Morgunblaðið - 18.10.2002, Síða 68

Morgunblaðið - 18.10.2002, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. NORSKA blaðið Aftenposten fullyrðir að við end- urnýjun samningsins um Evrópska efnahags- svæðið muni Norðmenn þurfa að greiða miklum mun meira en þeir gera nú og er jafnvel talað um tugföldun í því sambandi. EFTA-ríkin hafa greitt í sérstakan þróunarsjóð sem veitir styrki og niðurgreidd lán til fátækari ríkja ESB og hafa Íslendingar greitt um 4,55% af heild eða tæpar 110 milljónir í ár. Norðmenn greiða nú um 200 milljónir norskra króna, jafn- virði liðlega 2,3 milljarða íslenskra króna, en spurst hefur út að ESB muni gera kröfu um að Norðmenn greiði allt að 29 milljörðum við stækk- un ESB. Talsmenn framkvæmdastjórnar ESB hafa á hinn bóginn hafnað slíkum fullyrðingum. Ríkidæmi Noregs ekki fallið til þess að draga úr kröfunum Viðræður um endurnýjun EES-samningins fara fram í haust og vetur vegna væntanlegrar stækk- unar Evrópusambandins í austur. Samkvæmt heimildum Aftenposten stefnir framkvæmdastjórn ESB að því að miða framlög EFTA-ríkjanna vegna EES-samningsins við verga þjóðarframleiðslu hvers lands og efnahags- legan styrk þeirra. Þá er og bent á að Norðmenn verði sífellt ríkari vegna olíunnar; landið sé eina eða eitt örfárra ríkja í heiminum sem eru með bull- andi jákvæðan viðskiptajöfnuð eða meira en 10% af vergri þjóðarframleiðslu. Fullyrt er að sú stað- reynd verði ekki til þess að draga úr kröfum ESB á hendur EFTA-ríkjunum. Aftenposten telur vera ljóst að norsk stjórnvöld séu í reynd tilbúin til þess að kosta nokkru meira til þess að halda í EES-samninginn, en bæði Ís- land og Liechtenstein séu hins vegar treg til að greiða meira. Blaðið segir að á Íslandi gæti óánægju með afstöðu Norðmanna; í huga ís- lenskra stjórnvalda séu takmörk fyrir því hvað menn séu tilbúnir til þess að greiða á meðan versl- un með fisk er ekki frjáls. Afstaða Norðmanna ekki farið framhjá ESB Aftenposten segir að norskir stjórnmálamenn hafi gefið í skyn að Norðmenn séu tilbúnir til þess greiða meira til að halda í EES-samninginn og ummæli þess efnis hafi engan veginn farið framhjá framkvæmdastjórninni í Brussel. Þá seg- ir blaðið að forsætisráðherra Noregs, Kjell Magne Bondevik, hafi opnað á þann möguleika að Norð- menn greiði meira þegar hann heimsótti fram- kvæmdastjórnina í Brussel fyrir mánuði. Því sé ekki hægt að gera ráð fyrir öðru en að kröfur Evr- ópusambandsins verði miklum mun meiri þegar sest verður að samningaborðunum um endurnýj- un EES-samningsins í haust og vetur. Hafa brugðist við vegna orðrómsins Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa engar upphæðir eða tölur verið nefndar við íslensk stjórnvöld. Fyrir liggur að þau hafa þó heyrt af þessum orðrómi og háum upphæðum sem nefndar hafa verið í fjölmiðlum í Noregi og munu raunar hafa brugðist við vegna þess, þ.e. komið skila- boðum um afstöðu sína til málsins til ESB og til norskra stjórnvalda. Þá má benda á að utanríkisráðherra, Halldór Ásgrímsson, hefur látið þau orð falla á Alþingi að í viðræðum muni hann tengja saman greiðslur til ESB og frjálsan markaðsaðgang með fisk og að hann muni ekki leggja fyrir Alþingi kröfur um aukin framlög vegna stækkunar ESB ef ekki fáist neitt á móti í verslun með fisk. Rætt er um að ESB krefjist að EFTA-ríkin hækki greiðslur í þróunarsjóð Fullyrt að Norðmenn séu tilbúnir til að greiða meira HÁTT upp í himininn bláa rólaði hún sér þessi unga Skagastúlka á lóðinni við Grundaskóla á Akra- nesi í vikunni. Svo hátt fór hún að sterkir geislar haustsólarinnar byrgðu öðrum bekkjarfélaga hennar sýn sem gerði sig kláran fyrir samskonar flugferð. Ról- urnar eru þannig úr garði gerðar að leggjalangir krakkar leika sér gjarnan að því að láta tærnar snertast þegar upp er komið. Morgunblaðið/Golli Hátt upp í himininn … HVAÐA vikudagur var 13. ágúst 1917, 2. júlí 1952 og 28. júlí 1970? Ef Andri Freyr Hilmarsson, 19 ára, er spurður af handahófi um vikudag tiltekinn mánaðardag tiltekið ár hefur hann svarið umsvifalaust á takteinum. Líka ef hann er spurður hvað lögin í Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva fengu mörg stig í heild, hversu mörg frá hinum löndunum, hvað lögin hétu og hverj- ir flytjendurnir voru allar götur frá 1984. Andri Freyr er einhverfur, en hefur sérstaka hæfileika í tíma- útreikningi. Þótt hann eigi í erf- iðleikum með stærðfræði og skilji ekki verðgildi peninga er hann einkar minnugur á dagsetningar og tölur og ýmislegt sem er raðað upp á skipulagðan hátt, t.d. í stafrófsröð. Jón Gunnarsson, 20 ára, er líka einhverfur, en hæfileikar hans fel- ast í teikningu. Hann teiknar m.a. teiknimyndaseríur fríhendis, þar sem hann sjálfur, vinir hans, þekktir leikarar og teiknimyndafígúrur eru oft í hlutverkum. Samkvæmt erlendum rann- sóknum eru 10% einhverfra með svokallað sérgáfu-heilkenni. Þetta er brot úr langri teikni- myndaseríu eftir Jón Gunnarsson. Sérstakir hæfileikar  Sérstakt fólk/B4 HRAÐFRYSTIHÚS Eski- fjarðar hf. hefur samið um kaup á Hópi ehf. og Strýthóli ehf. í Grindavík. Búið er að samþykkja og undirrita samn- inginn í stjórnum félaganna en hann er framvirkur og mið- ast við upphaf næsta fiskveiði- árs eða 2. september 2003. Stærstu eignir hinna keyptu félaga eru fiskveiði- heimildir sem nema rúmum 1.357 þorskígildistonnum, miðað við núgildandi úthlutun aflaheimilda, ásamt bátnum Þorsteini GK. Áætlað er að rekstur félaganna falli í fram- haldinu inn í rekstur Hrað- frystihúss Eskifjarðar. Heild- arverðmæti samningsins er 1.300 milljónir. Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. Eignast aflaheim- ildir í Grindavík  HRESK kaupir/23 EKIÐ var á gangandi vegfaranda í Akraseli í Breiðholti á tólfta tím- anum í gærkvöldi. Vegfarandinn var fluttur á slysadeild Landspít- alans í Fossvogi en þar fengust ekki upplýsingar um líðan hans áð- ur en Morgunblaðið fór í prentun. Lögreglan í Reykjavík vildi á sama tíma ekki gefa frekari upplýsingar um slysið. Ekið á gangandi vegfaranda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.