Morgunblaðið - 18.10.2002, Side 20
LANDIÐ
20 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
meistar inn. is
HÖNNUN LIST
Í OPINBERRI heimsókn í Húnaþing
sem lauk nýverið afhenti forseti Ís-
lands „Hvatningu forseta Íslands til
ungra Íslendinga“ á Blönduósi og
Hvammstanga.
Á Hvammstanga fór afhendingin
fram 14. október sl. í Félagsheimilinu
á Hvammstanga. Hér að neðan eru
nöfn þeirra sem hlutu hvatning-
arverðlaunin og tilgreint fyrir hvað.
Frá vinstri: Aron Stefán Ólafsson,
Reykjum I, Hrútafirði. Hann er
gæddur góðum námshæfileikum og
hefur með dugnaði, eljusemi og já-
kvæðu hugarfari náð sér eftir alvar-
legt slys sem hann lenti í fyrir
nokkru.
Baldur Hrafn Björnsson,
Hvammstanga. Hann hefur sýnt góð-
an árangur í námi og verið í far-
arbroddi í félagsstarfi og virkur í
kirkjustarfi.
Freydís Jóna Guðjónsdóttir,
Hvammstanga. Hún hefur sýnt mik-
inn dugnað og góðan árangur í námi.
Guðrún Eik Skúladóttir, Tann-
staðabakka, Hrútafirði. Hún er bæði
góður námsmaður og íþróttamaður
og auk þess gædd góðum tónlistar-
og sönghæfileikum.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir,
Reykjum 2, Hrútafirði. Hún er góður
námsmaður og efnilegur íþróttamað-
ur, hefur verið Íslandsmeistari í sín-
um aldursflokki í nokkrum greinum
frjálsra íþrótta.
Hrund Jóhannsdóttir, Gauksmýri,
Línakradal. Henni er margt til lista
lagt og hefur sýnt mikinn dugnað í
námi, íþróttum og tónlist auk þess að
vera mjög virk í félagsstarfi skólans.
Kolbrún Arna Björnsdóttir,
Hvammstanga. Hún hefur sýnt góða
náms- og tónlistarhæfileika.
Kolbrún Bragadóttir, Hvamms-
tanga. Hún hefur sýnt mikinn kjark
og dugnað við að takast á við ýmsa
erfiðleika í lífinu.
Sigrún Soffía Sævarsdóttir, Laug-
arbakka. Hún er efnilegur náms-
maður og mikil hannyrðakona.
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Hrúta-
firði. Hún er góður námsmaður og
hefur náð mjög ágætum árangri í
frjálsum íþróttum og körfubolta og
m.a. verið kosin íþróttamaður Vest-
ur-Húnavatnssýslu.
Sigurður Helgi Oddsson,
Hvammstanga. Hann er góður náms-
maður og fjölhæfur íþróttamaður.
Hann er einnig gæddur miklum tón-
listarhæfileikum.
Sonja Líndal Þórisdóttir, Víðidal.
Hún er gædd miklum náms- og tón-
listarhæfileikum og hefur auk þess
sýnt mikla hæfni í hestaíþróttum.
Sylvía Hera Skúladóttir, Hvamms-
tanga. Hún hefur sýnt góða náms- og
tónlistarhæfileika auk þess að vera
góður íþróttamaður.
Þorgrímur Guðni Björnsson,
Hvammstanga. Hann hefur sýnt
góða náms- og íþróttahæfileika,
dugnað og jákvæðni.
15 ungmenni fengu
viðurkenningu á Blönduósi
Á Blönduósi fór afhending við-
urkenninga fram í Íþróttahúsinu á
Blönduósi.
Þeir sem hlutu hvatningu eru:
Dagrún Jónasdóttir, Blönduósi.
(ekki á mynd) Hún hefur náð góðum
árangri í námi, einkum í stærðfræði
og látið að sér kveða í félagsmálum
og íþróttum.
Frá vinstri: Elías Kristinn Sæ-
mundsson, Skagaströnd. Hann hef-
ur sýnt mikinn dugnað og jákvæðni í
baráttu sinni við erfiðan sjúkdóm.
Guðbjörg Þorleifsdóttir, Blöndu-
ósi. Hún hefur sýnt mikla hæfileika
og dugnað við að takast á við ýmsa
erfiðleika í lífinu.
Gunnar Már Sæmundsson,
Skagaströnd. Gunnar hefur eins og
bróðir hans verið einstaklega dug-
legur og jákvæður í baráttu við erf-
iðan sjúkdóm.
Jóhann Sigurjón Jakobsson,
Blönduósi. Hann er efnilegur náms-
maður, hugmyndaríkur og góður
íþróttamaður. Hann hefur einnig
sýnt skemmtilega hugkvæmni við
viðgerðir á hjólum og vélum.
Jóna Gréta Guðmundsdóttir,
Skagaströnd. Hún hefur sýnt góða
námshæfileika og dugnað í félags-
stöfum.
Kristmundur Stefán Einarsson,
Grænuhlíð. Hann hefur sýnt mikla
námshæfileika, dugnað, m.a. við bú-
störfin, og verið skólafélögum sínum
til fyrirmyndar í hvívetna.
Lilja María Evensen, Blönduósi.
Hún hefur náð góðum árangri í námi
og tónlist og sýnt forystuhæfileika í
félagsmálum.
Lillý Rebekka Steingrímsdóttir,
Litlu-Giljá. Hún hefur sýnt að hún
býr yfir miklum tónlistarhæfileikum
og leikur m.a. á píanó og þverflautu.
Oddur Aron Valdimarsson,
Skagaströnd. Hann hefur sýnt prúð-
mennsku, mikinn dugnað og ein-
arðan vilja til að kljást við erfiðleika.
Ólafur Freyr Birkisson, Höllu-
stöðum. Hann er duglegur náms-
maður og áhugasamur íþróttamaður
og hafði m.a. forystu um þátttöku í
knattspyrnumóti.
Rúnar Þór Njálsson, Blönduósi.
Hann er ágætur námsmaður, verið
jákvæður og duglegur við að takast
á við erfiðleika sem fylgja fötlun
hans.
Rúnar Aðalbjörn Pétursson,
Hólabæ. Hann er gæddur góðum
námshæfileikum og er prúður og
kurteis, öðrum góð fyrirmynd.
Sigurdís Sandra Tryggvadóttir,
Ártúni. Hún er góður námsmaður og
gædd miklum tónlistarhæfileikum.
Stefán Örn Gíslason, Blönduósi.
Hann hefur sýnt mikla leikhæfi-
leika, er hugmyndaríkur og stendur
sig vel í öllu félagsstarfi.
Ungmenni á Blönduósi og Hvammstanga tóku vel á móti forseta Íslands
Fengu hvatningu
frá forseta Íslands
15 ungmenni á Blönduósi hlutu hvatningu frá forsetanum.
Morgunblaðið/Ómar
Forsetinn afhenti „Hvatningu forseta Íslands til ungra Íslendinga“.
Húnavatnssýsla
„ÉG hef mjög gaman af því að
tefla,“ sagði Lundúnastrákurinn
Luke McShane. Hann er 18 ára
stórmeistari í skák og var einn
þátttakenda á Mjólkurskákmótinu
á Selfossi sem er nýafstaðið. Luke
kom til mótsins ásamt föður sínum
Rod McShane sem hjálpaði til við
framkvæmd mótsins. „Ég var 5
ára þegar afi kenndi mér að tefla.
Þetta var víst á venjulegum rign-
ingardegi og við vorum inni við.
Svo keppti ég á mínu fyrsta móti
þegar ég var 6 ára,“ sagði Luke og
faðir hans sagði að það hefði ekki
verið nokkur leið að stöðva strák-
inn. „Hann vildi alltaf fara á mót
um helgar og þannig fór hann á
hvert mótið á fætur öðru og varð
fljótt mjög góður. Þetta er íþrótt
fyrir unga menn og konur sem
hafa nægan tíma fyrir skákina og
menn eiga að leggja rækt við þetta
á meðan þeir eru ungir. Hann hef-
ur ferðast mjög mikið, alveg frá
barnæsku og fengið mjög mikið út
úr þessu,“ sagði Rod McShane.
„Þetta var nokkuð erfitt skák-
mót og satt að segja átti ég ekki
von á svona erfiðum skákum þó að
ég vissi hverjir væru þátttak-
endur,“ sagði Luke. Hann sagðist
aðeins hafa teflt einu sinni við
Nikolic og þá í hraðskák, tvisvar
sinnum við Sokolov og tapað í
bæði skiptin. Síðan hefði hann
aldrei teflt við Tregubov. Hann
sagðist hafa tapað fyrir Tregubov
í mótinu en gert jafntefli við hina.
„Skákin gegn Tregubov var erf-
iðust, hann bókstaflega jarðaði
mig og hafði algera yfirburði,“
sagði Luke og brosti í kampinn.
Hann kvaðst hafa haft mjög
gaman af fjölteflinu við íslenska
unglingalandsliðið í knattspyrnu.
„Þetta var skemmtilegt og fjöl-
breytilegt,“ sagði hann og brosti,
hafði greinilega gaman af sam-
skiptunum við landsliðið sem af-
henti honum áritaða lands-
liðstreyju áður en fjölteflið hófst.
Hann og faðir hans ætluðu að
eyða einum degi til að skoða sig
um á landinu áður en þeir héldu
heim á leið. En hvaða markmið
hefur svo ungur og upprennandi
skákmaður. „Mig langar að tefla
við einhverja af þeim tíu bestu í
heiminum,“ sagði þessi ungi og
hógværi stórmeistari sem skák-
áhugamenn eiga örugglega eftir
að fylgjast með í náinni framtíð.
Luke McShane lærði að tefla 5 ára
Langar að tefla við ein-
hvern af þeim tíu bestu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Luke McShane tekur við áritaðri landsliðstreyju úr hendi Viðars Halldórs-
sonar. Milli þeirra er Hrafn Jökulsson, mótsstjórnandi og forseti Hróksins.
Selfoss
BJÖRGUNARHUNDASVEIT Ís-
lands hélt síðasta sumarnámskeið
sitt á utanverðu Snæfellsnesi nú
nýverið. Gist var á Gufuskálum og
hundarnir æfðir við norðanverðar
rætur Snæfellsjökuls. Námskeiðið
stóð í þrjá daga og sóttu það rúm-
lega tuttugu hundaeigendur sem
mæta á sumarnámskeið sveitarinn-
ar til að fá stöðumat á getu leit-
arhunda sinna. Um samspil manns
og hunds er að ræða og útskrifaðist
Auður Yngvadóttir með A-gráðu í
víðavangsleit, Emil Ágústsson með
B-gráðu og Helgi Páll Pálmason
með C-gráðu. Auk þess útskrifaðist
Ingimundur Magnússon sem leið-
beinandi í víðavangsleit. Leitar-
menn og þjálfarar gáfu ekkert eftir
þótt veður væri frekar leiðinlegt yf-
ir námskeiðsdagana, enda vanir að
vinna við leit undir erfiðum kring-
umstæðum. Vilji fólk fræðast frek-
ar um starfsemi sveitarinnar er vef-
slóðin www.bhsi.is og vefsíðan mjög
góð og fróðleg.
Björgunarhundar
æfðir á Snæfellsnesi
Hellnar
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann