Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 38

Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 39 á vegum stjórn- n í íslensk ð starf stríðsins þess tíma dagskrá. anmörk, Finnar n. Evrópu- Svíþjóð. hagssvæð- Ísland og anna, afnt og rra að ngi Norð- rðurlanda ns innan t áhrif á fyrir ráð- ðir fara gera núna. ss í rík- að Norð- nu sér- sstjórnir eggja góða standi sbundins ðu, ef á ar til þess a á vett- ma er að hefur ræna sam- Rík- isstjórnir þjóðanna hafa ekki lagað sig að nýjum að- stæðum í öryggismálum og sótt um aðild að NATO. Hlutleysi á milli austurs og vesturs gaf þeim færi á að gæta hagsmuna sinna með línudansi, sem stundum orkaði tvímælis að mati málsvara vestrænnar sam- vinnu og öryggis. Nú er þetta hlutleysi að sjálfsögðu úr sögunni og línudansinum er lokið. Samstarf ESB í varnar- og öryggismálum miðar að því að sinna friðargæslu. Markmið NATO er að tryggja öryggi bandalagsþjóðanna með sameig- inlegum vörnum. Þótt Finnar og Svíar séu ekki í NATO, verður þess ekki vart, að stjórnmálamenn í norrænum NATO-ríkjum séu að skipta sér af því með NATO-aðild á vörunum. Hins vegar eru stjórn- málamenn í norrænu ESB-löndunum oft að predika yf- ir Íslendingum og Norðmönnum ágæti ESB-aðildar, eins og sjá má meðal annars í viðtölum við þá á síðum Morgunblaðsins. x x x Samstarf Færeyja, Grænlands og Íslands hefur þróast með ánægjulegum hætti undanfarin ár. Nær það til sífellt fleiri þátta. Helsti vandinn er sá, hve dýrt og erfitt er að ferðast frá Færeyjum og Íslandi til Grænlands og öfugt. Væru samgöngur greiðari væri samstarfið enn meira. Innan Norðurlandaráðs starfa þessi lönd saman undir merkjum Vest-norræna ráðsins. Ráðherrar hitt- ast á vettvangi þessa ráðs og þar hefur verið stofnað til sérstaks samstarfs þingmanna. Engu landanna þriggja er nokkur hagur af því að slíta þetta samstarf undan merkjum norrænnar samvinnu. Á hinn bóginn getur verið spennandi að huga að nánari samvinnu við aðra eyjaskeggja á Norður-Atlantshafi eins og íbúa Bretlandseyja en þó sérstaklega Skotlands, Hjalt- lands, Orkneyja og Suðureyja. Grænlendingar beina augum sínum til frænda sinna í Norður-Ameríku. Inúítar þar tala mál af sama stofni og Grænlendingar og menningartengslin eru nánari þangað fyrir eskimóa en hingað austur á bóginn. Þessari vídd er ástæðulaust að gleyma, þegar litið er til þróunar norræns samstarfs og hlutur landanna á Norður-Atlantshafi er metinn. Ísland er einnig í Eystrasaltsráðinu sem eitt Norðurlandanna, þótt hnattstaðan gefi ekki beint tilefni til þess. Enda þótti ekki öllum sjálfsagt, að Ísland yrði í Eystrasaltsráðinu. x x x Rætur Norðurlandaráðs er að finna í samstarfi þjóð- þinga Norðurlanda. Norræna þingmannasambandið hafði starfað í áratugi, áður en þar var samþykkt að stofna Norðurlandaráð. Þess vegna hafa tengsl ráðsins við þjóðþing Norðurlandanna ávallt verið traust og sterk og aldrei myndast nein gjá á milli Norð- urlandaráðs sem stofnunar og lýðræðiskjörinna full- trúa aðildarþjóðanna. Norðurlandasamstarfið kallar á samstiga ákvarðanir norrænu þjóðanna um mörg mál. Þannig var það til dæmis meðal höfuðröksemda Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra fyrir aðild Íslands að Schengen- samkomulaginu um afnám landamæravörslu, að án Schengen-aðildar yrðu Íslendingar að nýju að sýna vegabréf á ferðum innan Norðurlanda. Mikill munur er á skipulagi Norðurlandaráðs og Evrópusambandsins. Innan ESB var sú leið farin að setja á stofn sérstakt þing, sem átt hefur í hinu mesta basli með að skapa sér stöðu bæði gagnvart kjósendum í einstökum ESB-löndum, ríkisstjórnum landanna og valdastofnunum ESB í Brussel. Vegna hins yfirþjóð- lega valds ESB hefur starfsemi þess vakið áleitnar spurningar um skilin á milli heimaslóðar og stjórn- málavalds. ESB hefur vald til að segja ríkisstjórnum aðild- arlandanna fyrir verkum eða binda hendur þeirra með lögum. Norðurlandaráð eða norræna ráðherranefndin hefur ekki slíkt vald. Þar felst ekki í eðli samstarfsins að rjúfa tengsl þjóðríkis og pólitískra ákvarðana eins og innan ESB. Á afmælisþingi Norðurlandaráðs í Helsinki var Kjeld Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, spurður, hvenær Norðmenn ætluðu næst að huga að aðild að ESB. Hann sagði málið ekki geta verið á dag- skrá næstu ár vegna breytinga á ESB. Enginn gæti í raun sagt fyrir um það núna, hvaða Evrópusamband stæði til boða að fáeinum árum liðnum. Á slíkum óvissutímum væri óskynsamlegt að taka málið á dag- skrá. Ekki fór neinum fréttum af því, að menn færu í ræðustól Norðurlandaráðs til að lýsa hneykslan á þeirri skoðun norska forsætisráðherrans, að ESB-aðild Noregs gæti ekki verið á dagskrá næstu ár. immtíu ár bjorn@centrum.is til viðræðna við EFTA-ríkin strax eftir ára- mót um aðgang þeirra að mörkuðum nýju aðildarríkjanna og greiðslur í þróunarsjóði sambandsins í tengslum við stækkunina. Forsætisráðherrar Íslands, Noregs og Dan- merkur voru bjartsýnir á að sanngjörn lausn næðist í þessum viðræðum. Af því má ráða að þetta verði ekkert stórvandamál, sem breyti samskiptum EFTA og ESB. Það er ekkert fararsnið á EES-samningnum eins og oft hefur verið haldið fram. Ef leiðtogar Norðurlandaþjóðanna hafa rétt fyrir sér virðist útséð með afstöðu Halldórs Ásgríms- sonar ef litið er til framangreindra ummæla hans. Langlíklegast er að aðild Íslands að ESB verði ekki stóra kosningamálið í vor. Mín til- finning er sú að þau mál sem venjulega brenna heitast á fólki muni geri það í kosn- ingunum. Efnahags- og velferðarmál, heil- brigðis- og menntamál auk öryggis- og varn- armála. Spurningin um aðild að ESB brennur ekki svo á fólki þessa dagana. Enda hafa eflaust flestir áttað sig á því í rökræðu undanfarinna vikna og mánaða að aðild Ís- lands að ESB er ekki töfralausn á neinu vandamáli sem glímt er við á Íslandi. Það er t.d. misskilningur að hún lækki hér sjálf- krafa vexti og vöruverð. Og það er líka mis- skilningur að Íslendingar muni búa við óbreyttan hag af sjávarútvegi innan sem ut- an sambandsins. Ákafamönnum um aðild hættir til að reyna að vekja vonir í brjóstum Íslendinga með fljótfærnislegum yfirlýsing- um, sem standast sjaldan nánari skoðun, um að ESB komi og leysi vandamálin. Það verð- ur áfram verkefni okkar sjálfra. Ef Íslendingar stæðu frammi fyrir því vali í vor að sækja um aðild að ESB með þeirri óvissu sem það hefur í för með sér, og greiða fyrir þann aðgang milli níu og tólf milljarða króna á ári, tel ég að þeir segðu langflestir nei. Engu breytir þótt skipt sé út orðinu „að- ild“ fyrir orðið „aðildarviðræður“. Orðin í þessu samhengi merkja það sama. Umræða um samstarf Íslands við Evrópuþjóðir er mikilvæg og nauðsynleg. Eins og umræða um stöðu Íslands í heiminum almennt. Við stöndum frammi fyrir umræðunni og verð- um að taka þátt í henni. En við stöndum ekki frammi fyrir því að taka ákvörðun um aðild að ESB. Svarið við spurningunni um hvort það verði kosið um aðild Íslands að ESB í vor er því einfalt. Nei, örugglega ekki. ild að ESB? Reuters nur ganga framhjá glugga skrifstofu Evrópusambandsins í Varsjá. Líkur eru á að ásamt níu öðrum ríkjum fái aðild að Evrópusambandinu árið 2004. Höfundur er framkvæmdastjóri Framsýnar. N IÐURSTÖÐUR liggja nú fyrir í póstkosningu Samfylking- arinnar um af- stöðuna til Evrópusambandsins. Enda þótt þátttaka í kosning- unni hafi aðeins verið um 35% og þannig kannski ekki farið fram úr björtustu vonum aðstand- enda, verður vart annað sagt en niðurstaða hennar sé býsna skýr og því líklegt að þau 81,5% Sam- fylkingarfólks sem guldu jáyrði við spurningunni muni hafa mót- andi áhrif á stefnu flokksins í Evrópumálum á næstu árum. Að því leytinu til, má vel færa rök fyrir því að niðurstaðan marki ákveðin tímamót. Fjölmiðlar hafa sýnt málinu töluverðan áhuga og þegar eru hafnar bollaleggingar um raun- verulega þýðingu kosning- arinnar. Ákaflega hörð gagnrýni einstakra félagsmanna í Sam- fylkingunni í garð kosning- arinnar, á framkvæmd hennar og málatilbúnaðinn allan hefur þó varpað nokkrum skugga á þann ljóma sem vitaskuld átti að stafa af þessum tímamótum og sýnir auðvitað, svo ekki verður um villst, að hvorki í Samfylking- unni né annars staðar eru markalínur í Evrópumálum skýrar eða ljósar. Í kvöldfréttum Sjónvarpsins sl. sunnudag komust menn að þeirri niðurstöðu að stóra spurn- ingin í ljósi niðurstaðna úr póst- kosningu Samfylkingarinnar væri hvaða stefnu Framsókn- arflokkurinn hyggist taka í þess- um efnum. Því er til að svara, að á und- anförnum árum hefur Fram- sóknarflokkurinn fylgt ákveðinni og skýrri stefnu í Evrópumálum. Evrópunefnd Framsókn- arflokksins, sem skilaði áliti sínu í janúar 2001 eftir mikla vinnu, komst þannig að orði í nið- urstöðum sínum, að samskipti Íslendinga við Evrópusam- bandið byggist á EES- samningnum og stefna beri að því að samningurinn geti haldið upphaflegum markmiðum sínum og aðildarþjóðir haldið sínum hlut og réttindum andspænis Evrópusambandinu, þar á meðal sem fullgildir þátttakendur í samstarfi við nýjar stofnanir ESB og á nýjum sviðum sem sambandið tekur að sér. Enn fremur segir í niðurstöðum nefndarinnar: „Ef ekki reynist grundvöllur til að byggja á samningnum um Evrópska efna- hagssvæðið, þannig að hann full- nægi til frambúðar skilyrðum og markmiðum Íslendinga, skal ákvörðun tekin um það hvort óskað skuli viðræðna við Evr- ópusambandið um fulla aðild Ís- lendinga að því, m.a. á grundvelli þeirra skilmála og samnings- markmiða sem Íslendingar setja sér, eða hvort leita skuli annarra valkosta.“ Í niðurstöðunum er kveðið á um að ef til ákvörðunar um aðild- arumsókn að ESB komi, skuli hún borin undir þjóðaratkvæði ásamt öðrum raunhæfum kost- um sem til greina komi í Evrópu- samvinnunni. Skili aðild- arviðræður sameiginlegri niðurstöðu um að aðild Íslend- inga að Evrópusambandinu skuli hún að nýju lögð undir þjóð- aratkvæði áður en til skuldbind- inga kemur, en verði aðild- arsamningur felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu, eða leiði aðildarviðræður ekki til sameig- inlegrar niðurstöðu, skuli leitað viðræðna um tvíhliða samning við Evrópusambandið. Á flokksþingi Framsókn- arflokksins í fyrra var samþykkt að vinna áfram að málefnum Ís- lands í Evrópusamstarfinu í samræmi við niðurstöðu skýrslu Evrópunefndarinnar. Í sam- ræmi við það hefur formaður flokksins, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, beitt sér fyrir endurskoðun og uppfærslu EES-samningsins, samtímis því sem hann hefur haft forystu um opna og fordómalausa umræðu um sambandið – kosti þess og galla. Það er afskaplega mik- ilvægt að greina stöðu okkar í breyttri Evrópu, greina áhrif okkar í stækkuðu Evrópusam- bandi og fylgjast grannt með því hvort EES-samningurinn dugir okkur – einn og sér – til fram- tíðar. Það er mikilvægt að menn geri sér grein fyrir því, að það er ekki á stefnuskrá Framsókn- arflokksins að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Að óbreyttu virðist aðild raunar óhugsandi, ekki síst sakir hinnar sameiginlegu sjávarútvegs- stefnu sambandsins. Hins vegar ber okkur um leið að greina alla möguleika og öll teikn um breytingar sem gerast samfara hinni hröðu þróun og það höfum við gert. Í því samhengi ber að skoða athyglisverðar hug- myndir utanríkisráðherra um breytingar á sjáv- arútvegsstefnunni, m.a. um að stjórnun fiskveiða úr staðbundnum stofnum innan fiskveiðilögsögu strandríkja verði á hendi stjórnvalda í við- komandi ríkjum og að unnt verði að finna lausn á þessum málum, sem viðunandi yrði fyrir okkur Íslendinga, yrði pólitískur vilji fyrir hendi. Vísbendingar eru uppi um að í þessum efnum yrði hlustað á rödd og röksemdir Ís- lendinga. Svo er að sjá að umræðan um hugsanlega aðild Íslands að Evr- ópusambandinu sé á góðri leið með að skipa landsmönnum í tvær hugmyndafræðilega and- stæðar fylkingar. Afstaða fólks til ESB klýfur alla flokka og sýn- ist ekki bundin búsetu eða starfsstéttum. Þó virðast þeir yngri jákvæðari í garð sam- bandsins en hinir eldri, ef marka má skoðanakannanir. Það eru deilur um Evrópu- sambandið í öllum flokkum og fjölmennasta sveitin, sem er fylgjandi beinni aðild er senni- lega í Sjálfstæðisflokknum – eins og hver annar hulduher. Fram- sóknarmenn vilja á hinn bóginn hafa þessa umræðu á dagskrá síns flokks og sinnar framtíðar og hræðast hana ekki. Vitaskuld er málið umdeilt og það er eng- inn að tala um að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu hér og nú. Ef aðild gengur gegn hagsmunum okkar ber okkur vitaskuld að forðast hana með öllum ráðum. Felist hagsmunir okkar hins vegar í því að vera innan sambandsins eigum við að sækja um. Einmitt af þessum sökum er það skylda okkar að standa áfram fyrir upplýstri umræðu, draga fram staðreyndir byggðar á þekkingu um kosti aðildar og galla, svo að á endanum megi taka vel ígrundaða og skyn- samlega ákvörðun. Framsókn og ESB Eftir Björn Inga Hrafnsson ’ Það er mikilvægt aðmenn geri sér grein fyr- ir því, að það er ekki á stefnuskrá Framsókn- arflokksins að sækja um aðild að Evrópu- sambandinu. ‘ Höfundur er kynningarfulltrúi Framsóknarflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.