Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRN Íbúðalánasjóðs ákvað í gær
að óska eftir því að Ríkisendurskoðun
taki út verklag og meðferð mála inn-
an sjóðsins. Tilefnið er að svo virðist
sem Íbúðalánasjóður hafi gert mistök
við afgreiðslu fasteignaveðbréfa til
fasteignasala í Kópavogi sem nú hef-
ur játað á sig tugmilljóna fjárdrátt.
„Það er auðvitað ljóst að við höfum
keypt fasteignaveðbréf sem eru með
ógreinilegu eða ófullkomnu framsali.
Það er ekki svo að við höfum keypt
bréf, eins og því miður hefur komið
fram í fréttum, sem ekki eru með
neinu umboði eða án framsals. En
framsölin á þessum bréfum voru því
miður þannig að við hefðum ef til vill
átt að skoða þau betur áður en þau
voru keypt,“ segir Guðmundur
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Íbúðalánasjóðs.
Það sé alþekkt að breytingar og
leiðréttingar séu gerðar á fasteigna-
veðbréfum eins og hafi verið gert í
þessum tilvikum og starfsmenn
Íbúðalánasjóðs hafi álitið að fast-
eignasalinn hafi gert minniháttar
mistök við slíkar breytingar. „Við átt-
uðum okkur ekki á því að um hugs-
anlega fölsun væri að ræða,“ segir
hann. Innra eftirlit verði hert í kjöl-
farið og vinnubrögð endurskoðuð.
Verið er að rannsaka öll viðskipti
mannsins við sjóðinn. Eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gær urðu
starfsmenn sjóðsins varir við það í
síðustu viku, að 6–8 fasteignaveðbréf
frá fasteignasalanum væru útfyllt
með óeðlilegum hætti en verðmæti
þeirra er talið um 20–30 milljónir. Þá
voru níu mánuðir síðan Þröstur
Valdimarsson gerði alvarlegar at-
hugasemdir við starfshætti mannsins
og taldi hann m.a. hafa breytt fram-
sali á fasteignaveðbréfi.
Guðmundur viðurkennir að þetta
hefði átt að hringja viðvörunarbjöll-
um hjá sjóðnum. Starfsmenn hafi
hins vegar ekki áttað sig á hversu al-
varlegt málið var og því var ekki grip-
ið til aðgerða. Guðmundir bendir á að
í þessu tilviki hafi málið verið kært til
lögreglu en sú kæra hafi aldrei borist
Íbúðalánasjóði og lögregla hafi aldrei
haft samband út af málinu. Að lokum
hafi innra eftirlit sjóðsins rekið aug-
un í að sitthvað var athugavert við
viðskipti mannsins.
„En auðvitað hefði það þurft að
gerast fyrr. Ég dreg ekki fjöður yfir
það,“ segir Guðmundur.
Í fréttatilkynningu frá stjórn
Íbúðalánasjóðs kemur fram að sjóð-
urinn hefur leitað til sjálfstætt starf-
andi lögmanns um að kanna hvort
sjóðurinn sé hugsanlega bótaskyldur
en sé svo muni sjóðurinn „bæta það
tjón sem viðskiptavinurinn hafi sann-
arlega orðið fyrir“. Er viðskiptavin-
um sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni
bent á að hafa samband við sjóðinn.
Hvar eru peningarnir?
Fyrrum starfsmaður Holts fast-
eignasölu, sem Morgunblaðið ræddi
við í gær, sagði að rekstur fasteigna-
sölunnar hefði verið í fullum gangi al-
veg fram á þriðjudag þegar eigandi
hennar gaf sig fram við lögreglu. Það
hafi komið eins og reiðarslag yfir
starfsfólkið þegar maðurinn játaði á
sig tugmilljóna fjárdrátt. Síðustu
daga og vikur hafi þau þó séð merki
um erfiðleika í rekstri, viðskiptavinir
hefðu t.d. komið ævareiðir á fast-
eignasöluna og heimtað peninga sem
þeir áttu inni hjá fasteignasölunni.
Þegar starfsfólk hafi spurt eigand-
ann hafi hann alltaf svarað að allt
væri í himnalagi og búið væri að leysa
mál þessa fólks. Þessu hefðu starfs-
mennirnir trúað. Aðspurður segir
starfsmaðurinn að starfsfólkið eigi
bágt með að skilja hvað varð um alla
þá fjármuni sem maðurinn er talinn
hafa skotið undan. Fasteignasalan
hafi verið í leiguhúsnæði og eins og
hjá fleiri einkafyrirtækjum hafi
stundum orðið tafir á að laun væru
greidd. Þá hafi enginn af sex starfs-
mönnum fengið greidd laun fyrir
október. „Þetta finnst mér vera
mergur málsins: Hvar eru pening-
arnir?“
Svik í síðustu viku
Svo virðist sem maðurinn hafi náð
til sín fjármunum með ýmsum hætti.
Í Morgunblaðinu í gær var greint frá
því að hann breytti framsali á fast-
eignaveðbréfi þannig að peningarnir
runnu til hans en ekki réttmæts eig-
anda sem var húsasmíðameistari í
Hafnarfirði. Morgunblaðið hefur
heyrt af fleiri slíkum tilvikum og
starfsmenn Íbúðalánasjóðs hafa
fundið a.m.k. 6–8 fasteignaveðbréf
sem ekki eru framseld með réttum
hætti en upphæð þeirra er talin nema
um 20–30 milljónum króna.
Í öðrum tilvikum hélt hann eftir
ávísunum og reiðufé sem viðskipta-
vinir, í sumum tilvikum eldra fólk,
hafði treyst honum fyrir. Eitt tilvikið
gerðist í síðustu viku, nokkrum dög-
um áður en maðurinn gaf sig fram við
lögreglu. Eins og kunnugt er var
fasteignasalinn kærður til lögregl-
unnar í Kópavogi í lok janúar og 5.
september óskaði sýslumaðurinn í
Kópavogi eftir gjaldþroti fasteigna-
sölunnar. Lögmaður tjónþola, sem
Morgunblaðið ræddi við í gær, sagði
að hugsanlega yrði lögð fram bóta-
krafa á hendur ríkinu vegna þess að
lögregla hafi ekki gripið inn í fyrr.
Ekki náðist í Þorleif Pálsson,
sýslumann í Kópavogi, í gær og hann
hefur ekki svarað ítrekuðum skila-
boðum. Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn í Kópavogi, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
óvíst væri hvort rannsókn lögreglu
hefði verið hraðað sérstaklega þó að
hún hefði vitað af gjaldþrotabeiðn-
inni.
Ekki kært til samskiptanefndar
Í Morgunblaðinu í gær var farið
rangt með orð Björns Friðfinnsson-
ar, ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðu-
neytinu, varðandi tryggingar fast-
eignasala. Hið rétta er að í frumvarpi
til núgildandi laga um fasteignasölur
var gert ráð fyrir að tryggingar
tækju einnig til ásetningsbrota. Því
var breytt í meðförum þingsins og því
ná tryggingarnar aðeins til gáleysis-
brota. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Guðrún Árnadóttir, formaður Fé-
lags fasteignasala, sagði að það gæti
vel verið að aldrei hefði neitt verið
bókað um þetta á þeim fjölmörgu
fundum sem félagið hefði átt með
fulltrúum dómsmálaráðuneytisins,
þó ekki Birni Friðfinnssyni. En óskin
hefði verið sett fram munnlega.
Hún segir fulla þörf á að herða eft-
irlit með fasteignasölum en það sé að-
eins hægt með lagabreytingu. Á síð-
ustu árum hafi þeir t.d. æ oftar haft
milligöngu um að greiða upp óhag-
stæð lán sem hvíla á eignum seljenda.
Árið 1999 hafi komið holskefla af slík-
um málum og nú þegar verkamanna-
íbúðir væru að koma á markað megi
búast við öðru eins.
Þegar Þröstur Valdimarsson
kærði fasteignasalann til lögreglunn-
ar hafði hann jafnframt samband við
Félag fasteignasala. Þar var honum
bent á að leggja málið fyrir sam-
skiptanefnd félagsins en það kostar
10.000 krónur. Það hafi hann ekki
gert og því var ekki unnið meira í
málinu af hálfu félagsins. Magnús
Einarsson, framkvæmdastjóri Fé-
lags fasteignasala, segir að maðurinn
hafi þegar verið búinn að kæra málið
til lögreglu en það eigi að vera mun
fljótlegri og öruggari aðferð.
Skiptastjóri þrotabús Holts fast-
eignasölu er Guðmundur Óli Björg-
vinsson hdl. Í samtali við Morgun-
blaðið í gær sagðist hann vonast til að
finna aðila sem væri tilbúinn til að
taka yfir rekstur fasteignasölunnar
og ljúka þeim kaupsamningum sem
eru útistandandi. Hann býst við að
þetta skýrist um helgina.
Fasteignasalinn í Kópavogi er talinn hafa náð talsverðum
fjárhæðum frá viðskiptavinum sínum í síðustu viku
Íbúðalánasjóður óskar eftir
úttekt Ríkisendurskoðunar
Starfsmenn Íbúðalánasjóðs hafa fundið
a.m.k. 6–8 fasteignaveðbréf sem ekki eru
framseld með réttum hætti, samkvæmt
upplýsingum Rúnars Pálmasonar. Í öðrum
tilvikum hélt fasteignasalinn eftir ávísunum
og reiðufé sem viðskiptavinir, í sumum til-
vikum eldra fólk, höfðu treyst honum fyrir.
runarp@mbl.is
„BRANDARAR eiga ekki upp á
pallborðið í samskiptum læknis
og sjúklings,“ segir norski
skurðlæknirinn Sten Tyrdal
sem flutti erindi á námskeiðinu
Húmor og heilsa hjá Endur-
menntunarstofnun Háskóla Ís-
lands í gær. Tyrdal er forseti
Norræns félags um læknaskop
og segir kersknina einkum hafa
það hlutverk að draga úr streitu
sjúklings en ekki megi skilja
hlutina á þann hátt að verið sé
að reyta af sér læknabrandara
frá morgni til kvölds.
„Í mínum huga er kersknin
ákveðin samskiptaleið og fær
sjúklinginn til að slaka á,“ segir
Tyrdal. „Auk þess skapast
traust þegar ég birtist sjúklingi
sem persóna en ekki aðeins
læknir.“
Tyrdal segir bros og vinsemd
mikilvæga þætti þegar kerskni
beri á góma í samskiptum lækn-
is og sjúklings. Hann beiti henni
að sjálfsögðu í samskiptum við
eigin sjúklinga.
Karl Ágúst Úlfsson var feng-
inn til að ræða um kerskni á
námskeiðinu og sagði við Morg-
unblaðið að hún væri einfaldlega
lífsnauðsynleg fyrir heilsuna.
Varla þarf að geta þess að
margítrekað bætti hann heilsu
þeirra sem námskeiðið sátu með
því að koma þeim til að hlæja.
„Hláturinn er hollur fyrir öll
efnaskipti, lungu og hjarta. Létt
afstaðan til lífsins auðveldar
fólki lífið, auk þess sem húmor-
inn léttir samskipti fólks og létt-
ir lífið á svo fjölmörgum svið-
um,“ segir Karl Ágúst.
Morgunblaðið/RAX
Tveir húmoristar, hvor úr
sinni áttinni: Dr. Sten Tyrdal
skurðlæknir og Karl Ágúst
Úlfsson leikari.
Kersknin
notuð til
að draga
úr streitu
sjúklinga
Í ÞJÓÐTRÚNNI segir að ef tröll
séu úti undir beru lofti þegar sól
kemur upp að morgni verði þau að
steini. Ekki er vitað hvað langt er
síðan þessi tröllkarl á myndinni
varð að steini eða hvað hann var að
gera þegar það gerðist. Hann blasir
við þegar ekið er inn á Höfða-
brekkuheiðar í Mýrdal og er í dag-
legu tali kallaður Tótanef.
Óhætt er að segja að tröllið í
Lambaskörðum lætur hvorki fyrsta
snjó vetrarins eða mannaferðir
trufla sig.
Í trölla-
höndum í
Lamba-
skörðum
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Fagradal. Morgunblaðið.