Morgunblaðið - 18.10.2002, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 18.10.2002, Qupperneq 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 22 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ARTHUR Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, gagnrýndi Hafrannsóknastofnunina harðlega á aðalfundi sambandsins sem hófst í gær. Sagði hann að nauð- synlegt væri að slíta á tengsl stofn- unarinnar við hagsmunaaðila í sjáv- arútvegi og að endurskoða þyrfti aðferðir við stofnstærðarmat. Arthur sagði Hafrannsóknastofn- unina ítrekað hafa hunsað kröfur um rannsóknir á umhverfisáhrifum veiðarfæra. Stofnunin gæti fyrir löngu verið byrjuð að mynda hafs- botninn í kring um landið og þá sér- staklega þar sem vitað er af við- kvæmum búsvæðum og þar með verið byrjuð að kortleggja ástand þeirra. „Allar upplýsingar um hvar þessi svæði er að finna eru fyrir- liggjandi, til dæmis í skipsbókum togaraflotans. En því er heldur ekki sinnt.“ Arthur sagði að til þess að Haf- rannsóknastofnunin endurheimti það traust sem hún þyrfti að njóta yrði hún að skera á tengslin við hagsmunaaðila í sjávarútvegi. Sagði Arthur það óeðlilegt að fulltrúar eins öflugasta hagsmunagæslufélags Ís- landssögunnar sætu í stjórn stofn- unarinnar. Samstarf um einstök verkefni væri allt annað mál en bein stjórnartengsl. Eins væri nauðsyn- legt að stofnunin væri fjárhagslega sjálfstæð. „Það er ótækt að áður- greint hagsmunagæslufélag geti gumað af því í tíma og ótíma að það hafi beinlínis gefið eða greitt fyrir stærsta og dýrasta rannsóknartækið sem nokkru sinni hefur komist í eigu Hafrannsóknastofnunarinnar, rann- sóknarskipið Árna Friðriksson.“ Togararallið finnur ekki þorskinn Arthur sagði ennfremur að Haf- rannsóknastofnunin þyrfti að endur- skoða frá grunni aðferðir þær sem notaðar væru við stofnstærðarmat eða m.ö.o. togararallið. Hann benti á að krókaafli væri þannig meiri nú en nokkru sinni fyrr. „Þegar veiði á línu er að meðaltali orðin yfir 500 kíló á bjóð á stórum svæðum, þá er mikið af fiski undir. Þegar einn maður á handfæri kemst upp í að veiða á sjö- unda tonn yfir daginn, þá er mikið af fiski undir. Þorskstofninn er, undir svona kringumstæðum, ekki í lægð og ljósár frá því að vera nálægt sögulegum lágmörkum, eins og mæl- ingar úr togararalli vilja segja okk- ur. Þorskstofninn er öflugur sem sjaldnast fyrr. Þorskurinn hefur því, samkvæmt þessu, geymst í sjónum.“ Arthur sagði að þessi styrkur þorskstofnsins færðist ekki í gagna- banka fiskifræðinganna vegna þess að stofnstærðarmælir þeirra, tog- ararallið, finnur hann ekki. „Þorsk- stofninn hefur flutt sig nær landi nú nokkur undangengin ár og þar með haft umfangsmikil vistaskipti frá því að mælistikan, togararallið, var sett saman og hrint í framkvæmd. Þetta þýðir með öðrum orðum að vísinda- mennirnir verða að endurskoða þessa aðferðafræði,“ sagði Arthur. Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra ávarpaði fundinn og sagði að smábátar hefðu aukið hlut sinn í flestum tegundum í gegnum árin og geti vel við unað. Nefndi hann sér- staklega ýsuveiðar smábáta en fyrir 10 árum hafi ýsuafli smábáta verið 2.000 tonn en á yfirstandandi fisk- veiðiári fengju krókaaflamarksbátar úthlutað 7.600 tonnum af ýsu. Meðal þess sem rætt verður á fundi smábátaeigenda verður krafa um að setja svokallað gólf í fjölda sóknardaga handfærabáta, þannig að þeir verði aldrei færri en 23. Sjáv- arútvegsráðherra vék máli sínu einnig að málefnum sóknardagabát- anna í ávarpi sínu. Hann sagði að á síðasta fiskveiðiári hafi hann ákveðið að sóknareiningar yrðu miðaðar við klukkustundir í stað sólarhringa og að hafa dagafjöldann óbreyttann eða 23 daga en fækka þeim ekki niður í 21 eins og lögin kváðu á um. For- svarsmenn smábátaeigenda hafi enda talið að það myndi lítil sem engin áhrif hafa á sóknina þar sem draga myndi mjög úr spennu í kerf- inu við breytt fyrirkomulag. Reynsl- an á síðasta fiskveiðiári hafi hinsveg- ar sýnt að afli sóknardagabátanna hafi aukist. Bátar í dagakerfinu hafi veitt 12.329 tonn á síðasta fiskveiði- ári í stað 7.879 tonna árið áður en reyndar hafi þakbátarnir svo kölluðu bæst í hóp sóknardagabátanna á síð- asta fiskveiðiári en þeir voru um 75 talsins. Meðalveiði á hvern bát í kerfinu hafi hinsvegar verið 36 tonn á fiskveiðárinu 2000/2001 en 41 tonn á því síðasta. Línuívilnun lyftistöng fyrir hinar dreifðu byggðir Afli smábáta á síðasta fiskveiðiári var alls rúm 64 þúsund tonn, 12 þús- und tonnum minni en í fyrra og hef- ur aflinn ekki verið minni í fimm ár. Mestu munar um afla krókaafla- marksbáta en þar fór heildaraflinn úr 53 þúsund tonnum í 39 þúsund tonn. Afli aflamarksbáta fór úr 13 þúsund tonnum í um 8.500 tonn en sóknardagabátar juku afla sinn um 2.500 tonn og enduðu í tæpum 13 þúsund tonnum. Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri LS sagði að samdrátt- urinn hefði komið mjög illa við marg- ar útgerðir. Ýsan sem hafði verið fyrir utan kvóta væri nú kvótasett og hafi ýsuaflinn minnkað úr 10.200 tonnum niður í 5.760 eða um 44%. Örn sagði að eins væri kvótasetning á aukategundum að sliga margar smábátaútgerðir. Því væri eitt helsta baráttumál LS nú að koma á línuívilnun til allra dagróðrabáta þar sem beitt er eða stokkað upp í landi. „Línuívilnun er einföld aðgerð, kall- ar ekki á að frá öðrum væri tekið, en gæti orðið bjargvættur fjölmargra útgerða og lyftistöng fyrir hinar dreifðu byggðir,“ sagði Örn. Örn vék einnig máli sínu að þeim sameiningum sem orðið hafa í sjáv- arútvegi að undanförnu. Hann sagði að LS hafi lýst sig andvígt því að lög um hámarkseign veiðiheimilda yrðu rýmkuð og varað við afleiðingum þess. Hann sagðist þeirrar skoðunar að löggjafin hafi þarna gert mistök, enda hafi ekki verið tekið nægilegt tillit til þess fólks, þeirra byggðar- laga sem eigi allt sitt undir sjávar- útveginum. „Samkeppnin játar sig sigraða, einokunin nær yfirráðum. Minni aflamarksútgerðir verða ekki færar um að keppa við þessa risa um kaup á veiðiheimildum. Minni afla- marksútgerðum, einyrkjum sem gera út 50 til 200 tonna báta mun enn fækka og veiðiheimildir færast til risanna sem hafa ekki taugar til lífsafkomu hinna dreifðu byggða,“ sagði Örn. Formaður Landssambands smábátaeigenda gagnrýnir Hafrannsóknastofnunina Morgunblaðið/Sverrir Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, og Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra ræða málin á aðalfundi sambandsins. Skera þarf á tengsl við hags- munaaðila FJÖLSKYLDUR Sveins og Ágúst- ar Valfells hafa selt eignarhlut sinn í móðurfélagi Steypustöðv- arinnar, Basalti ehf. Basalt ehf. er eignarhalds- og fjárfestingarfélag sem á dótturfélög í byggingariðn- aði, en auk Steypustöðvarinnar eru Einingaverksmiðjan og Steypustöð Suðurlands þeirra á meðal. Sá eignarhlutur í Basalti sem seldur hefur verið er mikill meiri- hluti félagsins og að sögn Jóns Ólafssonar fjármálastjóra Steypu- stöðvarinnar er stefnt að því að kaupa allt félagið. Kaupandi meiri- hluta Basalts er Fjárfestingar- félagið Esjurætur ehf., en eigendur þess eru Jón Ólafsson fjármála- stjóri Steypustöðvarinnar og hóp- ur byggingarmeistara og stærstu viðskiptavina fyrirtækisins. Sömu menn sitja í stjórn Basalts og Fjár- festingarfélagsins Esjuróta. Þeir eru Guðmundur Ingi Karlsson for- maður, framkvæmdastjóri Sands Ímúrs, Hörður Jónsson, bygging- arverktaki, og Gissur R. Jóhanns- son, byggingarmeistari. Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og var stofnandi hennar Sveinn B. Valfells, faðir Sveins og Ágústar sem nú selja sinn hlut. Fyrirtækið hefur verið með sterka markaðsstöðu og er markaðs- hlutdeild þess nú um 35–40% í sölu á steinsteypu og forsteyptum ein- ingum á suðvesturhorni landsins. Helstu keppinautar Steypustöðv- arinnar eru BM Vallá og Stein- steypan. Velta Basalts-samstæð- unnar á síðasta ári nam tæpum 1.300 milljónum króna. Að sögn Jóns Ólafssonar var reksturinn við- unandi, en hann segir að verð á steypu hafi farið lækkandi. Spurður um aðdraganda kaup- anna segir Jón að frumkvæði söl- unnar hafi komið frá seljendum og frést hafi að fyrirtækið væri til sölu. Um framtíðaráform sagði hann að nú væri verið að móta nýja stefnu og endurskipulagning stæði yfir. Of snemmt væri að segja til um hvaða breytingar yrðu gerðar á rekstrinum. Kaupþing banki var milligöngu- aðili við sölu Steypustöðvarinnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Valfells-fjölskyldan selur Steypustöðina STJÓRN Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands hefur ákveðið að greiða samtals 150 milljónir króna í framlag til ágóðahlutar í ár, segir í tilkynn- ingu frá félaginu. Greiðslan mun renna til sveitarfélaga sem aðild eiga að Sameignarsjóði EBÍ í réttu hlutfalli við eignaraðild. Aðildarsveitarfélögin eru 81 og fær Akureyri hæstu greiðsl- una, rúmar 16 milljónir króna. Til Kópavogs renna tæpar 13 milljónir, Reykjanesbær fær rúmar 10 milljónir í sinn hlut, Ísafjarðarbær ríflega sjö millj- ónir og Vestmannaeyjabær rúm- ar sex milljónir króna. Stjórn og fulltrúaráð EBÍ mælast til þess að framlaginu verði m.a. varið til forvarna, greiðslu iðgjalda af tryggingum sveitarstjórna og brunavarna í sveitarfélaginu. 680 milljónir á síðustu árum Í tilkynningu EBÍ segir að ágóðahlutur frá EBÍ hafi t.a.m. orðið til þess að nokkur sveit- arfélög hafa endurnýjað slökkvi- bifreiðar sínar svo og annan slökkvibúnað. EBÍ hefur um langt skeið greitt sveitarfélög- unum framlag til ágóðahlutar af starfsemi sinni. Greiðslurnar hófust árið 1934 en á síðustu fimm árum hafa aðildarsveitar- félögin fengið samtals greiddar um 680 milljónir króna í ágóða- hlut. EBÍ greiðir 150 milljónir til sveitarfélaga
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.