Morgunblaðið - 02.11.2002, Síða 1
BJÖRGUNARMENN grófu í gær
síðustu líkin úr rústum barnaskóla
sem hrundi í jarðskjálfta í bænum
San Giuliano di Puglia á Suður-Ítalíu
í fyrradag. Staðfest var að 29 manns
fórust í skjálftanum, þeirra á meðal
heill bekkur sex ára barna.
Nokkrir fleiri skjálftar urðu í gær
og sá stærsti var 5,3 stig á Richters-
kvarða, næstum jafnsterkur og
skjálftinn sem lagði skólann í rúst.
Ættingjar barnanna sem fórust voru
að bera kennsl á þau í líkhúsi þegar
stærsti skjálftinn dundi yfir í gær og
flúðu í ofboði út á götu. Allir íbúar
San Giuliano, um 1.200 manns, voru
fluttir úr bænum í varúðarskyni og
flestir þeirra sváfu í tjaldbúðum.
26 börn fórust
Staðfest var að 26 börn, kennslu-
kona og tvær aldraðar konur, er
bjuggu í nálægum húsum sem
hrundu, fórust í skjálftanum í fyrra-
dag. Tveimur börnum var bjargað í
fyrrinótt og þau voru alvarlega slös-
uð. Annað þeirra hafði verið fast í
rústunum í margar klukkustundir
þar sem fæturnir höfðu klemmst
undir stóru steypustykki.
Lík kennslukonunnar, sem fórst,
var grafið síðast úr rústunum. Hún
var sögð hafa bjargað nokkrum
börnum.
„Hún var hetja, ýtti öllum börn-
unum út og síðan hrundi byggingin
yfir hana,“ sagði Stefan De Mistura,
formaður Rauða kross Ítalíu.
Heill bekk-
ur sex ára
barna fórst
San Giuliano di Puglia. AP, AFP.
ÚA hefur keypt eitt stærsta úthafsút-
gerðarfyrirtæki Bretlands, Boyd Line 12
Á þriðja milljarð
úr Barentshafi
Útgerðarfélag Akureyringa og Samherji ráða yfir sam-
tals 60% þorskveiðiheimilda Bretlands í Barentshafi
MEÐ kaupum Útgerðarfélags Akureyringa hf. á breska út-
gerðarfyrirtækinu Boyd Line Management Services Ltd.
hafa íslensk útgerðarfyrirtæki eignast 60% af þorskveiði-
heimildum Breta í Barentshafi, alls um 5.600 tonn. Félagið
hefur yfir að ráða um 40% af þorskkvóta Bretlands í Barents-
hafi, sem er úthlutað af Evrópusambandinu, en Onward Fish-
ing Company Ltd., dótturfélag Samherja hf. í Skotlandi, er
með um 20% kvótans.
Þorskkvóti Íslands í Barentshafi á árinu er tæp 6 þúsund
tonn og því er Íslendingum heimilt að veiða hátt í 12 þúsund
tonn af þorski í Barentshafi á þessu ári. Ætla má að verðmæti
aflans upp úr sjó sé vel yfir tveir milljarðar króna.
STOFNAÐ 1913 257. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 mbl.is
Prestsfrúin
í hundana
Súsanna Björnsson ræktar
kínverska shar-pei-hvolpa 30
Karlpeningurinn
aðhlátursefnið
Sótt að hvítum karlmönnum
um fertugt Lesbók
Fyndnasti
maður landsins
Sigurvin Jónsson, kallaður Fíllinn,
mætti og jarðaði salinn 72
SJEIK, setla og senuþjófur eru
dæmi um orð í nýrri Íslenskri orða-
bók í ritstjórn Marðar Árnasonar.
1.637 eintök höfðu selst í forsölu á
útgáfudegi bókarinnar í gær.
Af öðrum orðum er hægt að
nefna orðið sjitt og er því fylgt úr
hlaði með tveimur spurningar-
merkjum. Orðið er sagt lýsa
óánægju, vanþóknun. Bæði orðin
bögg og bögga eru í bókinni og er
tekið fram að um slangur sé að
ræða. Bögg er sagt merkja áreitni,
ónæði. Að bögga er sagt þýða að
vera með leiðindi við, trufla. Dæmi:
vertu ekki að bögga mig alltaf með
þessari dellu. Í S-unum má finna
orð eins og sambýlissveppur, sam-
óvar, servera og senter. Saman-
súrraður þýðir samkvæmt bókinni
fastbundinn, rígskorðaður, fast-
heldinn. Dæmi: málverkið var of
klassískt og samansúrrað fyrir
mig/samansúrraður nirfill.
Morgunblaðið/Jim Smart
Davíð Oddsson veitir viðtöku fyrsta
eintakinu af Íslensku orðabókinni.
Sjitt með
tveimur
spurningar-
merkjum
Mannauður/34
FYRIR um þremur árum átti Rauf-
arhafnarhreppur um 220 milljónir en
um nýliðin mánaðamót lá við að
hreppurinn gæti ekki greitt laun.
Í maí 1999 seldi Raufarhafnar-
hreppur hlut sinn í Jökli á Raufarhöfn
og var söluverðið um 580 milljónir
króna. Um 300 millj. kr. lán á sveit-
arsjóði var greitt upp, hluti söluverðs-
ins var notaður í framkvæmdir í bæj-
arfélaginu og fjármunir voru lagðir í
atvinnuuppbyggingu. Aukinheldur
fjárfesti hreppurinn í nokkrum fyrir-
tækjum, m.a. deCODE, OZ og Ís-
landssíma, en verðmæti þeirra hluta-
bréfa er aðeins lítill hluti af því sem
það var þegar þau voru keypt.
Hreppurinn
situr uppi
með verð-
litla pappíra
Keypti bréf/14
„KAUPIN á Boyd Line hafa átt sér
nokkuð langan aðdraganda. Þau
eru liður í þeirri
stefnu ÚA að efla
starfsemi félags-
ins á sviði sjó-
frystingar. Hins-
vegar er ljóst að
auka þarf veltu
Boyd Line frá því
sem nú er og í því
sambandi höfum
við meðal annars
áhuga á því að
skoða möguleika
á frumvinnslu í landi í Bretlandi.
Það er mikilvægur áfangi fyrir
félagið að koma sér upp starfsemi á
sviði fiskveiða innan Evrópusam-
bandsins og skapar því ný sókn-
arfæri í framtíðinni. Það er mjög
spennandi fyrir okkur að fá þarna
starfsstöð innan Evrópusambands-
ins og vera með skip sem eru að
veiða úr kvóta sambandsins. Það er
mikilvægt fyrir jafnstórt fyrirtæki
og ÚA að fylgjast náið með á þeim
vettvangi,“ segir Guðbrandur Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri ÚA.
Mikilvæg starfs-
stöð innan ESB
Guðbrandur
Sigurðsson
!" #$
%
DANSKA stjórnin hafnaði í gær-
kvöldi beiðni ráðamanna í Moskvu
um að Akhmed Zakajev, sendimaður
Tétsníuforseta, yrði framseldur til
Rússlands.
Lene Espersen, dómsmálaráð-
herra Danmerkur, sagði að Rússar
hefðu ekki lagt fram nægar sannanir
fyrir því að Zakajev væri hryðju-
verkamaður og þyrftu að veita frek-
ari upplýsingar fyrir 30. nóvember.
Hafna
framsali
Kaupmannahöfn. AFP.
Reuters
Akhmed Zakajev er að sögn Rússa
viðriðinn gíslatökuna í Moskvu.
♦ ♦ ♦
ALLS var 35 manns bjargað úr rústunum. Á meðal þeirra var kennslukon-
an Clementina Simone, sem sagðist hafa verið að fræða bekkinn sinn um
jarðskjálftana í grennd við Etnu á Sikiley fyrr í vikunni þegar skjálftinn
reið yfir. „Mér var sagt að öll börnin í sex ára bekknum mínum hefðu far-
ist,“ sagði hún. „Ég vildi fara aftur að rústunum til að hjálpa en björg-
unarmennirnir leyfðu mér það ekki.“ „Ein mæðranna missti öll börnin sín
þrjú,“ sagði björgunarmaður. Að minnsta kosti 3.000 manns misstu heimili
sín í skjálftanum og flestir þeirra sváfu í tjöldum.
Missti öll börnin sín þrjú
Reuters
Íbúarnir gripnir ótta
vegna nýrra skjálfta
Litlar vonir/22