Morgunblaðið - 18.10.2002, Blaðsíða 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 43
Á FUNDI borgarstjórnar
Reykjavíkur 3. október sl. var til-
lögu minni um að borgarstjórn
skoraði á ríkisstjórn og Alþingi að
hækka skattleysismörk til sam-
ræmis við þróun verðlags og kaup-
gjalds frá árinu 1988 vísað til borg-
arráðs með 9 samhljóða atkvæðum
borgarfulltrúa F-listans og R-
listans. Borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins sátu hjá.
Skattleysismörk eru nú tæplega
67.500 krónur en væru ríflega
82.000 krónur hefðu þau fylgt þró-
un verðlags frá árinu 1990 og tæp-
lega 104.500 krónur hefðu þau
fylgt þróun kaupgjalds. Vegna of
lágra skattleysismarka nýtast ýms-
ar bótagreiðslur og félagsleg að-
stoð veitt af sveitarfélögum ekki
sem skyldi. Auk þess er ljóst að
hækkun skattleysismarka nýtist
best þeim lakast settu í þjóðfélag-
inu.
Þegar staðgreiðsla skatta var
tekin upp árið 1988 var því lýst yfir
að skattleysismörk myndu fylgja
þróun verðlags og kaupgjalds.
Þessu til viðbótar hefur það verið
yfirlýst stefna Sjálfstæðisflokksins
um árabil að afnema skuli tekju-
skatt af almennum launatekjum.
Nú virðist komið annað hljóð í
strokkinn þar á bæ og skattalækk-
anir á stóreignafólk og stórfyrir-
tæki hafðar í fyrirrúmi. Skatta-
lagabreytingar í þágu þessara aðila
ásamt gífurlegri fjölgun svo-
nefndra einkahlutafélaga kosta ríki
og sveitarfélög milljarða króna ár-
lega. Þau útgjöld valda ráðamönn-
um landsins ekki sýnilegum
áhyggjum en þeir reka hins vegar
upp ramakvein þegar rætt er um
að hækka skattleysismörkin. Það
kosti svo mikið. Þannig vantar all-
an vilja hjá ríkisvaldinu til að
lækka skatta láglaunafólks, aldr-
aðra og öryrkja á meðan skarað er
eldi að köku gæðinga og einkavina
ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar stundar í raun
öfuga Hróa hattar pólitík, þar sem
fjármunir eru færðir í stórum stíl
frá hinum efnaminni til stóreigna-
fólks og stórfyrirtækja. En hún
lætur ekki þar við sitja því mark-
visst er unnið að því að koma sam-
eiginlegum eigum og náttúruauð-
lindum þjóðarinnar undir forræði
fárra útvaldra en það mun auka
enn frekar á yfirgengilega mis-
munun þegnanna í landinu.
Áðurnefndar staðreyndir ber að
hafa í huga þegar viðbrögð borg-
arstjórnarflokks Sjálfstæðisflokks-
ins við tillögu minni í borgarstjórn
3. október sl. eru skoðuð. Björn
Bjarnason, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn og fyrrver-
andi ráðherra í ríkisstjórn Davíðs
Oddsonar, vék lítið sem ekkert efn-
islega að tillögunni í svarræðu
sinni heldur eyddi kröftum sínum í
að gagnrýna framgöngu Gísla
Helgasonar, fulltrúa F-listans, á
fundi borgarstjórnar 5. september
sl. Á þeim fundi sat Gísli Helgason
hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu
borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis-
flokksisns um lækkun fasteigna-
skatta fyrir lífeyrisþega og hol-
ræsagjalds fyrir alla greiðendur.
Tekjuviðmið lækkunar fasteigna-
gjalds skyldi hækka í allt að 2,2
milljónir króna fyrir einstakling en
3,2 milljónir króna fyrir hjón. Til-
lagan um lækkun holræsagjaldsins
fyrir alla greiðendur er athyglis-
verð því öruggt mátti telja að R-
listinn myndi fella þá tillögu. Til-
löguflutningur Sjálfstæðisflokksins
í borgarstjórn 5. september sl.
virðist því fyrst og fremst hafa haft
þann tilgang að valda pólitísku
uppnámi.
Gísli Helgason hefur um árabil
verið í forystusveit Öryrkjabanda-
lagsins og þekkir störf ríkisstjórn-
arinnar í málefnum aldraðra og ör-
yrkja flestum betur, en þau birtust
með skýrum hætti þegar öryrkja-
dómnum var hnekkt um áramótin
2000/2001. Óhætt er að segja að
Gísla Helgasyni hafi þótt nóg um
framgöngu oddvita Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn í ljósi
verka hans í ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar, enda sagði Gísli orðrétt
á borgarstjórnarfundinum 5. sept-
ember sl:
„Ég er ennþá á þeirri skoðun að
besta leiðin til þess að jafna kjör
aldraðra og þá tek ég líka kjör ör-
yrkja með í reikninginn væri sú
leið að Björn Bjarnason hæstvirtur
borgarfulltrúi myndi beita sér fyrir
því á Alþingi að skattleysismörk
yrðu hækkuð. Þetta er gamalt bar-
áttumál Öryrkjabandalagsins og
þessu hefur verið marghreyft en
aldrei fengist almennilega útrætt.“
Það eru til fjármunir í þjóðfélag-
inu til að hækka skattleysismörkin
í þágu þeirra sem eru lakast settir.
Skattastefnu ríkisstjórnarinnar er
ætlað að hygla þeim sem þurfa síst
á því að halda, þ.e. auðmönnum og
stórfyrirtækjum, ásamt einkavin-
um og gæðingum ríkisstjórnarinn-
ar. Það ber að hafna þessari órétt-
látu skattastefnu, sem er vörðuð
vanefndum og óheilindum.
Skattastefna
vanefnda og
óheilinda
Eftir Ólaf F.
Magnússon
„Það ber að
hafna órétt-
látri skatta-
stefnu sem
er vörðuð
vanefndum og óheil-
indum.“
Höfundur er læknir
og borgarfulltrúi.
Síðumúla 24 • Sími 568 0606
Borð 184x108 cm
6x leðurstólar
Tilboð 189.000,-
Olga borðstofusett
Toppárangur
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Söluaðilar um land allt
I N T E R N A T I O N A L
KYNNING Á ÞVÍ NÝJASTA
Hafnarfirði
Föstudag
Smáralind
Föstudag og laugardag
Allt í gildi!
ekkert
brudl-
Ferskur
Holtakjúklingur
Verð nú 395kr.kg
kr.Merkt verð 659
T
ilb
oð
in
gi
ld
a
í
d
a
g,
fö
st
ud
a
g
e
ða
á
m
e
ða
n
b
ir
gð
ir
e
nd
a
st
*
A
llt
a
f
b
e
tr
a
ve
rð
!
B
ón
us
b
ýð
ur
a
llt
a
f
b
e
tu
r.
..
L
a
n
d
lis
t
Opið til
hálf átta
í kvöld
Opnum klukkan tíu!
Nýtt kortatímabil
afsláttur við kassann
40%
Föstudagstilboð