifstofum skólans en að nýir
skólastjórnendur hafi sem stendur
aðstöðu annars staðar í húsinu.
Enginn morgunfundur var hald-
inn með nemendum og kennurum
skólans í gærmorgun eins og gert
hefur verið frá því skólastarf þar
hófst.
Að sögn Erlu Guðjónsdóttur,
skólastjóra Áslandsskóla, er for-
eldrum og kennurum skólans um-
hugað um að morgunfundir verði
áfram í skólanum. Hún segir að á
meðan fram fari endurskipulagning
á skólastarfinu hafi hins vegar verið
ákveðið að hvíla ákveðna þætti
skólastarfsins, þar með talda morg-
unfundina. Hún segir að fullur hug-
ur sé meðal stjórnenda og starfsliðs
skólans að morgunfundir verði
áfram hluti af skólastarfinu í fram-
tíðinni.
Einn skólastjóri starf-
ar nú við Áslandsskóla
FORSVARSMENN banda-
rísks sædýrasafns í Miami á
Flórída vinna nú að því að fá
háhyrninginn Keikó á safnið,
að því er haft er eftir Artur
Hertz forstjóra safnsins á
norska fréttavefnum TV2.no.
Hertz telur að lífsmöguleikar
Keikós í Noregi í vetur séu
litlir og því sé honum betur
borgið í sólinni á Miami. Í sæ-
dýrasafninu, Miami Seaquari-
um, er líka háhyrningskýr,
Lolita að nafni, sem átt hefur
heima á safninu í 30 ár. Hún
er eini háhyrningur safnsins
og telur Hertz að hinn 25 ára
Keikó gæti myndað góð tengsl
við Lolitu. Má geta þess að
norskur dýratúlkur telur að
Keikó vanti sárlega maka.
Hertz hefur haft samband við
þar til bær yfirvöld í Banda-
ríkjunum vegna málsins.
Vilja fá
Keiko til
Lolitu
ÓTTAR Felix Hauksson at-
hafnamaður hefur tekið Aust-
urbæjarbíó á leigu. Um tíma-
bundna leigu er að ræða og
rennur samningurinn út 1. júní
2003. Aðilarnir sem nú eiga
húsið hyggjast byggja þjón-
ustuíbúðir á lóðinni og segist
Óttar ætla að láta á það reyna
hvort fjölþætt menningarstarf-
semi geti borið sig í húsnæðinu.
Framkvæmdir í þá átt eru nú
hafnar og er Óttar þegar farinn
að taka við bókunum.
Austur-
bæjarbíó
opnað á ný
Austurbæjarbíó/46