Morgunblaðið - 29.09.2002, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2002 21
Þessar áhyggjur allar eru hreintekki úr lausu lofti gripnar.
Sannleikurinn er sá að aðstæður á
borð við þær sem
hér að ofan eru
nefndar eru furðu
algengar víða um
land.
Ekki síst er
átakanlegt þegar
sárveikt gamalt
fólk er sent heim til
maka sem er alls-
endis ófær um að annast sjúkling
vegna eigin heilsuleysis. Þetta eru
kringumstæður sem ég held að fáir
vildu vera í – enda hvorugur kost-
urinn góður, að sinna sjúklingi sjálf-
ur veikur eða þurfa að neita að taka
við ástvini sem vegna andlegra eða
líkamlegra veikinda er orðinn ófær
um að vera í heimahúsi.
Það er liðin tíð að börn telji það
skyldu sína að annast foreldra sína
algjörlega þegar þeir missa heilsuna
og jafnvel þótt unga fólkið vildi hafa
foreldrana á heimilinu vill gamalt
fólk miklu heldur búa á eigin heimili
svo lengi sem þess er nokkur kostur.
Það þyrfti þess vegna að styrkja
til muna heimilisaðstoð og kannski
mætti koma á heimsóknarþjónustu
unglinga til eldra fólks til þess að
rjúfa einangrun þá sem margir kom-
ast í á elliárum.
En það verður að vanda val þeirra
sem starfa við að sinna gömlu og las-
burða fólki. Ég veit að það er gert en
þó getur út af brugðið.
Mér er í minni þegar ég kom eitt
sinn heim til konu sem var hátt á ní-
ræðisaldri. Mér þótti mjög vel tekið
til hjá henni og einkar þrifalegt. Ég
hafði orð á því við hana að hún hlyti
að hafa góða heimilishjálp.
„Nei, ég hef enga heimilishjálp,“
svaraði hún og bætti við í hvíslandi
tón:
„Ég hafði heimilishjálp einu sinni,
en sú manneskja var vandsetin og
varð fjúkandi vond ef ég sagði eitt-
hvað sem henni mislíkaði.
Einu sinni varð heimilishjálpin svo
reið að hún sló til mín. Eftir það sam-
sinnti ég því sem hún sagði. En þeg-
ar hún fór í sumarfrí og ætlaði svo að
koma aftur sagði ég að ég hefði
hresst svo mikið þessar sumarleyf-
isvikur hennar að ég þyrfti ekki
lengur á hjálp að halda. Þannig losn-
aði ég við heimilishjálpina og hef síð-
an talið öruggast að sinna þessum
heimilisverkum mínum sjálf, þótt ég
eigi stundum erfitt með það.“
Ég veit að þessi saga er vafalaust
einstakt dæmi og ótrúlegt en þetta
er eigi að síður sönn frásögn.
Mér finnst að það eigi að vera
markmiðið að gamalt fólk hafi tök á
að lifa mannsæmandi lífi. Það er al-
veg nógu erfitt að verða gamall og
missa heilsuna, sjá á eftir vinum sín-
um einum af öðrum og þurfa ofan í
kaupið að sæta því að búa einn,
kannski í fyrsta sinn á ævinni, – þótt
ekki bætist við að gamalt fólk geti
ekki sofið af áhyggjum um hvernig
það eigi að borga mat sinn og meðul
eða komast á milli staða, svo eitthvað
sé nefnt af vandamálum þeim sem
virðist snúa að alltof mörgum öldr-
uðum í þessu samfélagi.
Sem betur fer eru sumir þeirra
sem eru orðnir aldraðir núna harð-
snúnir baráttumenn. Vonandi tekst
þeim að fá einhverju áorkað í fram-
faraátt. Við hin ættum að styrkja
baráttu aldraðra fyrir bættum hag,
minnug þess að það kemur að okkur
síðar, – því tíminn gleymir engum.
Þjóðlífsþankar / Er ekki ástæða til að bregðast við?
Tíminn gleymir engum
ÞAÐ er ekki ofsögum sagt að ástandið í öldrunarmálum sé á stundum dap-
urlegt. Gamalt fólk sem er sæmilega hresst og getur enn notið lífsins hefur
margt hvert lítið handa á milli, enda er því meinað að vinna launavinnu og
getur því fátt eitt veitt sér. Hinir sem eru lélegir eða veikir eru vafalaust
sáttari við starfslokin en í staðinn búa of margir í þeim flokki við þungar
áhyggjur, bæði af peningamálum en ekki síður út af því hvað um þá verði
þegar þeir eru algjörlega hættir að geta hugsað um sig. Og þeir sem eiga
maka hafa að auki áhyggjur af því að makinn veikist og þeir geti heilsu sinn-
ar vegna ekki annast hann.
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
Skráðu þig í Broste klúbbinn - bergis.is
Nýr lífsstíll
Teymi // Borgartúni 30 // 105 Reykjavík // 550 2500 // www.teymi.is
Grunntækni // Gagnagrunnar // Viðfangamiðlarar // Þróunartól
Viðskiptagreind // Samhæft árangursmat // Vöruhús gagna // Gagnanám // OLAP // TBE
Þjónusta // Rekstur gagnagrunna // Úttektir // Samþætting // Öryggismál // Ráðgjöf // Sérsmíði
Nei, við erum ekki endurskoðendur fyrir erlend
orkufyrirtæki og höfum aldrei komið nálægt talningu
atkvæða í Flórída.
Markmið okkar er einfaldlega að fá betri útkomu fyrir
viðskiptavini okkar og auka arðsemi þeirra.
Oracle lausnir Teymis eru lykill að hagræði, betra
upplýsingaflæði, markvissari ákvarðanatöku og þar
með betri útkomu.
2+2=7
A
B
X
/
S
ÍA
9
02
12
05
d
TENGIGRIND
Hentugt í sumarbústaðinn!
Fyrir 80m2 rými miðað við 75-35°c
hitaveitu 70-30°c hringrásarkerfi
og 30% frostlög.
Breiddin er 65cm og hæðin 75cm
Heildsala - Smásala
VATNSVIRKINN ehf
Ármúla 21 · Sími 533 2020
www.vatnsvirkinn.is