Morgunblaðið - 02.11.2002, Side 11
Útsíður Morgunblaðsins eru báð-
ar blandaðar fréttasíður.
1. júní eru 6 erlendar fréttir á for-
síðunni og fimm innlendar, en að-
alfréttin, sem er þriggja dálka, er
erlend; af fundi Giraud og De Gaulle
í Algeirsborg. Á baksíðunni eru 5
innlendar fréttir og 3 erlendis frá,
en reyndar er ein þeirra „innlend“,
þótt frá San Francisco sé. Vestur-
íslenskir hermenn eru víða heitir
hún og segir frá kapteini Jóni O.S.
Sigurðssyni, lækni, sem starfar á
herflutningaskipi Bandaríkjahers í
Kyrrahafi.
2. júní eru 12 fréttir á forsíðunni
og skiptast jafnt milli erlendra og
innlendra. Aðalfréttin er erlend,
með fjögurra dálka fyrirsögn og
tveggja dálka inngangi. Á baksíð-
unni eru 6 innlendar fréttir og 3 er-
lendar.
Erlent – innlent
Þannig verða erlendar fréttir
strax 1943 leiðandi á forsíðunni og
aðalfréttin oft með fimm dálka fyr-
irsögn og tveggja dálka undirfyr-
irsögn og inngangi. Innlendar frétt-
ir rata þó áfram á forsíðuna; þar í
sérstakar stjórnmálafréttir, en
hvort tveggja í minnkandi mæli
næstu árin og hálfan annan áratug-
inn. Stórviðburðir af innlendum
vettvangi víkja áfram erlendum
fréttum til hliðar á eða af forsíðunni.
Þegar kemur fram undir 1970, er
komin sú meginskipan á forsíðuna,
sem hefur haldizt til þessa. Kosn-
ingar kalla þó á sérstakar forsíðu-
fréttir áratug lengur.
Þótt innlendu fréttirnar gefi tón-
inn á baksíðunni, er það þegar stríð-
inu lýkur, að baksíðan verður inn-
lend fréttasíða. Erlendar fréttir
rata þar inn áfram, en þær strjálast
stöðugt og þær síðustu eru oftast
smáfréttir, sem eru notaðar til að
loka baksíðunni. Þegar kemur fram
um miðjan sjötta áratuginn hverfa
þessar fréttir líka og síðan hefur
baksíðan verið innlend fréttasíða að
öllu leyti.
Léttara og frjálsara blað
Í dag er brotið blað.
Á 89. afmælisdaginn tekur forsíða
Morgunblaðsins stakkaskiptum.
Vissulega hefur yfirbragð hennar
breytzt síðustu 30 árin, en engar
stökkbreytingar; þetta hefur verið
stöðug en hægfara þróun.
Í dag verður forsíðan aftur blönd-
uð; með bæði innlendum og erlend-
um fréttum.
Heiti blaðsins á forsíðunni fyllir
ekki lengur út í fimmdálkaplássið.
Það var minnkað í þrígang eftir
1928, en stækkað aftur út í fimm-
dálkinn 1983 og þá var stofnárinu
1913 bætt við þar fyrir neðan. Það
er einnig nýtt nú, að efnistilvísanir
koma fyrir neðan blaðhausinn og
línan þar fyrir ofan breytist; fremst
stendur stofnað 1913 og lengst til
hægri kemur mbl.is í stað prent-
smiðju Morgunblaðsins.
„Við komum aftur með landa-
mæralausa forsíðu,“ segir Árni
Jörgensen, fulltrúi ristjóra, „og við
munum létta á fimmdálkahefðinni
og láta atburðina ráða meiru um
dálkafjöldann.“
Fréttaáherzlu og andlitslyftingu
á forsíðu Morgunblaðsins fylgja
breytingar á öðrum blaðsíðum; bæði
baksíðu og innsíðum. „Þessar breyt-
ingar gera blaðið léttara og frjáls-
ara, en samt allt innan ákveðinna
marka,“ segir Árni.
„Með því að láta innlendar fréttir
á forsíðuna höfum við frjálsari
höndur með baksíðuna. Það er okk-
ar aðal að hafa tvær útsíður, sem
báðar eru harðar fréttasíður. Með
því að fella niður landamærin á for-
síðunni opnum við fyrir léttara efni
á baksíðunni og reyndar forsíðunni
líka, þegar það á við.“
Svar við kalli tímans
„Það hefur lengi legið í loftinu að
blanda saman innlendum og erlend-
um fréttum á forsíðunni,“ segir
Björn Vignir Sigurpálsson, frétta-
ritstjóri Morgunblaðsins.
„Það sem réð þessari skiptingu
með erlendu fréttirnar á forsíðunni
á sínum tíma, var að það var litið á
þær sem eins konar glugga út í hinn
stóra heim. Á þessum tíma voru
miklar viðsjár í heiminum, kalda
stríðið í algleymingi sem hafði beina
skírskotun inn í íslenzka stjórn-
málabaráttu, þar sem voru átökin
um varnarliðið og veru þess. Á þeim
tíma var íslenzkt þjóðfélag einangr-
aðra og fréttasviðið fábreyttara og
það þurfti innlendar stórfréttir;
mannskaða, náttúrhamfarir og þess
háttar til þess að þær birtust á for-
síðunni.
Nú er allt umhverfi gjörbreytt.
Menn eiga auðveldan aðgang að er-
lendum fréttum, sem mala allan sól-
arhringinn, og heimsviðburðir í
beinni útsendingu. Með tilkomu
Netsins má sækja upplýsingar
heimshorna á milli á svipstundu. Ís-
lenzkt þjóðfélag hefur þróazt þann-
ig að frá miklu meiru er að segja.
Til dæmis hefur öflugt viðskipta-
líf orðið til síðasta hálfan annan ára-
tug, en viðskiptafréttir þekktust
nær ekkert áður. Hér er kominn
hlutabréfamarkaður sem krefst
mikillar upplýsingagjafar og það
eru næstum daglegar fréttir um
einhverskonar átök á markaðnum
Það er þó rétt að leggja áherzlu á
það, að með breytingunum er ekki
ætlunin að draga úr erlendum
fréttaflutningi. Erlendar fréttir
verða áfram á forsíðunni og þær fá
aukið rými inni í blaðinu.
Þær munu því áfram skipa sinn
veglega sess í Morgunblaðinu.
Þessar breytingar á blaðinu eru
einfaldlega svar við kalli tímans.“
freysteinn@mbl.is
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 11
verður
opnuð í
Smáralind
í dag
Ótrúleg
opnunartilboð
Smáralind - Kringlunni - Laugavegi 97