Morgunblaðið - 27.09.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Evrópuliðið óskar eftir roki og
vætu / C2
Skallagrímur tekur sæti Þórs í úr-
valsdeildinni / C1
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Gamlar gallaflíkur umbreytast/B1
Svæfði villt dýr í Afríku/B2
Sérsniðið náttfatapartí/B2
Gruflað í gömlum myndum/B4
Stærstu draumarnir eru bestir/B6
Þroskamat fært út í leikskólana/B7
Auðlesið efni/B8
BONUS Stores Inc. í Bandaríkjunum hefur
gert samkomulag við Jim Schafer, fyrrverandi
framkvæmdastjóra félagsins, og Cory Brick,
fyrrverandi starfsmann þess, um lausn á
ágreiningsmálum sem uppi hafa verið milli
þessara aðila. Bonus Stores er dótturfélag
Baugs Group hf. Í tilkynningu frá Baugi til
Kauphallar Íslands í gær segir að í samkomu-
laginu felist meðal annars að þessir aðilar falli
frá öllum málaferlum sín á milli og að ekki verði
greint frekar frá einstökum efnisatriðum sam-
komulagsins.
Haft er eftir Tryggva Jónssyni, forstjóra
Baugs og stjórnarformanni Bonus Stores Inc.,
að hann sé ánægður með að ljúka þessu máli
með svo skjótum hætti. „Við teljum hagsmun-
um félagsins best borgið með því að komast hjá
málaferlum og einbeita okkur í staðinn að frek-
ari uppbyggingu í Bandaríkjunum,“ segir
Tryggvi.
Í tilkynningu frá Baugi Group hf. segir að
samkomulagið hafi engin fjárhagsleg útlát í för
með sér né áhrif á Baug Group hf. og Bonus
Stores Inc. Tryggvi sagðist í samtali við Morg-
unblaðið í gær ekki geta tjáð sig frekar um sam-
komulagið en fram kemur í tilkynningunni.
Bonus Stores Inc. var stofnað á síðasta ári við
samruna verslanakeðjanna Bonus Dollar Sto-
res og Bilĺs Dollar Stores, en Baugur átti helm-
ing í þeirri fyrrnefndu á móti Jim Schafer, en
hafði keypt þrotabú þeirrar síðarnefndu árið
áður.
Jim Schafer og Cory
Brick, samstarfsmaður
hans hjá Bonus Stores,
stofnuðu sjálfir fyrirtækið
Retail Stores Services í
fyrra. Keypti fyrirtæki
þeirra notaðar innréttingar
af Wall-Mart verslanakeðj-
unni, sem þeir störfuðu
báðir hjá áður, og seldu m.a. áfram til verslana
Bonus Stores. Í júlí síðastliðnum ákvað stjórn
Bonus Stores að víkja Jim Schafer úr starfi sök-
um trúnaðarbrota og fyrir að hafa misnotað að-
stöðu sína sem framkvæmdastjóri, auk þess
sem Cory Brick var sagt upp. Kváðust forsvars-
menn Baugs Group og
stjórnarmenn Bonus Sto-
res ekki hafa vitað af til-
vist Retail Stores og
töldu óeðlilegt að fram-
kvæmdastjórinn hagnað-
ist á viðskiptum við eigið
fyrirtæki. Schafer sagði
hins vegar í samtali við
Morgunblaðið að Jón Ásgeir Jóhannesson,
stjórnarformaður Baugs, hefði vitað af fyrir-
tækinu.
Þeir Schafer og Brick stefndu Bonus Stores í
kjölfar brottvikningar sinnar og kröfðust
skaðabóta upp á 10 milljónir Bandaríkjadala.
Tryggvi Jónsson sagði af því tilefni að stjórn
Bonus Stores teldi engan grundvöll fyrir stefn-
unni, málið væri í athugun hjá lögfræðingum og
líklegt væri að það færi fyrir dómstóla.
Í yfirlýsingu frá Tryggva sem birtist degi eft-
ir að tilkynnt var um stefnu Schafers er m.a.
bent á að Bonus Stores verði ekki fyrir fjár-
hagslegum skaða vegna þessa enda tryggt fyrir
slíku. Fram kemur í yfirlýsingunni að stjórn
Bonus Stores og forsvarsmenn Baugs Group
vísi á bug þeim ásökunum Schafers að hafa talið
hluthöfum trú um að rekstur fyrirtækisins hefði
gengið betur en raun var. Þá er sagt ljóst að „yf-
irlýsingum Jim Schafers á undanförnum dögum
er ætlað að draga athygli frá misferli hans og
slá ryki í augu fólks.“ Mánuði síðar, eða þann 21.
ágúst sl., var svo tilkynnt að Bonus Stores hefði
höfðað mál á hendur Schafer fyrir brot í starfi.
Samkomulagið nú felur í sér að fallið verður frá
þeirri málshöfðun líkt og öðrum er málið varða.
Bonus Stores gerir samkomulag við fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins
Fallið frá öllum
málaferlum
ÞRJÁR stúlkur voru fluttar á
slysadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss í Fossvogi eftir
harðan árekstur á Hafnarfjarð-
arvegi, á móts við Kópavogs-
læk, á sjöunda tímanum í gær-
kvöld. Þær voru allar í bíl sem
keyrði aftan á kerru vegagerð-
armanna, sem þarna voru að
störfum.
Að sögn lögreglunnar í Kópa-
vogi var óttast að stúlkurnar
hefðu slasast á baki og hálsi og
voru þær fluttar á slysadeild til
rannsóknar. Vegagerðin var
með framkvæmdir þar sem
slysið átti sér stað og hafði
þrengt veginn úr tveimur ak-
reinum í eina. Bíllinn var á suð-
urleið og sá ökumaður hans
merkingar vegagerðarinnar of
seint, komst ekki yfir á hina ak-
reinina og lenti aftan á kerru
sem var aftan í pallbíl vega-
gerðarmanna.
Mikil umferðarteppa myndað-
ist á Hafnarfjarðarvegi eftir
slysið.
Þrjár stúlkur
fluttar á slysadeild
ÁTTA ára norsk stúlka spilaði
lag úr kvikmyndinni Frelsið Willy
fyrir háhyrninginn Keikó í þrjá
tíma í fyrradag og lék „leik-
arinn“ á als oddi á meðan, en
móðir stúlkunnar segist vera viss
um að Keikó hafi þekkt lagið.
Astrid Morken er frá þorpinu
Skaun og mikill aðdáandi Keikós,
samkvæmt netútgáfu norska dag-
blaðsins VG. Þar kemur fram að
þegar hún hafi heyrt að Keikó
hefði synt frá Íslandi til Noregs
og væri nú í Skálavíkurfirði hafi
hún viljað sjá háhyrninginn. Haft
er eftir Catharinu Morken, móður
Astrid, að stúlkan hafi grátið
þegar hún hafi séð Keikó í fyrsta
sinn, en mæðgurnar hafa heim-
sótt dýrið þrisvar og í síðustu
heimsókninni spilaði Astrid fyrir
háhyrninginn lagið sem var spil-
að fyrir hann í fyrrnefndri kvik-
mynd. „Hann synti að henni, lyfti
höfðinu, nikkaði til hennar og
velti sér,“ er haft eftir móður-
inni. „Við erum vissar um að
Keikó þekkti lagið og hann hegð-
aði sér nákvæmlega eins og í
kvikmyndinni.“
Astrid þorði ekki að hætta að
spila á munnhörpuna, hélt að
Keikó myndi þá synda í burtu.
„Þetta er besti dagur lífs míns,“
sagði hún, en þetta er eina lagið
sem hún kann að spila og lærði
það af kvikmyndinni, þótt aldrei
hafi hvarflað að henni að hún
ætti eftir að leika það fyrir
Keikó.
Bræddi Keikó
með munnhörpunni
Ljósmynd/Catharina Morken
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis-
ins var kallað út á tíunda tímanum í
gærkvöld þar sem kviknað hafði í bíl
inni á bílaverkstæði Glóbuss við
Lágmúla. Starfsmönnum verkstæð-
isins tókst að ná bílnum út og síðan
var slökkt í honum. Einn maður var
fluttur á slysadeild vegna gruns um
reykeitrun.
Þá var bíl ekið á krana á svæði
Eimskips við Sundahöfn um klukkan
tíu í gærkvöldi með þeim afleiðing-
um að glussarör gaf sig í krananum
og glussi, sem er nokkurs konar olía,
lak út á götu. Slökkviliðið var kallað
til aðstoðar við að þrífa upp gluss-
ann.
Eldur kvikn-
aði í bíl
inni á bíla-
verkstæði
RANNSÓKNARLÖGREGLU-
MAÐUR sem var færður til í starfi,
frá embætti ríkislögreglustjóra til
lögreglustjórans í Reykjavík, á ekki
rétt á sérstöku vaktaálagi sem greitt
hafði verið hjá ríkislögreglustjóra.
Þetta er niðurstaða Hæstaréttar
sem staðfesti með þessu dóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur. Lögreglu-
maðurinn var skipaður í starf hjá
ríkislögreglustjóra til fimm ára árið
1997 en var færður til lögreglustjór-
ans í Reykjavík tveimur árum síðar.
Eftir flutninginn fékk hann greidd
laun skv. sama launaflokki og áður
en missti sérstakt vaktaálag sem
hann fékk greitt hjá ríkislögreglu-
stjóra. Stefndi hann ríkislögreglu-
stjóra og íslenska ríkinu og krafðist
þess að fá launamismuninn greidd-
an. Hæstiréttur taldi að þrátt fyrir
að umræddar greiðslur fælu ekki í
sér viðveruskyldu væru ekki næg
efni til að hafna þeirri röksemd að
lögreglumaðurinn hefði gengist und-
ir þá kvöð að vera undir það búinn að
verða kallaður út til vinnu utan
venjulegs vinnutíma með skömmum
fyrirvara. Við flutninginn frá ríkis-
lögreglustjóra til lögreglustjórans til
Reykjavík hefði lögreglumaðurinn
losnað undan þessari kvöð. Því væri
ekki sýnt að laun hans hefðu lækkað
í skilningi laga um réttindi og skyld-
ur starfsmanna ríkisins og það væri
ósannað að af hálfu embættis ríkis-
lögreglustjóra héldi hann umræddri
álagsgreiðslu eftir flutning milli
embættanna.
Málið dæmdu Markús Sigur-
björnsson, Gunnlaugur Claessen og
Ingibjörg Benediktsdóttir.
Gylfi Thorlacius hrl. flutti málið
f.h. lögreglumannsins en Einar Karl
Hallvarðsson hrl. var til varnar fyrir
ríkið.
Átti ekki rétt
á vaktaálagi
Hæstiréttur staðfestir sýknudóm
gegn ríkislögreglustjóra
Jim Schafer staðfesti í samtali við
Morgunblaðið í gær að samkomulag
hefði náðst milli hans og Bonus Stores
Inc. Kvaðst Schafer mjög ánægður
með samkomulagið en vildi ekki gefa
neitt upp um hvað í því fælist.
Schafer ánægður