Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 14
FRÉTTIR
14 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GRÉTAR Þorsteinsson, forseti ASÍ
og Sighvatur Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands, undirrit-
uðu í gær samstarfssamning um
aðstoð við þróunarlöndin. Mið-
stjórn og stjórnir allra lands-
sambandanna innan ASÍ hafa tekið
ákvörðun um fyrsta framlag laun-
þegahreyfingarinnar til þróun-
araðstoðar samkvæmt þessum
samningi.
Munu þessi sambönd leggja fram
1,5 milljónir til að fjármagna lyfja-
og matvælaaðstoð fyrir sjúklinga á
sjúkrahúsi stofnunarinnar í Malaví,
vegna yfirvofandi malaríufarald-
urs.
Styðja fullorðinsfræðslu
og aðbúnað launafólks
Markmið ASÍ með samningnum
er að leggja lið verkefnum á sviði
fullorðinsfræðslu, öryggismála og
vinnuverndar alþýðufólks í sam-
starfslöndum ÞSSÍ í þeim tilgangi
að vinna gegn fátækt og bæta lífs-
umhverfi og afkomu.Er að því
stefnt að ASÍ beiti sér einkum á
sviði fullorðinsfræðslu og öryggis-
og aðbúnaðarmála launafólks, auk
sérhæfðari verkefna.
Morgunblaðið/RAX
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, og Sighvatur Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar, undirrituðu samstarfssamning
ASÍ og ÞSSÍ um aðstoð við þróunarlönd, á ársfundi ASÍ í gær.
Samstarf um aðstoð
við þróunarlönd
ÁRSFUNDUR Alþýðusambands Ís-
lands samþykkti í gær sérstaka yf-
irlýsingu um áherslur og helstu verk-
efni ASÍ í velferðarmálum þar sem
m.a. eru lagðar til breytingar á heil-
brigðiskerfinu.
,,Til þess að tryggja nýsköpun og
endurnýjun velferðarkerfisins og
aukið kostnaðaraðhald, þarf að skapa
betri forsendur og möguleika á að
þróa þjónustutilboð frá einkaaðilum.
Þau uppfylli það grundvallarskilyrði
að tryggja jafnan aðgang óháð efna-
hag og búsetu en leiði ekki til auk-
innar félagslegrar misskiptingar.
Þröngir efnahagslegir hagsmunir
markaðarins um að skapa viðskipti og
hagnað mega ekki ógna markmiðum
um jafnan aðgang, réttlæti og gæði
þjónustunnar.
Nýta má kosti tilboða frá einkaað-
ilum við framkvæmd þjónustu til þess
að draga úr kostnaði, en ábyrgð á
þjónustustigi og gæðum verði hjá op-
inberum aðilum,“ segir m.a. í yfirlýs-
ingu ársfundar ASÍ.
Notkun peningalegra
hvatakerfa verði þróuð
Þar segir einnig að mikilvægt sé að
þróa og endurnýja aðferðir við stjórn-
un og eftirfylgni hjá hinu opinbera.
„Notkun peningalegra hvatakerfa,
gæðastjórnunaraðferða og annarra
markaðsstjórntækja verði þróuð,“
segir einnig í yfirlýsingunni.
Áhersla er lögð á að sett verði aukið
fjármagn í hjúkrunarrými fyrir aldr-
að sjúkt fólk og til að tryggja öruggan
rekstur þeirra og að verkaskipting
milli sjúkrahúsa og sérfræðilækna
verði endurskoðuð.
Samkeppnislög nái ekki
til heilbrigðiskerfisins
Í yfirlýsingunni er einnig lagt til að
verkefnum heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytisins verði skipt upp og sjálf-
stæði Tryggingastofnunar ríkisins
verði aukið og tryggt í lögum. „Sett
verði í lög skýrari ákvæði um samn-
ingsfrelsi stofnunarinnar. Skylda
hennar til þess að semja við einstaka
lækna verði afnumin. Fjölgun sér-
fræðilækna á samningum verði því
aðeins heimiluð að hún falli að þörfum
og verkaskiptingu í heilbrigðiskerf-
inu. Tryggt verði að samkeppnislög
nái ekki til heilbrigðiskerfisins,“ segir
þar ennfremur.
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
sagði í ræðu er hann sleit ársfundi
sambandsins síðdegis í gær, að þjóð-
arumræðan um velferðarkerfið þyrfti
að leiða til þjóðarsáttar. „Það virðast
hins vegar engir aðilar í þjóðfélaginu
vera til þess fallnir að hafa forystu um
að skapa nauðsynlega þjóðarsátt,
nema verkalýðshreyfingin. Ábyrgð
okkar í þessu efni er því mikil. Við
munum ekki skorast undan henni
frekar en á öðrum sviðum. Við skulum
því vera við því búin að halda þessari
umræðu áfram, og af enn meiri þunga
en hingað til,“ sagði hann.
ASÍ samþykkir yfirlýsingu um nýjar leiðir í heilbrigð-
ismálum og þjónustu einkaaðila
Tryggingastofnun
fái aukið sjálfstæði
GRÉTAR Þorsteinsson var endur-
kjörinn forseti Alþýðusambands
Íslands á ársfundi sambandsins í
gær. Kjörnefnd gerði tillögu um
Grétar og þar sem engin mótfram-
boð komu fram var Grétar sjálf-
kjörinn í embætti til næstu tveggja
ára.
Engin mótframboð komu heldur
fram við tillögu kjörnefndar um
sex aðalmenn og fjóra varamenn í
miðstjórn ASÍ til ársfundar árið
2004 og voru eftirtaldir kjörnir að-
almenn í miðstjórn skv. tillögu
kjörnefndar: Björn Snæbjörnsson,
Finnbjörn A. Hermannsson, Ingi-
björg R. Guðmundsdóttir, Níels S.
Olgeirsson, Sigurður Bessason og
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir.
Eftirtaldir voru kjörnir vara-
menn í miðstjórn til næstu tveggja
ára: Kristján Gunnarsson, Þor-
steinn Gunnarsson, Örn Friðriks-
son, og Ágúst Óskarsson.
Grétar Þorsteinsson
endurkjörinn forseti
MIKLIR fjárhagserfiðleikar eru hjá Raufar-
hafnarhreppi, en lausafjárstaða hreppsins er
mjög slæm og átti sveitarsjóður í erfiðleikum
með að borga laun um þessi mánaðamót.
Mörgum þykir þessi staða næsta sorgleg í
ljósi þess að fyrir aðeins þremur árum var Rauf-
arhafnarhreppur í hópi ríkustu sveitarfélaga
landsins.
Í maí 1999 urðu stjórnendur Raufarhafnar-
hrepps að selja hlut sinn í sjávarútvegsfyrirtæk-
inu Jökli á Raufarhöfn, en það er eitt mikilvæg-
asta atvinnufyrirtæki í sveitarfélaginu.
Kaupendur voru Útgerðarfélag Akureyringa og
Burðarás. Söluverðið var um 580 milljónir. Á
sveitarsjóði hvíldi um 300 milljóna króna lán
sem hann greiddi upp með kaupverðinu.
Sveitarstjórn með
fullar hendur fjár
Segja má að sveitarstjórnin hafi verið með
fullar hendur fjár eftir söluna á Jökli. Ákveðið
var að nota hluta söluverðsins til að fara út í tals-
verðar framkvæmdir í bæjarfélaginu. Endur-
bætur voru gerðar á húsnæði grunnskólans, far-
ið var út í gatnagerðaframkvæmdir og
endurbætur á sviði umhverfismála.
Ennfremur var tekin ákvörðun um að leggja
fjármuni í atvinnuuppbyggingu. Hreppurinn
lagði m.a. fram hlutafé í tvö tölvu- og fjar-
vinnslufyrirtæki á Raufarhöfn. Þetta voru Ís-
lensk miðlun á Raufarhöfn og fyrirtækið Net-
ver. Bæði þessi fyrirtæki urðu gjaldþrota og
sveitarsjóður tapaði um 30 milljónum á þessari
fjárfestingu.
Þeir peningar sem hreppurinn fékk eftir söl-
una á Jökli voru í upphafi settir í fjárvörslu hjá
Íslenskum verðbréfum. Fráfarandi sveitarstjóri
tók hins vegar einhliða ákvörðun um að segja
upp þessum samningi. Umsjón með vörslu og
ávöxtun þessara fjármuna var því í höndum
stjórnanda bæjarfélagsins.
Keypti í deCODE á genginu 25
Ákvörðun var tekin um að fara út í nokkuð
umfangsmikil hlutabréfakaup, meðal annars
keypti hreppurinn hlutabréf í deCODE á geng-
inu 25. Hreppurinn seldi síðar með hagnaði
helming af þessum hlutabréfum, en hann á enn í
dag hinn helminginn. Þau hlutabréf eru núna
verðlítil því að gengið á bréfum í deCODE er
komið niður í 2 sem þýðir að verðmæti þeirra er
innan við 10% af því sem það var þegar þau voru
keypt.
En hreppurinn fjárfesti í fleiri fyrirtækjum
og má þar nefna Íslandssíma og OZ. Gengi á
þessum bréfum hefur hrunið líkt og á bréfunum
í deCODE. Þá eru ótaldar fjárfestingar í erlend-
um hlutabréfasjóðum. Í dag situr sveitarsjóður
því uppi með alls kyns pappíra sem keyptir voru
þegar mikil bjartsýni ríkti á verðbréfamarkað-
inum, en þeir eru núna verðlitlir.
Hafþór Sigurðsson, oddviti Raufarhafnar-
hrepps, segir ekki ljóst hve tapið af þessum fjár-
festingum í hlutabréfum og skuldabréfum er
mikið en það nemi tugum milljóna króna.
Hafþór, sem sat áður í minnihluta sveitar-
stjórnar, óskaði eftir því við félagsmálaráðu-
neytið á sínum tíma, að það skæri úr um það
hvort þessar fjárfestingar hreppsins í hlutabréf-
um væru löglegar. Það tók ráðuneytið næstum
ár að svara bréfinu, en niðurstaða þess var efn-
islega á þá leið að þetta væri á gráu svæði. Það
væri ekki að finna í lögum skýr ákvæði um að
þetta væri bannað, en ekki heldur að þetta væri
heimilt.
Sveitarsjóður rekinn
á yfirdrætti
Fyrir um þremur árum voru sveitarstjórn-
armenn í Raufarhafnarhreppi með um 220 millj-
ónir króna milli handanna. Í dag er staða sveit-
arsjóðs þannig að við lá að hreppurinn gæti ekki
greitt starfsmönnum sínum laun um síðustu
mánaðamót.
Hafþór sagði að vandi sveitarfélagsins væri
fyrst og fremst lausafjárvandi. Raufarhafnar-
hreppur skuldaði ekki mikið. Skuldir sveitarfé-
lagsins á íbúa væru nálægt 200 þúsund krónum
sem væri ekki mikið miðað við mörg önnur
sveitarfélög.
Sveitarsjóður ætti hins vegar enga peninga í
kassanum og hefði síðustu mánuði verið rekinn
með botnlausum yfirdrætti. Rekstrarkostnaður
síðustu þriggja ára hefði verið langt umfram
tekjur.
Hann sagði að það væri ekkert annað fyrir
sveitarstjórnina að gera en að skera niður í
rekstri. Búið væri að segja upp öllum launa-
samningum við starfsmenn sveitarfélagsins, en
þeir renna út um áramót. Hann sagði að fram-
undan væru aðgerðir sem ættu eftir að koma við
marga, en sveitarstjórn væri nauðugur einn
kostur.
Þegar Hafþór er spurður hvort hreppurinn
ætti einhverjar eignir sem hann gæti selt til að
létta á stöðunni svarar hann: „Það er ekkert eft-
ir til að selja. Það er allt farið. Eina sem er eftir
eru nokkrir verðlausir pappírar.“
Hafþór sagði að Raufarhafnarhreppur væri
búinn að sækja um lán úr Jöfnunarsjóði sveitar-
félaga til að koma lánum í skil, en hreppurinn er
í dag að greiða mikla vanskilavexti. Raufarhafn-
arhreppur er nú með fjármál sín til sérstakrar
skoðunar hjá félagsmálaráðuneytinu. Í dag er
von á fulltrúa ráðuneytisins norður sem ætlar að
fara yfir áætlanir nýrrar sveitarstjórnar. Ráðu-
neytið þarf að sannfærast um að sveitarstjórnin
sé að gera rétta og trúverðuga hluti áður en um-
sókn um lán úr Jöfnunarsjóði er afgreidd.
Mikil fólksfækkun
Eins og að framan er rakið hafa verið gerð
mörg mistök við stjórn sveitarfélagsins á síð-
ustu árum. Þessi mistök eru hins vegar ekki eina
skýringin á erfiðleikunum. Fólki hefur fækkað
mikið á Raufarhöfn á síðustu árum. 1. desember
1998 bjuggu þar 407 íbúar. 1. desember sl. voru
íbúarnir hins vegar 296. Yfir 100 íbúar hafa flust
á brott á aðeins þremur ár um. Þetta kemur að
sjálfsögðu niður á tekjum sveitarfélagsins.
G-listinn var með meirihluta í sveitarstjórn
Raufarhafnar frá 1994–2002. Sveitarstjóraskipti
urðu hjá hreppnum 1999 um það leyti sem salan
á Jökli fór fram. Ný sveitarstjórn tók við völdum
á Raufarhöfn eftir sveitarstjórnarkosningarnar
í vor og réð hún nýjan sveitarstjóra. Raunar var
ekki kosið á Raufarhöfn því að listi, sem Hafþór
veitti forystu, var sjálfkjörinn.
Miklir erfiðleikar í fjármálum Raufarhafnarhrepps sem var áður í hópi ríkustu sveitarfélaga
Keypti bréf í deCODE,
Íslandssíma og OZ
Fyrir þremur árum var Raufarhafnarhreppur eitt af
ríkari sveitarfélögum landsins. Í dag á hreppurinn í erf-
iðleikum með að greiða starfsmönnum sínum laun. Eg-
ill Ólafsson rekur hvað gerðist í fjármálum hreppsins.
Morgunblaðið/Sverrir
egol@mbl.is