Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 30
SUÐURNES 30 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ „ÞAÐ sýnir að Guð hefur húmor þegar hann skapar svona dýr,“ segir Björn Sveinn Björnsson prestur í Út- skálaprestakalli. Hann og kona hans, Súsanna Björnsson, búa á Út- skálum í Garði ásamt þremur börn- um sínum og kínverskum hundum og er sóknarpresturinn að vísa til hundanna með orðum sínum um skopskyn Skaparans. Björn hefur verið prestur Garð- manna og Sandgerðinga í fjögur ár en Útskálaprestakall nær yfir þessi tvö byggðarlög og þar með tvær sögufrægar kirkjur, Hvalsneskirkju og Útskálakirkju. Er þetta fyrsta brauðið hans. „Ég kynntist þessu prestakalli þegar Önundur bróðir minn þjónaði hér í eitt ár og þá tók ég meðal annars þátt í ferming- arundirbúningi. Þegar ég lauk námi heillaði þessi staður mig vegna fyrri kynna minna af honum,“ segir séra Björn. Hann gerði hlé á guðfræðinámi sínu við Háskóla Íslands og fór til Bandaríkjanna árið 1991 til að kynna sér safnaðar- og boðunarstarf evangelískra safnaða. Þar kynntist hann einmitt eiginkonu sinni, Sús- önnu sem er bandarísk, fædd og uppalin í stórborginni Los Angeles í Kaliforníu. Þau tóku meðal annars þátt í trúboði og hjálparstarfi í Mexíkó og víðar og segir Björn að hann hafi öðlast dýrmæta reynslu á þeim tíma. Gott að búa á Suðurnesjum Súsanna hefur búið á Íslandi í tíu ár og skrifar nafn sitt upp á íslensku enda er hún íslenskur ríkisborgari. Og hún talar góða íslensku. Hún segist hafa farið aðeins í nám í ís- lensku fyrir byrjendur þegar hún fluttist til landsins en fundist mál- fræðin svo erfið að hún hafi nánast gefist upp. En framfarirnar hafi komið þegar hún fór að gæta barna, frændsystkina Björns. Þar hafi hún getað talað án þess að óttast glósur vegna rangra beyginga. Þá segist hún læra mikið af því að lesa Morg- unblaðið daglega. „Mér finnst mjög gott að búa hér, gott að ala upp börnin í öruggu um- hverfi. Þau geta farið út að leika sér án þess að maður hafi nokkrar áhyggjur. Það er rólegra hér á Suð- urnesjum en í Reykjavík, ég tala nú ekki um Los Angeles,“ segir Sús- anna. Börn þeirra eru á aldrinum tveggja til átta ára. Hún segist þó hafa nokkrar áhyggjur af þróuninni hér á landi. „Ég finn fyrir siðferði- legri hnignun sem birtist í mörgum myndum, til dæmis aukinni eitur- lyfjaneyslu, klámvæðingu og glæp- um. Mér þykir svo vænt um þetta land að þessi þróun veldur mér áhyggjum,“ segir hún. Óvissa með uppbyggingu Útskála Presturinn í Útskálaprestakalli á að búa í gamla sögufræga íbúðar- húsinu á Útskálum í Garði en það var úrskurðað óíbúðarhæft árið 1993. Fyrstu árin bjuggu þau í ýms- um húsum í Garði og Sandgerði og við lá að þau þyrftu að flytjast til Reykjavíkur. Þá var keypt íbúðar- hús á Útskálum fyrir prestinn, Presthús heitir það, og þar líður þeim ágætlega. Fyrir nokkrum árum lét Prest- setrasjóður teikna gamla prestsbú- staðinn upp og hóf vinnu við end- urbyggingu hans. Þegar byrjað var að rífa innan úr húsinu komu sífellt meiri skemmdir í ljós og að lokum varð ljóst að viðgerð á húsinu myndi kosti tugi milljóna og yrði sjóðnum ofviða. Séra Björn, sóknarnefndin og Garðbúar hafa eigi að síður mik- inn áhuga á að Útskálar nái fyrri reisn, enda skipar húsið mikilvægan sess í huga þeirra. Kirkjuþing hefur samþykkt að Prestsetrasjóður megi afhenda húsið til þess að það gæti nýst heimamönnum, ef einhverjir aðilar gætu fjármagnað viðgerð- irnar. Björn segir að Endurbóta- sjóður menningarhúsa hafi sam- þykkt að taka þátt í verkinu og félög og stofnanir á Suðurnesjum séu að íhuga hvað hægt sé að gera. Vonast hann til að hægt verði að ljúka end- urbyggingu hússins svo það gæti hýst fræða- og menningarsetur og einnig mætti nýta það í þágu safn- aðarins. Í allt of stórum fötum „Ég sé um hundana en Björn sér um sálirnar,“ segir Súsanna þegar talið berst að kínversku shar-pei hundunum þeirra og leggur áherslu á að presturinn sé ekki kominn í hundana. Hún segir að móðir sín hafi verið með litla hunda og hún því alist upp við hundarækt. „Ég hef alltaf ætlað að fá mér hunda, alvöruhunda. Um leið og ég sá þetta krumpaða andlit á shar-pei vissi ég að það væri hund- urinn sem ég vildi eiga,“ segir Sús- anna. Shar-pei hundarnir eru kínversk- ir að uppruna. Sérkennilegt útlit þeirra stafar af því að feldur þeirra er með fellingum á höfði, hálsi og skrokk, það er eins og þeir séu í allt of stórum fötum. Raunar fæðast hvolparnir sléttir en fyrstu vikurnar vex húðin hraðar en hvolpurinn og húðin krumpast. Eftir því sem hund- urinn vex fyllir hann meira út í húð- ina og fellingarnar minnka. Súsanna hefur þær skýringar á húðfelling- unum að þessi eiginleiki hafi verið ræktaður fram í hundakyninu í Kína. Þeir hafi verið notaðir sem vígahundar og krumpaður feldur hafi verndað skrokkinn fyrir biti andstæðinganna. Hún tekur fram að nú séu shar-pei hundarnir ein- staklega rólegir og ljúfir fjölskyldu- hundar, barngóðir og ákaflega skemmtilegir í umgengni. Hún flutti inn hund og tík af þessu kyni fyrr á árinu og fyrir fimm vik- um gaut tíkin fjórum hvolpum. „Við erum fyrst og fremst að hugsa um að hafa hundana okkur og börn- unum til ánægju enda er það gefandi og hefur góð uppeldisleg áhrif,“ seg- ir séra Björn. Hann bætir því bros- andi við að með þessu séu prests- hjónin á Útskálum á vissan hátt að halda uppi merki fyrirrennara sinna sem voru með búskap á jörðinni. Súsanna hyggst rækta hunda af þessu kyni og er ákveðin í að sýna þá á hundasýningu eftir áramótin. Raunar eru hún búin að festa kaup á tveimur shar-pei hundum til við- bótar, öðrum lillabláum og hinum brúnum, til að geta útvegað fólki hunda í skemmtilegum litum. Prestsfrúin farin í hundana Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Prestshjónin á Útskálum, Súsanna og Björn Sveinn Björnsson, með kínversku shar-pei-hvolpana sína. Krumpað andlit hvolpsins Sölku vekur alls staðar kátínu. Garður VEITINGAHÚSIÐ Vitinn og Sandgerðisbær bjóða eldri borg- urum í Sandgerði að þiggja kaffiveitingar og njóta skemmt- unar á milli klukkan 13.45 og 16 næstkomandi mánudag, 4. nóv- ember. Hljómsveit Kristjáns Þor- kelssonar leikur, Hrafnistukórinn tekur lagið og kaffið verður að hætti Vitans. Hópur fólks frá Hrafnistu kemur í heimsókn. Að- gangur er frír. Félagar á Suðurnesjum í Ætt- fræðifélaginu hittast á Bókasafni Reykjanesbæjar nk. mánudags- kvöld, 4. nóvember, kl. 20. Allir áhugamenn um ættfræðigrúsk eru velkomnir. Nánari upplýsingar veitir Einar Ingimundarson. Á NÆSTUNNI Hátíð í tilefni 50 ára afmælis Holtaskóla í Keflavík verður haldin í Íþróttahúsinu við Sunnubraut í dag klukkan 14. Að henni lokinni verður boðið upp á veitingar í sal skólans. Það er von núverandi nemenda og starfsfólks Holtaskóla að gamlir nemendur og velunnarar sjái sér fært að gleðjast með þeim þessa dagstund. Í DAG NORRÆN samvinna verður þema norrænu bókasafnsvikunnar sem haldin verður 4. til 10. nóvember næstkomandi. Er viðfangsefnið valið til að minnast 50 ára afmælis Norð- urlandaráðs. Þá verða bókmennta- verðlaun ráðsins veitt í fertugasta sinn. Af þessu tilefni verður dagskrá í tali og tónum á Bókasafni Reykja- nesbæjar mánudaginn 4. nóvember klukkan 18. Auk bókasafnsins standa menningarfulltrúi Reykja- nesbæjar og Suðurnesjadeild Nor- ræna félagsins fyrir samkomunni. Allir eru boðnir velkomnir. Dagskrá í bókasafnsviku Reykjanesbær STARFSMENN Íslenskra aðalverk- taka (ÍAV) hófu í gær vinnu sam- kvæmt þjónustusamningi sem fyrir- tækið gerði við varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Í byrjun árs var boðið út eftir svo- kölluðu samningskaupaferli viðhald, viðgerðir, breytingar auk annarrar þjónustu í tengslum við íbúðarhús- næði varnarliðsins. Alls tóku sjö verktakar þátt í útboðinu og í lok september var tilkynnt að tilboði ÍAV hefði verið tekið, en Keflavíkurverk- takar hf. hafa annast þessa þjónustu undanfarin ár. Um er að ræða samn- ing til eins árs með möguleika á fram- lengingu til allt að fimm ára. Verkið felst í fyrirbyggjandi við- haldi á um 100 byggingum með um 1.000 íbúðum af mismunandi stærð- um og gerðum. Eins felur verkið í sér rekstur á þjónustuborði utan venju- legs vinnutíma og á frídögum, hreins- un og lagfæringu á íbúðum þegar skipt er um íbúa auk hugsanlegra breytinga. Íslenskir aðalverktarar hafa keypt nokkra bíla sérstaklega til að sinna þjónustusamningnum við varnarliðið. Að sögn Eyjólfs Gunnarssonar, for- stöðumanns sölu- og markaðsmála hjá ÍAV, eru um 20 fastráðnir starfs- menn við þetta verk og fleiri á álags- tímum. Hefja vinnu vegna þjón- ustusamnings Keflavíkurflugvöllur ♦ ♦ ♦ BÆJARSTJÓRARNIR í Reykjanesbæ og Grindavík harma þá stöðu sem komin er upp á Suðurnesjum að íbúarnir njóti ekki lengur þjón- ustu heimilislækna á heilsugæslustöðvunum á svæðinu og taka undir að það geti skapað örygg- isleysi. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, kveðst hafa áhyggjur af stöðunni. Hann hefur áður lýst samúð með kröfum heilsugæslulækna um réttindi til jafns við aðra sérfræðinga til að starfa sjálfstætt eða inni á stofnunum. Nú þykir honum miður að læknarnir skyldu ekki vilja skoða þann möguleika sem heilbrigðisráðuneytið bauð upp á að hefja viðræður um gerð þjónustusamnings. „Í því hefði lausnarorðið hugsanlega fundist, hægt hefði verið að leggja grunn að jafnri stöðu heilsu- gæslulækna og annarra sérfræðinga,“ segir Árni. Hann segir að bæjarstjórn Reykjanesbæjar sé ekki beinn aðili að þessari deilu og geti ekki gripið inn í hana. Deilurnar snúist um samninga sem heil- brigðisráðuneytið geri við lækna. Hann segir að nú sé spurningin hvort ráðuneytið treysti sér til að nálgast frekar kröfur lækna um jöfnun réttinda. Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri í Grindavík, er óánægður með að ekki skuli hafa fundist lausn á deilu ráðuneytis og lækna áður en þeir hættu störfum. „Það er óviðunandi fyrir Grindvíkinga að vera læknislausir í styttri eða lengri tíma,“ segir hann. Árni og Ólafur Örn leggja áherslu á að ekki sé hægt að tala um neyðar- ástand því slysavakt sé á sjúkrahúsinu í Keflavík og ýmislegt hafi verið gert til að styrkja starfsemina þar og fólk geti einn- ig leitað til bráða- deilda sjúkrahús- anna í Reykjavík. Árni Sigfússon vekur athygli á því að enginn læknanna sem hættu í fyrra- kvöld sé búsettur á svæðinu svo ekki sé um það að ræða að þeir geti veitt nágrönnum sínum aðstoð í neyðartilvikum, eins og hægt var í gamla heimilislæknakerfinu. „Við vonum að lausn finnist sem allra fyrst,“ segir Ólafur Örn í Grindavík. „SEM betur fer er búið að vera mjög rólegt í dag,“ sagði Sigrún Ólafsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri heilsugæslu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, um miðjan dag í gær. Engir heilsu- gæslulæknar eru starfandi hjá stofnuninni eftir að upp- sagnir tíu lækna tóku gildi í fyrrakvöld. Sigrún sagði að nokkrir hefðu hringt og einn sjúk- lingur komið. Hún sagði að erindin væru mismunandi, sumir þyrftu að fá endurnýj- aða eða útgefna nýja lyf- seðla en í einu tilviki hefðu foreldrar verið í vandræðum með veikt barn. Sigrún sagði að lítið væri hægt að gera, annað en að vísa fólk- inu á lækna sem væru með stofur eða Læknavaktina í Kópavogi. Sigrún taldi að vegna mikillar fjölmiðlaumfjöll- unar síðustu daga hefði fólk verið farið að átta sig á því að læknarnir væru að hætta en fram til þess tíma hefði verið ótrúlega mikill sofandaháttur vegna þessa ástands í bænum. Lítið að gera á heilsugæslu- stöðinni Óviðunandi að vera án læknis Suðurnes Ljósmynd/Hilmar Bragi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.