Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KAUPÞING banki hf. skilaði 2,2
milljarða króna hagnaði á fyrstu
níu mánuðum ársins, en á sama
tímabili í fyrra var hagnaðurinn 83
milljónir króna. Á þriðja fjórðungi
ársins var hagnaðurinn 1,5 milljarð-
ar króna, en á sama tímabili í fyrra
var 238 milljóna króna tap af
rekstrinum.
Í fyrra var 86 milljóna króna tap
fyrir skatta, en í ár var 2,6 milljarða
króna hagnaður fyrir skatta. Þar af
nam söluhagnaður af Frjálsa fjár-
festingarbankanum 1,5 milljörðum
króna. Að þessum söluhagnaði með-
töldum var arðsemi eigin fjár
33,0%, en án söluhagnaðarins var
arðsemin 14,1%. Gert er ráð fyrir
15% arðsemi fyrir árið í heild.
Hreinar rekstrartekjur jukust
um 117% og námu 7,1 milljarði
króna, en önnur rekstrargjöld
hækkuðu um 46% og námu 4,1
milljarði króna. Kostnaðarhlutfall,
þ.e. gjöld sem hlutfall af tekjum,
lækkar milli ára úr 96% í 58%.
Afkoma sviða ólík
Afkoman var ólík eftir afkomu-
sviðum. Fjárstýring skilaði 757
milljóna króna hagnaði á fyrstu níu
mánuðum ársins, fyrirtækjaþjón-
usta 625 milljóna króna hagnaði og
markaðsviðskipti 17 milljóna króna
hagnaði. Eignastýring og einka-
bankaþjónusta voru hins vegar
reknar með 241 milljónar króna
tapi.
Útlán jukust um
14,1 milljarð króna
Framlag í afskriftareikning tvö-
faldaðist á milli ára og nam 453
milljónum króna á fyrstu níu mán-
uðum ársins. Á afskriftareikningi
var tæpur 1 milljarður króna í lok
september, eða sem nemur 2,2% af
útlánum og veittum ábyrgðum.
Útlán námu í lok september 42,5
milljörðum króna og jukust um 6,4
milljarða króna frá áramótum. Inn-
lán jukust um 14,1 milljarð króna
frá áramótum og námu 24,7 millj-
örðum króna í lok september.
Heildareignir Kaupþings námu
141 milljarði króna í lok september
og höfðu þá aukist um 19% frá ára-
mótum. Eigið fé nam tæpum 11
milljörðum króna, sem er 18,3%
aukning frá áramótum. Eiginfjár-
hlutfall Kaupþings á CAD-grunni
var 11,9% og þar af var eiginfjár-
þáttur A 10,9%. Um áramót var eig-
infjárhlutfallið 11,6%.
Söluhagnaður stærsti
hluti hagnaðar Kaupþings
Arðsemi var
33% með 1,5
milljarða króna
söluhagnaði, en
14% að honum
undanskildum
!&'
()**#$+ ,)
)*
#-
(
!!
" # $ %&% &!&!
'
(&!
)
) )
) )
)
) )
)
./
! '*+' #%,&-% .&/,& #0#&.&/&!&!& .!
FJÖRUTÍU ár skilja að lögmennina
Sigríði Rut Júlíusdóttur og Ragnar
Aðalsteinsson, en þrátt fyrir aldurs-
muninn hafa þau stofnað lögmanns-
stofu saman, þar sem ætlunin er að
takast bæði á við hefðbundin og
óhefðbundin verkefni.
„Þegar ég útskrifaðist fékk ég
vinnu á lögmannsstofu Sigurðar G.
Guðjónssonar sem nú er forstjóri
Norðurljósa. Aðstandendur keppn-
innar Ungfrú Ísland.is leituðu til
stofunnar vegna lögbanns á mynd-
ina Í skóm drekans og þeir vildu líka
hafa Ragnar Aðalsteinsson í málinu.
Þannig hófst samstarf okkar Ragn-
ars, og í þessu samstarfi kynntumst
við vinnubrögðum hvort annars og
ákváðum síðan á haustmánuðum að
hefja saman þennan rekstur,“ segir
Sigríður Rut um aðdragandann að
því að þau Ragnar hófu sameig-
inlegan rekstur lögmannsstofu.
Spurð um það á hvaða sviðum þau
muni starfa segir Sigríður Rut að
þau muni veita alhliða lögmanns-
þjónustu og starfa áfram að svip-
uðum verkefnum og þau hafi gert
hingað til. „Ragnar hefur til dæmis
verið mikið í mannréttindamálum,
fjarskiptarétti og höfundarétti. Ég
hef verið að vinna við fasteigna-
kauparétt, samkeppnisrétt, eigna-
rétt og samningarétt, en einnig að
mannréttindamálum.
Það sem einna helst skilur okkur
frá öðrum lögmannsstofum er að við
erum óhrædd við að taka að okkur
sérstök og óvenjuleg mál og höfum
bæði gert það. Ég tók að mér mál
fyrir nokkrum árum sem varðaði
sóknaraðild föður í barnsfaðern-
ismáli og vann það mál, en fram að
þeim tíma höfðu feður ekki átt sókn-
araðild í slíkum málum. Áherslan
hjá okkur verður meðal annars að
taka að okkur svona mál þar sem
farið er ótroðnar slóðir og Ragnar
er einmitt þekktur fyrir að taka að
sér slík mál.“
Í gær birti nýja stofan auglýsingu
í Morgunblaðinu. Sigríður Rut segir
að með henni hafi bæði verið ætl-
unin að kynna samstarf þeirra
Ragnars og jafnframt að leggja
áherslu á að stofan sé ekki hefð-
bundin í þeim skilningi sem hafi vilj-
að loða við aðrar lögmannsstofur
fram til þessa, þar sem allir sitji stíf-
ir við pólerað fundaborð.
Sigríður Rut Júlíusdóttir og Ragnar Aðalsteinsson.
Óhrædd við
óvenjuleg mál
SAXHÓLL ehf. keypti í gær 50
milljónir að nafnverði hlutafjár í
Fjárfestingarfélaginu Straumi hf. á
verðinu kr. 3,15. Eignarhlutur Sax-
hóls ehf. eftir viðskiptin nemur rúm-
um 144 milljónum króna. Einar Örn
Jónsson framkvæmdastjóri Saxhóls
ehf. er varamaður í stjórn Fjárfest-
ingarfélagsins Straums.
Stjórn Straums hefur boðað til
hluthafafundar 11. nóvember en á
fundinum á að ræða skráningu á að-
allista Kauphallar Íslands og fjölgun
stjrónarmanna úr þremur í fimm.
Straumur skilaði um 582 milljóna
króna hagnaði eftir skatta á fyrstu
níu mánuðum ársins. Hagnaður
Straums fyrir skatta var um 866
milljónir króna á tímabilinu en á
sama tímabili í fyrra var 556 milljóna
króna tap á rekstri félagsins. Inn-
leystur hagnaður fyrir skatta var
1.031 milljón króna á tímabilinu en
óinnleyst tap nam 346 milljónum
króna. Heildarhagnaður félagsins
nam því 582 milljónum króna sem
gerir 12,6% arðsemi eigin fjár fyrir
skatt.
Heildareignir Straums voru í lok
tímabilsins 8.731 milljón króna en
voru 11.745 milljónir króna í árslok
2001. Eigið fé félagsins var í lok
tímabilsins 8.372 milljónir króna og
hafði aukist um 1.031 milljón króna
frá sama tímabili í fyrra. Skuldir fé-
lagsins voru samtals 358 milljónir
króna og skuldir og eigið fé því sam-
tals 8.731 milljón króna. Í lok ársins
2001 voru skuldir og eigið fé 11.745
milljónir króna.
Eignir í skráðum innlendum
hlutabréfum námu 5.921 milljón
króna, í innlendum skuldabréfum
279 milljónum króna og í erlendum
hlutabréfum 734 milljónum króna.
Mikill viðsnúningur í af-
komu Straums á milli ára
BÁÐIR hóparnir sem eru í samn-
ingaviðræðum við einkavæðingar-
nefnd um kaup á hlut ríkisins í Bún-
aðarbanka Íslands, S-hópurinn og
Kaldbakur hf., sækjast eftir að
kaupa allan þann hlut sem er til sölu,
eða 45,8%.
Í fyrradag afhentu hóparnir
nefndinni svör við spurningum sem
hún hafði lagt fyrir þá; um fjárhags-
stöðu, þekkingu og reynslu á fjár-
málamarkaði, eignarhlut sem við-
komandi óskaði eftir kaupum á,
hugmyndir um staðgreiðsluverð og
áform varðandi rekstur Búnaðar-
bankans.
Í samtali við Morgunblaðið vildu
talsmenn hópanna ekki tjá sig um
svörin að öðru leyti en því að báðir
sæktust eftir kaupum á hámarks-
hlut. Vonast þeir til þess að málin
skýrist strax eftir helgi.
Báðir hópar vilja
hámarkshlut í BÍ
FINNUR Ingólfsson, fyrrverandi
seðlabankastjóri, tók við starfi for-
stjóra VÍS í gær af Axel Gíslasyni.
Axel mun þó starfa að öðrum
verkefnum fyrir félagið fram að
áramótum.
Morgunblaðið/Þorkell
Nýr forstjóri VÍS
tekur til starfa
SR-MJÖL og dótturfélög þess
högnuðust um 535 milljónir króna á
fyrstu níu mánuðum ársins, sam-
anborið við 31 milljónar króna hagn-
að á sama tímabili 2001. Hagnaður
fyrir afskriftir, fjármagnsliði og
áhrif hlutdeildarfélaga (EBITDA),
nam 849 m.kr.
Afskriftir voru 433 milljónir, en
fjármunatekjur umfram fjármagns-
gjöld námu 295 m.kr., aðallega
vegna styrkingar íslensku krónunn-
ar. Hlutur í tapi hlutdeildarfélaga
nam 30 milljónum á tímabilinu.
Veltufé frá rekstri var 875 m.kr.
Rekstartekjur félagsins á tíma-
bilinu námu 5.882 milljónum króna,
en rekstrargjöld 5.033 milljónum.
Eiginfjárhlutfall var 37%, saman-
borið við 41% sama tímabil í fyrra.
Veltufjárhlutfall var 1,3, en var 0,89
fyrstu níu mánuði ársins 2001.
Frá áramótum hafa verksmiðjur
SR-mjöls tekið á móti 333 þúsund
tonnum af hráefni, sem er 72 þús-
undum, eða 28%, meira en á sama
tíma í fyrra. Heildarframleiðsla
mjöls nam um 62 þúsundum tonna
og lýsis um 24 þúsund tonnum.
Á stjórnarfundi í SR-mjöli í gær
var samþykkt samrunaáætlun um
að sameina Valtý Þorsteinsson ehf.
félaginu, en allir hlutir í því félagi
eru í eigu SR-mjöls hf. Samruna-
áætlunin var einnig samþykkt af
stjórn Valtýs Þorsteinssonar ehf.
Samruninn miðast við 1. júlí 2002 og
er gert ráð fyrir að unnt verði að
staðfesta samrunann í desem-
bermánuði n.k. Samruninn hefur
engin áhrif á samstæðureikning SR-
mjöls.
SR-mjöl hagnast um
rúman hálfan milljarð