Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 32
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
32 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BANGSADAGURINN var haldinn
hátíðlegur á bókasafninu í Hvera-
gerði mánudaginn 28. október sl.
Á hátíðina komu krakkar bæjarins
með bangsana sína í heimsókn.
Gestirnir fengu að smakka nammi-
bangsa og fengu bókamerki, sem
merkt voru með Bangsímon og fé-
lögum og Harry Potter.
Í tilefni bangsadagsins var efnt
til ljóðasamkeppni meðal sex til
tólf ára barna, ljóðin áttu að fjalla
um bangsa. Mörg ljóð bárust í
keppnina og voru veittar við-
urkenningar á bangsadaginn. Alls
hlutu sex börn viðurkenningu í
formi bangsa, penna og bóka. Þau
eru: Eggert Arason, Kristín
Munda Kristinsdóttir, Aðalsteinn
Magnússon, Ásta Björg Jós-
efsdóttir, Kristín Hildur Pálsdóttir
og Ólafur Dór Steindórsson.
Fjöldi fólks og bangsa lagði leið
sína í bókasafnið á bangsadaginn
og skemmtu allir sér vel.
Bangsi eftir Aðalstein
Magnússon 10 ára
Hann er mjúkur og hlýr.
Hann er flottur og dýr.
Litli bangsinn minn.
Bangsaljóð eftir
Eggert Arason 8 ára
Einu sinni var bangsi,
sem nennti engu hangsi.
Hann er svaka sætur,
þú myndir ekki vilja vita hvernig hann
lætur,
þegar hann grætur.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Gestir mættu með bangsana sína á bangsadaginn.
Bangsadagur
á bókasafni
Hveragerði
„ÞAÐ er gott að búa á Eyrarbakka
og Stokkseyri og gott að alast upp á
svona stað. Hér þekkja allir alla og
þetta er gott samfélag,“ sagði Ása
Magnea Sigfúsdóttir, nemandi í 10.
bekk Barnaskólans á Eyrarbakka
og Stokkseyri og einn nem-
andaráðsmanna skólans.
Nemendaráðið vakti athygli
gesta á 150 ára afmælishátið skól-
ans á dögunum þar sem það stjórn-
aði hátíðarsamkomunni. Þar tóku
þau við stjórninni eftir að skóla-
stjórinn hafði sett samkomuna og
önnuðust kynningu dagskráratriða.
Þetta gerðu þau á fumlausan og
virðulegan hátt sem hæfði stund-
inni.
Nemendaráð skólans er eins og í
öðrum skólum æðstráðandi í fé-
lagslífinu og skipuleggur ýmsa við-
burði í skólanum. Þau voru öll sam-
mála um að það væri þroskandi og
skemmtilegt að sjá um viðburði fyr-
ir yngri nemendur skólans og auð-
vitað spennandi að hugsa til þess að
láta fyrirhugaða utanferð nemenda
verða að veruleika. Safnað er fyrir
ferðakostnaðinum með ýmsum
verkefnum sem nemendur annast í
samstarfi við foreldra og kennara.
Krakkarnir voru sammála um að
150 ára afmæli skólans væri merki-
legur viðburður og sérstaklega að
þessi elsti skóli landsins væri á Eyr-
arbakka og Stokkseyri. „Þetta er
góður skóli þar sem allir kynnast
öllum. Okkur líður vel í skólanum
og það er gaman að læra hérna,“
sagði Birgir Marteinsson og Ása
Magnea bætti við: „Okkur þykir
vænt um þennan skóla og það verð-
ur skrýtið að fara í einhvern miklu
stærri skóla. Við höfum alltaf verið
hér og finnst það gott.“
Þau voru sammála um að það
hefði verið gott að skólarnir voru
sameinaðir, það væri ekkert mál að
fara í rútu á milli og þau kynntust
fleiri krökkum og fyrir bragðið
væri skólinn líflegri.
Þau voru öll sammála um að það
væri gott fyrir nýja íbúa að setjast
að á Eyrarbakka eða Stokkseyri.
„Við þekkjum alla og við tökum til
dæmis mjög vel á móti nýjum nem-
endum í skólanum,“ sögðu þær
Helga Þórey Rúnarsdóttir og Ásta
Erla Jónasdóttir og undir þau orð
þeirra tók Atli Már Jónsson.
Okkur líður vel
og það er gaman
að læra
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Nemendaráð Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri sem stýrði hátíð-
arsamkomunni í tilefni 150 ára afmælis skólans á dögunum. Ásta Erla Jón-
asdóttir, Birgir Marteinsson, Atli Már Jónsson, Helga Þórey Rúnarsdóttir
og Ásta Magnea Vigfúsdóttir. Þau halda á gömlu skólaklukkunni sem
hringdi inn samkomuna.
Selfoss
FJÓRTÁN íbúar Eyrarbakka og
Stokkseyrar nýttu sér tilboð Krón-
unnar síðastliðinn fimmtudag um
rútuferð frá þorpunum við strönd-
ina, á Selfoss til að versla í Krónunni.
Bónus fylgdi í kjölfarið og bauð upp
á rútuferð í gær, föstudag, og þáði
einn íbúi það tilboð.
Þeir sem nýttu sér aksturstilboðið
voru eldra fólk sem kvaðst ekki hafa
yfir bíl að ráða og leist vel á það að
eiga þess kost að komast í verslanir
sem bjóða lægra verð. „Ég mun
örugglega koma aftur, þetta er gott
þótt ekki sé nema til að hreyfa sig,“
sagði Guðrún Júlía Elíasdóttir, 86
ára, frá Stokkseyri þar sem hún
skoðaði í hillurnar í Krónunni.
Skemmtiferðir
samhliða verslun
Verslunarferðir frá Eyrarbakka
eru ekki einsdæmi. Fyrir rúmum
áratug tóku konur á Eyrarbakka sig
saman og fóru í nokkrar verslunar-
ferðir í Fjarðarkaup í Hafnarfirði.
Ferðirnar voru ef til vill að öðrum
þræði skemmtiferðir, en allar voru
þær farnar á kostnað kvennanna
sjálfra.
Þessar ferðir í Krónuna og Bónus
eru vikulega frá Eyrarbakka og
Stokkseyri, viðskiptavinum þeirra
að kostnaðarlausu. Bónus býður
einnig ferðir frá Þorlákshöfn.
Krónuferðin er á fimmtudögum og
Bónusferðin á föstudögum.
Í fréttum af verslunarmálum á
Eyrarbakka og Stokkseyri hefur
verið sagt að verslun hefði lagst af í
þorpunum þegar Kaupás hf. hætti
þar verslunarrekstri. Svo er þó ekki,
því t.d. í söluskála Olís á Eyrar-
bakka, Ásnum, má fá flestar þær
vörur, sem hvert heimili þarf dag-
lega á að halda. Sú þjónusta kom til
eftir að Kaupás lokaði verslunum
sínum á liðnu sumri.
Verslunarrútur frá Eyrarbakka, Stokkseyri og Þorlákshöfn
Morgunblaðið/Óskar Magnússon
Jón Ragnar Ólafsson, bifreiðarstjóri hjá Guðmundi Tyrfingssyni, bíður eft-
ir viðskiptavini Bónuss.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Viðskiptavinir úr Krónurútunni komnir inn í verslunina. Fremst er Guðrún
Júlía Elíasdóttir frá Stokkseyri.
Fimmtán manns
nýttu sér tilboðin
Selfoss
HRAFNHILDUR Óskarsdóttir,
sex ára fimleikastúlka, varð, ásamt
nokkrum öðrum stúlkum, fyrir
þeirri reynslu á fimleikaæfingu 8.
október í Íþróttahúsinu á Selfossi
að handboltamark féll ofan á hóp-
inn. Stúlkurnar höfðu verið að klifra
í neti marksins. Önnur hönd Hrafn-
hildar lenti undir annarri marksúl-
unni og hún handarbrotnaði. Fór
þar betur en á horfðist.
Hrafnhildur, sem var með gifs á
hendinni í þrjár vikur, heimsótti
íþróttahúsið í fyrradag og hitti þar
forstöðumann hússins, Gunnar Guð-
mundsson. Hann sagði að í kjölfar
þessa óhapps hefði verið farið yfir
búnaðinn sem heldur markinu og öll
öryggisatriði hússins. Það sem fór
úrskeiðis hefði verið lagað og síðan
skerpt á öllum verklagsreglum við
frágang tækja.
Hann sagði að það þyrfti að hafa
góða aðgát varðandi búnað íþrótta-
húsa. Í fyrra hefði allur öryggisbún-
aður verið yfirfarinn og menn talið
að allt væri í lagi en svo hefði þetta
gerst.
Þórunn Jóna Hauksdóttir, móðir
Hrafnhildar, sagði að þeim hjónum
hefði auðvitað brugðið en verið feg-
in að ekki fór verr því markið hefði
fallið á hóp stúlkna. „Við tilkynntum
bæjaryfirvöldum óhappið og lögðum
áherslu á að öryggi í íþróttahúsinu
yrði bætt til að svona lagað end-
urtæki sig ekki,“ sagði Þórunn
Jóna.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir fim-
leikastúlka og Gunnar Guðmunds-
son, forstöðumaður Íþróttahússins,
í markinu sem féll á stúlknahópinn.
Íþróttahúsið á Selfossi
Öryggis-
atriði lag-
færð í kjöl-
far slyss
Selfoss