Morgunblaðið - 18.10.2002, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 18.10.2002, Qupperneq 55
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 55 www.lyfja.is 20% kynningarafsláttur af OROBLU sokkum og sokkabuxum. Skrefi framar Sokkar, sokkabuxur, undirföt. oroblu@islensk-erlenda.is Kynnum OROBLU haustvörurnar í Lyfju Smáratorgi í dag, föstudag, kl. 14-18, Lyfju Lágmúla kl. 13-17 Með nýja, betrumbætta Advanced Stop Signs kreminu geturðu miðað beint á smáhrukkur og húðlitarbreyt- ingar sem farnar eru að angra þig. „Advanced“ vísar til hraðfleygra framfaranna í því að slétta úr fínum línum og hrukkum enn betur og nákvæmar en áður. „Advanced“ vísar líka til þess að einstök, afar skilvirk efnasamsetningin dregur úr húðlitarbreytingum þannig að húð þín fær jafnari lit og fallegri áferð. Þetta krem, sem vinnur svo vel gegn öldrun, er góð vörn gegn óæski- legum umhverfisáhrifum. Það er að þakka samhæfðum andoxunarefnum, sem löngu hafa sannað virkni sína. Fæst einnig sem létt húðmjólk, án olíu. Viltu ráðast gegn hrukkum og húðlitarbreytingum? Með Advanced Stop Signs geturðu verið viss um að hitta í mark. Advanced Stop Signs húðmjólk 50 ml .............. kr. 5.299 Advanced Stop Signs krem 50 ml ..................... kr. 5.299 Advanced Stop Signs krem 30 ml ..................... kr. 3.969 3ja þrepa pakki fylgir öllum keyptum Clinique vörum. www.clinique.com 100% ilmefnalaust. Þú hittir í mark með Advanced Stop Signs 100% ilmefnalaust Kringlunni, snyrtivörudeild, sími 568 9300. Ráðgjafi frá Clinique verður í Hagkaup Kringlunni í dag, föstudag kl. 13-18, laugardag kl. 11-16 og sunnudag kl. 13-17. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Alcoa vegna stofnunar nefndar um þjóð- garð norðan Vatnajökuls: „Það er Alcoa mikil ánægja að ís- lensk stjórnvöld hafi falið nefnd að kanna hvernig best verður staðið að verndun hálendisins á Austurlandi, á sama tíma og framkvæmdir eru hafnar á svæðinu. Við hjá Alcoa viljum starfa með ríkisstjórninni, bæjarfélögum og umhverfisverndarsamtökum svo hægt sé að tryggja að ókomnar kyn- slóðir fái notið óbyggða Íslands um aldur og ævi. Við teljum að hug- myndin um verndarsvæði norðan Vatnajökuls sé góð og eigi að skoða gaumgæfilega svo ekki sé talið að þetta sé fyrsta skrefið í þá átt að iðn- væða stærri hluta svæðisins.“ Yfirlýsing frá Alcoa Fulltrúafundur Landssamtakanna Þroskahjálpar Fulltrúafundur Landssamtakanna Þroskahjálpar árið 2002 verður haldinn Í Reykholti í Borgarfirði dagana 18. og 19. októ- ber. Yfirskrift fundarins er „Þátt- taka og áhrif“. Dagskráin hefst á föstudagskvöld kl. 20 og verður síð- an framhaldið á laugardag kl. 9.30 og stendur til kl. 15. Fyrirlesarar munu m.a. fjalla um áhrif fólks með þroskahömlun á eig- ið líf og áhrif foreldra á skólaþjón- ustu. Stefnuskrá samtakanna verður til umfjöllunar. Dagskráin er öllum opin. Í DAG Alþjóðleg ganga í Kópavogi Í til- efni alþjóðaviku í Kópavogi er fólk frá öllum þjóðum boðið velkomið í Hana–nú-gönguna, laugardaginn 19. október. Lagt er af stað frá Gjábakka kl. 10. Komið er við í Gullsmára og gengið í Smáralind þar sem fjölþjóð- legir sölubásar verða opnaðir kl. 11. Á MORGUN Ráðstefna um greiðsluþátttöku Greiðsluþátttaka ríkisins í lyfjum er efni ráðstefnu sem lyfjahópur Samtaka verslunarinnar heldur í Þingsal 1 á Hótel Loftleiðum í dag, föstudaginn 18. október, kl. 14. Fyrirlesarar verða: Inga J. Arn- ardóttir, deildarstjóri lyfjadeildar Tryggingastofnunar ríksins, Einar Magnússon, yfirlyfjafræðingur í heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu, Katrín Fjeldsted, alþingis- maður, Hjörleifur Þórarinsson, framkvæmdastjóri og formaður lyfjahóps Samtaka verslunarinnar, Ólafur Ólafsson, fyrrverandi land- læknir og stjórnarmaður í Félagi eldri borgara, og Garðar Sverr- isson, formaður Öryrkjabandalags- ins. Að loknum erindum verða pall- borðsumræður undir stjórn Vilhjálms H. Vilhjálmssonar, for- manns Landssamtaka hjartasjúk- linga. Ráðstefnustjóri verður Andr- és Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunarinnar. Aðalfundur húsbílaeigenda Fé- lag húsbílaeigenda heldur aðal- fund sinn laugardaginn 19. októ- ber kl. 13 á Hótel Örk, Hveragerði. Um kvöldið verður árshátíðin á sama stað, segir í fréttatilkynningu. Basar á Grund Basar verður hald- inn á Grund, dvalar og hjúkr- unarheimili Hringbraut 50, Reykja- vík, laugardaginn 19. október og mánudaginn 21. október og hefst kl. 13. Á boðstólum eru margs konar munir sem heimilisfólkið hefur unnið, m.a. íkonamyndir, selskinnstöskur, dúkkuföt og ýmiss konar prjóna- vara. Boðið verður upp á kaffi og eru allir velkomnir. MS-félagið heldur námskeið fyrir fólk sem nýlega (innan 2–3 ára) hef- ur fengið greiningu um MS-sjúk- dóminn, þriðjudaginn 22. október kl. 18–20, í húsi MS-félagsins við Sléttu- veg 5, Reykjavík. Á námskeiðinu verður megináhersla lögð á fræðslu og umræður um MS. Leiðbeinendur verða Margrét Sigurðardóttir, fé- lagsráðgjafi, og Jónína Guðmunds- dóttir, félagsráðgjafi. Í vetur verður jafnframt boðið upp á þátttöku í sjálfshjálparhópum og námskeið fyr- ir maka fólks með MS, segir í frétta- tilkynningu. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu MS-félagsins. Námskeið hjá MS-félaginu Alþjóðleg sýning Kynjakatta Al- þjóðleg sýning Kynjakatta, Katta- ræktarfélags Íslands, verður hald- in í Reiðhöll Gusts í Kópavogi laugardaginn 19. og sunnudaginn 20. október, kl. 10–18 báða dag- ana. Á sýningunni verða um 150 kettir og verða þar helstu tegundir, þ.e. allt frá venjulegasta húsketti til hinna mestu furðukatta. Hárlausir kettir, sphynx, verða sýndir í fyrsta skipti á Íslandi, einnig er von er á krullhærðum köttum til landsins. Á sýningunni dæma erlendir kattadómarar og meðal þeirra verður Eric Reijers, formaður FIFe. (Alþjóðakattaræktarfélags- ins). Hann hefur m.a. verið helsti hagsmunavörður katta og rækt- enda í samningum reglugerða hjá ESB. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir full- orðna og 300 kr. fyrir börn. ÞEIR sem fæddir eru 1961 og voru í Réttarholtsskóla, ætla að hittast í Lionssalnum Auðbrekku 25 Kópa- vogi, föstudaginn 25. október kl. 21. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 20. október, segir í fréttatilkynningu. Nemendur í Réttó hittast Í TILEFNI af 30 ára afmæli SPOEX – Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga – 15. nóvember nk. hafa samtökin gefið út barnabók um dreng með húðsjúkdóm. Bókin heitir Lalli og fagra Klara, en hún var fyrst gefin úr af sænsku psor- iasissamtökunum. Ætlunin er að gefa bókina í yngstu bekki grunn- skólans og eins í leikskólana og reyna að fá kennara og hjúkr- unarfræðinga skólanna til sam- starfs við SPOEX um að kynna börnunum hvernig áhrif það get- ur haft á börn að vera með húð- sjúkdóm, segir í fréttatilkynningu. Á myndinni afhenda þær Val- gerður Auðunsdóttir, formaður SPOEX, og Helga Guðmunds- dóttir, framkvæmdastjóri mennta- málaráðherra, Tómasi Inga Olrich fyrstu barnabókina sem heitir Lalli og fagra Klara, en hún var fyrst gefin út af af sænsku psor- iasissamtökunum. SPOEX gefur út barnabók Morgunblaðið/Golli Bankastræti 3,  551 3635 blue mat; eau de parfum japanski herrailmurinn hannaður af MASAKÏ MATSUSHÏMA ÍBÚAÞING í Grafarvogi verður haldið hinn 19. október kl. 10 til 14. Þingið fer fram í Borgarholts- skóla og er opið öllum íbúum og hagsmunaaðilum í Grafarvogi. Þingið er liður í því að efla samráð við almenning og er þriðja íbúaþingið sem Reykjavík- urborg býður til. Íbúar Kjarlar- ness riðu á vaðið á vetrarmán- uðum og þinguðu um vistvæna byggð undir Esjunni. Í Vesturbæ var svo þingað í vor um lífsgæði í Vesturbæ. Í Grafarvogi munu þátttakend- ur setja fram hugmyndir um það hvernig hverfi þeir vilja búa í. Jafnframt verða þeir beðnir að skilgreina hvað þurfi að gera til að bæta hverfið og hvernig eigi að gera það. Aðferðin sem notuð verður á þinginu byggist á umræðu í litlum hópum þar sem hver og einn fær tækifæri til þess að láta sínar skoðanir í ljós. Niðurstöður þingsins verða síð- an kynntar á fundi í hverfinu, í Grafarvogsblaðinu og á Grafar- vogur.is og Reykjavik.is. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri setur þingið. Nem- endur úr grunnskólum Grafar- vogs kynna barnaþing Grafar- vogs. Vinnuhópar starfa á þinginu. Fundarstjóri er Stefán Jón Hafstein, formaður hverfis- ráðsins í Grafarvogi. Íbúaþing í Grafar- vogi á laugardag Framlag vörsluaðila Framtakssjóðs Í frétt blaðsins í gær um fjárfest- ingar Framtakssjóðsins, sem er í umsjá Nýsköpunarsjóðs atvinnulífs- ins, féll út hluti þar sem greint var frá mótframlagi fjögurra vörsluaðila sjóðsins, alls 500 milljónum króna. Beðist er velvirðingar á þessu en sjóðsféð nemur alls 1.500 milljónum króna, eins og fram kom í fréttinni. Milljarður var lagður til sjóðsins af sölu ríkisins á hlut sínum í Fjárfest- ingarbanka atvinnulífsins, FBA, á sínum tíma. LEIÐRÉTT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.