Morgunblaðið - 18.10.2002, Qupperneq 62
62 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LÍKLEGAST hafa margir orðið var-
ir við uppátæki drengjanna, sem
stjórna þættinum 70 mínútum á sjón-
varpsstöðinni Popptíví. Stjórnend-
urnir, Auðunn Blöndal, Sverrir Þór
Sverrisson og Sigmar Vilhjálmsson,
fagna tveggja ára afmæli þáttarins í
kvöld. Auðunn og Sverrir, eða Auddi
og Sveppi, verða fyrir svörum af
þessu tilefni.
„Það þarf að passa sig á því að fara
ekki að endurtaka sig,“ segir Sveppi
um þáttinn, sem er ekki skrýtið í ljósi
þess að í byrjun nóvember verða
þættirnir orðnir 500 talsins. „Það
þarf alltaf að vera með ferskar hug-
myndir og það er dálítið erfitt að
finna sífellt upp á nýjum földum
myndavélum,“ bætir Sveppi við en
myndavélin falda er fastur liður í
þættinum.
„Við erum bara að fíflast í fólki.
Það er aðalmálið,“ bætir Sveppi við.
Þeir segja þó að þetta sé allt í góðu og
flestir bregðist vel við þegar mynda-
vélin komi í ljós. „Þetta starf býður
upp á það að við getum kannað í raun
allt sem við viljum,“ segir Auddi og
útskýrir að um nokkurs konar mann-
fræðilegar rannsóknir sé að ræða.
Fleiri fastir liðir í þættinum eru
m.a. „Íslandsmet“, „Áskoranir frá
áhorfendum“, „Tilraunir“, „Götu-
spjall“ og „Íþróttakvöld“. „Við
Sveppi erum til dæmis búnir að setja
Íslandsmet í því að troða Hubba
Bubba í munninn og að vera á kafi of-
an í mjólk. Við setjum Íslandsmet í
fáránlegustu hlutum og eigum orðið
heimsmet í Íslandsmetum,“ segir
Auddi.
Báðir hafa þeir tekið áskorunum
frá áhorfendum með glöðu geði. „Ég
fór í vaxmeðferð undir höndunum og
það voru rifin af mér hárin. Um dag-
inn var síðan skorað á Sveppa að
strippa,“ segir Auddi.
„Við erum búnir að fá mikið af
áskorunum um að vera í kvenmanns-
fötum, syngja í Kringlunni, borða
chilli-pipar og sterkt sinnep. Eitthvað
sem gerir okkur kjánalega,“ segir
Sveppi.
Engar hermikrákur
Eftir þessar lýsingar koma banda-
rískir þættir á borð við Jackass í hug-
ann. Þeir þvertaka þó fyrir að vera
einhverjar hermikrákur og segjast
hafa byrjað á sínu gríni áður en um-
ræddur þáttur hafi fyrst verið sýndur
á Skjá einum.
Skemmtiþátturinn 70 mínútur er á
dagskrá alla virka daga á milli 22 og
23.10. Þátturinn er endursýndur
klukkan sjö á morgnana.
Morgunblaðið/Þorkell
Sveppi, Auddi og Simmi á góðri stundu í upptökuverinu.
Þrír óstýrilátir
sómadrengir
70 mínútur fagna tveggja ára afmæli
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4 og 6. með ísl. tali.
Frá John Woo leikstjóra Face Off og MI:2
Sannsöguleg stórmynd um mögnuð stríðsátök.
Missið ekki af þessari!
Nicholas Cage hefur aldrei verið betri!
Sýnd kl. 4 með ísl. tali.
Sýnd kl. 8 og 10.50. B.i. 16.
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
5.30, 8 og 10.30.
1/2Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
„DREPFYNDIN“
ÞÞ. FBL
Yfir 16.000 manns!
Maðurinn sem getur ekki
lifað án hennar leyfir henni
ekki að lifa án hans. Hvernig
flýrðu þann sem þekkir þig
best? Magnaður spennutryllir í
anda Sleeping With the Enemy.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. . Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
1/2Kvikmyndir.is
FRUMSÝNING
Það
verður
skorað
af krafti.
Besta breska
gamanmyndin
síðan “Bridget
Jones’s Diary”.
Gamanmynd
sem sólar þig
upp úr
skónum. Sat
tvær vikur í
fyrsta sæti í
Bretlandi.
Sýnd kl. 5.50 og 8. B. i. 16. Sýnd kl. 10.10. B.i. 16 ára.
Maðurinn sem getur ekki
lifað án hennar leyfir henni
ekki að lifa án hans. Hvernig
flýrðu þann sem þekkir þig
best? Magnaður spennutryllir í
anda Sleeping With the Enemy.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
1/2Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B. i. 16.
FRUMSÝNING
2
VIK
UR
Á T
OPP
NUM
Í US
A