Morgunblaðið - 02.11.2002, Side 4

Morgunblaðið - 02.11.2002, Side 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRN Íbúðalánasjóðs ákvað í gær að óska eftir því að Ríkisendurskoðun taki út verklag og meðferð mála inn- an sjóðsins. Tilefnið er að svo virðist sem Íbúðalánasjóður hafi gert mistök við afgreiðslu fasteignaveðbréfa til fasteignasala í Kópavogi sem nú hef- ur játað á sig tugmilljóna fjárdrátt. „Það er auðvitað ljóst að við höfum keypt fasteignaveðbréf sem eru með ógreinilegu eða ófullkomnu framsali. Það er ekki svo að við höfum keypt bréf, eins og því miður hefur komið fram í fréttum, sem ekki eru með neinu umboði eða án framsals. En framsölin á þessum bréfum voru því miður þannig að við hefðum ef til vill átt að skoða þau betur áður en þau voru keypt,“ segir Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs. Það sé alþekkt að breytingar og leiðréttingar séu gerðar á fasteigna- veðbréfum eins og hafi verið gert í þessum tilvikum og starfsmenn Íbúðalánasjóðs hafi álitið að fast- eignasalinn hafi gert minniháttar mistök við slíkar breytingar. „Við átt- uðum okkur ekki á því að um hugs- anlega fölsun væri að ræða,“ segir hann. Innra eftirlit verði hert í kjöl- farið og vinnubrögð endurskoðuð. Verið er að rannsaka öll viðskipti mannsins við sjóðinn. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær urðu starfsmenn sjóðsins varir við það í síðustu viku, að 6–8 fasteignaveðbréf frá fasteignasalanum væru útfyllt með óeðlilegum hætti en verðmæti þeirra er talið um 20–30 milljónir. Þá voru níu mánuðir síðan Þröstur Valdimarsson gerði alvarlegar at- hugasemdir við starfshætti mannsins og taldi hann m.a. hafa breytt fram- sali á fasteignaveðbréfi. Guðmundur viðurkennir að þetta hefði átt að hringja viðvörunarbjöll- um hjá sjóðnum. Starfsmenn hafi hins vegar ekki áttað sig á hversu al- varlegt málið var og því var ekki grip- ið til aðgerða. Guðmundir bendir á að í þessu tilviki hafi málið verið kært til lögreglu en sú kæra hafi aldrei borist Íbúðalánasjóði og lögregla hafi aldrei haft samband út af málinu. Að lokum hafi innra eftirlit sjóðsins rekið aug- un í að sitthvað var athugavert við viðskipti mannsins. „En auðvitað hefði það þurft að gerast fyrr. Ég dreg ekki fjöður yfir það,“ segir Guðmundur. Í fréttatilkynningu frá stjórn Íbúðalánasjóðs kemur fram að sjóð- urinn hefur leitað til sjálfstætt starf- andi lögmanns um að kanna hvort sjóðurinn sé hugsanlega bótaskyldur en sé svo muni sjóðurinn „bæta það tjón sem viðskiptavinurinn hafi sann- arlega orðið fyrir“. Er viðskiptavin- um sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni bent á að hafa samband við sjóðinn. Hvar eru peningarnir? Fyrrum starfsmaður Holts fast- eignasölu, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, sagði að rekstur fasteigna- sölunnar hefði verið í fullum gangi al- veg fram á þriðjudag þegar eigandi hennar gaf sig fram við lögreglu. Það hafi komið eins og reiðarslag yfir starfsfólkið þegar maðurinn játaði á sig tugmilljóna fjárdrátt. Síðustu daga og vikur hafi þau þó séð merki um erfiðleika í rekstri, viðskiptavinir hefðu t.d. komið ævareiðir á fast- eignasöluna og heimtað peninga sem þeir áttu inni hjá fasteignasölunni. Þegar starfsfólk hafi spurt eigand- ann hafi hann alltaf svarað að allt væri í himnalagi og búið væri að leysa mál þessa fólks. Þessu hefðu starfs- mennirnir trúað. Aðspurður segir starfsmaðurinn að starfsfólkið eigi bágt með að skilja hvað varð um alla þá fjármuni sem maðurinn er talinn hafa skotið undan. Fasteignasalan hafi verið í leiguhúsnæði og eins og hjá fleiri einkafyrirtækjum hafi stundum orðið tafir á að laun væru greidd. Þá hafi enginn af sex starfs- mönnum fengið greidd laun fyrir október. „Þetta finnst mér vera mergur málsins: Hvar eru pening- arnir?“ Svik í síðustu viku Svo virðist sem maðurinn hafi náð til sín fjármunum með ýmsum hætti. Í Morgunblaðinu í gær var greint frá því að hann breytti framsali á fast- eignaveðbréfi þannig að peningarnir runnu til hans en ekki réttmæts eig- anda sem var húsasmíðameistari í Hafnarfirði. Morgunblaðið hefur heyrt af fleiri slíkum tilvikum og starfsmenn Íbúðalánasjóðs hafa fundið a.m.k. 6–8 fasteignaveðbréf sem ekki eru framseld með réttum hætti en upphæð þeirra er talin nema um 20–30 milljónum króna. Í öðrum tilvikum hélt hann eftir ávísunum og reiðufé sem viðskipta- vinir, í sumum tilvikum eldra fólk, hafði treyst honum fyrir. Eitt tilvikið gerðist í síðustu viku, nokkrum dög- um áður en maðurinn gaf sig fram við lögreglu. Eins og kunnugt er var fasteignasalinn kærður til lögregl- unnar í Kópavogi í lok janúar og 5. september óskaði sýslumaðurinn í Kópavogi eftir gjaldþroti fasteigna- sölunnar. Lögmaður tjónþola, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, sagði að hugsanlega yrði lögð fram bóta- krafa á hendur ríkinu vegna þess að lögregla hafi ekki gripið inn í fyrr. Ekki náðist í Þorleif Pálsson, sýslumann í Kópavogi, í gær og hann hefur ekki svarað ítrekuðum skila- boðum. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Kópavogi, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að óvíst væri hvort rannsókn lögreglu hefði verið hraðað sérstaklega þó að hún hefði vitað af gjaldþrotabeiðn- inni. Ekki kært til samskiptanefndar Í Morgunblaðinu í gær var farið rangt með orð Björns Friðfinnsson- ar, ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðu- neytinu, varðandi tryggingar fast- eignasala. Hið rétta er að í frumvarpi til núgildandi laga um fasteignasölur var gert ráð fyrir að tryggingar tækju einnig til ásetningsbrota. Því var breytt í meðförum þingsins og því ná tryggingarnar aðeins til gáleysis- brota. Beðist er velvirðingar á þess- um mistökum. Guðrún Árnadóttir, formaður Fé- lags fasteignasala, sagði að það gæti vel verið að aldrei hefði neitt verið bókað um þetta á þeim fjölmörgu fundum sem félagið hefði átt með fulltrúum dómsmálaráðuneytisins, þó ekki Birni Friðfinnssyni. En óskin hefði verið sett fram munnlega. Hún segir fulla þörf á að herða eft- irlit með fasteignasölum en það sé að- eins hægt með lagabreytingu. Á síð- ustu árum hafi þeir t.d. æ oftar haft milligöngu um að greiða upp óhag- stæð lán sem hvíla á eignum seljenda. Árið 1999 hafi komið holskefla af slík- um málum og nú þegar verkamanna- íbúðir væru að koma á markað megi búast við öðru eins. Þegar Þröstur Valdimarsson kærði fasteignasalann til lögreglunn- ar hafði hann jafnframt samband við Félag fasteignasala. Þar var honum bent á að leggja málið fyrir sam- skiptanefnd félagsins en það kostar 10.000 krónur. Það hafi hann ekki gert og því var ekki unnið meira í málinu af hálfu félagsins. Magnús Einarsson, framkvæmdastjóri Fé- lags fasteignasala, segir að maðurinn hafi þegar verið búinn að kæra málið til lögreglu en það eigi að vera mun fljótlegri og öruggari aðferð. Skiptastjóri þrotabús Holts fast- eignasölu er Guðmundur Óli Björg- vinsson hdl. Í samtali við Morgun- blaðið í gær sagðist hann vonast til að finna aðila sem væri tilbúinn til að taka yfir rekstur fasteignasölunnar og ljúka þeim kaupsamningum sem eru útistandandi. Hann býst við að þetta skýrist um helgina. Fasteignasalinn í Kópavogi er talinn hafa náð talsverðum fjárhæðum frá viðskiptavinum sínum í síðustu viku Íbúðalánasjóður óskar eftir úttekt Ríkisendurskoðunar Starfsmenn Íbúðalánasjóðs hafa fundið a.m.k. 6–8 fasteignaveðbréf sem ekki eru framseld með réttum hætti, samkvæmt upplýsingum Rúnars Pálmasonar. Í öðrum tilvikum hélt fasteignasalinn eftir ávísunum og reiðufé sem viðskiptavinir, í sumum til- vikum eldra fólk, höfðu treyst honum fyrir. runarp@mbl.is „BRANDARAR eiga ekki upp á pallborðið í samskiptum læknis og sjúklings,“ segir norski skurðlæknirinn Sten Tyrdal sem flutti erindi á námskeiðinu Húmor og heilsa hjá Endur- menntunarstofnun Háskóla Ís- lands í gær. Tyrdal er forseti Norræns félags um læknaskop og segir kersknina einkum hafa það hlutverk að draga úr streitu sjúklings en ekki megi skilja hlutina á þann hátt að verið sé að reyta af sér læknabrandara frá morgni til kvölds. „Í mínum huga er kersknin ákveðin samskiptaleið og fær sjúklinginn til að slaka á,“ segir Tyrdal. „Auk þess skapast traust þegar ég birtist sjúklingi sem persóna en ekki aðeins læknir.“ Tyrdal segir bros og vinsemd mikilvæga þætti þegar kerskni beri á góma í samskiptum lækn- is og sjúklings. Hann beiti henni að sjálfsögðu í samskiptum við eigin sjúklinga. Karl Ágúst Úlfsson var feng- inn til að ræða um kerskni á námskeiðinu og sagði við Morg- unblaðið að hún væri einfaldlega lífsnauðsynleg fyrir heilsuna. Varla þarf að geta þess að margítrekað bætti hann heilsu þeirra sem námskeiðið sátu með því að koma þeim til að hlæja. „Hláturinn er hollur fyrir öll efnaskipti, lungu og hjarta. Létt afstaðan til lífsins auðveldar fólki lífið, auk þess sem húmor- inn léttir samskipti fólks og létt- ir lífið á svo fjölmörgum svið- um,“ segir Karl Ágúst. Morgunblaðið/RAX Tveir húmoristar, hvor úr sinni áttinni: Dr. Sten Tyrdal skurðlæknir og Karl Ágúst Úlfsson leikari. Kersknin notuð til að draga úr streitu sjúklinga Í ÞJÓÐTRÚNNI segir að ef tröll séu úti undir beru lofti þegar sól kemur upp að morgni verði þau að steini. Ekki er vitað hvað langt er síðan þessi tröllkarl á myndinni varð að steini eða hvað hann var að gera þegar það gerðist. Hann blasir við þegar ekið er inn á Höfða- brekkuheiðar í Mýrdal og er í dag- legu tali kallaður Tótanef. Óhætt er að segja að tröllið í Lambaskörðum lætur hvorki fyrsta snjó vetrarins eða mannaferðir trufla sig. Í trölla- höndum í Lamba- skörðum Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Fagradal. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.