Morgunblaðið - 18.10.2002, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.10.2002, Blaðsíða 19
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 19 örugg stýring viðskiptakrafna 80 ung- lingar á námskeiði Vogar SAMSUÐ, Samtök félagsmiðstöðva á Suðurnesjum, halda námskeið fyrir fulltrúa í nemenda- og unglingaráð- um í dag. Námskeiðið fer fram í fé- lagsheimilinu Glaðheimum í Vogum, hefst klukkan 9 og stendur til 15. Tilgangur námskeiðsins er að styrkja unglingana sem sæti eiga í ráðunum þannig að þeir verði betur í stakk búnir að takast á við verkefni vetrarins. Unglingar af öllum Suður- nesjum taka þátt í námskeiðinu og er búist við rúmlega 80 þátttakendum. Ungmennanámskeiðið er einn af mörgum atburðum sem SamSuð stendur fyrir í vetur. Aðrir atburðir sem verða á vegum samtakanna eru meðal annars billjardmót 19. október, starfsmannanámskeið 16. nóvember og karaokekeppni í byrjun janúar. Hausthátíð varnarliðsins Keflavíkurflugvöllur ÁRLEG hausthátíð varnarliðsins verður haldin á Keflavíkurflugvelli á morgun, laugardag. Hátíðin er með „karnival“-sniði og fer fram í stóra flugskýlinu næst vatnstanki vallarins frá klukkan ell- efu að morgni til þrjú síðdegis. Í boði verður fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna - lifandi tónlist, þrautir, leikir, matur og hressing og sýningar af ýmsu tagi, og flugvélar og annar búnaður varnarliðsins til sýnis á svæðinu. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir, segir í fréttatilkynningu frá varnarliðinu. Umferð er um Grænás- hlið ofan Njarðvíkur. Gestir eru vin- samlega beðnir að hafa ekki með sér hunda. Tilboð í tilefni opnunar Blómavals Keflavík BLÓMAVAL opnar í dag verslun í húsnæði Húsasmiðjunnar á Smiðju- völlum 5 í Keflavík. Vöruúrval verður svipað og í Blómavali í Reykjavík, meðal annars afskorin blóm og skreytingar, gjafavara, pottaplöntur. Vöruverð verður hið sama og í Reykjavík, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Blómavali. Rekstrastjóri Blómavals í Reykja- nesbæ er Ómar Ellertsson sem und- anfarin ár hefur rekið Blómasmiðjuna í Keflavík. Þeirri verslun hefur nú verið lokað, starfsfólkið hefur flutt sig um set og býður gamla og nýja við- skiptavini velkomna í Blómaval. Í tilefni af opnun verslunarinnar mun Blómaval gefa öllum pottaplöntu sem versla á opnunardaginn, allir krakkar fá ís á laugardag kl. 14 og til- boð verða á ýmsum vörum um helgina. BÆJARFULLTRÚAR Samfylking- arinnar og Framsóknarflokksins vilja að sótt verði um lán vegna byggingar 25 félagslegra leiguíbúða á næsta ári. Tillaga þessa efnis var felld með at- kvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins á bæjarstjórnarfundi í vikunni. Sveindís Valdimarsdóttir mælti fyrir tillögu bæjarfulltrúa Samfylk- ingarinnar en í henni felst að tekið er undir samþykkt fjölskyldu- og félags- málaráðs um byggingu 25 félagslegra leiguíbúða á næsta ári samkvæmt áætlun sem gerð var á síðasta ári. Í greinargerð kemur fram það álit að vegna húsnæðisskorts í bænum sé þörf á því að vinna eftir þessari áætl- un. Nú þegar liggi fyrir yfir 70 um- sóknir eftir slíkum íbúðum. Vakin er athygli á því að bæjar- félagið eigi kost á lánum í þessu skyni hjá Íbúðalánasjóði á 3,5% vöxtum en almenn byggingafélög þurfi að sætta sig við hærri vexti. Vaxtakostnaður- inn lendi því óhjákvæmilega á leigj- endum í hærra leiguverði. „Það hlýt- ur að vera hlutverk bæjaryfirvalda að standa vörð um þá sem verst eru sett- ir í samfélaginu,“ segir meðal annars. Tillagan var felld með atkvæðum bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Vísuðu þeir til bókunar sinnar í bæj- arráði þar sem fram kom að 247 fé- lagslegar leiguíbúðir bjóðast nú í Reykjanesbæ og að nýlega hafi verið samþykkt lán fyrir 18 til viðbótar. Þá hafi tvö byggingarfélög, auk Búseta, sótt um lán til byggingar leiguíbúða. „Æskilegt er að fylgjast með þróun leiguverðs með tilliti til þessa, áður en sótt er um sérstök lán á vegum Reykjanesbæjar til frekari bygginga leiguíbúða,“ segir í bókuninni. Hafna því að sækja um lán til byggingar 25 félagslegra íbúða Reykjanesbær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.