Morgunblaðið - 18.10.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.10.2002, Blaðsíða 38
MENNTUN 38 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í upphafi kosningavetrar spyrja menn gjarna sjálfa sig og aðra hver verði helstu kosninga- málin. Mestu mun sjálf- sagt varða hvert ástand og útlit efnahagsmála verður í vor. Þar sem útlitið er nú ágætt mun stjórnarandstaðan vitaskuld beina athyglinni að hverju því sem henni dettur í hug að geti dregið athyglina frá efnahags- málunum. Einstaka þingmenn hafa þegar hafist handa – þó að það sé ef til vill frekar vegna prófkosninga en þingkosninga – og finna til mál sem þeir telja að geti skaðað ríkisstjórn- arflokkana en aukið veg þeirra sjálfra. Allt er þetta eins og við mátti búast, þó að málin séu að vísu ekki endilega umbótamál heldur frekar auglýsinga- eða jafnvel upphlaups- mál. Hins vegar eru þrjú mál, sem líklega verða ekki kosningamál, en eru afar mikilvæg sé horft til lengri framtíðar þótt þau séu ekki fall- in til skyndivinsælda. Eitt þeirra er aukin þátttaka einka- aðila í menntun ungmenna landsins, annað er aukin þátt- taka einkaaðila í að veita heil- brigðisþjónustu og það þriðja er að stofna ekki til nánari kynna við Evrópusambandið. Síðastnefnda málið hefur raunar oft verið nefnt sem hugsanlegt kosningamál nú, en þá með öfugum formerkjum. Aðildarsinnar láta gjarna í það skína að þeir vilji að þingkosn- ingarnar snúist um aðild Ís- lands að Evrópusambandinu. Til lengri tíma litið er hins vegar mikilvægt að Íslendingum takist að halda sjálfstæði sínu og fái áfram að ráða sínum málum. Aðildarsinnar reyna með reglulegu millibili að rugla um- ræðuna með nýjum „upplýs- ingum“ um það hvaða kostir kynnu að standa okkur til boða færum við inn í sambandið. Þegar á þá er gengið við- urkenna þeir þó flestir að mik- ilvægasta auðlind landsins yrði óhjákvæmilega undir stjórn Evrópusambandsins en ekki Ís- lands. Í trausti þess að enginn muni á milli daga eftir þessu grundvallaratriði er umræðunni haldið áfram og þess krafist að eytt verði miklum tíma og fjár- munum í aðildarviðræður sem engu geta breytt. Hin málin tvö eru allt annars eðlis en snúast líka um það hvernig framtíðin verður hér á landi. Útgjöld ríkisins vegna mennta-, heilbrigðis- og velferð- armála nema nálægt 60% af heildarútgjöldum þess. Við þetta bætist kostnaður sveitar- félaga vegna fræðslumála, en sem dæmi má nefna að 30% af skatttekjum Reykjavíkurborgar fara í þann málaflokk. Og það er ekki eins og ríki og sveit hafi náð tökum á þessum útgjöldum; þau fara ört vaxandi og engin leið virðist að hafa nokkra stjórn á þeim í núverandi kerfi. Það er þess vegna áhyggju- efni að flestir stjórnmálaflokkar landsins mega ekki heyra á það minnst að gerðar séu þær breytingar á kerfinu sem kynnu að duga. Talsmenn þeirra láta sér nægja að þrasa um einstök mál og kvarta ef fjármagn skortir. Það sem meira er; þeir beita jafnvel völdum sínum til að hindra allar tilraunir til um- bóta og eru samskipti nýrrar bæjarstjórnar í Hafnarfirði við einkarekinn skóla dæmi þar um. Þegar heilbrigðiskerfið er annars vegar er jafnvel enn meiri fyrirstaða og flestir stjórnmálamenn keppast við að sverja við allt sem þeim er heil- agt að aldrei skuli verða gerðar nokkrar breytingar sem auki hlut einkaaðila. Ríkið er að mati þessara manna eini aðilinn sem fær er um að reka þjónustu á heilbrigðissviði. Húsnæðið skal vera í eigu ríkisins, tækin skulu vera í eigu ríkisins og umfram allt skulu starfsmenn á heil- brigðissviði vera ríkisins. Það gleður áköfu ríkissinnana vafa- laust að þegar sjúklingarnir leggjast inn er hengdur á þá skrýtinn sloppur þar sem þeir eru merktir „Eign Þvottahúss ríkisspítalanna“. Lengra verður vart gengið í ríkisvæðingunni. Í þessum efnum má segja að íslenskir félagshyggjumenn séu kaþólskari en páfinn, því meira að segja Svíar hafa fyrir nokkru komist að því að nýta má kosti einkaframtaksins í heilbrigðis- þjónustu. Þeir hófust handa fyr- ir nær tveimur áratugum við að leyfa einkaaðilum að reka heil- brigðisþjónustu og þar sem reynslan var góð hafa þeir fetað sig áfram á þessari braut. Ríkið greiðir áfram fyrir þjónustuna, en einkaaðilar sjá um fram- kvæmdina og eru meðal annars valdir til þess með útboðum. Til að bæta rekstur sjúkrahúsa hef- ur þeim verið breytt í hluta- félög, en hætt er við að „nú- tímalegir“ vinstrimenn hér á landi myndu reka upp mikið ramakvein ef ríkið reyndi að bæta rekstur ríkisspítala með því að breyta stofnun í hluta- félag. Skólum má einnig breyta í hlutafélög og það er tiltölulega einföld aðgerð. Og það er líka einfalt í framhaldi af því að selja skólann og kaupendur gætu til að mynda verið kenn- ararnir sjálfir, enda hafa þeir þekkingu á þessu sviði. Þeir gætu þannig orðið eigendur og þátttakendur í rekstri skólanna. Ríki og sveit gætu áfram greitt fyrir hvern nemanda sem sækti skólann, en eigendur skólans myndu vitaskuld keppast við að veita sem besta þjónustu, þ.e. menntun, til að fá sem flesta nemendur og þar með sem mestar tekjur. Með slíku móti væri kominn nýr og áhrifaríkur hvati í kerfið og líklegt að menntunin batnaði. Það er kominn tími til hér á landi að aðkoma ríkisins að heil- brigðis- og menntamálum verði tekin til endurskoðunar. Þar sem vasar skattgreiðenda eru ekki botnlausir geta sífellt meiri útgjöld ekki verið svarið við vanda á þessum sviðum. Í stað aukins fjármagns þarf nýja hugsun og nýjar aðferðir. Engin kosn- ingamál Aukin þátttaka einkaaðila í menntun og heilbrigðisþjónustu og það að stofna ekki til nánari kynna við Evrópusam- bandið eru allt mikilvæg framtíðarmál. VIÐHORF Eftir Harald Johannessen haraldurj- @mbl.is LANGTÍMAMARKMIÐskólastarfs er m.a. að eflalýðræðisvitund nemenda;að búa nemendur undir að taka virkan þátt í lýðræðissamfélagi. Mikilvægt er því að efla lýðræðisleg vinnubrögð í skólastarfinu, þar sem nemandinn fær tækifæri til að taka ákvarðanir, tjá skoðanir sínar, standa á sínu, vera sjálfstæður, um leið og hann fær tækifæri til að læra að taka tillit til skoðana annarra. Af- leiðingin er líka sú að nemendur verða ánægðari og áhugasamari í námi. Forsendan fyrir því að þetta heppnist er gagnkvæm virðing milli nemenda annars vegar og nemenda og kennara hins vegar. Dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessor við uppeldis- og menntun- arfræðiskor við Háskóla Íslands, flutti erindi á norrænni ráðstefnu í september um gildismat í skólum. Norræna ráðherranefndin stóð fyrir ráðstefnuröð um lýðræði í skólum í tilefni hálfrar aldar afmælis Norð- urlandaráðs. Önnur grein um þetta efni var á menntasíðu 27. september. Sjálfstæði og umhyggja Sigrún glímdi við nokkrar spurn- ingar á ráðstefnunni í erindi sínu „Að rækta lýðræðisleg gildi – Lykillinn að betri heimi“ og spurði m.a. „Hvernig getum við ræktað lýðræð- isleg gildi og um leið eflt borgaravit- und barna og unglinga, siðferðis- kennd þeirra og samskiptahæfni?“ Hvernig má efla samskiptahæfni? „Hæfnin að setja sig í spor ann- arra er grundvallarhæfni í því hvern- ig við skiljum félagsleg og siðferðileg mál; hún er grundvallarhæfni í mannlegum samskiptum,“ segir Sig- rún Aðalbjarnardóttir. „Eða hvernig getum við skilið aðra ef við getum ekki sett okkur í spor þeirra? Fundið til með öðrum? Eða hlúð að gagn- kvæmri virðingu?“ Sigrún segir að hæfnin að setja sig í spor annarra feli í sér að börn, ung- lingar og fullorðnir geti greint á milli eigin sjónarmiða og annarra og sam- ræmt þessi sjónarmið á sveigjanleg- an hátt. Hæfnin felst í því að geta skoðað mál frá ólíkum sjónarhornum og að greina á milli þeirra og að sam- ræma þau. Sigrún segir að í skólastarfi gefist gott tækifæri til að efla hæfni barna til að setja sig í spor annarra og efla siðferðiskennd, samskiptahæfni og borgaravitund þeirra. Hún hefur sjálf unnið að slíku lífsleikniverkefni í áratug í grunnskólum, og samið námsefnið Samvera ásamt Árnýju Elíasdóttur. Í því námsefni er áherslan á sjálf- stæðið og umhyggjuna sem samein- ast í ábyrgð við að deila réttindum og skyldum. Sigrún segir að þessi gildi séu grunnur virðingar, bæði sjálfs- virðingar nemenda og virðingar fyrir öðrum. Þau séu í raun grunnur lýð- ræðishugjónarinnar um frelsi, jafn- rétti og bræðralag. Gildi þess að tilheyra Sigrún hefur unnið mörg verkefni um hvernig rækta megi lýðræðisleg gildi, og stundað rannsóknir um hvernig mæla megi áhrifin, t.d. framfarir í samskiptahæfni; bæði í hugsun og hegðun í daglegum að- stæðum. Niðurstöður rannsókna hennar mæla greinilegar framfarir nemenda sem eru hjá kennurum sem eru þjálfaðir í að veita nemendum sjálfstæði og frelsi til að setja fram skoðanir sínar, sýna frumkvæði og taka af skarið. Og þeirra kennara sem veita nemendum tækifæri til að þroska með sér umhyggju hver fyrir öðrum, og láta þá finna að þeir til- heyri öðrum, en það vekur sam- kennd og umburðarlyndi og traust. „Þessir nemendur huguðu oftar að mismunandi sjónarmiðum þeirra sem hlut áttu að máli og settu sig í spor annarra í ríkari mæli,“ segir hún og nefnir sem dæmi að þegar þeir glímdu við ágreiningsmál spurðu þeir fremur en að skipa, ræddu í stað þess að rífast. Hún seg- ir að rannsóknir á verkefnum erlend- is á svipuðum vettvangi sýni álíkar niðurstöður. Hún nefnir t.d. erlend verkefni um að skapa samfélag í skólanum og samfélagskennd, þar sem nemendur eru umhyggjusamir, réttlátir, ábyrgir og stunda nám sitt af kostgæfni. Þar hefur m.a. komið fram að áhættuhegðun eins og áfengisneysla, hassreykingar og áflog minnkaði hjá þeim nemendum sem tóku þátt í verkefninu. „Sú tilfinning að tilheyra skiptir miklu máli,“ segir Sigrún, „að til- heyra hópi þeirra sem sækir skóla skiptir miklu um ábyrgðarkennd nemenda í framtíðinni. Sýnt hefur verið fram á að þeir eru líklegri til að skuldbinda sig við að ná markmiðum í þágu almennings og þjóna sam- félagi sínu ef þeir upplifa samkennd í félagahópnum í skólanum.“ Sigrún segir að umfjöllun um sið- ferðileg, félagsleg og tilfinningaleg gildi megi aldrei verða hornreka í uppeldisstarfi. „ Eftir því sem þjóð- félagið verður flóknara og fjölþjóð- legra verður æ meira knýjandi að taka á slíkum viðfangsefnum og efla hæfni barna og unglinga í samskipt- um,“ segir hún, því lýðræðisleg um- ræða þeirra um ýmis álitamál í sam- félaginu er jafnframt góður undir- búningur undir lífið. „Áhugaverð bresk rannsókn sýnir að börn allt niður í 7 ára aldur geta tekið þátt í umræðu um pólitísk mál og frá 9 ára aldrei geta þau rætt um hugtökin lýðræði, leiðtogi og ábyrgðarskylda stjórnvalda,“ segir hún. Jafnframt segir Sigrún: „Æskan þarf að fá tækifæri til að rökræða raunveruleg gildi. Hún þarf að þjálfa sig í að setja fram ýmis sjónarmið, vera gagnrýn- in, færa rök með og á móti í álita- málum, greina hinar margvíslegu hliðar þeirra og samræma og mynda sér skoðun; æskan þarf að fá tæki- færi til að hafa áhrif, láta raddir sín- ar heyrast og sjást í verki. Eiga börn að taka þátt í pólitík? Sigrún segir að í ofangreindum anda hafi ýmsir á síðustu árum lagt sérstaka áherslu á pólitíska virkni ungmenna og þátttöku í samfélags- þjónustu til að efla borgaravitund þeirra. Unga fólkið getur komist í snertingu við lýðræðið ef starf skól- ans við samfélagið ljái þeim rödd og áhrif í nánasta umhverfi sínu. Það eflir skilning á því að vera borgari. Þrennt skiptir máli … Sigrún nefndi þrjá hæfnisþætti sem mikilvægt er að hlúa að til að þetta heppnist. Í fyrsta lagi að efla pólitískt læsi, sem vísar til þekkingar á málefnum samfélagsins og þeim pólitísku viðfangsefnum sem borgar- arnir geta haft áhrif á og breytt, og jafnframt um hvar megi leita upplýs- inga ef þær skortir. Í öðru lagi að þjálfa borgaralega færni, sem vísar til hæfni í að ná fram markmiðum sem hópar setja sér. „Virk hlustun, hæfnin að setja sig í spor annarra, leiðtogahæfni, að tala máli sínu, að hafa samband við embættismenn og skipuleggja fundi sem tryggja að allir þátttakendur hafi rödd, flokkast undir borgara- lega færni,“ segir hún. Í þriðja lagi er það borgaraleg hollusta, sem vísar til tilfinningalegs sambands við samfélagið eða stjórn- skipulagið. „Borgaraleg hollusta fel- ur í sér þá tilfinningu að maður skipti máli, hafi rödd, áhrif í málefnum samborgaranna og vilji þess vegna leggja sitt af mörkum til samfélags- ins,“ segir hún og að mikilvægt sé að ungmenni upplifi slíka hollustu, ann- ars er hætta á að þeim finnist þau ekki tilheyra samfélaginu. Í verkefnum sem snúast um þetta þrennt er áhersla lögð á að unglingar taki virkan þátt í samfélaginu og reyni hlutina sjálfir; þeir finni að þeir geti haft áhrif og rækti með sér ábyrgðarkennd. „Unga fólkið upplif- ir þá tilfinningu að gefa af sér; að það hafi látið gott af sér leiða,“ segir Sig- rún og að með slíkri reynslu í dag- legu lífi öðlist það dýpri merkingu á ýmsum ögrandi viðfangsefnum sam- félagsins, sem skiptir miklu um borgaravitund þeirra. Sofa Norðurlöndin á verðinum? Sigrún segir að á Norðurlöndun- um megi ekki missa sjónar á þeirri dýrmætu reynslu sem ungmenni fái við að sinna velferðarmálum sem sjálfboðaliðar, þótt velferðarkerfið sé þar tiltölulega gott. „Ungt fólk gæti unnið með fólki á öllum aldri sem á við einhvers konar fötlun að stríða, innflytjendum á öllum aldri til Lýðræði í skólum II/ Starf í skólum með gildi getur bjargað lýð- ræðinu. Virðing nemenda og kennara bætir samfélagið. Gunnar Hersveinn spurði fræðikonu um skólabörn og samskiptahæfni. Samkennd gegn dofa  Kennarar gegna lykilhlutverki við að efla siðferðiskennd  Áhættuhegðun dvínar hjá þeim sem læra öflugt lýðræði í skólum  Meiri þátttaka og ábyrgð ungmenna í lýðræðinu dreg- ur úr neyslu. „Lögreglan í Reykjavík segir að aðgengi ungmenna á aldrinum 13–17 ára að ólöglegum fíkniefnum sé of mikið og vinna þurfi á því bót. Slíkt krefjist sam- vinnu miklu fleiri einstak- linga og stofnana en lögregl- unnar.“ (mbl.is. 17/9/02)  Erindi sínu á ráðstefnunni lauk Guðmundur Andri Thorsson með eftirfarandi orðum, sem voru í sam- hljómi við niðurstöðu Sig- rúnar Aðalbjarnardóttur: „Þá held ég að hollt væri á þessum viðsjárverðu tímum að rækta með okkur ein- hvern undursamlegasta eig- inleika mannsins sem hefur verið um of forsmáður í seinni tíð af vansælum stríðsflytjendum heimsins en hann er sá að geta sett sig í spor annarra.“ Áhrif ábyrgðarkenndar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.