Morgunblaðið - 02.11.2002, Síða 16

Morgunblaðið - 02.11.2002, Síða 16
FRÉTTIR 16 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR vagga flugs á Íslandi er letrað á svonefndan hnitastein sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra af- hjúpaði í gær. Steininum hefur ver- ið komið fyrir við flugstjórn- armiðstöðina og eru á hann letruð hnitin sem tilgreina staðsetningu flugvallarins. Ráðherra sagði næsta skref við endurnýjunina að reisa samgöngumiðstöð við aust- anverðan völlinn. Framkvæmdir hófust árið 1999 og lauk þeim á þessu ári. Hafa um 1.650 milljónir króna farið í verkið. „Ekki er ofmælt að Reykjavík- urflugvöllur sé vagga flugs á Ís- landi,“ sagði Þorgeir Pálsson flug- málastjóri meðal annars í ávarpi sínu í gær við athöfn þegar því var fagnað að endurnýjum vallarins er að ljúka. „Héðan hófst flugvél í fyrsta sinn á loft á Íslandi hinn 3. september 1919. Þótt þessi tilraun til flugstarfsemi entist ekki lengi varð hún þó til að efla með þjóðinni þann flugáhuga sem síðar átti eftir að gera Ísland að sannkallaðri flug- þjóð,“ sagði flugmálastjóri enn- fremur. Þá gat flugmálastjóri þess að áhersla hafi verið lögð á fegrun flugvallarsvæðisins og væri ræktað land innan flugvallargirðing- arinnar nú um 55 hektarar. Það jafngilti túnum á meðal kúabúi með 28 til 30 kúm þar sem framleiða mætti 110 þúsund lítra af mjólk á ári hverju. Hann sagði flesta ís- lenska flugmenn hafa hafið sig fyrst til lofts frá þessum velli og hlotið stóran hluta þjálfunar sinnar þar. Gefin hafa verið út um þúsund atvinnuflugsskírteini og milli tvö og þrjú þúsund einkaflugsskírteini. Í fremstu röð hvað varðar öryggi Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra sagði endurbyggingu Reykjavíkurflugvallar vera mestu framkvæmd sem ráðist hefði verið í á sviði flugöryggismála á síðari ár- um. Hann væri nú í fremstu röð hvað varðaði öryggi. Völlurinn væri nú miðstöð innanlandsflugs á Íslandi. Eftir áralangt fjársvelti hefði ástand flugvallarins verið bætt og væri hann ekki lengur kaun í landinu heldur vel frágengið at- hafnasvæði og vinnustaður hundr- aða manna sem sinntu flugi og ferðaþjónustu. Hann sagði næsta skref vera að reisa þjónustu- og samgöngu- miðstöð við austanverðan völlinn eins og skipulag gerði ráð fyrir. Myndi hún sinna öllum þáttum al- menningssamgangna að og frá borginni. Sagði hann það von sína að friður mætti nú verða um starfið við flugvöllinn og skilningur mætti aukast á því að innan flugvall- arsvæðisins væru margir stærstu atvinnuveitendur borgarinnar. Flugmálastjóri afhenti síðan Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur á táknrænan hátt með korti 9,6 hekt- ara lands sem ekki væri lengur þörf fyrir innan vallarins. Við það tæki- færi sagði borgarstjóri að hver hektari lands sem losnaði í mið- borginni væri mikils virði ekki síst ef hægt væri að byggja á honum. Myndi hún skoða kortið í því skyni. Hún kvaðst fagna því að það ljóta sár sem hún sagði flugvöllinn hafa verið í hálfa öld skuli nú gróa. Vilja ekki fagna Í frétt frá Höfuðborgarsamtök- unum segir að ekki sé tilefni fyrir höfuðborgarbúa og aðra Íslendinga að gleðjast yfir vígslu nýs flug- vallar í Vatnsmýri. Hann hafi nei- kvæð áhrif á allt samfélagið sem kæmi fram í þjóðarbúskap Íslend- inga. Endurnýjun Reykjavíkurflugvallar stórt skref á sviði öryggismála Næsta verkefni að reisa sam- göngumiðstöð Morgunblaðið/Árni Sæberg Þorgeir Pálsson flugmálastjóri afhenti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur kort af svæði á Reykjavíkurflugvelli sem borgin hefur fengið til umráða. ÍKVEIKJAN á Laugaveginum sætir enn rannsókn lögreglunnar í Reykjavík og hefur ekki verið leitt í ljós hver var þar að verki. Þrjárverslanir og íbúðir eyðilögð- ust í eldinum en bjarga tókst nær- liggjandi húsum, þar á meðal tveimur verslunum. Liðsmenn tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík annast rannsókn máls- ins á vettvangi í leit að vísbend- ingum sem gætu varpað frekara ljósi á málið. Annar meiriháttar bruni í Fáka- feni, sem einnig kom til vegna íkveikju í ágúst, sætir einnig rannsókn lögreglunnar en enginn liggur undir grun um verknaðinn. Morgunblaðið/Júlíus Laugavegsbruninn enn í rannsókn STÓR hópur fólks á Íslandi, heyrn- arskertir og heyrnarlausir, nýtir sér ekki talað mál í sjónvarpinu eða ís- lenskum kvikmyndum og lætur nærri að rúmlega einn af hverjum tíu Íslendingum fylli þann hóp, að mati Málfríðar Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Heyrnarhjálpar. Heyrnarhjálp efnir í dag til Textaþings í samvinnu við hags- munasamtök eldri borgara og ný- búa, Félag heyrnarlausra og For- eldra- og styrktarfélag heyrnardaufra barna þar sem fjallað verður um textun á íslensku efni í sjónvarpi og kvikmyndum sem mjög er ábótavant hér á landi, að hennar mati. Á þinginu verða tveir erlendir fyr- irlesarar, Martin Davies, yfirmaður textavarps hjá BBC og Lillian Vic- anek, varaformaður HLF Noregi og forseti Evrópusamtaka heyrnar- skertra, EFHOH. Til þingsins er boðið fulltrúum ólíkra neytendahópa og fulltrúum sjónvarpsstöðvanna, kvikmyndagerðarmönnum og öðr- um sem koma að framleiðslu á sjón- varpsefni og kvikmyndum. Þá er stjórnmálamönnum boðið auk þess sem menntamálaráðherra flytur ávarp. Heilmikill undirbúningur liggur að baki þinginu, að sögn Málfríðar, sem fram fer á Grand hóteli í dag milli 13 og 17. Mjög gott aðgengi er fyrir fatlaða, erlendir fyrirlesarar verða raddtúlkaðir, rittúlkur snarar fyrirlestrum og umræðum í texta sem birtist á tjaldi og táknmálstúlk- ur verður á staðnum. Þá verður lagður tónmöskvi um salinn þannig að heyrnartækjanotendur með svo- kallaðar T-spólur hafi bestu hlust- unarskilyrði sem völ er á. Skortur á textuðu sjónvarps- efni lýðræðislegt vandamál Að sögn Málfríðar eru önnur lönd í Evrópu víðast hvar komin mun lengra á veg með textun á innlendu efni en hér er og víða eru samtök heyrnarlausra og heyrnarskertra í mjög náinni samvinnu við sjón- varpsstöðvarnar varðandi textun á efni. „Og það er það sem okkur langar að gera hér. Þannig að um leið og við þrýstum á um bætta þjónustu þá séum við einnig samvinnuaðilar,“ segir Málfríður. Martin Davies frá BBC mun í er- indi sínu greina frá því hvernig þessu samstarfi er háttað í Bret- landi. Málfríður segir að sjónvarps- stöðvar hér á landi hafi borið við skorti á fjármagni og skort á tækni og að sömu sögu sé í raun að segja alls staðar í Evrópu. Hún bendir hins vegar á að svo virðist sem ekki hafi skort á tækni þegar textun á er- lendu efni sé annars vegar. Lillian Vicanek mun í erindi sínu fjalla um um textun á sjónvarpsefni eins og það snýr að neytandanum og að skortur á textuðu sjónvarpsefni sé í raun lýðræðislegt vandamál. Hún mun ræða um þær leiðir sem víða hafa verið farnar til að tryggja réttindi þessa hóps, s.s. með laga- setningum og þrýstingi frá neytend- um. Þá mun hún fjalla um mikilvægi þess að búnaður í sjónvarpstækjum verði staðlaður þannig að fólk geti sótt sér texta við sjónvarpsefni óháð því í hvaða landi viðkomandi er. Þing um textun á íslensku efni í kvikmyndum og sjónvarpi Textun á efni mjög ábótavant hér á landi BORGARANEFND Norðurlanda- ráðs leggur til að innflytjendur verði gerðir sýnilegri í norrænum fjölmiðlum, þar sem barátta gegn kynþáttahatri og útlendingaandúð fari einnig fram á þeim vettvangi. Flemming Oppfeld, þingmaður Venstre í Danmörku, gagnrýndi harðlega þessa tilllögu, sem kynnt var á þingi Norðurlandaráðs á mið- vikudag. „Slíkt kallar á ríkisaf- skipti. Aðlögun næst ekki fram með þvingunum og eftirliti með fjölmiðl- um,“ er haft eftir Oppfeld á vef ráðsins. Arne Lyngstad, þingmaður Kristilega þjóðarflokksins í Noregi, sem er formaður borgaranefndar- innar, sagði að Oppfeld gengi of langt í túlkun sinni á tillögunni. „Tillagan undirstrikar einfaldlega hversu mikla ábyrgð ritstjórar á fjölmiðlum bera. Fjölmiðlar eiga að endurspegla samfélagið og það ætti ekki að vera svo erfitt að láta inn- flytjendur sitja við sama borð og aðra Norðurlandabúa,“ sagði Lyng- stad. Í tillögunni styður borgaranefnd- in sömuleiðis að komið verði á fót sameiginlegum gagnabanka um að- lögun útlendinga á Norðurlöndum. „Samanburður á milli norrænu ríkjanna hefur mikla þýðingu ef draga á lærdóm af reynslunni. Hug- myndir sem komið hafa fram í einu ríki geta nýst í öðru. Mikilvægast er að virkja bæði nemendur og fjöl- miðla,“ sagði Lyngstad. Innflytj- endur verði sýnilegri í fjölmiðlum SALA á lambakjöti í september- mánuði var svipuð og í september í fyrra eða um 613 tonn. Þetta er mun betri sala en í ágúst en þá seldust einungis 385 tonn af lamba- kjöti. Á síðustu 12 mánuðum hefur sala á lambakjöti dregist saman um 7,6% miðað við 12 mánuðina þar á undan. Sala á innanlandsmarkaði nam 6.531 tonni, en framleiðslan á kindakjöti á sama tímabili nam hins vegar 8.613 tonnum. Samkvæmt ákvörðun landbúnað- arráðherra verða 25% af framleiðsl- unni á þessu hausti flutt úr landi. Bændasamtökin höfðu lagt til að 28% framleiðslunnar yrðu flutt út, en ráðherra vildi ekki auka útflutn- inginn svo mikið. Hann hvatti menn til þess að auka sölu á lambakjöti á innanlandsmarkaði og benti á að haustið ætti að vera uppskerutími hvað það varðaði. Ekki er að fullu komið í ljós hvort þessi hvatnig hefur einhver áhrif. Það er þó ljóst að salan það sem af er þessu hausti er ekki meiri en hún var á sama tíma í fyrra. Sal- an þyrfti að aukast verulega ef lambakjötið ætti að halda þeirri markaðshlutdeild sem það hafði á síðasta ári. Sala á lambakjöti mun meiri í september en ágúst

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.