Morgunblaðið - 18.10.2002, Blaðsíða 18
SUÐURNES
18 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Dr. Fischer
hreinsiklútar
Frábær vara á verði sem
kemur á óvart
Dr. Fischer hreinsiklútarnir eru
ótrúlega auðveldir og þægilegir í
notkun því þeir fjarlægja allan farða
á augabragði, hvort sem um er að
ræða andlits- eða augnfarða. Í
hreinsiklútunum er andlitsvatn auk
kamillu (Chamomille), sem hefur
róandi og nærandi áhrif á húðina
og hjálpar til við að halda
rakastigi húðarinnar réttu.
Dr. Fischer hreinsiklútarnir eru
ofnæmisprófaðir og henta
öllum húðgerðum.
Útsölustaðir: Allir helstu stórmarkaðir og apótek landsins. Hólmgarði 2 • Reykjanesbæ • sími 421 1501
Suðurnesjamenn!
Blómalagerinn • beint frá bóndanum
Fjölbreytt úrval afskorinna blóma, pottablóma,
kransa og krossa vegna jarðarfara. Gæði og gott verð
varla undan. Við komust strax inn
í verslanir Bónuss og Samkaupa
og erum einnig með fiskinn í versl-
unum um allt land. Við höfum
aldrei þurft að auglýsa, fiskurinn
kynnir sig sjálfur,“ segir Pétur.
Hann er að undirbúa útflutning
á harðfiski, til Færeyja og Norður-
Noregs. Segir að heildsali í Fær-
eyjum hafi lengi flutt inn harðfisk
frá Íslandi. Hann hafi nú komist á
bragðið með Stjörnuharðfisk og
vilji fá hann til sölu. Verðið hafi
verið í lægra lagi en nú séu menn
að ná saman og útflutningur verði
hafinn um leið og nauðsynleg leyfi
til þess hafi fengist.
Pétur kannast við að mörgum
þyki harðfiskur dýr. Hann segir að
það stafi einkum af því hvað hrá-
efnið sé dýrt og nýtingin lítil.
Þannig hafi hann verið að kaupa
undirmálsýsu á allt upp í 240 krón-
ur kílóið og þótt verðið sé nú 150–
160 krónur teljist verðið hátt. Út
úr þessu fáist aðeins 7% nýting
þegar búið sé að vinna fiskinn og
þurrka og minna ef eitthvað fari
úrskeiðis í vinnslunni. Hins vegar
sé harðfiskurinn óskaplega nær-
ingarmikill og góður og fólki þyki
vel þess virði að kaupa hann.
Stjörnufiskur framleiðir einnig
fiskibollur fyrir almennan markað
og saltaðan og reyktan fisk og
fleira fiskmeti fyrir mötuneyti sem
eru í föstum viðskipum. Mömmu-
fiskibollurnar voru víðar til sölu en
Pétur segist ekki hafa getað stað-
ist ódýrari framleiðslu snúning í
verði. „Við framleiðum bollurnar
úr glænýrri ýsu og steikjum hana
á pönnu alveg eins og mömmurnar
gera á heimilunum. Fiskibollurnar
hafa líkað mjög vel og margir
kaupa þær enn vegna gæðanna en
þær eru aðallega til sölu hér á
Suðurnesjum. Það er hins vegar
„ÞAÐ er gaman að framleiða góða
vöru, það skiptir öllu máli. Við
fáum oft hringingar þar sem verið
er að hæla fiskinum okkar og það
er óneitanlega gaman,“ segir Pét-
ur Gíslason í Stjörnufiski ehf. í
Grindavík en fyrirtækið framleiðir
harðfisk undir því merki, einnig
Mömmufiskibollur og fleira fisk-
meti.
Pétur segist eingöngu nota glæ-
nýja smáýsu, veidda á línu, í harð-
fiskinn. Gott hráefni sé undirstaða
góðra afurða. Pétur handflakar
sjálfur allan fiskinn strax og hann
er kominn í hús. Síðan er hann
drifinn beint á grindur og í þurr-
kofn. Segist Pétur vera með þann-
ig þurrkun að loftið sé tekið að ut-
an og leitt í gegn og því svipi
þurrkuninni til hjallaþurrkunar.
Eftir fimm daga eru flökin tekin
inn, völsuð og þeim pakkað.
Tengdafaðir Péturs, Bjarni Þór-
arinsson fyrrverandi hafnarstjóri í
Grindavík, sat við völsun en Guð-
rún Bjarnadóttir, kona Péturs, var
við útkeyrslu á vörunum í Reykja-
vík þegar blaðamaður leit við í
fiskvinnslunni. Þetta voru einu
starfsmennirnir þennan daginn og
er Stjörnufiskur því sannkallað
fjölskyldufyrirtæki.
Draumurinn að
stofna fiskvinnslu
Pétur stofnaði Stjörnufisk fyrir
fjórum árum. Áður hafði hann
stundað sjómennsku og fyrr á ár-
um var hann fisksali í Reykjavík.
Guðrún er úr Grindavík og þangað
flutti Pétur fyrir 25 árum. „Það
var alltaf draumur minn að stofna
litla fiskvinnslu. Harðfiskurinn
náði strax vinsældum og salan hef-
ur aukist stöðugt, svo við höfum
erfitt að keppa við framleiðendur
sem nota marning úr frystihús-
unum sem er mun ódýrara hráefni.
Það er alltaf munur á Trabant og
Benz,“ segir Pétur.
Wall Street bæjarins
Stjörnufiskur er ásamt fjölda
annarra smáfyrirtækja í húsa-
lengju við Staðarsund, ofan tog-
arabryggjunnar, húsum sem oftast
voru kölluð Langavitleysa. Jafn-
langur veggur skýlir húsunum frá
götunni. Þar hefur Pétur hengt
upp skiltið Wall Street sem vísar
til fjármálahverfisins í New York.
Segist hann hafa viljað auka virð-
ingu þessarar götu, vekja athygli á
mikilvægi hennar og ná athygli
bæjaryfirvalda sem ekki hafi enn
séð sóma sinn í því að leggja þang-
að bundið slitlag.
Starfsemi Stjörnufisks ehf. vex og eigandinn hyggur á útflutning á harðfiski til Færeyja og Noregs
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Pétur Gíslason og Bjarni Þórarinsson taka fisk, sem búið er að þurrka, af grindunum og undirbúa völsun.
Gaman að
framleiða
góða vöru
Grindavík
MEIRIHLUTINN í bæjarstjórn
Grindavíkur hefur lýst því yfir að
nýr leikskóli verði staðsettur í
Lautarhverfi, eins og skólinn sem
hann á að leysa af hólmi. Hins veg-
ar hefur ekki verið tímasett hve-
nær hann verður byggður.
Umræður hafa verið í stjórn-
kerfi Grindavíkurbæjar um bygg-
ingu nýs leikskóla í stað leikskól-
ans við Dalbraut sem talinn er þörf
á að endurnýja. Ýmsir kostir hafa
verið þar til skoðunar, meðal ann-
ars nýbygging í sama hverfi eða
stækkun leikskólans við Stamphól.
Við umræður í bæjarstjórn
Grindavíkur í fyrradag lét meiri-
hlutinn, sem skipaður er fulltrúum
Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks,
bóka að bygging nýs leikskóla væri
í málefnasamningi meirihlutans og
það væri stefna hans að leikskólinn
verði staðsettur í Lautarhverfi.
Jafnframt var tekið fram að stækk-
unarmöguleikar leikskólans við
Stamphól yrðu nýttir sem þriðji
áfangi í uppbyggingu leikskólahús-
næðis í bænum.
Fulltrúar Framsóknarflokksins,
sem eru í minnihluta, skoruðu á
meirihlutann að bæta á stefnu sína
að skólinn verði tekinn í notkun
þegar á næsta ári.
Ómar Jónsson, formaður bæjar-
ráðs, segir að hafist verði handa við
byggingu nýs leikskóla í Lautar-
hverfi um leið og fjárhagurinn
leyfi. Áætlað er að nýr fjögurra
deilda leikskóli kosti 130 milljónir.
Hann segir að vegna mikilla fram-
kvæmda á síðasta kjörtímabili
verði að fara varlega nú. Vonast
hann til að skólinn rísi á árinu 2004
en tekur fram að tímasetning hafi
ekki verið ákveðin. Segir Ómar að
vissulega sé að verða brýnt að end-
urnýja leikskólann við Dalbraut og
hverfið muni byggjast upp á næstu
árum. Hins vegar séu engir biðlist-
ar eftir leikskólaplássum eins og er
og mikilvægt að tímasetja fram-
kvæmdina rétt.
Nýr leikskóli
í Lautarhverfi
Grindavík