Morgunblaðið - 29.09.2002, Side 16

Morgunblaðið - 29.09.2002, Side 16
16 SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ NORRÆNA félagið á Ís-landi fagnar 80 ára af-mæli sínu með því aðbjóða almenningi á kynningu á félaginu í nýju skrif- stofuhúsnæði á Óðinsgötu 7 og af- mælisdagskrá á Óðinstorgi á milli kl. 14 og 17 í dag. Þrátt fyrir að af- mælisbarnið hafi náð jafnháum aldri og raun ber vitni er engan bilbug á því að finna. Þvert á móti segir Sigurlín Sveinbjarnardóttir, formaður Norræna félagsins, starfsemina afar blómlega um þessar mundir, t.d. hafi félagið ný- verið fest kaup á eigin húsnæði í fyrsta sinn. Afmælisbarnið sé því afar vel á sig komið og dreymi stóra drauma um framtíðina. Einn af þeim tengist einmitt staðsetn- ingu hátíðarhaldanna á Óðinstorgi í dag. „Okkur dreymir um að fá merki Norræna félagsins flutt úr Vatnsmýrinni á Óðinstorg þar sem verði eins konar norrænt torg í framtíðinni,“ upplýsir Sigurlín. Grasrótin upphafið Ótryggt stjórnmálaástand varð til þess að konungar Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar ákváðu að efna til formlegs samstarfs sín á milli árið 1914. Í kjölfarið voru Norrænu félögin stofnuð hvert í sínu landi. Fyrstu félögin í Dan- mörku, Noregi og Svíþjóð 1919 og Norræna félagið á Íslandi 29. sept- ember árið 1922. „Ef frá er talið formlegt samstarf konunganna þriggja er gaman að segja frá því að í rauninni fór grasrótin fyrir öðru norrænu samstarfi,“ segir Sigurlín. „Eftir stofnun Norrænu félaganna sköpuðu þingmenn sér samstarfsvettvang með stofnun Norðurlandaráðs árið 1952 og ráð- herrar með stofnun Norrænu ráð- herranefndarinnar árið 1973.“ Markmið Norræna félagsins á Íslandi er að stuðla að norrænu samstarfi, ekki síst á sviði félags-, menningar- og umhverfismála. Norræna félagið hefur reynt að stuðla að aukinni þekkingu á tungumálum, sögu og menningu hinna Norðurlandaþjóðanna. Ekki má heldur gleyma því að stuðlað hefur verið að aukinni vináttu og samskiptum – jafnt milli einstak- linga, sveitarfélaga og þjóða. Þá hafa norrænu félögin á Norður- löndunum átt frumkvæðið í þróun norræns samstarfs á mörgum svið- um. Dæmi um að fæðingarorlofs- greiðslur falli niður Einn liður í fjölbreyttri starf- semi Norræna félagsins eru svo- kölluð höfuðborgamót. Höfuð- borgamót stóð einmitt yfir í Reykjavík 26. til 29. september nú í haust. „Höfuðborgamótum svipar um margt til vinabæjamóta í minni bæjum,“ útskýrir Óðinn Alberts- son, framkvæmdastjóri Norræna félagsins, og upplýsir að 38 ís- lenskir bæir eigi vinabæi á hinum Norðurlöndunum og yfirleitt í fjór- um Norðurlandanna, þ.e. Dan- mörku, Finnlandi, Noregi og Sví- þjóð. „Með reglulegu millibili heimsækja svo gestir frá vinabæj- unum íslensku bæina og öfugt á svokölluðum vinabæjamótum. Gestirnir gista í heimahúsum og taka þátt í nokkurra daga fjöl- breyttri dagskrá með áherslu á sérkenni bæjanna. Höfuðborga- mótin eru skipulögð með svipuðum hætti ef frá er talið að erlendu gestirnir gista ekki í heimahúsum heldur á hótelum, t.d. á Hótel Sögu og Hótel Baron núna. Hingað komu á vegum Norræna félagsins í Reykjavík um 50 gestir frá hinum Norðurlöndunum og Litháen þar sem Norrænu félögin eiga syst- urfélög til að taka þátt í höfuð- borgamótinu og er hægt að nefna að á meðal dagskrárliða var skoð- unarferð um Elliðaárdalinn og hópferð á leiksýninguna Veisluna í Þjóðleikhúsinu. Við erum ákaflega ánægð með höfuðborgamótið í Reykjavík. Ekki síst í ljósi þess að í ár er 80 ára afmælisár félagsins.“ Upplýsingaþjónustunni Halló Norðurlönd var fyrst hleypt af stokkunum í Svíþjóð fyrir nokkr- um árum. Esther Sigurðardóttir, skrifstofustjóri Norræna félagsins, segir að fljótlega hafi komið í ljós að þörf væri fyrir slíka þjónustu í hverju landi fyrir sig. Hún hefur sinnt þjónustunni á Íslandi frá því farið var að bjóða upp á hana í fyrravor. „Halló Norðurlönd snýst um að veita Norðurlandabúum upplýsingar um réttindi sín og skyldur á Norðurlöndunum. Yfir- leitt tengjast erindin búferlaflutn- ingum fólks á milli Norður- landanna. Venjulega hringir fólk fyrir fyrirhugaða búferlaflutninga þó dæmi séu um að fólk sé búið að flytja og hafi rekið sig á einhvers konar erfiðleika í tengslum við flutningana,“ segir Esther og tek- ur fram að Halló Norðurlönd leysi ekki vandamálin fyrir fólk heldur veiti því upplýsingar um hvar sé hægt að leita aðstoðar við að leysa vandann. „Annað hlutverk upplýs- ingaþjónustunnar er að vekja at- hygli Norrænu ráðherranefndar- innar á ýmiss konar brotalömum í kerfinu. Oft stafa þær af því að lög og reglugerðir í löndunum stang- ast á. Vandamálin sem fólk lendir í eru margs konar. Ég get nefnt sem lítið dæmi að ef heimavinn- andi íslensk kona sem er barnshaf- andi flytur til Danmerkur áður en barnið fæðist fær hún engan fæð- ingarstyrk þar sem Danir greiða ekki styrk til heimavinnandi kvenna. Bíði hún hins vegar með flutninginn þar til barnið er fætt, á hún rétt á greiðslum frá Íslandi. Mjög mismunandi reglur gilda um þetta mál á Norðurlöndunum og er kerfið það flókið að full ástæða er til þess að skoða málin vel áður en lagt er í hann.“ Esther segir að 350 fyrirspurnir hafi verið skráðar á Íslandi frá því farið var að bjóða upp á þjón- ustuna 10. maí árið 2001. Flestar fyrirspurnirnar hafi borist frá því uppúr áramótum og fram á haust. Skýringin á því sé að flestir flytji sig á milli landa á vorin og fram á haust. „Miðað við fjölda erinda hafa Íslendingar verið mjög dug- legir að nýta sér þjónustuna. Fólk er líka yfirleitt mjög þakklátt fyrir að geta leitað á einn stað eftir upp- lýsingum. Sum atriði eins og að flytja bíl á milli landa geta reynst talsvert flóknari en ætla mætti í fyrstu. Þess vegna er líka mjög mikilvægt að starfsmenn viðeig- andi stofnana séu meðvitaðir um heildarferlið og gildandi reglur á hinum Norðurlöndunum. Um þess- ar mundir erum við einmitt að undirbúa eins dags námskeið fyrir starfsmenn Tryggingastofnunar, Vinnumálastofnunar, Hagstofunn- ar og Ríkisskattstofunnar í því skyni að gera þá meðvitaðri um þessa hluti. Bæði fyrirlesararnir og þátttakendurnir koma frá þess- um stofnunum.“ Sama sagan á sama tíma Hin árlega Norræna bókasafna- vika verður haldin í sjötta sinn undir yfirskriftinni Norðrið hefur orðið – Norðurlandaráð 50 ára dagana 4.–10. nóvember nk. Óðinn segir að einn liður í bókasafnavik- unni sé svokölluð morgunstund. „Morgunstundin felur í sér að sama sagan er lesin upphátt við kertaljós fyrir börn í leik- og grunnskólum á öllum Norðurlönd- unum á sama tíma. Nú þegar hafa fjölmargir leik- og grunnskólar skráð þátttöku sína í nóvember. Miðað við þátttökuna í fyrra má því búast við að um 200.000 leik- skóla- og grunnskólabörn hlýði á sögu Tove Janson Jólatréð úr bók- inni Ósýnilega barnið á sama tíma á öllum Norðurlöndunum í ár. Alla vikuna verður síðan ýmislegt ann- að skemmtilegt um að vera á bóka- söfnunum. Alls tók 1.006 bókasöfn á Norðurlöndunum þátt í Norrænu bókasafnavikunni í fyrra.“ 1% þjóðarinnar félagar Um 3.000 manns, eða ríflega 1% þjóðarinnar, eru í Norræna félag- inu á Íslandi. „Þetta hlutfall er heldur hærra heldur en á hinum Norðurlöndunum. Fjöldinn segir heldur ekki alla söguna. Norræna félagið hefur alla tíð skipað sér- stakan sess í huga Íslendinga. Við Norræna félagið á Íslandi er 80 ára í dag Óðinstorg verði norrænt torg Norræna félagið á Íslandi á 80 ára afmæli í dag. Af því tilefni hitti Anna G. Ólafsdóttir Sigurlín Svein- bjarnardóttur, formann félagsins, Óðinn Albertsson, framkvæmdastjóra, og Esther Sigurðardóttur, skrifstofustjóra, að máli í nýju húsnæði félagsins á Óðinsgötu 7. Morgunblaðið/Kristinn Sigurlín Sveinbjarnardóttir, formaður Norræna félagsins, Óðinn Albertsson, framkvæmdastjóri, og Esther Sigurðardóttir, skrifstofustjóri, í afmælisskapi. Aðrir starfsmenn á skrifstofu félagsins eru Virpi Jokinen frá Finnlandi og Stefán Vilbergsson frá Íslandi. Gunnar Thoroddsen, formaður Norræna félagsins frá 1954 til 1965 og aftur frá 1969 til 1975, þakkar Veiko Karsma og Tuure Salo fyrir gjöf frá Norræna félaginu í Finnlandi — merki félagsins. Merkið var gefið í tilefni af 1100 ára afmæli Íslands byggðar og afhent hinn 26. júlí árið 1974. Nú hefur Norræna félagið farið fram á að merkið verði flutt á Óðinstorg. Merkið sem nefnist Norræna merkið er hannað af Gísla B. Björnssyni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.