Morgunblaðið - 02.11.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
fordmondeo
Keyrðu og finndu að í Ford Mondeo færðu meira af öllu.
Þú upplifir að nýr Mondeo gefur þér miklu meira en þú áttir von á.
Komdu og keyrðu. Vertu undir það búinn að vilja ekki láta hann frá þér.
Pantaðu núna.
Nýr Ford Mondeo kostar frá 1.995.000 kr.
Brimborg Reykjavík sími 515 7000 • Brimborg Akureyri sími 462 2700 • brimborg.is Opið laugardaga kl.12-16
Keyrðu ...
og upplifðu
Sægreifarnir fá trúlega ekki mikla samúð frá þeim sjávarplássum sem þeir hafa leikið verst.
Námskeið um vinnusálfræði
Fyrirbyggjandi
vinnusálfræði
SÁLFRÆÐISTÖÐINer að hleypa ákveð-inni nýjung af stokk-
unum. Fyrirbyggjandi
vinnusálfræði mætti kalla
undirtóninn og kjarna
málsins. Sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir
og Guðfinna Eydal eru eig-
endur Sálfræðistöðvarinn-
ar og svaraði Álfheiður
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins um nám-
skeiðin, tilurð þeirra og til-
gang.
Er þörf fyrir námskeið
um líðan fólks í vinnu og
samskipti á vinnustað?
„Já, það er engin spurn-
ing. Á flestum vinnustöðum
eru samskipti vandasöm og
flókin og ólíkar persónur
eiga samskipti. Það eru eig-
inleikar og viðbrögð þess-
ara ólíku persóna sem ým-
ist valda því að samskiptin ganga
vel, eru ánægjuleg og efla vinnu-
gleði eða orsaka erfiðleika og van-
líðan. Það má kannski segja að
þetta hafi verið að þróast hjá okk-
ur upp úr þeirri miklu umræðu
sem orðið hefur áberandi á seinni
tímum um vanlíðan og jafnvel ein-
elti í skólum og á vinnustöðum, en
staðreyndin er sú að alls konar
ósætti og deilur eru algeng á
vinnustöðum, safnast saman og
magnast ef ekkert er að gert og
leiða jafnvel síðan af sér einelti. Við
teljum að iðulega sé hægt að koma
í veg fyrir það.“
– Hvernig er hægt að koma í veg
fyrir slíkt?
„Þetta er reyndar mjög stór
spurning en þó eru til svör. Sál-
fræðistöðin hefur lengi tekið að sér
handleiðslu og ráðgjöf fyrir fagfólk
og stjórnendur á vinnustöðum og
séð hvaða samskipti reynir gjarn-
an á á vinnustöðum. Einstaklingar
leita einnig talsvert til okkar vegna
samskipta á vinnustað. Við höfum
hannað námskeið sem tekur á líðan
fólks í vinnunni og köllum það
Hvernig líður þér í vinnunni? Það
sem við leggjum upp með er að
kenna samskiptalíkan til að fólk
geti betur áttað sig á hvaða við-
brögð þarf að styrkja og efla í
vinnu og hver þarf að takast á við
og minnka. Oft er mikilvægt að
vinna með starfshópum. Vinnan er
mjög persónuleg og hver og einn
þátttandi er virkur. Samskiptin við
aðra eru krufin og skoðuð og menn
fræðast um það hvar þeir standa
innan vinnustðarins. Oft áttar fólk
sig ekki á hvernig orð og gerðir
virka á aðra, ekki síst þegar tekið
er á flóknari málum.“
– Þetta er þá sum sé jákvæður
boðskapur sem þið eruð með?
„Já, vissulega. Við getum talað
um fyrirbyggjandi sjónarmið og
þau eru mjög jákvæð. Við gætum
þess líka að hafa efni námskeið-
anna persónulegt og að þátttak-
endur séu virkir. Það er mikilvægt
að fólki finnist efnið koma sér per-
sónulega við og að hægt
sé að nota aðferðirnar
líka í einkalífi en svona
námskeið þurfa líka að
vera skemmtileg og
kímigáfan á réttum
stað, þá næst miklu
betri árangur en ella.“
– En er það ekki gjarnan þannig
að fólk situr bara sem fastast og
viðurkennir ekki að einhver vanda-
mál séu uppi á borðinu?
„Það er til í dæminu í einstaka
tilvikum, en okkar reynsla er sú að
þegar vandamál eru þá vill fólk
leysa þann vanda. Ef komist er að
rót óánægjunnar er fólk bara fegið
að geta talað út um það og komið
því frá. Fólk vill ekki festast í víta-
hring á vinnustað. Það er gaman
að fylgjast með þegar úrvinnsla á
togstreitu virkar og komnar eru
jákvæðar tilfinningar í hópinn, þá
leysist heilmikil orka úr læðingi.“
– Koma upp vandamál sem ekki
er hægt að leysa?
„Það koma upp erfið mál, einelt-
ismál, sambandsleysi starfsfólks,
klíkumyndanir og almennur bak-
talsandi. Þegar svoleiðis kemur
upp er tekist beint á við að leysa
vandann.“
– Er ekki hætta á því að menn
séu fljótir að gleyma og allt leiti í
sama farið?
„Það er alltaf viss hætta fyrir
hendi að vandamálin skjóti aftur
upp kollinum. Við erum meðvituð
um það og bjóðum hópunum okkar
að hitta þá aftur, t.d. á þriggja til
sex mánaða fresti og fara yfir mál-
in með þeim. Það heldur mönnum
við efnið og gefur aðhald.“
– Nú má fastlega reikna með að
úti í þjóðfélaginu sitji einstaklingar
með vinnustaðavandamál, en séu
einangraðir og fyrirtæki þeirra
vinni ekki hópvinnu með ykkur.
Hvaða möguleika á þetta fólk?
„Við verðum með námskeið og
ráðgjöf fyrir einstaklinga í vetur.
Einstaklingar geta tilkynnt sig
beint og mætt á eigin vegum. Eins
er fullt af vinnustöðvum þar sem
vandamálin eru bundin við einn
eða tvo og kannski ekki
nauðsynlegt að allir á
vinnustaðnum þurfi
ráðgjöf. Það er tví-
mælalaust ástæða til að
senda þessu fólki þau
skilaboð að það geti tek-
ið á sínum málum og það þurfi ekki
að sitja í vanlíðan á vinnustað. Alls
ekki.“
– Er nóg að gera í þessu hjá
ykkur?
„Já, það hefur verið nóg að gera
og mikið um að fyrirtæki leiti til
okkar að fyrra bragði og haldi síð-
an góðu sambandi þar eftir. Þetta
eru alls konar hópar sem við fáum
og eftirspurnin hefur heldur verið
að aukast.“
Álfheiður Steinþórsdóttir
Álfheiður Steinþórsdóttir er
sérfræðingur í klínískri sálfræði,
stundaði sitt framhaldsnám og
lauk sínu embættisprófi í Sví-
þjóð. Hún bætti við menntun sína
í Bretlandi. Frá árinu 1975 vann
hún um tíma við Landspítalann
og fyrir Reykjavíkurborg, en ár-
ið 1983 stofnaði hún Sál-
fræðistöðina ásamt Guðfinnu Ey-
dal og hefur verið þar æ síðan.
Eiginmaður Álfheiðar er Vil-
hjálmur Rafnsson, prófessor í
heilbrigðisfræði. Álfheiði fædd-
ust tveir synir og er annar á lífi.
Hún á einnig þrjú stjúpbörn.
Fólk þarf
ekki að sitja
í vanlíðan á
vinnustað