Morgunblaðið - 27.09.2002, Qupperneq 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2002 47
MENN veltu því fyrir sér austur í
Skaftafellssýslum hvað sjóbirting-
urinn myndi taka til bragðs er
seinna Skaftárhlaup ársins ruddist
fram. Raunin varð sú, að hann tók
ekkert til bragðs. Skil bergvatns
og jökulvatns í Vatnamótunum
færðust nær landi í hlaupinu og
fiskurinn einfaldlega mjakaði sér
með og að sögn Ragnars Johan-
sens, veiðibónda í Hörgslandi, hef-
ur verið mokveiði að undanförnu.
Ragnar sagði að holl sem var í
Vatnamótunum á meðan hlaupið
var í ham hefði veitt 63 birtinga.
Örn Hjálmarsson í Útilífi var á
staðnum, veiddi í einn og hálfan
dag, og landaði 12 fiskum. Eftir
stóra hollið kom hópur sem var
með 20 fiska en síðan tók við vanur
hópur sem rótaði upp 40 fiskum á
einni vakt, sem er með ólíkindum
góður afli. „Í fyrradag voru komnir
700 fiskar úr Vatnamótunum og er
þá vorveiðin meðtalin. Þetta er
mesta veiði sem tekin hefur verið á
svæðinu og ég get vottað að það er
allt fullt af fiski þarna,“ bætti Örn
við. Örn sagði stærstu fiskana að
undanförnu hafa verið 7–8 punda
og einn 13 punda lax veiddist einn-
ig. Mikið væri af fallegum 4 punda
fiski og 2–3 punda fiskar yrðu æ
meira áberandi. „Það eru hrikaleg-
ir risar þarna líka, menn sjá þá
stökkva langt úti. Menn hafa að-
eins sett í þá, en þeir hafa sloppið,“
sagði Örn.
Risabirtingur úr Litluá
Pálmi Gunnarsson, leigutaki
Litluár í Kelduhverfi, veiddi risa-
birting í ánni fyrir skemmstu. „Ég
fékk hann í vatnamótunum á
neðsta svæðinu, hann tók litla
Black Ghost-straumflugu veidda
með flotlínu. Þetta er afbrigði frá
vini mínum Sigga Páls, með mar-
abou í vængjunum og rauðmáluð
augu. Þessi fluga virkar hrikalega
vel og þessi ferlegi fiskur kom æð-
andi eins og eimreið í vatnsskorp-
unni á eftir flugunni. Þetta var með
mínum eftirminnilegustu tökum,“
sagði Pálmi í samtali við Morgun-
blaðið.
Fiskurinn var ekki mældur og
veginn, Pálmi sagði hann hafa ver-
ið þreyttan eftir 25 mínútna hörku-
baráttu og því hefði honum verið
mikið í mun að koma fiskinum aft-
ur út í ána lifandi. „Ef ég ætti að
giska myndi ég halda að þetta væri
alltaf 15–16 punda fiskur, hugsan-
lega þyngri, ég veit það ekki, en
það er ekki stórmál í mínum huga,
aðalmálið var að fá að veiða hann
og koma honum lifandi aftur út í á,“
sagði Pálmi.
Pálmi bætti við að veiðin hefði
verið róleg í Litluá allra síðustu
daga, mikill fiskur, en hann tæki
illa, enda væri hitabylgja og svo
heitt væri, að mikið bitmý væri
kviknað.
Laxafundur í dag
Veiðimálastofnun efnir til fund-
ar um laxveiði líðandi sumars í
Borgartúni 6 í dag og hefst hann
klukkan 15. Guðni Guðbergsson
fjallar um laxveiðina í sumar, Sig-
urður Guðjónsson talar um stöðu
þekkingar á laxi í sjó og Óðinn Sig-
þórsson formaður Landssambands
veiðifélaga fjallar um horfur í veiði-
málum. Allir áhugamenn um mál-
efnin eru velkomnir á fundinn.
Pálmi Gunnarsson með ferlíkið sem hann dró úr Litluá í Kelduhverfi
á dögunum, að minnsta kosti 15–16 punda fisk.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Mok í
hlaupinu
HELGINA 28. og 29. september nk.
verður haldin ráðstefna á vegum
OA-samtakanna á Íslandi.
Efni ráðstefnunnar verður m.a.
umfjöllun um sporin 12 og erfðavenj-
urnar, sögu samtakanna og lausnina,
segir í fréttatilkynningu. Aðalfyrir-
lesari verður Kathleen, félagi í OA-
samtökunum á Englandi.
Ráðstefnan verður haldin í nýju
Templarahöllinni, Stangarhyl 4, 110
Reykjavík. Allar nánari upplýsingar
má nálgast á heimasíðu OA-samtak-
anna: http://www.oa.is. OA (Overeat-
ers Anonymous) er félagsskapur
karla og kvenna af öllum sviðum
þjóðfélagsins sem hittast til að finna
lausn á sameiginlegum vanda – mat-
arfíkn.
Eina skilyrðið fyrir þátttöku er
löngun til að hætta hömlulausu ofáti,
segir í fréttinni. OA eru alþjóðleg
sjálfshjálparsamtök sem starfa um
heim allan.
Ráðstefna OA-
samtakanna
MÁLFUNDUR sósíalíska verka-
lýðsblaðsins Militant föstudaginn 27.
september kl. 17.30, fjallar um að
ráðastéttin hafi enga framsækna
hugmyndafræði til að bæta mennta-
kerfið, eins og misheppnuð tilraun til
að einkavæða hverfisskóla sýnir,
segir í fréttatilkynningu. Þar segir
einnig.
„Í öllum aðgerðum er gengið út
frá þeirri hugmynd að menntun snú-
ist um að hver og einn hugsi um að
börnin sín hafi besta möguleika á að
komast áfram í lífsbaráttu þar sem
allir eru á móti öllum.
Vinnandi fólk þarf að nálgast
menntun frá gagnstæðu sjónar-
horni: sem félagslega spurningu og
baráttu fyrir því að umbreyta námi í
alhliða og ævilanga starfsemi.“ Mál-
fundurinn verður haldinn í Pathfind-
er-bóksölunni, Skólavörðustíg 6 b í
Reykjavík.
Málfundur um
vinnandi fólk
og menntun
FÉLAG heyrnarlausra stendur fyrir
málþingi um táknmál í tilefni af al-
þjóðlegum degi heyrnarlausra. Mál-
þingið fer fram föstudaginn 27. sept-
ember í Gerðubergi (sal A) frá kl.
13:00 til 17:00. Meðal gesta er dr.
Lars Wallin, en hann var fyrsti
heyrnarlausi einstaklingurinn í Evr-
ópu til þess að hljóta doktorsgráðu.
Dr. Wallin mun fjalla um rann-
sóknir sínar á táknmáli og segja frá
tilraunaverkefni í þróun táknmáls-
orðabókar í Úganda, segir í frétta-
tilkynningu. Rannveig Sverrisdóttir,
lektor við táknmálsfræðideild Há-
skóla Íslands, mun einnig halda fyr-
irlestur um rannsóknir sínar á ís-
lensku táknmáli. Rannveig er lektor
við nýstofnaða táknmálsfræðideild
Háskóla Íslands. Dagskrá málþings-
ins verður sem hér segir: Setning
málþings: Berglind Stefánsdóttir,
formaður Félags heyrnarlausra. Dr.
Lars Wallin: Þróun táknmálsorða-
bókar – tilraunaverkefni í Úganda.
Rannveig Sverrisdóttir lektor:
Rannsóknir á íslensku táknmáli.
Umræður og fyrirspurnir. Fundar-
stjóri er Svandís Svavarsdóttir. Mál-
þingið er öllum opið.
Málþing um
táknmál
GIGTARFÉLAG Íslands stendur
fyrir gönguferð um Laugardalinn
laugardaginn 5. okt. kl. 11. Hist
verður við inngang Gigtarfélagsins í
Ármúla 5. Gert er ráð fyrir fremur
þægilegri klukkutíma göngu sem
ætti að henta flestum, segir í frétta-
tilkynningu.
Einn af kennurum hópþjálfunar
gengur með hópnum og sér um létta
upphitun í byrjun og teygjur í lokin.
Öllum er frjáls þátttaka, bæði fé-
lagsmönnum GÍ og öðrum. Ekkert
gjald. Nánari upplýsingar um
gönguferðina og um hópþjálfunina
eru á skrifstofu félagsins.
Gönguferð Gigt-
arfélagsins
LANGHOLTSSKÓLI á hálfrar ald-
ar afmæli um þessar mundir. Laug-
ardaginn 28. september verður hald-
ið upp á afmælið með pompi og
prakt.
Hátíðin byrjar með leik Skóla-
hljómsveitar Grafarvogs kl. 11.45.
Síðan flytja skólastjóri og formaður
fræðsluráðs ávörp, nýtt merki skól-
ans verður afhjúpað og Gradualekór
Langholtskirkju syngur nokkur lög.
Kl. 13 og aftur kl. 14 verður flutt
dagskrá á fjórum stöðum í skólan-
um. Þar verður söngur, upplestur,
dans og tónlist af ýmsu tagi. Á göng-
um skólans og í stofum hefur verið
komið fyrir myndasýningum og
ýmsum munum nemenda sl. 50 ár.
Dagskránni lýkur um kl. 15.30.
Hátíð á 50 ára
afmæli Lang-
holtsskóla
HELGINA 28. og 29. september
mun Subaru-umboðið Ingvar Helga-
son kynna nýjan Subaru Forester.
Subaru Forester hefur notið mikilla
vinsælda frá því hann kom fyrst á
markað. Nýr Subaru Forester kem-
ur nú með nýju og gjörbreyttu útliti
jafnt að utan sem innan.
Subaru Forester hlaut hæstu ein-
kunn hjá Insurance Institue for
Highway Safety í árekstrarprófi
bæði hvað varðar öryggi ökumanns
og farþega. Meðal bílakaupanda hef-
ur nýr Subaru Forester þegar vakið
mikla eftirvæntingu og hafa nú þeg-
ar verið pantaðir fjölmargir slíkir
bílar, segir í fréttatilkynningu.
Kynning á nýj-
um Subaru
AÐALFUNDUR Leigjendasamtak-
anna á Íslandi verður haldinn á
Hverfisgötu 105, 3. hæð, mánudag-
inn 30. september nk.
Á dagskrá fundarins eru venjuleg
aðalfundarstörf og önnur mál.
Aðalfundur
Leigjendasam-
takanna
PRÓFKJÖR verður hjá Framsókn-
arflokknum í norðvesturkjördæmi
hinn 16. nóvember nk. Vegna þessa
hefur verið sett upp sérstök upplýs-
ingasíða um prófkjörið á heimasíðu
Framsóknarfélags Skagafjarðar.
Slóðin á henni er www.krokur.is/
framsokn <http://www.krokur.is/
framsokn>.
Upplýsingar um nýja frambjóð-
endur eru settar inn um leið og þeir
tilkynna sig til kjörnefndar.
Upplýsingar
um prófkjör
á heimasíðu
LAUGARDAGINN 28. september
mun Íþróttafélagið Ösp gangast fyr-
ir íþróttakynningu í íþróttahúsi ÍFR
í Hátúni 14, kl. 14 til 16. Þjálfarar
hinna ýmsu íþróttagreina verða þá
tilbúnir að svara spurningum um
starf og æfingar hjá félaginu.
Foreldrar og nemendur sérdeilda
í grunnskólum Reykjavíkur eru
hvattir til að koma og kynnast því
starfi sem fer fram í Öspinni.
Boðið verður upp á léttar veiting-
ar á vægu verði.
Íþróttadagur
Aspar
Á VEGUM Félagsþjónustunnar í
Reykjavík er starfrækt Fjölskyldu-
þjónustan Lausn á Sólvallagötu 10,
þar er boðið upp á lausnamiðaða fjöl-
skyldumeðferð og sérfræðiráðgjöf í
uppeldismálum.
Til að kynna starfsemi Lausnar
verður „opið hús“ fyrir borgarbúa
föstudaginn 27. september milli kl.
10 og 14. Þjónusta þessi er opin öll-
um borgarbúum sem hafa áhuga á að
reyna að bæta líf sitt og leita leiða til
lausna. Unnið er með einstaklingum,
fjölskyldum og hópum, en einnig eru
í boði sjálfstyrkingarnámskeið. Með-
ferðin er borgarbúum að kostnaðar-
lausu.
Nánari upplýsingar er hægt að fá
á Sólvallagötu 10. Tímapantanir á
sama stað milli 11 og 12 mánudaga
og föstudaga.
Lausn kynnir
starfsemi sína
DAGUR stærðfræðinnar er haldinn
í skólum landsins í dag, föstudaginn
27. september, og er þetta þriðja árið
í röð sem þessi dagur er haldinn.
Þema dagsins þetta árið er stærð-
fræði og bókmenntir. Undanfarin
tvö ár hafa flestir skólar landsins
tekið virkan þátt í Degi stærðfræð-
innar.Í tilefni dagsins hefur Flötur,
samtök stærðfræðikennara, gefið út
rit sem heitir stærðfræði og bók-
menntir. Höfundar ritsins eru Matt-
hildur Guðmundsdóttir og Hafdís
Guðjónsdóttir. Segja má að efni rits-
ins skiptist í tvennt, segir í frétta-
tilkynningu, annars vegar hug-
myndafræði og hins vegar kennslu-
hugmyndir. Ritinu er ætlað að auka
fjölbreytni í stærðfræðikennslu og
styðja kennara við að samþætta
stærðfræði og íslensku.
Sömu kröfur á Íslandi
og í öðrum löndum?
Í tilefni af Degi stærðfræðinnar í
dag, 27. september, býður Flötur,
samtök stærðfræðikennara, til fund-
ar í Háskóla Íslands. Fundurinn
verður haldinn í stofu 101 í Lögbergi
kl. 15:30 í dag.
Á fundinum munu tveir frummæl-
endur velta fyrir sér spurningunni:
„Eru gerðar sömu kröfur til nem-
enda í stærðfræði á Íslandi og í öðr-
um löndum?“ Erindi flytja Guð-
mundur Birgisson, lektor á sviði
stærðfræðimenntunar við KHÍ, og
Allyson Macdonald, forstöðumaður
rannsóknarstofnunar KHÍ. Fundur-
inn er öllum opinn.
Dagur stærð-
fræðinnar í
skólum landsins
LAUGARDAGINN 28. september
milli kl. 10 og 16 verður Garðyrkju-
skóli ríkisins, Reykjum í Ölfusi, með
námskeið í haustskreytingum fyrir
áhugafólk um skreytingar.
Leiðbeinandi verður Júlíana R.
Einarsdóttir, fagdeildarstjóri á
blómaskreytingabraut skólans.
Unnið verður með efni úr náttúrunni
og útbúnar skreytingar, sem þátt-
takendur taka með sér heim. Skrán-
ing og nánari upplýsingar fást á
skrifstofu skólans eða á heimasíðu
hans; www. reykir.is.
Haustskreyt-
ingar í Garð-
yrkjuskólanum