Morgunblaðið - 18.10.2002, Síða 41

Morgunblaðið - 18.10.2002, Síða 41
unar og kostnað við innheimtu, t.d. legðist kostnaður við tækjaleit niður. Þetta fyrirkomulag gengur þvert á sjálfstæði fjölmiðla, þegar fjölmiðl- arnir eru háðir stjórnvöldum beint um fjármagn, en koma má í veg fyrir það með stefnumótun til lengri tíma. Gagnagrunnur fasteignamats rík- isins yfir fasteignir í landinu hefur skapað tilefni til að skoða hvort hægt er að nýta þann grunn til að inn- heimta afnotagjöld til Ríkisútvarps- ins. Önnur leið væri að hækka fast- eignaskatta sem nemur afnotagjöld- um, en móta þarf stefnumótun til lengri tíma. Varðveitum sjálfstæði RÚV Að taka RÚV af auglýsingamark- aði og bæta upp tekjumissinn með sérstöku framlagi á fjárlögum er að- gerð sem hvergi hefur verið farin og kemur eingöngu þeim einkareknu fjölmiðlum til góða sem fyrir eru á auglýsingamarkaðinum, á kostnað auglýsenda og neytenda, m.ö.o. leið- ir til hækkunar vöruverðs með auk- inni fákeppni. Að leggja niður afnotagjöld getur leitt til pólitískrar íhlutunar um mál- efni fjölmiðla í eigu almennings og þar með grafið undan sjálfstæði þeirra. Stefnumótun til nokkurra ára í senn, bæði hvað varðar fjármál og dagskrárstefnu, gerir mögulega íhlutun erfiðari og styrkir sjálfstæði RÚV. Að framansögðu má sjá að gera má breytingar við fjármögnun RÚV, en stefnumótunin þarf að vera til lengri tíma. Frumvarp menntamála- ráðherra þarf ekki að boða meiri miðstýringu né breyttar hugmyndir og markmið, enda eru landsmenn ánægðari með dagskrár RÚV en dagskrár annarra fjölmiðla. Höfundur er stjórnsýslufræðingur og deildarstjóri afnotadeildar. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 41 HLEYPT hefur verið af stokk- unum sérstöku verkefni sem miðast að því að bæta stöðu kvenna í at- vinnulegu tilliti í hinu nýja Norð- austurkjördæmi. Hér er um að ræða stöðugildi sérstaks atvinnu- og jafnréttisráðgjafa og er sam- starfsverkefni félagsmálaráðu- neytisins og Byggðastofnunar. At- vinnu- og jafnréttisráðgjafinn mun verða til húsa hjá Þróunarstofu Austurlands og hefur verið ráðin til starfans Helga Björg Ragnarsdótt- ir. Meginverkefni jafnréttisráðgjafa er að vinna í samvinnu við atvinnu- ráðgjafa á svæðinu að átaki í fjölg- un atvinnutækifæra fyrir konur, vinna að eflingu þeirra sem sjálf- stæðra atvinnurekenda og við upp- byggingu fyrirtækja þeirra. Að baki liggi upplýsingar um að á konur halli hvað varðar ofangreind atriði. Sérstakt átak verður gert til að bæta stöðu kvenna í dreifbýli til eigin atvinnurekstrar eða sam- rekstrar smárra eininga. Jafnframt verði samstarfs leitað við svæðis- vinnumiðlanir og aðra aðila um átaksverkefni fyrir atvinnulausar konur í því skyni að byggja upp hæfni þeirra til þátttöku í atvinnu- lífinu. Fyrirmynd þessa verkefnis er starf jafnréttisráðgjafa Norður- lands vestra en sérstakur ráðgjafi kvenna hefur verið starfandi á Blönduósi sl. ár. Nýlega var verk- efnið á N-vestra víkkað út og þjón- ar nú ráðgjafinn hinu nýja Norð- vesturkjördæmi. Hefur verkefnið þar gefið mjög góða raun og hefur atvinnutækifærum kvenna á svæð- inu fjölgað í framhaldi af því. Sóknarfæri Það er ljóst að með tilkomu þessa verkefnis munu atvinnutækifæri kvenna í Norðausturkjördæmi verða fleiri og fjölbreyttari. Slíkt er nauðsynlegt til þess að styrkja grundvöll byggðarlaganna í kjör- dæminu. Jafnframt sýna kannanir að staða kvenna á landsbyggðinni er á ýmsan hátt veikari en staða kvenna á höfuðborgarsvæðinu. Slíkt er óviðunandi og ber stjórnvöldum að halda áfram á þeirri braut að rétta hlut kvenna á landsbyggðinni gagnvart kynsystrum sínum á höf- uðborgarsvæðinu. Framsókn kvenna Eftir Birki J. Jónsson „Atvinnu- tækifæri kvenna í Norðaust- urkjördæmi munu verða fleiri og fjöl- breyttari.“ Höfundur er aðstoðarmaður félagsmálaráðherra. Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Húsgögn Sérpantanir Draumavél heimilanna! Vegleg brúðargjöf! Ísaumuð svunta með nöfnum og brúðkaupsdegi fylgir! 5 gerðir - margir litir Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900 60 ára frábær reynsla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.