Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„Þegar útlendingar velja sér kín-
verskt nafn, þá fara þeir eftir því
hvernig það hljómar en Kínverjar
vilja, að nafnið standi fyrir eitt-
hvað,“ segir Wang Xuejun, höf-
undur hinnar vinsælu bókar „Veldu
þér enskt nafn“. „Kínverjar hafa
sest að víða um heim og hér í Kína
verða samskiptin við útlendinga æ
meiri. Enskan er alþjóðamál og fal-
legt eða sérstætt enskt nafn auð-
veldar samskiptin við allan heim-
inn.“
Vilja skera sig úr
Mörgum finnst líka sem enska
nafnið sé eins konar vörumerki, eitt-
hvað sem geri viðkomandi kleift að
skera sig úr í heldur litlausu sam-
félagi, og með það fyrir augum láta
Kínverjar greipar sópa um vest-
ræna poppmenningu.
Sem dæmi má nefna listakonuna
Zhao Tianqi en myndirnar hennar
eru einhvers staðar mitt á milli sósí-
alísks raunsæis og Andy Warhol.
Henni fannst hún þurfa eitthvert
listamannsnafn og heitir nú Colour
Zhao. „Finnst þér það ekki passa
vel?“ segir hún og brosir út að eyr-
um.
FYRST prófaði hún „Linda“ en
hætti við vegna þess, að yfirmaður
hennar heitir því nafni. Síðan velti
hún fyrir sér „Vivienne“ eins og
Julia Roberts hét í „Pretty Woman“
en gaf það líka upp á bátinn. Þegar
Wang Wei, markaðsstjóri hótels í
Peking, valdi sér þriðja enska nafn-
ið vildi hún vera viss um, að enginn
annar bæri það. Hún rakst á það í
frystikistu í stórmarkaði fyrir sjö
árum. „Í Kína,“ segir Vanilla Wang,
„er gott að hafa nafn, sem fólk man
eftir.“
Kína er sem óðast að opna sig fyr-
ir umheiminum og alþjóðavæðing-
unni og unga fólkið er vel með á nót-
unum. Það vill heita upp á
alþjóðavísu, það er að segja ensku.
Nafngiftirnar eru af hinum ólík-
legasta toga og margir leita fanga í
alls konar fæðutegundum, til dæmis
Scallion Liang (scallion er grænn
laukur), aðrir í fótboltanum, Baggio
Hua; í mannkynssögunni, Ignatius
Ding, og enn aðrir grafa upp eitt-
hvað, sem þeim finnst vera heims-
borgaralegt, eins og Harlem Zhao
og Echo Wang. Þetta er sem sagt al-
þjóðavæðing á mjög persónulegum
nótum.
Li Yang er opinber starfsmaður í
borginni Zhuhai í Suður-Kína og
hann var að hlusta á Bryan Adams
þegar hann spurði sjálfan sig:
„Hvers vegna ekki Bryan?“ Wang
Lei, 24 ára gamall þýðandi, þeytist
nú um allt sem Thunder Wang og
Cheng Ming, starfsmaður utanrík-
isráðuneytisins, heitir nú Light
Cheng og er það bein þýðing á Ming.
„Hér á meginlandinu finnst mörg-
um sem það jafngildi því að skipta
um andlit eða persónuleika að taka
upp eða nota jöfnum höndum erlent
nafn. Hann „James“ á skrifstofunni
er allur annar en hann „Chen Jun“
innan veggja heimilisins. Enska
nafnið getur staðið fyrir þá hlið á
honum, sem snæðir á McDonalds,
hlustar á George Michael og starfar
með Vesturlandabúum,“ segir Stev-
en Schwankert, sem er fróður um
Kína og Kínverja. Hann kenndi áður
ensku og einn af nemendum hans
var áðurnefnd Scallion Liang.
„Ég spurði hana hvers vegna hún
vildi heita grænn laukur og þá sagð-
ist hún fyrst hafa ætlað að hafa það
Scarlett eftir Scarlett O’Hara en
ekki fundist hún rísa undir því. Þess
vegna hefði hún bara valið eitthvað
líkt því.“
Merking kínverskra
nafna skiptir máli
Þótt ensku nöfnin séu sum dálítið
skrýtin leggja Kínverjar almennt
mikið upp úr merkingu nafna. Þess
vegna vanda þeir sig vel þegar þeir
þýða erlend heiti. Bandaríkin heita
„Meiguo“ eða „Fagurt land“ og Elv-
is er kallaður „Maowang“ eða „Kon-
ungsköttur“. Kínversk nöfn tákna
yfirleitt eitthvað og þegar áróður
Maós formanns og kommúnista var
sem ákafastur eftir miðja síðustu öld
urðu nöfn eins og „Jianguo“, „Jie-
fang“ og „Aijun“ nokkuð algeng en
þau þýða „endurreisn þjóðarinnar“,
„frelsi“ og „elskið herinn“.
Í Kína er fyrsta heitið eða fyrsta
atkvæðið fjölskyldunafnið en hin tvö
(stundum aðeins eitt) eru skírn-
arnafnið. Er það sjaldan notað eitt
sér. Enginn hefði dirfst að kalla Maó
nafninu „Zedong“.
Ensk nöfn hafa raunar tíðkast í
Kína mjög lengi vegna mikilla sam-
skipta við Breta, til dæmis í Hong
Kong, en nafngiftirnar eru miklu
frjálslegri en áður.
„Ég blaðaði í orðabókinni og þar
rakst ég á það. Ég var að leita að
einhverju alveg sérstöku,“ sagði
Aegean Zhang en Aegean er Eyja-
haf á ensku.
Kodak, Levi
og Marlboro
Útlendingar, sem hafa kennt í
Kína, segjast hafa haft nemendur,
sem voru eins og lifandi auglýsing
fyrir ýmis alþjóðleg fyrirtæki. Þeir
hétu meðal annars Kodak, Levi og
Marlboro og Wang, höfundur nafna-
bókarinnar, segist hafa hitt Stallone
og Ronald Reagan Lei. Í bókinni
hans er nöfnunum raðað eftir flokk-
um, til að mynda bandarískum sápu-
óperum og verkum Shakespeares
svo eitthvað sé nefnt.
Hogan Sun, skólastjóri í ensku-
skóla, segist hafa valið nafnið eftir
sjónvarpsþættinum „Hetjur Hog-
ans“, og hann segir, að einn nem-
andi sinn hafi borið nafnið Potato
eða kartafla. Rekur hann vinsældir
ensku nafnanna til þess, að margt
ungt fólk vinnur nú hjá erlendum
fyrirtækjum.
„Útlendingarnir hafa ekki tíma til
að muna öll þessi kínversku nöfn,“
segir Sun. „Sá, sem heitir nafni, sem
yfirmaðurinn getur munað, stendur
þess vegna betur að vígi gagnvart
frama í starfi.“
Sun varar þó unga fólkið við að
ganga of langt og segir, að það megi
ekki gera sig að aðhlátursefni.
„Hver vill láta tala um sig með þess-
um hætti: „Heyrðu, ég er að fara út
með Kartöflu og Tómat.““
„Grænn lauk-
ur“, „Kartafla“
og „Eyjahaf“
AP
Colour Zhao með málverkin sín í sölubás á Panjiayuan-markaðinum í Pek-
ing. Hún er ein af mörgum, sem hafa tekið sér enskt nafn.
Unga fólkið í Kína vill vera alþjóðlegt
og bera ensk nöfn, bara einhver, og
oft virðist engu skipta hvað þau þýða
Peking. AP.
’ Alþjóðavæðing á mjög persónu-
legum nótum. ‘
FJÖRUTÍU og níu manns fórust og
um 40 slösuðust þegar eldur kom
upp í fangelsi í Marokkó í gær. Varð
reykeitrun flestum að bana.
Eldurinn kom upp í einni álmu yf-
irfulls fangelsis í borginni El Jadida
og lagði reykinn frá honum strax um
alla bygginguna. Eru fangelsin í
landinu 44 talsins og alræmd fyrir
ömurlegan aðbúnað auk þess sem
fangar eru miklu fleiri en þau eru
gerð fyrir. Aðeins á einum áratug
hefur föngum fjölgað um næstum
helming og eru nú 57.300 að sögn yf-
irvalda.
Ekki er vitað hvað olli eldsvoðan-
um en óstaðfestar fréttir eru um að
skammhlaup hafi verið ástæðan.
49 fórust í eldsvoða
Rabat. AFP.
STARFSFÓLK á saumastofu Yves
Saint Laurent, eins þekktasta há-
tískuhússins í Frakklandi, mætti til
vinnu sinnar á Avenue Marceau
númer 5 í París í síðasta sinn í fyrra-
dag en þá var tískuhúsinu lokað eft-
ir 40 ára starfsemi. „Mér þykir leitt
að vera að binda enda á ástaræv-
intýri sem stóð í 40 ár,“ sagði Saint
Laurent, sem ásamt Pierre Berge
stofnaði tískuhúsið 1961.
Starfsmenn fyrirtækisins voru
158 og hafa sumir fengið vinnu hjá
helstu keppinautunum, Jean-Paul
Gaultier, Azzedine Alaia og Chanel.
Sumir fylgja fordæmi Saint Laur-
ents og setjast í helgan stein, og um
40 eru enn að leita sér að vinnu. Þótt
starfsemi hússins verði hætt mun
nafnið Yves Saint Laurent áfram
verða sýnilegt, nú í eigu Gucci.
AP
Úr tísku
París. AFP.
KIM Hong-Up, einn sona Kim
Dae-Jungs, forseta Suður-Kóreu,
var dæmdur í gær í þriggja og
hálfs árs fangelsi fyrir spillingu.
Var hann fundinn sekur um að hafa
þegið stórfé í mútur og um skatt-
svik.
Hong-Up, sem er rúmlega
fimmtugur, var handtekinn í júní
sl. og sakaður um að hafa tekið við
um 190 millj. kr. frá ýmsum fyr-
irtækjum, meðal annars Hyundai
og Samsung, undir því yfirskini, að
um pólitísk framlög væri að ræða.
Viðurkenndi hann að hafa þegið
féð en hélt því fram, að ekki hefði
verið ætlast til neins endurgjalds.
Annar sona forsetans, Kim
Hong-Gul, er líka í fangelsi fyrir
spillingu og skattsvik og er dóms
að vænta yfir honum eftir viku.
Eru þesssi hneykslismál mikið
áfall fyrir föður þeirra, Kim Dae-
Jung forseta, en hann þykir hafa
staðið sig vel í embætti og var kjör-
inn 1998 vegna fyrirheita um ein-
arða baráttu gegn spillingu í land-
inu.
Forsetasonur
í fangelsi
Seoul. AFP.
!
" !
#
!
!
$%&& ''&&
$(&& ''&& "
)