Morgunblaðið - 02.11.2002, Side 34
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 35
FJÓRÐU 15:15 tónleikarnir verða í
dag kl. 15:15 á nýja sviði Borg-
arleikhússins.
Á tónleikunum mun Eþos-
kvartettinn flytja Adagio-
Allegretto fyrir strengjakvartett
eftir Dimitri Schostakowitsch,
strengjakvartett nr. 2 eftir Jón Ás-
geirsson og strengjakvartett eftir
Þórð Magnússon. Síðasttöldu verk-
in tvö heyrast nú í fyrsta sinn hér í
Reykjavík en Eþos frumflutti þau á
sumarhátíðum síðastliðið sumar.
Eþos-kvartettinn skipa: Auður
Hafsteinsdóttir, Greta Guðnadóttir,
Guðmundur Kristmundsson og
Bryndís Halla Gylfadóttir. Þau hafa
leikið saman frá 1998.
Góðgerðarfélagið Stoð og styrkur
hefur gefið út ritsafnið Á lífsins leið
frá 1998 og nú er komið út 5. bindi rit-
safnsins og verður útgáfu þess fagnað
í Kringlunni, á 1. hæð, kl. 13–16. Þar
koma fram nokkrir tónlistarmenn úr
hópi höfunda og leika fyrir gesti.
Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar
Kvaran leika þjóðlög og lag af nýjum
geisladiski Guðnýjar. Magnús Kjart-
ansson, Guðmundur Steingrímsson
og Tómas R. Einarsson leika létt lög.
Gísli Helgason leikur lög af nýjum
geisladiski sínum, Flautað fyrir horn
og Tómas R. Einarsson flytur lög af
nýjum geisladiski sínum, Kúbanska.
Penninn Eymundsson, Austur-
stræti Kristín Helga Gunnarsdóttir
les upp úr nýrri bók sinni Gallsteinar
afa Gissa, í barnadeildinni kl. 14.
Ritlistarhópur Kópavogs Á vegum
hópsins verður upplestur í kaffistofu
Gerðarsafns kl. 15. Lesarar verða:
Birgir Svan Símonarson, Gímaldin,
Hafliði Vilhelmsson, Unnur Sólrún
Bragadóttir, Varði og Þór Stefáns-
son. Aðgangur er ókeypis.
Bókabúð Máls og menningar
Laugavegi 18 Lesið verður úr nýj-
um barna- og unglingabókum á
klukkutímafresti og hefst lesturinn
kl. 10 og lýkur kl. 17. Tilefnið er að
formlega verður opnuð ný barna- og
unglingabókadeild í kjallara búðar-
innar. Meðal höfunda sem lesa eru
Kristín Helga Gunnarsdóttir, Sigrún
Eldjárn, Gunnhildur Hrólfsdóttir,
Ólafur Gunnar Guðlaugsson og Sjón.
Einnig mun Sesar A. rappa og kynna
efni af nýútkominni plötu sinni.
Norræna húsið Haustsýning á dúk-
um frá Georg Jensen Damask verður
kl. 13–17. Ennfremur verður sýning á
Arne Jacobsen-dúknum, sem sýndur
hefur verið á Kjarvalsstöðum.
Sigrún Björgvinsdóttir opnar sýn-
ingu á flókamyndum í kaffihúsinu
Lóuhreiðri í Kjörgarði. Myndirnar
eru unnar í litaða ullarkembu og
rammarnir úr íslensku lerki.
Sýningin stendur út nóvember.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
SÝNINGIN Veiðimenn í útnorðri
verður opnuð í sýningarsölum Nor-
ræna hússins í dag. Um er að ræða
sýningu sem Vestnorræna ráðið átti
frumkvæði að og Norðurlandahúsið í
Færeyjum sá um sýningarstjórn á í
samvinnu við NAPA, Norrænu stofn-
unina á Grænlandi og Norræna húsið
í Reykjavík.
Í fréttatilkynningu frá Norræna
húsinu í Reykjavík segir að Græn-
land, Ísland og Færeyjar séu oft
nefnd Vestur-Norðurlöndin og að þar
séu enn að finna hefðbundnar veiði-
aðferðir sem enn séu snar þáttur í
daglegu lífi fólks. „Í löndunum þrem-
ur hefur einnig mótast háþróaður
fiskiðnaður sem selur hágæðavöru á
heimsmarkaði og leggur þannig
grunn að efnahagslífi ríkjanna. Þetta
er fremur ný þróun í langri sögu
byggðar, en hún byggist engu að síð-
ur á hæfninni til að aðlaga þá þekk-
ingu og kunnáttu sem kynslóðirnar
tileinkuðu sér. Um aldir bjó fólk við
erfið lífsskilyrði en tókst að viðhalda
menningu og lífsháttum sem einkum
tengjast hafinu og matarkistunni þar,
ekki síst sjávarspendýrum og fuglum.
Verkefni samtímans er að tryggja
að náttúrulegar auðlindir svæðisins
geti áfram staðið undir veiðum af
ýmsu tagi á bæði fisk og öðrum veiði-
dýrum til bæði eigin neyslu og sölu.
Þessar auðlindir verða áfram um
ókomin ár undirstaða lífshátta á Vest-
ur-Norðurlöndum sem fæða bæði
Færeyinga, Grænlendinga og Íslend-
inga en líka sem matvæli á alþjóðleg-
um markaði,“ segir í fréttatilkynning-
unni.
Fortíð og nútíð
Færeyski myndlistarmaðurinn
Edward Fuglö hannaði sýninguna
Veiðimenn í útnorðri, en fyrir hönd
Norræna hússins í Reykjavík hefur
forstjóri hússins, Riitta Hainemaa,
lagt hvað þyngsta hönd á plóginn og
hefur sú vinna staðið síðustu tvö árin
að hennar sögn.
„Þessari sýningu er ekki hvað síst
ætlað að sýna muninn á nútímanum
og fortíðinni í veiðihefðum þjóðanna
og um leið að vera framlag til að varð-
veita minningu um lífshætti sem gætu
liðið undir lok. Þarna má því sjá allt
frá gömlum og hefðbundnum veiði-
gripum á borð við körfu með „leysa-
kast“-steinum til að reka grindhvali
og upp í fullkomið fiskiborð frá Marel.
Svona sýning hefur ekki verið sett
upp áður, þetta er í fyrsta skipti sem
þetta þema er tekið fyrir,“ segir
Riitta.
Farandsýning
Myndlist skipar veglegan sess á
sýningunni og segir Riitta að það sé
ekki tilviljun. „Veiðiskapur er mjög
fyrirferðarmikill í myndlist þessara
þjóða,“ og það endurspeglast á sýn-
ingunni,“ bætir Riitta við.
Sýningin Veiðimenn í útnorðri er
farandsýning sem fyrst var opnuð í
Þórshöfn í Færeyjum í júní á þessu
ári. Þaðan fór hún til Hjaltlands og
þvínæst til Dyflinnar. Nú er hún í
Reykjavík.
„Móttökurnar hafa verið gríðarleg-
ar,“ segir Riitta, „það komu 12.000
manns á sýninguna í Færeyjum,
hugsiði ykkur. Hvað eru Færeyingar
margir? Síðan skoðuðu 5.000 manns
sýninguna á Hjaltlandi og í Dyflinni
komu um 400 manns á dag þann eina
mánuð sem sýningin stóð yfir. Þegar
sýningunni lýkur í Norræna húsinu
verður hún send til Akureyrar og
mun að öllum líkindum verða opnuð
þar 11. janúar. Síðan verður hún
sett upp á Grænlandi og á Íslands-
bryggju í Kaupmannahöfn. Hvað ger-
ist þar eftir vitum við ekki. Þegar er
farið að spyrja eftir sýningunni, menn
vilja fá hana víðar, til Noregs, Sví-
þjóðar, Finnlands og víðar. Við getum
aðeins sagt fólki að við verðum að at-
huga hvað sé hægt að gera. Við erum
mjög háð söfnum og stofnunum með
sýningarmuni og erum háð velvilja
þeirra með framhaldið. En gaman
væri vissulega að fara víðar með
þessa merkilegu sýningu,“ sagði Ri-
itta Hainemaa.
Veiðihefðir for-
tíðar og nútíðar
leiddar saman
Morgunblaðið/RAX
Frá sýningunni Veiðimenn í útnorðri í Norræna húsinu.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Strengjakvart-
ettar á 15:15
tónleikum
NÝ sýningaraðstaða fyrir lista-
menn verður opnuð í gömlu Ála-
fossverksmiðjunni í Mosfellsbæ í
dag, laugardag, kl. 14 og hefur gall-
eríið fengið nafnið Undirheimar.
Galleríið er 120 fm salur og verður
fyrsta sýningin opnuð í dag en það
eru sjö listakonur sem sýna verk
sín.
Hildur Margrétardóttir mynd-
listarkona ákvað að bjóða upp á
sýningarrými þar sem hægt yrði að
setja upp fagmannlegar sýningar
án mikils tilkostnaðar fyrir lista-
menn. „Þeir listamenn sem sýna
greiða lága upphæð til að standa
straum af opnun sýninga og fengn-
ir til að gefa galleríinu eitt af verk-
um sínum,“ segir Hildur. „Verkin
sem safnast verða sett í safn sem
tengist rekstri gallerísins. Þar með
safnast upp sýnishorn af samtíma-
list sem varðveitist og möguleiki á
að halda yfirlitssýningar með jöfnu
millibili.“ Listamennirnir sem eiga
verk á sýningunni eru Ásdís Arn-
ardóttir, Hildur Margrétardóttir,
Hjördís Birna, Hulda Vilhjálms-
dóttir, Karla Dögg Karlsdóttir,
Lóna Dögg Christensen og Sólrún
Trausta Auðunsdóttir. Verk þeirra
eru öll unnin með vatnsleysanleg-
um litum. Þær fara ólíkar leiðir
bæði í efnistökum og aðferðum.
Við opnunina leikur Una Hild-
ardóttir á gítar.
Undirheimar eru opnir alla daga
nema miðvikudaga frá kl. 12–17.
Sýningin stendur til 24. nóvember.
Nýtt gallerí
í Mosfellsbæ