Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 35
NEYTENDUR
36 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Á MARKAÐI eru snuð úr nátt-
úrulegu gúmmíi, latexi og plastefni
og sílíkoni. Latex-snuðin eru gul-
leit og verða brúnleit með tím-
anum, en sílíkon-snuð eru gegnsæ
og ljós. Sílíkon-snuð eru ekki eins
teygjanleg og latex-snuðin, en þau
fyrrnefndu endast betur.
Evrópskar neytendavernd-
arstofnanir hafa barist fyrir því að
settur sé síðasti söludagur á snuð.
Ástæðan er sú að þar sem ljós, hiti,
súrefni og óson hafa áhrif á latex
hefur það stuttan endingartíma, og
getur jafnvel molnað í munni barns
ef það er orðið gamalt. Þegar
gúmmí eldist breytist liturinn úr
gulum í brúnan og því er til-
tölulega auðvelt að sjá hvort latex-
snuð eru nýlega framleidd eða
ekki.
Reynslan hefur sýnt að notkun á
vörum framleiddum úr latex getur
valdið meiriháttar ofnæm-
isviðbrögðum, en slíkum tilfellum
hefur farið fjölgandi á und-
anförnum árum. Því er talið að síl-
íkon-snuðin hæfi best fyrirburum
þar sem barnið á ekki hættu á að fá
ofnæmi af þeim og einnig af því að
auðvelt er að halda þeim hreinum.
Áður en snuð er notað
Til að minnka efnainnihald í
snuðum er ráðlegt að sjóða ný snuð
í miklu vatni í 10 mínútur áður en
þau eru notuð í fyrsta skipti. Þann-
ig er möguleiki að losna við eitt-
hvað af efnasamböndum sem eru
til staðar í nýjum snuðum.
Mikilvægt er að fylgjast reglu-
lega með barni sem er með snuð
uppí sér, mörg slys hafa orðið þeg-
ar snuð hafa hrokkið upp í munn
barns og því þarf að vera vel á
verði.
Einnig er nauðsynlegt að sjóða
snuð með reglulegu millibili til að
tryggja hreinlæti.
Heimild: Löggildingarstofa
GREINT er frá því á heimasíðu
Evrópsku staðlasamtakanna
(CEN), cenorm.be, að búið sé að
setja nýjan evrópskan staðal fyrir
snuð. Eins og foreldrar vita eru
snuð mikið notuð til þess róa börn
og uppfylla sogþörf þeirra og eru
um 100 milljón snuð seld í Evrópu
á hverju ári, að því er segir í frétt
frá CEN. Segja samtökin nauðsyn-
legt að setja öryggis- og gæðakröf-
ur ofar öllu, draga úr hættu á köfn-
un sem mest megi og tryggja að
engin skaðleg efni berist í líkamann
vegna notkunar snuða.
Staðallinn nefnist EN 1400, Snuð
fyrir ungbörn, og er í þremur hlut-
um. Í fyrsta hlutanum er fjallað al-
mennt um öryggiskröfur fyrir snuð
og merkingar og leiðbeiningar. Í
öðrum hluta er fjallað um prófunar-
aðferðir á snuðum, það er hvernig
þeim reiðir af við alls kyns hnjask á
borð við högg, göt og rifur, álag á
skífu og hvernig þau standast bit. Í
þriðja hluta er fjallað um viðmið-
anir vegna tiltekinna efna í snuðum
sem geta borist í líkamann, svo
sem nitrosamíns, mercaptobensó-
þíasóls og andoxunarefna.
Fram kemur í frétt Evrópsku
staðlasamtakanna að með staðlin-
um EN 1400 sé ekki einvörðungu
búið að setja reglur sem tryggja
hámarksöryggi heldur koma þeim
fyrir í einu og sama skjalinu öllum
til hagsbóta.
Miðar að aukinni
neytendavernd
Á heimasíðu Löggildingarstofu,
ls.is, segir að staðlar og þá sér-
staklega samhæfðir evrópskir
staðlar gegni því mikilvæga hlut-
verki að vera viðmið fyrir framleið-
endur, hönnuði og þá aðila sem
gæta eigi þess að vara á markaði sé
örugg. „Í stöðlum er að finna
ákveðnar leiðbeiningar, reglur og
skilgreiningar sem miða að því að
hluturinn passi, virkni hans sé rétt
og að hann sé öruggur. Því má
segja að samspilið milli staðla og
opinberrar markaðsgæslu um ör-
yggi vöru miði að aukinni neyt-
endavernd út frá tæknilegum for-
sendum. Tekið skal fram að snuð
líkt og önnur barnavara á ekki að
vera CE merkt. Hins vegar skal
koma fram á umbúðum þeirra leið-
beiningar um notkun og meðhöndl-
un til þess að tryggja öryggi
þeirra,“ segir Löggildingarstofa.
Upplýsingar um
ofnæmisviðbrögð
Samkvæmt upplýsingum frá
Staðlaráði Íslands hefur EN 1400
ekki enn verið staðfestur sem ís-
lenskur staðall en svo nokkur dæmi
séu nefnd segir meðal annars að
merkingar og leiðbeiningar skuli
vera á opinberu tungumáli þess
lands þar sem varan er seld. Einn-
ig segir að taka þurfi fram ef snuð
séu framleidd úr latex gúmmíi og
mælt með því að ítarlegri upplýs-
ingar fylgi um hugsanleg ofnæm-
isviðbrögð.
Mælt er með notkunarleiðbein-
ingum sem lýsi öruggri meðferð
snuðsins, að minnsta kosti einni
hreinsunaraðferð, algengum og
óæskilegum geymslu- og hreinsun-
araðferðum og notkun sem skemmt
geti vöruna.
Þá er mælt gegn því að snuð sé
látið liggja í sól, nærri hitagjafa
eða of lengi í sótthreinsunarupp-
lausn sem veiki túttuna. Einnig er
notendum ráðlagt að sjóða snuð í 5
mínútur fyrir notkun og skipta um
snuð á 1–2 mánaða fresti. Festist
snuð í munni er fólki ráðlagt að
halda ró sinni og losa það varlega
þar sem ógerningur sé að gleypa
það í heilu lagi.
Lögð er áhersla á að EN 1400
eigi að gilda um alla hluta snuðsins,
ekki bara tiltekna parta.
100 milljón snuð seld
í Evrópu á hverju ári
Nýr evrópskur
staðall settur
fyrir snuð
Morgunblaðið/Golli
Mælt er að foreldrar skipti um snuð barna á 1–2 mánaða fresti.
BÓNUSVERSLUN verður opnuð á
Egilsstöðum, væntanlega um miðjan
nóvember. Verður verslunin í hús-
næði 10–11, sem hefur verið rekin í
miðbæ Egilsstaða til skamms tíma.
Samkeppni á matvörumarkaði
eystra eykst með tilkomu Bónuss, en
fyrir á Egilsstöðum er verslun Sam-
kaupa, sem rekin er af Kaupfélagi
Héraðsbúa.
Verslun 10–11 á Egilsstöðum vík-
ur brátt fyrir nýrri Bónusbúð. Allt er
nú selt á 50% rýmingarafslætti og
því mikill handagangur í öskjunni.
Bónusverslun opnuð
á Egilsstöðum
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Verslun 10–11 á Egilsstöðum víkur brátt fyrir nýrri Bónusbúð og vörur eru
seldar á 50% rýmingarafslætti. Fyrir á Egilsstöðum er verslunin Samkaup.
MAGNKAUP.NET hefur feng-
ið andlitslyftingu og í tilefni af
því býður fyrirtækið nú fartölv-
ur frá Acer og Lexmark-prent-
ara. Magnkaup reynir með
áhrifamætti safnkaupa að bjóða
lægra vöruverð á allskonar raf-
tækjum og tölvuvörum, segir í
fréttatilkynningu. Búið er að
gerbreyta útlitinu á magnkaup-
.net sem er fyrsta netverslunin á
Íslandi sem leggur aðaláherslu á
lágt vöruverð, segir ennfremur í
tilkynningunni.
Netverslun
Magnkaupa
breytt
Ábending-
ar um snuð
og túttur