Morgunblaðið - 02.11.2002, Side 12

Morgunblaðið - 02.11.2002, Side 12
VALGERÐUR Sverrisdóttir við- skiptaráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um fjármálafyrirtæki. Verði frum- varpið að lögum koma þau í stað nokkurra eldri laga á þessu sviði. Samkvæmt frumvarpinu mun Fjár- málaeftirlitið m.a. veita og afturkalla starfsleyfi fjármálastofnana í stað við- skiptaráðherra nú. Þá hefur í frum- varpinu ákvæðum um sparisjóði verið breytt, frá því sem nú er, í því skyni að treysta yfirtökuvarnir þeirra. Auk- inheldur eru í frumvarpinu ákvæði um að sparisjóður skuli breyta rekstrarformi sínu í hlutafélag áður en samruni við aðrar tegundir fjár- málafyrirtækja geti átt sér stað. Valgerður Sverrisdóttir ítrekaði, í umræðum um frumvarpið á Alþingi í gær, að þau ákvæði sem sneru að sparisjóðum væru fyrst og fremst til þess fallin að eyða réttaróvissu og „til að koma hlutunum þannig fyrir í laga- legu formi að það ríki ekki þessi óvissa,“ sagði ráðherra. „Og hlutir eins og gerðust í sumar gerist ekki,“ bætti hún við. „Það er gengið eins langt í þessum efnum og ég tel að við getum gert með tilliti til stjórnar- rskrár Íslands.“ Guðmundur Árni Stefánsson, þing- maður Samfylkingarinnar, sagði um frumvarpið almennt að við fyrstu sýn virtist það „taka á fjölmörgum atrið- um með skynsamlegum hætti,“ eins og hann orðaði það. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagðist hafa skilið við- skiptaráðherra á þann veg í sumar að „það ætti að koma í veg fyrir brask með stofnfjárhluti.“ Ögmundur sagði hins vegar að hann gæti ekki séð að það væri gert með umræddu frum- varpi. Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, gerði ákvæði um Fjármálaeftirlitið m.a. að umtals- efni og sagði að samkvæmt þeim væri verið að stofna einhvers konar yfirráð eða æðsta ráð í þessum efnum. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins og einn fimm stofn- fjáreigenda Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, sem gerðu öðrum stofnfjáreigendum yfirtökutil- boð í sumar, sagði í andsvari sínu við ræðu viðskiptaráðherra í gær að lög- gjafinn ætti ekki að leysa úr ágrein- ingi sem risi vegna gildandi laga, heldur dómstólar. „Við erum með þrískiptingu valds- ins; framkvæmdavald, dómsvald og löggjafarvald. Ágreining sem rís vegna gildandi laga á að leysa fyrir dómstólum. Hann á ekki að leysa með tilskipunum. Hann á ekki að leysa á löggjafarsamkundunni, sem er ekki dómsvald,“ sagði Pétur. „Hér er gerð tilraun til þess að leysa ágreining með lögum. Það er verið að setja lög sem eiga að treysta yfirtökuvarnir sparisjóðanna. Og það er talað um fjandsamlega yfirtöku. en fjandsamlega hverjum?“ spurði Pétur og hélt áfram: „Stofnfjáreigendum? Nei. Sparisjóðnum? Nei, því hans eig- ið fé er tryggt. Stjórninni? Kannski.“ Síðan sagði Pétur: „Þetta minnir á til- skipanir einræðisherra og ég vil spyrja hæstvirtan ráðherra hvort hann ætli virkilega að fara að stjórna í krafti tilskipana?“ Valgerður Sverrisdóttur svaraði því til að á Alþingi dygðu engar að- ferðir einræðisherra. „Eins og þing- maðurinn veit jafn vel og ég þá duga engar aðferðir einræðisherra hér á háttvirtu Alþingi. Það þarf vilja Al- þingis til þess að þetta frumvarp verði samþykkt.“ Ráðherra tók hins vegar fram að hún gerði ekki ráð fyrir því að Pétur H. Blöndal styddi frumvarpið. Síðan sagði ráðherra: „Háttvirtur þingmaður misskilur þetta mál, og þetta eru fullyrðingar sem ég er búin að heyra frá fleirum, að það eigi með löggjöf að taka á því ástandi sem skapaðist í sumar og breyta lögum eftirá. Að sjálfsögðu breytum við ekki lögum aftur í tímann. Það er ekki hægt. Og bæði þau tilboð sem komu fram í sumar, þau hafa verið úrskurð- uð af Fjármálaeftirlitinu sem ólögleg eða ónothæf. Þannig að það er ekki um það að ræða að það sé tilboð í gangi um þessar mundir frá fim- menningum sem háttvirtur þingmað- ur kannast við.“ Pétur H. Blöndal tók aftur til máls og sagði það rangt að hann væri á móti umræddu frumvarpi í heild sinni. „Ég er mjög sáttur við frum- varpið, nema að því er varðar spari- sjóðina.“ Síðan sagði þingmaðurinn: „Það að Fjármálaeftirlitið hafi úr- skurðað þessi tilboð ólögleg eins og hæstvirtur ráðherra sagði, það er ekki rétt.“ Pétur H. Blöndal sagði að tilboð fimmmenninganna og Búnað- arbanka Íslands hefði verið löglegt. Ráðherra ítrekaði hins vegar að til- boð þeirra hefði verið ólöglegt, þ.e. það hefði ekki gengið upp óbreytt. Þar með hefði þurft að leggja fram nýtt tilboð en slíkt tilboð hefði enn ekki komið fram. Mælt fyrir frumvarpi til nýrra laga um fjármálafyrirtæki Yfirtökuvarnir sparisjóða treystar Minnir á tilskip- anir einræðis- herra, sagði Pétur Blöndal Morgunblaðið/Þorkell Valgerður Sverrisdóttir mælti fyrir frumvarpi um fjármálafyrirtæki. FRÉTTIR 12 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ NÝLIÐIN þingvika var róleg eins og síðustu vikur, a.m.k. í þingsalnum. Þingmenn voru margir hverjir „fjarri góðu gamni“, ef svo má segja, þar sem þeir tóku þátt í Norð- urlandaráðsþingi í Helsinki í byrjun vikunnar. Þar voru sömuleiðis nokkrir ráðherrar. Skýringin á ró- legheitunum skýrist semsé að hluta til af þátttöku þingmanna og ráð- herra á Norðurlandaráðsþinginu. Þeir þingmenn sem „sátu heima“ tóku vissulega þátt í þingstörfunum, en þó var eins og þeir væru margir hverjir með hugann annars staðar; sennilega við prófkjörin eða uppstill- ingu þeirra á framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Sem þingfréttamaður get ég ekki neitað því að ég hlakki til þess tíma þegar búið verður að ganga frá fram- boðslistum; þá þurfa þingmenn ekki lengur að hafa „áhyggjur“ af því í hvaða sæti þeir lenda, þeir geta farið að einbeita sér að því að skerpa mál- efni síns flokks; marka sér sérstöðu fyrir komandi kosningar. Þá verður umræðan vonandi beittari og meira spennandi í sölum Alþingis. Flokkar munu væntanlega „berjast“ gegn öðrum flokkum; stjórnarliðar gegn stjórnarandstæðingum. Þannig gengur það alltjént fyrir sig í aðdrag- anda kosninga. En kannski munu lín- ur riðlast; stjórnarliðar og stjórn- arandstæðingar munu ef til vill taka upp á því að berjast innbyrðis. Það getur nefnilega líka gerst mánuðina fyrir kosningar. Þegar allt kemur til alls verður þó hver líklega sjálfum sér næstur. +++ En aftur að þingvikunni. Sem dæmi um rólegheitin má nefna að fresta þurfti atkvæðagreiðslu á Al- þingi í vikunni um einhverjar mín- útur vegna þess að ekki gekk að ná inn nægilega mörgum þingmönnum í salinn til að atkvæðagreiðslan gæti talist gild. Forseti Alþingis kallar eftir þingmönnum í atkvæðagreiðslu með því að hringja sérstakri bjöllu, sem minnir óneitanlega á hefð- bundna skólabjöllu. Fyrir hverja at- kvæðagreiðslu hljómar því „skóla- bjallan“ um allt Alþingishús og nýja þingskálann að sjálfsögðu. Þannig vita þingmenn að þeir eiga að mæta í salinn og greiða atkvæði. Undirrituð hefur verið þingfréttaritari um all- langt skeið og man ekki til þess að fresta hafi þurft atkvæðagreiðslu vegna þess að of fáir þingmenn mættu í salinn. En það gerðist þó í vikunni eins og áður sagði. Verið var að greiða atkvæði um aðild Íslend- inga að alþjóðasamningi um verndun túnfisks í Atlantshafi. Og það þurfti ekki einungis að fresta atkvæða- greiðslu einu sinni heldur tvisvar sama dag. En það var ekki bara fámenni þingmanna við atkvæðagreiðslu sem bar vitni um rólegheit í þingsalnum. Í gær, föstudag, „tók rafmagnið nefnilega upp á því“, ef svo má að orði komast, að standa á sér í um- ræðu um nýtt frumvarp ríkisstjórn- arinnar um fjármálafyrirtæki. Guð- mundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, var í ræðustól, þegar ljós í þingsalnum slokknuðu, sem og tölva og klukka sem sýnir ræðumanni hve langan tíma hann á eftir til að tala. Eins og gefur að skilja vildi Guðmundur Árni ekki standa þarna og tala í rökkrinu. Enn- fremur velti hann því fyrir sér hvort segulbandstækið virkaði, sem tekur upp allar ræður þingmanna. Hann sagði: „Ég vil vera viss um að þetta (ræðan) fari á spjöld sögunnar og að segulbandstækið sé í lagi.“ Forseti þingsins fullvissaði þingmanninn um að ræðan kæmist á spjöld sögunnar. Að því búnu hélt Guðmundur Árni ræðu sinni áfram og ljósin „ákváðu“ stuttu síðar að lýsa upp sal Alþingis. En talandi um spjöld sögunnar. Ég velti því nefnilega fyrir mér hvort umrædd þingvika komist á spjöld sögunnar fyrir rólegheit! +++ En þótt þingmenn séu „sjaldséðir“ í þingsalnum þessa dagana hafa þeir verið iðnir við að leggja fram á Al- þingi ný og gömul þingmál. Sam- kvæmt upplýsingum frá skrifstofu Alþingis hafa alls 304 þingmál verið lögð fram á Alþingi á þessu þingi. Sum þessara þingmála eru mál sem þingmenn hafa lagt fram áður, þ.e. á öðrum löggjafarþingum, en ekki hlotið umræðu eða afgreiðslu þings- ins, en einnig má í bunkanum finna glæný þingmál. Til gamans má geta þess að á sama tíma í fyrra var búið að leggja fram 234 þingmál. Þingmálin eru því held- ur fleiri nú en í fyrra. Af þeim 304 þingmálum sem lögð hafa verið fram eru 20 þingsályktun- artillögur og frumvörp frá rík- isstjórninni en 121 tillaga og frum- varp frá þingmönnum; stjórnarliðum og stjórnarandstæðingum. Flest þó frá stjórnarandstæðingum. Önnur þingmál eru fyrirspurnir. Í þessu sambandi má taka fram, svona til umhugsunar, að venjulega ná flest þingmál ríkisstjórnarinnar fram að ganga á Alþingi en það heyrir til undantekningar ef þingmál al- mennra þingmanna ná fram að ganga.      Á spjöld sögunnar EFTIR ÖRNU SCHRAM ÞINGFRÉTTAMANN arna@mbl.is ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hf. gekk í gær frá kaupum á öll- um hlutabréf- um í breska út- gerðarfyrirtækinu Boyd Line Manage- ment Services Ltd. Kaupverðið er 7 millj- ónir punda eða um 950 milljónir króna. Boyd Line er ein af þremur stærstu út- hafsútgerðum Bret- lands. Félagið hefur yfir að ráða um 40% af þorskkvóta Bretlands í Barentshafi, sem er úthlutað af Evrópusambandinu. Onward Fishing Company Ltd., dótturfélag Samherja hf. í Skot- landi, er með um 20% kvótans og því hafa Íslendingar yfir að ráða um 60% þorskkvóta Bretlands í Barentshafi. ESB úthlutaði Bret- um um 9.300 tonna þorskkvóta í Barentshafi á þessu ári og því hafa íslensku fyrirtækin tvö yfir um 5.600 tonnum af breska kvótanum að ráða. Heildarþorskkvóti í Barentshafi á þessu ári er 395 þúsund tonn sem er sami kvóti og á síðasta ári. Þessar aflaheimildir eru langt um- fram það sem ráðgjafarnefnd Al- þjóðahafrannsóknaráðsins lagði til, en samkvæmt ráðleggingum henn- ar var talið óvarlegt að veiða meira en 180.000 tonn. Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur lagt til að heildarþorskkvótinn á árinu 2003 verði 305 þúsund tonn. Verði farið að tillögunum fá Ís- lendingar ekki kvóta í Barentshafi á næsta ári því hann miðast við að heildarkvótinn á þessu svæði sé yf- ir 350 þúsund tonn. Kvóti Íslend- inga í Barentshafi á yfirstandandi ári er tæplega 6 þúsund, sam- kvæmt samkomulagi Íslendinga við Rússa og Norðmenn, þar af 3.660 tonn innan norskrar lögsögu og 2.280 tonn innan þeirrar rúss- nesku. Auk þess má meðafli af öðr- um tegundum vera 30%. Íslendingar veiddu samtals rúm 5.900 tonn af þorski í Barentshafi á síðasta ári og nam verðmæti aflans ríflega einum milljarði króna. Samherji seldi fyrir skömmu frystiskipið Akureyr- ina EA til Onward Fishing en skoska fé- lagið skilaði þá frysti- skipinu Norma Mary, sem áður hét Snæfugl, en félagið hafði verið með skipið í leigu frá Síldarvinnslunni hf. á Neskaupstað og veiddi það m.a. af kvóta félagsins í Bar- entshafi. Boyd Line er skráð í Hull í Eng- landi. Veiðiheimildir félagsins á yf- irstandandi ári eru 3.905 tonn af þorski, 507 tonn af ýsu auk nokk- urra tuga tonna í öðrum tegund- um. Gerir út tvö frystiskip Boyd Line er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1936. Það var nokkuð umsvifamikið á 7. og 8. áratugnum, gerði mest út 22 tog- ara en verulega hefur dregið úr starfseminni með minnkandi afla- heimildum. Nú starfa hjá fyrirtækinu 10 starfsmenn í landi og um 60 sjó- menn. Áætluð ársvelta félagsins á þessu ári eru 7 milljónir punda eða um 950 milljónir króna. Boyd Line gerir út tvö sjófrysti- skip; Arctic Warrior, sem var smíðað árið 1988, er skráð í Bret- landi og nýtir kvóta félagsins í Barentshafi. Einnig Arctic Corsa- ir, sem var smíðað árið 1974, er skráð í Rússlandi og nýtir rúss- neskar veiðiheimildir í samvinnu við þarlenda aðila. Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri ÚA, segir að Arctic Warrior nýti kvóta beggja skipanna og því hafi eldra skipinu verið flaggað út. Hann segir að enn hafi ekki verið ákveðið hvort ÚA muni taka yfir rekstur skipsins í Rússlandi. Það verði skoðað á næstu mánuðum. ÚA kaupir útgerðarfélagið Boyd Line Ein stærsta úthafsútgerð Bretlands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.