Morgunblaðið - 18.10.2002, Síða 48

Morgunblaðið - 18.10.2002, Síða 48
MINNINGAR 48 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ragnar SverrirRagnars flug- gagnafræðingur fæddist í Reykjavík 13. september 1943. Hann lést á Land- spítala – háskóla- sjúkrahúsi við Hringbraut 10. októ- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru Anna Ólafsdóttir tónlistarkennari, f. 11. desember 1913, d. 25. desember 1948, og Ásgrímur Ragnars, fulltrúi hjá Flugmálastjórn á Keflavíkurflug- velli, f. 1. febrúar 1913, d. 4. októ- ber 1977. Albróðir Ragnars er Ólafur Ragnars, f. 19. apríl. Hálf- bróðir Ragnars, samfeðra, er Gunnar Örn Ragnars, f. 10 janúar 1955. Seinni kona Ásgríms er Hulda Ólafsdóttir, f. 23. jan. 1925. Dóttir hennar var Linda P. Guð- mundsson, f. 10. október 1946, d. 26. desember 1993. Ragnar kvæntist árið 1970 Huldu Svavarsdóttur, f. 10. júlí 1950, d. 16. júlí 1973. Dóttir þeirra var Anna Þóra Ragnars, f. 12. mars 1971, d. 10. júlí 1973. Ragnar kvæntist 13. mars 1977 Margréti M. Ragnars, f. 15. júní 1952. Börn þeirra eru: 1) Anna Þóra vaktstjóri, f. 18. september 1976, 2) Ásgrímur, gröfumaður, f. 12. október 1977. Sam- býliskona hans er Sigurbjörg Sigur- björnsdóttir, f. 28. desember 1983, 3) Árni Magnús, starfs- maður Toyota, f. 20. september 1981, 4) Einar Franz, nemi, f. 1. nóvember 1985, 5) Sigríður Huld, nemi, f. 18. júní 1987, 6) Friðþjófur Ottó, nemi, f. 26. nóvember 1991. Ragnar tók landspróf frá Hér- aðsskólanum á Núpi í Dýrafirði og útskrifaðist frá Samvinnuskól- anum á Bifröst 1966. Hann lauk jafnframt flugnámi og vann hjá Flugfélagi Íslands, bæði í Reykja- vík og Kaupmannahöfn, 1966– 1970. Þá hóf hann störf sem flug- gagnafræðingur hjá Flugmála- stjórn og vann þar alla tíð síðan. Ragnar starfaði talsvert að fé- lagsmálum, var meðal annars for- maður ljósmyndaklúbbs á Bifröst og átti sæti í stjórn Hjónaklúbbs Hveragerðis. Einnig sat hann í stjórn Interatca og var einn af stofnendum þeirra samtaka. Útför Ragnars verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Elsku Laggi minn, góður Guð blessi þig og varðveiti alla tíð. Guð gefi Möggu þinni og öllum börnunum ykkar, Óla bróður þínum og fjölskyldu og öllum ástvinum þín- um styrk til þess að komast yfir sár- asta söknuðinn og halda áfram, við munum aldrei gleyma þér og öllum dásamlegu stundunum sem við átt- um með þér, Guð blessi þig og fjöl- skyldu þína. Þóra frænka og fjölskylda. Ragnar hóf störf hjá Flugmála- stjórn í mars 1970 eftir að hafa verið starfsmaður Flugfélags Íslands hér heima og í Danmörku, var hann ráð- inn í starf aðstoðarmanns í Flug- stjórn. Með aukinni sjálfvirkni og breyttri tækni var starfsheiti að- stoðarmanns síðar breytt í flug- gagnafræðing. Ragnar hafði við upphaf starfs síns einkaflugmannspróf og átti ásamt fleiri samstarfsmönnum hlut í flugvél enda var flug hans helsta áhugamál. Það má segja að Ragnar hafi notið þeirrar gæfu að fá að starfa við sitt helsta áhugamál alla tíð. Á löngum starfsferli sínum hjá Flugmálastjórn kynntist Ragnar starfseminni frá mörgum hliðum. Hann fór á árum áður margar ferðir til að sinna tímabundnum afleysing- um á ýmsum flugvöllum landsins. Einnig kenndi hann nýnemum, því má segja að hann hafi alið upp all- flesta sem starfað hafa sem flug- gagnafræðingar í flugstjórn. Í kennslunni hafði hann mikla þolin- mæði og lagði sig fram um að vera nákvæmur í útskýringum sínum á námsefninu. Enn fremur sinnti hann tölfræði- vinnu af ýmsum toga í tengslum við fluggagnavinnslu. Þá eru ónefnd fé- lagsstörf sem hann vann fyrir hönd Félags flugmálastarfsmanna ríkis- ins. Ragnar tók virkan þátt í sam- starfi við erlenda starfsbræður okk- ar og var lengi helsti drifkrafturinn í því starfi. Þar áttum við, sem og annars staðar, margar góðar stund- ir saman. Ragnar var afar góðhjartaður og mátti ekkert aumt sjá án þess að bjóða fram aðstoð sína. Iðulega setti hann þarfir annarra framar sínum. Ragnar tók hlutunum með jafnaðar- geði þrátt fyrir að lífið hafi ekki allt- af leikið við hann. Sem samstarfs- maður var hann ákaflega liðlegur og var alltaf til taks þegar menn þurftu á aðstoð hans að halda. Ragnar lætur eftir sig eiginkonu og sex börn. Fráfall hans er þeim mikill harmur og viljum við votta þeim okkar innilegustu samúð. Fyrir hönd fluggagnafræðinga í Flugstjórn, Jóhanna, Kjartan og Bára. Skarð er fyrir skildi, er við í dag kveðjum við Ragnar Ragnars, góðan dreng, sem látinn er langt um aldur fram. Hann var hæglátur og fíngerður maður og húmorinn leiftraði í brúnu fallegu augunum. Ragnari var margt til lista lagt þótt hann hefði ekki hátt um það, enda ekki hans stíll að guma af hæfileikum sínum. Hann var um margt fróður enda bókalestur eitt af hans mörgu áhugamálum. Við systkinin minn- umst margra góðra stunda í gegn- um tíðina og viljum við draga upp með orðum eitt minningarbrot af mörgum sem koma í hugann og ylja okkur um hjartaræturnar. Kvöld á kontórnum, Ragnar við eftirlætisiðju sína að lesa góða bók. Dauf skíma frá græna lampanum og bækur upp um alla veggi. Það stend- ur kaffibolli á útskorna skrifborðinu og gleraugun hafa sigið aðeins niður á nefið. Þarna inni upplifir maður algjöra kyrrð og ró. Hann lítur upp þegar hann verður manns var og bros fær- ist yfir andlitið og hann segir: Nei, sæl, elskan. Nú kveðjum við Ragnar í sama anda: Vertu sæll, elskan. Elsku Magga og börnin öll stór og smá, missir ykkar er mikill. Megi guð styrkja ykkur. Kristjana Elínborg, Árni Kristinn, Guðrún Björg og Anna Sigríður og fjölskyldur. Í annað skipti á þessu ári kveðjum við látinn skólafélaga. Hópurinn, sem útskrifaðist frá Bifröst vorið 1966, var óvenju samstilltur enda að ljúka samveru sem var bæði ánægjuleg og þroskandi. Glöð og bjartsýn héldum við út í lífið með það góða veganesti sem nægtar- brunnur menntasetursins hafði látið okkur í té og kvöddum góðan skóla. Leiðir skildi og viðfangsefni lífs- ins tóku við í allri sinni fjölbreytni. En tengslin og vináttan slitnuðu aldrei og margir eru nánir vinir og félagar enn í dag. Ragnar S. Ragnars setti sannar- lega sérstakan svip á árganginn með hæglátu fasi og sínum spaklegu til- svörum. Hann skoðaði málefni oft frá óvæntum sjónarhóli og fylgdi skoðunum sínum eftir af hógværð og festu. Ekkert virtist koma honum á óvart og engin sjónarmið svo fá- fengileg að hann vildi ekki ræða þau í þaula og leita kjarnans. Hann var sannarlega góður félagi og heil- steyptur. Þannig minnumst við vinar okkar Ragnars S. Ragnars og vottum hans nánustu einlæga samúð við fráfall hans. Skólafélagar frá Bifröst. Kveðja frá Félagi flugmála- starfsmanna ríkisins Í dag kveðjum við Ragnar Ragn- ars, kæran starfsfélaga okkar, sem látinn er eftir erfið en snörp veik- indi. Flug var mjög ríkur þáttur í lífi Ragnars, á yngri árum lærði hann til flugs og eignaðist í félagi við aðra litla einkavél, sem hann flaug í frí- stundum. Má segja að öll starfsævi hans hafi verið í kringum flugið. Fyrst sem starfsmaður Flugfélags Íslands hér heima og erlendis og síðan frá 1970 starfsmaður Flug- málastjórnar. Ragnar vann ýmis störf á vegum FMS, en lengst af í flugstjórnarmið- stöð, sem fluggagnafræðingur. Það var notalegt að vera návistum við Ragnar, hann var rólyndur og vel lesinn maður, sem sagði skemmti- lega frá. Hann var félagsmaður FFR í þau rúm 30 ár sem hann starfaði hjá Flugmálastjórn Íslands. Við munum sakna góðs félaga, og þökkum honum samfylgdina. Við vottum fjölskyldu og ætt- mennum dýpstu samúð. Kveðja frá flugumferðar- þjónustunni Góður drengur og samstarfsmað- ur, Ragnar Ragnars, er látinn eftir baráttu við erfiðan sjúkdóm. Þrátt fyrir veikindi sín sinnti Ragnar störfum sínum af samviskusemi allt fram undir það síðasta. Ragnar hóf störf hjá Flugmálastjórn, sem flug- gagnafræðingur, árið 1970. Afskipti hans af flugmálum höfðu hafist nokkru áður, meðal annars starfaði hann hjá Flugfélagi Íslands, bæði hér heima og erlendis og í fríhöfn- inni á Keflavíkurflugvelli. Ragnar sinnti störfum sínum í flugstjórnar- miðstöðinni í Reykjavík af miklum metnaði og samviskusemi í rúmlega 30 ár. Auk hefðbundinna starfa tók hann að sér ýmis sérverkefni fyrir flugstjórnarmiðstöðina, en einnig leysti hann af sem flugradíómaður á ýmsum flugvöllum landsins. Ragnar var ætíð virkur í félagsstarfi og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyr- ir stéttarfélag sitt. Sótti fundi nor- rænna fluggagnafræðinga og var einn af frumkvöðlum stofnunar Al- þjóðasamtaka fluggagnafræðinga og sat í stjórn þeirra. Flug var alla tíð Ragnari hugleik- ið. Hann var lærður einkaflugmaður og átti um tíma hlut í flugvél. Þessi áhugi kom vel fram í störfum hans því ávallt var brennandi áhugi til staðar hjá Ragnari í þeim störfum sem honum voru falin á þessu sviði. Ég vil fyrir hönd samstarfsmanna á flugumferðarsviði Flugmála- stjórnar þakka Ragnari fyrir sam- fylgdina og minninguna um góðan dreng. Við vottum eiginkonu, börn- um og öðrum aðstandendum inni- lega samúð okkar á þessum erfiðu stundum. Ásgeir Pálsson. RAGNAR S. RAGNARS Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, HRANNAR ALBERTSDÓTTUR, Seiðakvísl 13, Reykjavík. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks krabbameinsdeilda Landspítalans og Heimahjúkrunar Karitasar. Sverrir Ólafsson, Sæmundur Hólmar Sverrisson, Margrét Rafnsdóttir, Rúnar Már Sverrisson, Ásta Ástþórsdóttir, Greta Sverrisdóttir, Davíð Art Sigurðsson og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KARL EMILSSON, Þinghól, Djúpavogi, verður jarðsunginn frá Djúpavogskirkju mánu- daginn 21. október kl. 14.00. Unnur Jónsdóttir, Kolbrún Karlsdóttir, Jón Karlsson, Katrín Karlsdóttir, Halldóra Karlsdóttir, Emil Karlsson, Sigurður E. Karlsson og fjölskyldur. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, SIGURÐUR G. ÍSAKSSON, Snorrabraut 52, Reykjavík, lést miðvikudaginn 2. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýju. Guðbjörg Sigurðardóttir, Guðlaugur Gíslason, Jón Sigurðsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Selma Sigurðardóttir, Gunnar Þ. Jónsson, Björn E. Sigurðsson, Hólmfríður Sigurðardóttir, Hreinn Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS ÍSLEIFSDÓTTIR, lést á Landspítalanum Hringbraut mánudag- inn 14. október. Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju mið- vikudaginn 23. október kl. 13.30. Theodóra Ragnarsdóttir, Róbert A. Spanó, Atli Ísleifur Ragnarsson, Ágústa Hermannsdóttir, Örn Ragnarsson, Soffía Ragnarsdóttir, Loftur Þorsteinsson, Hildur Sólveig Ragnarsdóttir, Ólafur Þór Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓHANNA MAGNÚSDÓTTIR, Austurvegi 34, Seyðisfirði, áður til heimilis á Kirkjuvegi 57, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar miðvikudaginn 16. október. Útförin auglýst síðar. Sigurður Magnússon, Þórunn Sigurðardóttir, Finnur Jónsson, Magnús Helgi Sigurðsson, Ásdís Sigurðardóttir, Sveinn Valgeirsson, Ólafur Már Sigurðsson, Sigrún K. Ægisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.