Morgunblaðið - 02.11.2002, Side 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
AÐALFUNDUR LÍÚ samþykkti í
gær að beina því til stjórnar samtak-
anna „að þau beiti sér fyrir því að sá
sértæki auðlindaskattur sem áformað
er að setja eingöngu á fiskveiðar verði
felldur niður“. Þessi samþykkt geng-
ur þvert á samþykkt aðalfundar LÍÚ í
fyrra, þar sem samþykkt var hóflegt
auðlindagjald með ákveðnum skilyrð-
um, yrði það til að ná víðtækri sátt um
stjórnun fiskveiða og jafnræðis yrði
gætt á milli atvinnugreina. Þessum
skilyrðum telja útvegsmenn nú ekki
fullnægt og vilja því fella auðlinda-
skattinn niður.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segist fremur hissa á þess-
ari breytingu á stefnu LÍÚ, en hann
hafi vissan skilning á afstöðu þeirra.
„Ég hef ekki uppi neinar áætlanir um
að leggja til að auðlindagjaldið á sjáv-
arútveginn verði lagt niður. Ég veit
ekki til þess heldur að aðrir á Alþingi
hafi uppi slík áform heldur, þótt
mönnum vissulega litizt misjafnlega á
gjaldið,“ segir Árni.
Í ályktuninni frá síðasta ári voru
gerðir ýmsir fyrirvarar sem sagðir
eru forsenda þess að sátt náist um
greiðslu auðlindagjalds. Þar sagði
m.a. að mest hagkvæmni náist í sjáv-
arútvegi ef gildistími úthlutunar afla-
hlutdeilda verði varanlegur. Eins
verði reglur um greiðslu auðlinda-
gjalds að gilda til langs tíma, enda sé
óviðunandi fyrir sjávarútveginn að
búa við þá óvissu sem greinin hefur
búið við undanfarin ár. Þá segir að
upphæð auðlindagjalds þurfi að
ákveða með hliðsjón af afkomu sjáv-
arútvegsins og að útgerðinni verði
veittur tími til aðlögunar að greiðslu
gjaldsins. Af öðrum samþykktum má
nefna að skorað er á sjávarútvegsráð-
herra að fella niður álag á óunninn út-
fluttan fisk; kvótaúthlutun á ufsa
verði endurskoðuð; að kvóti á skar-
kola og sandkola verði aukinn um
2.000 tonn af hvorri tegund; mótmælt
er öllum sértækum úthlutunum afla-
marks úr sameiginlegri aflahlutdeild,
svo sem til smábáta, byggðakvóta og
til áframeldis og loks lýsti fundurinn
furðu sinni á hægagangi stjórnvalda
að framfylgja samþykkt Alþingis um
hvalveiðar frá 10. marz 1999.
Tveir nýir í stjórn
Kristján Ragnarsson var endur-
kjörinn formaður LÍÚ, en hann hefur
verið formaður í 32 ár og starfað í 45
ár hjá samtökunum.
Tveir nýir menn voru kjörnir í
stjórn; Björgólfur Jóhannsson, Nes-
kaupstað, og Kristján Loftsson,
Reykjavík. Endurkjörnir til þriggja
ára voru: Einar Valur Kristjánsson,
Ísafirði, Guðrún Lárusdóttir, Hafnar-
firði, Haraldur Sturlaugsson, Akra-
nesi, og Hjörtur Gíslason, Reykjavík.
Fyrir í stjórn eru: Eiríkur Tómasson,
Grindavík, Guðbrandur Sigurðsson,
Akureyri, Magnús Kristinsson, Vest-
mannaeyjum, Ólafur Marteinsson,
Siglufirði, Ólafur Rögnvaldsson, Hell-
issandi, Sigurður Bjarnason, Þorláks-
höfn, Þorsteinn Már Baldvinsson, Ak-
ureyri, og Þorsteinn Erlingsson,
Keflavík. Úr stjórn gengu: Brynjólfur
Bjarnason, Reykjavík, og Emil Thor-
arensen, Eskifirði.
Aðalfundur LÍÚ vill fella
auðlindagjaldið niður
Aðalfundur
síðasta árs sam-
þykkti hóflegt
auðlindagjald
með ákveðnum
skilyrðum
Morgunblaðið/Jim Smart
Snæfellingarnir á aðalfundi LÍÚ lögðu fram tillögu um bann við loðnuveiðum á Breiðafirði, en hún hlaut ekki
brautargengi. Hér eru tveir þeirra, Guðmundur Kristjánsson frá Rifi og Sævar Friðþjófsson frá Hellissandi.
HAGNAÐUR Nýherja hf. eftir
skatta fyrstu níu mánuði ársins nam
78 milljónum króna, samanborið við
93,6 m.kr. tap árið áður. Rekstrar-
tekjur tímabilsins námu 3.208,9 m.kr.
og jukust um 13% á milli ára. Vöru-
sala hefur aukist um 11% á milli ára
og þjónustutekjur um 25%.
Hagnaður fyrstu níu mánuði ársins
fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir,
EBITDA, var 171,5 m.kr. en var 29,8
m.kr. árið áður. Veltufé frá rekstri
nam 127 milljónum, samanborið við
neikvætt veltufé um 23 m.kr. árið áð-
ur. Gengishagnaður var 22,5 milljónir
króna, en gengistap nam 67,7 m.kr.
árið áður. Tap af rekstri dótturfélaga
var 1,5 milljónir, en árið áður varð 8
m.kr. tap af þeim rekstri.
24 milljóna hagnaður í fjórðungnum
Hagnaður af rekstri Nýherja í
þriðja ársfjórðungi nam 24,2 m.kr.
eftir skatta, samanborið við 57 m.kr.
tap árið áður. Hagnaður félagsins fyr-
ir fjármagnsgjöld og afskriftir,
EBITDA, var 57 m.kr. í fjórðungn-
um, borið saman við 23 milljóna tap
árið áður. Rekstrartekjur námu
1.138,4 m.kr. en voru 843,2 m.kr. árið
áður og hækkuðu því um 35%. Vöru-
sala jókst um 37% og þjónustutekjur
jukust um 29% á milli fjórðunga.
Hlutfall EBITDA af veltu í fjórð-
ungnum var 5% samanborið við -3% á
sama tímabili árið áður. Hlutfallið var
5,5% fyrstu sex mánuði ársins. Starfs-
mönnum fjölgaði um 3% á milli ára en
launakostnaður hækkaði um 17%
miðað við sama tíma árið áður. Annar
rekstrarkostnaður og afskriftir
hækkuðu um 20% á milli tímabila.
Aukinn launa- og rekstrarkostnaður
er aðallega vegna nýrra starfsmanna
sem hófu störf hjá félaginu þegar
starfsemi HT&T og umboð fyrir
Heidelberg voru sameinuð rekstri fé-
lagsins. Einnig hafa útgjöld við sölu-
og markaðsstarfsemi aukist.
Veltufé frá rekstri á ársfjórðungn-
um var 44 milljónir króna en var nei-
kvætt um 2 m.kr. á þriðja ársfjórð-
ungi árið áður. Gengistap nam 736
þús. kr. en var 24 m.kr. árið áður. Tap
af rekstri dótturfélaga nam 2,3 m.kr.
en tapið var 7,8 milljónir fyrir sama
tímabil í fyrra.
Nýherji
með 78
milljóna
hagnað
ERLENDUR Hjaltason hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Eimskipa ehf., í kjölfar
skipulagsbreytinga sem kynntar voru
starfsmönnum Eim-
skipafélagsins á
fundi í fyrradag. Eim-
skipafélaginu verður
skipt í þrjú félög um
áramót; Eimskip
ehf., sem sjá um
flutningastarfsemi,
sjávarútvegshluta
auk Burðaráss, en
hlutverk þess síð-
astnefnda verður
óbreytt.
Erlendur hóf störf
hjá Eimskipum árið 1984, en hann starf-
aði að markaðsmálum til 1987. Árin
1987-1990 starfaði hann sem fram-
kvæmdastjóri Kristjáns Siggeirssonar, en
frá 1990 hefur hann unnið hjá Eimskipum
að málum sem tengjast starfsemi þeirra
erlendis. Hann hefur gegnt stöðu fram-
kvæmdastjóra utanlandssviðs síðan
1997.
Erlendur segir að fyrsta verkefnið verði að
bæta afkomu félagsins „Við sjáum ákveð-
inn afkomubata í uppgjöri fyrir fyrstu níu
mánuði ársins, samanborið við sama
tímabil í fyrra. Verkefnið er að halda áfram
á þeirri braut,“ segir hann.
Aðspurður hvort vænta megi skipulags-
breytinga segir hann að þær verði ein-
hverjar. „Við munum taka okkur nóv-
embermánuð í að vinna að þeim,“ segir
Erlendur.
Erlendur er kvæntur Aðalheiði Valgeirs-
dóttur myndlistarmanni og eiga þau tvo
syni.
Fyrsta verkefnið
að bæta afkomuna
Erlendur
Hjaltason
SÍLDARVINNSLAN hf. í Neskaup-
stað var rekin með 1.107 milljóna
króna hagnaði á fyrstu 9 mánuðum
ársins. Fjármunatekjur félagsins
umfram fjármagnsgjöld námu 875
milljónum króna. Þá var söluhagnað-
ur vegna sölu hlutabréfa SH hf. um
172 milljónir að teknu tilliti til reikn-
aðra skatta og söluhagnaður af seld-
um fastafjármunum var um 22 millj-
ónir. Á fyrstu 9 mánuðum síðasta árs
nam tap af rekstri Síldarvinnslunnar
371 milljón króna, segir í tilkynningu
frá félaginu í gær. Samstæðan sam-
anstendur af Síldarvinnslunni hf.,
Barðsnesi ehf. og Laxá hf.
Rekstrartekjur samstæðunnar
námu 3.821 milljón króna en rekstr-
argjöld 2.885 milljónum. Hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam
936 milljónum króna. Afskriftir
námu samtals 484 milljónum.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
samstæðunnar eftir reiknaða skatta
nam 1.119 milljónum króna og þegar
tekið hefur verið tillit til hlutdeildar
minnihluta í afkomu dótturfélaga og
hlutdeildar í afkomu hlutdeildar-
félaga er hagnaður samstæðunnar
1.107 milljónir. Veltufé frá rekstri
nam 605 milljónum og handbært fé
frá rekstri nam 815 milljónum.
Beitt er verðleiðréttum reiknings-
skilum en ef þeirri aðferð væri ekki
beitt væri afkoma samstæðunnar um
75 milljónum króna lakari og eigið fé
um 16 milljónum króna lægra.
Heildareignir samstæðunnar í lok
september 2002 voru bókfærðar á
11.820 milljónir króna. Skuldir og
skuldbindingar námu hins vegar
8.063 milljónum, hlutdeild minni-
hluta í eigin fé samstæðunnar var 182
milljónir og eigið fé í septemberlok
3.575 milljónir. Í septemberlok var
eiginfjárhlutfall samstæðunnar
30,20% og veltufjárhlutfallið var 0,59.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Síldarvinnslunnar, segir í tilkynn-
ingu að félagið sé nokkuð sátt við nið-
urstöðu uppgjörsins. „Styrking krón-
unnar hefur veruleg áhrif á
uppgjörið þar sem skuldir í erlendri
mynt hafa lækkað verulega á tíma-
bilinu og framlegð verður lægri en
ella.“ Áætlanir gera ráð fyrir að
EBITDA verði ríflega 1.300 milljónir
króna eftir árið og hagnaður ríflega
1.200 milljónir króna. Þessar áætlan-
ir byggjast m.a. á því að síldveiði
gangi eðlilega og að loðnuveiði verði
fyrir áramótin.
Hagnaður 1,1
milljarður króna
Heildareignir Síldarvinnslunnar hf. 11,8 milljarðar króna í lok september
HAGNAÐUR útgerðarfélagsins
Guðmundar Runólfssonar hf. á
fyrstu níu mánuðum ársins nam 139
milljónum króna, en á sama tímabili í
fyrra var 14 milljóna króna tap af
rekstri félagsins og hefur afkoman
því batnað um 153 milljónir króna.
Þar sem tekjuskattur var tekjufærð-
ur í fyrra en er gjaldfærður í ár er
munurinn á afkomunni fyrir skatta
meiri, eða 308 milljónir króna, og
nam hagnaður fyrir skatta í ár 174
milljónum króna. Breytingin milli
ára er mest í fjármagnsliðum, en
þeir snúast úr 234 milljóna króna
fjármagnsgjöldum í 125 milljóna
króna fjármagnstekjur. Þetta er bati
sem nemur 359 milljónum króna og
skýrist alfarið af gengismun. Geng-
istap í fyrra snerist í gengishagnað í
ár og var gengismunur 411 milljón-
um króna hagstæðari á fyrstu níu
mánuðum þessa árs en í fyrra.
Rekstrartekjur lækkuðu úr 750
milljónum króna í 697 milljónir
króna og rekstrargjöld úr 545 millj-
ónum króna í 539 milljónir króna.
Hagnaður fyrir afskriftir lækkaði
því úr 205 milljónum króna í 158
milljónir króna, en afskriftir breytt-
ust lítið milli ára og námu rúmum
eitt hundrað milljónum króna á tíma-
bilinu.
Framlegðarhlutfall, þ.e. hagnaður
fyrir afskriftir sem hlutfall af rekstr-
artekjum, versnaði milli ára, fór úr
27,3% í 22,7%. Í tilkynningu frá Guð-
mundi Runólfssyni til Kauphallar Ís-
lands segir að hækkun gengis krón-
unnar sé farin að hafa áhrif á
framlegð félagsins.
Veltufé frá rekstri lækkaði úr 122
milljónum króna í 97 milljónir króna.
Heildareignir lækkuðu lítillega frá
áramótum og námu tæpum 2,3 millj-
örðum króna í lok september. Eigið
fé hækkaði hins vegar úr 458 millj-
ónum króna í 586 milljónir króna og
eiginfjárhlutfall hækkaði úr 17,3% í
25,8%. Arðsemi eigin fjár var 30,3%,
en í fyrra var arðsemin neikvæð um
3,6%.
Guðmundur Runólfsson
hf. snýr tapi í hagnað
Gengismunur já-
kvæður en framlegð
lækkar milli ára
JÓHANN Sigurjónsson, fyrrum bæj-
arstjóri í Mosfellsbæ, hefur tekið við starfi
fjármálastjóra hjá Granda hf. en Kristín
Guðmundsdóttir
gegndi stöðunni áð-
ur.
Jóhann hefur verið
bæjarstjóri í Mos-
fellsbæ sl. átta ár.
Hann er viðskipta-
fræðingur að mennt,
útskrifaðist frá Há-
skóla Íslands árið
1984 og starfaði hjá
Iðnaðarbankanum á
árunum 1982-
1985. Frá árinu
1985 til 1991 starfaði Jóhann hjá fjár-
mögnunarfyrirtækinu Glitni hf., síðast
sem aðstoðarframkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins. Þá var Jóhann fjármálastjóri hjá
lyfjafyrirtækinu Pharmaco hf. í þrjú ár, frá
árinu 1991 til 1994, áður en hann tók við
stöðu bæjarstjóra í Mosfellsbæ.
Jóhann er giftur Ástu Hilmarsdóttur kenn-
ara og eiga þau fjögur börn.
Nýr fjármálastjóri
Granda hf.
Jóhann
Sigurjónsson
♦ ♦ ♦