Morgunblaðið - 27.09.2002, Side 16
SUÐURNES
16 FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEISTARINN.IS
BÖRN og starfsfólk á leikskólanum
Garðaseli í Keflavík er að koma sér
fyrir í stækkuðu og endurbættu
húsnæði leikskólans við Hólmgarð.
Þau hafa verið á hálfgerðum ver-
gangi í allt sumar, á meðan á fram-
kvæmdum hefur staðið.
Leikskólinn hefur starfað í
tveimur aðskildum húsum. Bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar ákvað að
stækka húsnæðið, með byggingu
sem tengir húsin saman. Stækkar
leikskólinn við það um tæpa 170
fermetra og er nú nærri 750 fer-
metrar að stærð. Jafnframt var
eldra húsnæðið mikið endurnýjað
og skipt um innréttingar.
Í leikskólanum eru áfram fjórar
leikskóladeildir en nú eru þrjár
heils dags og ein hálfs dags. Börn-
unum fjölgar úr 123 í 140.
Ingibjörg Guðjónsdóttir leik-
skólastjóri og Inga Sif Gísladóttir
aðstoðarleikskólastjóri eru ánægð-
ar með nýja húsnæðið. Þær segja
að mesta breytingin felist í nýjum
inngangi í skólann og bættri starfs-
mannaaðstöðu. „Við höldum okkar
striki, starfsemin verður sú sama,“
segir Ingibjörg. Í Garðaseli er lögð
áhersla á hreyfingu og útiveru
ásamt skapandi starfi.
Framkvæmdir við stækkun leik-
skólans hófust í júní og hefur orðið
mikið rask á starfseminni á þessum
tíma. Þannig var skólinn starf-
ræktur í húsnæði leikskólanna
Heiðasels og Tjarnarsels í sum-
arfríi þeirra. „Þetta hefur vissu-
lega verið erfitt tímabil en okkur
og börnunum hefur þó fundist það
skemmtilegt. Og allir hafa verið já-
kvæðir,“ segir leikskólastjórinn.
Ingibjörg segir að verkið hafi
gengið vel og tekur fram að starfs-
fólk skólans hafi átt einstaklega
gott samstarf við verktakann,
Hjalta Guðmundsson ehf.
Verktakinn hefur lokið verkum
sínum innanhúss en eftir er að lag-
færa húsið að utan og mála. Starf-
semin er því smátt og smátt að
komast í fastar skorður eftir
pappakassabúskap í marga mán-
uði. Ingibjörg og Inga Sif segja að
það sé vissulega mikill léttir. Börn-
in sem bætast við eru byrjuð að
koma í aðlögun og fjölgunin verð-
ur um garð gengin í lok næsta
mánaðar.
Fyrirhugað er að fagna tíma-
mótunum í starfsemi leikskólans
með veislu fyrir börnin í næstu
viku.
Framkvæmdum við stækkun og gagngera endurnýjun húsnæðis leikskólans Garðasels að ljúka
Hefur verið erf-
itt en skemmti-
legt tímabil
Það er gott að geta fengið aðstoð hjá sjálfum leikskólastjóranum, Ingi-
björgu Guðjónsdóttur, við vandasamt verk og árangurinn er eftir því.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Börnin á Garðaseli setja saman púsluspil í mestu rólegheitum í nýja húsnæðinu. Einhver er þó feiminn.
Keflavík
FIMMTA umferð Íslandsmeistara-
mótsins í rallakstri fer fram á Suð-
urnesjum. Keppnin hefst klukkan
3.40 í nótt og verður stór hluti sér-
leiða ekinn í myrkri. Keppninni lýk-
ur fyrir hádegi á morgun.
Eknar verða sérleiðir um Kleif-
arvatn, Djúpavatn og Reykjanesleið
og eru átján áhafnir skráðar til
leiks.
Feðgarnir Baldur Jónsson og Jón
Ragnarsson á Subaru Legacy
standa vel að vígi eftir að hafa sigr-
að Rally Reykjavík en helstu keppi-
nautar þeirra féllu þá úr keppni.
Sigurður Bragi Guðmundsson og
Ísak Guðjónsson á Rover Metro
voru enn að bíða eftir varahlutum
að utan þegar síðast fréttist og var
talið ólíklegt að þeir yrðu með að
þessu sinni.
Ekið í myrkri
Reykjanes
VARNARLIÐIÐ hefur samið við Ís-
lenska aðalverktaka hf. um að hafa
umsjón með viðhaldi fjölskylduhús-
næðis varnarliðsins. Verkið var boðið
út en Keflavíkurverktakar hf. hafa
haft það með höndum undanfarin ár
og haft 34 menn í vinnu við það.
Samningurinn felur í sér umsjón
með viðhaldi alls fjölskylduhúsnæðis
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Allar íbúðir eru yfirfarnar við íbúa-
skipti sem eiga sér stað á tveggja til
þriggja ára fresti, þær málaðar og
endurnýjaðar eftir þörfum. Þá er
haldið uppi sólarhrings neyðarþjón-
ustu vegna bilana og viðhalds.
Keflavíkurverktakar hafa haft
þetta verk með höndum í einni eða
annarri mynd í áratug. Verkið var nú
boðið út í samræmi við þær breyt-
ingar á verktöku sem nú eru orðnar á
Keflavíkurflugvelli og var samið við
Íslenska aðalverktaka hf. Samkvæmt
upplýsingum varnarliðsins gildir
samningurinn frá 1. nóvember næst-
komandi til 31. ágúst á næsta ári og
verður mögulegt að framlengja hann
fjórum sinnum í eitt ár í senn. Getur
samningurinn því náð yfir tæp fimm
ár alls. Grunnupphæð samningsins er
um 97 milljónir króna á ári, sam-
kvæmt upplýsingum frá Friðþóri Ey-
dal upplýsingafulltrúa, en auk þess er
sérstaklega greitt fyrir viðhaldsverk-
efnin eftir því sem þau falla til.
Uppsagnir taka gildi
Keflavíkurverktakar sögðu upp 72
af tæplega 200 starfsmönnum sínum í
sumar og byrjuðu uppsagnirnar að
taka gildi um síðustu mánaðamót og
þeir sem hafa lengstan uppsagnar-
frest hætta 1. nóvember. Flestir í
þessum hópi eru iðnaðarmenn, meðal
annars margir sem unnið hafa við
framkvæmd húsnæðissamningsins
sem Keflavíkurverktakar höfðu.
Róbert Trausti Árnason, forstjóri
Keflavíkurverktaka, segir að verið sé
að fara yfir verkefnastöðu fyrirtæk-
isins og í því ljósi verði mannahald
ákveðið til framtíðar. Hann tekur þó
fram að fyrirtækið reyni að hjálpa
þeim starfsmönnum sem til þess leiti
við atvinnuleit.
Hann segir ljóst af niðurstöðu
þessa útboðs að laga þurfi samkeppn-
ishæfni fyrirtækisins. Það hafi haft
mesta þekkingu á því verkefni sem
boðið var út en samt ekki náð að bjóða
hagkvæmasta samning. Tekur hann
þó fram að hann hafi engar upplýs-
ingar um hvað aðrir hafi boðið. Það sé
ákveðin vísbending um þá vinnu sem
fram þurfi að fara í fyrirtækinu.
Segir Róbert Trausti að Keflavík-
urverktakar séu með umtalsverð
verkefni fyrir varnarliðið en hlutfall
verkefna utan Keflavíkurflugvallar
hafi aukist mjög. Félagið hefur boðið í
verk á höfuðborgarsvæðinu og segir
Róbert Trausti að komið hafi í ljós að
það geti keppt á þeim vettvangi við
stóru verktakafyrirtækin sem Kefla-
víkurverktakar séu í samkeppni við á
Keflavíkurflugvelli.
Aðalverktakar fá húsun-
arsamning varnarliðsins
Keflavíkurflugvöllur
SUÐURNESIN á iði, sex vikna
hreyfingarátak, hefst í dag. Mark-
mið þess er að hjálpa Suðurnesja-
mönnum á öllum aldri í baráttunni
við sófann, eins og það er orðað í
fréttatilkynningu frá Íþróttasam-
bandi Íslands.
Þátttakendur geta nálgast skrán-
ingarspjald í sundmiðstöðvum á
svæðinu og merkja þar inn hvert
skipti sem þeir ganga eða hlaupa tvo
og hálfan kílómetra. Þolmælingar
verða í Reykjaneshöllinni 29. sept-
ember, 20. október og 10. nóvember,
kl. 16.30 alla dagana. Gera þær fólki
kleift að fylgjast á markvissan hátt
með árangrinum. Mælingar og
skráningarspjald eru án endur-
gjalds. Í lok átaksins skila þátttak-
endur spjöldunum inn til umsjónar-
aðila og eiga nokkrir möguleika á
góðum vinningum.
Suðurnesin á iði er vettvangsverk-
efni nema í viðbótarnámi til BS-
gráðu í íþróttafræði við Kennarahá-
skóla Íslands og eru umsjónaraðilar
þess Kristjana H. Gunnarsdóttir, S.
Bergþór Magnússon og Guðríður
Brynjarsdóttir, en öll eru þau
íþróttakennarar.
Sex vikna
hreyfingarátak
að hefjast
Suðurnes