Morgunblaðið - 02.11.2002, Qupperneq 36
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 37
Íslenskt
náttúruafl
-
fy
ri
r
ve
tu
ri
nn
www.sagamedica.com
Spurning: Mig langar að fá út-
skýringar á því hvers vegna ég
vakna milli sex og sjö á morgnana
með dúndrandi hausverk og get
varla opnað augun. Sef þó alltaf
með galopinn glugga og með
slökkt á ofnum þannig að þetta er
ekki vegna loftleysis eða hita. Fer
seint að sofa, aldrei fyrr en eitt,
en á auðvelt með að sofna. Ef ég
tek inn panodil eða paracetamól
getur það skemmt innyfli?
Svar: Höfuðverkur er eitt algeng-
asta sjúkdómseinkenni sem við
þekkjum og getur átt sér fjöl-
margar orsakir. Orsakirnar er
oftast að finna í vöðvum eða bein-
um á hálsi og höfði, æðum í höfði,
tönnum, kinnbeinaholum, kjálka-
liðum, augum eða eyrum. Algeng-
ar tegundir slæmra höfuðverkja
eru spennuhöfuðverkur, mígreni
og klasahöfuðverkur. Spennuhöf-
uðverkur orsakast af vöðvaspennu
í hálsi og hnakka, hjá mörgum
kemur hann daglega en lagast oft
við afslöppun. Verkurinn er ýmist
um allt höfuðið, í hnakka, í enni
eða eins og band eða þrýstingur
umhverfis höfuðið. Mígreni er
skilgreint sem verkjaköst er
standa venjulega yfir í 4–72 klst.
og þeim fylgir oft ljósfælni og auk
þess fá flestir ógleði og uppköst.
Á undan verkjakastinu fá sumir
foreinkenni, stundum nefnd „ára“,
sem oftast eru í formi sjóntrufl-
ana. Þessi foreinkenni standa
venjulega yfir í 5–30 mínútur.
Verkurinn getur verið um allt
höfuðið eða bara öðrum megin og
hjá sama einstaklingi getur hann
færst til. Verkurinn er yfirleitt
sár, stöðugur eða með æðaslætti.
Mígreni er 2–3 sinnum algengara
hjá konum en körlum. Klasahöf-
uðverkur er sár verkur í auga eða
gagnauga sem stendur í 15–180
mín. og getur komið allt að 8
sinnum á dag. Klasahöfuðverkur
er algengari hjá körlum en kon-
um. Allar þessar tegundir höf-
uðverkja geta komið að nóttu til
og vakið sjúklinginn (venjulega
ekki fyrr en eftir kl. 4) eða verið
til staðar þegar hann vaknar.
Spennuhöfuðverkur er einna lík-
legastur til að vera til staðar þeg-
ar sjúklingurinn vaknar. Morg-
unhöfuðverkur er stundum
fylgifiskur þunglyndis en getur
einnig verið hluti fráhvarfs-
einkenna koffíns, verkjalyfja eða
ergotamíns (lyf við mígreni) sem
neytt var kvöldið áður. Verkjalyf-
ið paracetamól sem bréfritari
nefnir getur valdið höfuðverk en
það er sjaldgæft. Langvarandi
notkun paracetamóls getur hugs-
anlega valdið skemmdum á lifur
og nýrum. Í einstaka tilvikum
geta alvarlegir sjúkdómar verið
orsök morgunhöfuðverkja og má
þar nefna háan blóðþrýsting,
heilaæxli og kæfisvefn. Þeir sem
gnísta tönnum í svefni geta líka
vaknað með höfuðverk sem orsak-
ast af spennu í vöðvum og
eymslum í kjálkaliðum.
Þeir sem þjást af langvarandi
höfuðverk ættu að leita læknis.
Hvað orsakar morgunhöfuðverk?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Mígreni
skilgreint sem
verkjaköst
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn-
inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið
er á móti spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum
eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax
5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir-
spurnir sínar með tölvupósti á netfang
Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot-
mail.com.
Hreyfing og almenn líkamsrækt er líklega einfaldasta
og ódýrasta leið til bættrar heilsu sem völ er á. Áhugi á
hreyfingu er vaxandi og er það vel, enda veitir ekki af,
m.a. í ljósi þess hve offita er vaxandi meðal landsmanna.
Með þessu hefur réttilega verið mjög haldið á lofti
nauðsyn hófsemi í mataræði. Því miður virðast margir
halda að leiðin að sannleikanum í þessu efni sé í gegn-
um fæðubótarefni hvers konar. Þar eru ekki einungis
kölluð til sögunnar vítamín og steinefni, sem hafa verið
notuð áratugum saman, heldur einnig ýmiss konar
prótín og jafnvel amínósýrusamsetningar. Merkilegt
er til þess að vita að margir hillumetrar í apótekum
eru lagðir undir vörur þessar, þær eru til sölu í versl-
unum sem kenna sig við heilsu og í sumum heilsuræktarstöðvum. Mikil auglýs-
ingastarfsemi er þessu tengd og óstaðfestar fregnir hafa borist af því að þeim
sé ýtt að ungu fólki sem nauðsynlegum til árangurs í almennri líkamsrækt svo
ekki sé talað um í keppnisíþróttir.
Engar vísindalegar upplýsingar liggja fyrir um að efni af þessu tagi bæti
heilsu hjá hraustu fólki. Fæðubótarefni geta verið til gagns hjá fólki með alvar-
lega sjúkdóma á borð við alnæmi og krabbamein og ýmsa þarmasjúkdóma og
hugsanlega hjá fólki sem leggur stund á mjög miklar og erfiðar keppn-
isíþróttir. Fullyrða má að gildi fæðubótarefna fyrir alla aðra er ekkert. Í venju-
legri fæðu, hvort sem hún er unnin úr íslenskum landbúnaðarafurðum, sjáv-
arfangi eða ekki, eru öll þau fæðuefni sem við þurfum. Fæðubótarefni eru
yfirleitt mjög dýr. Í flestum tilvikum er fólk að borga fyrir vörur sem í besta
falli gagnast þeim ekki og í versta falli skiljast óbreyttar út um ýmis líkamsop.
Fæðubótarefni sem eru hér á markaði eru ekki skaðleg. Hins vegar hefur
borið á smyglvarningi með ýmiss konar örvandi efnum á borð við efedrín. Þau
eru ólögleg hér og geta verið mjög skaðleg. Gildi þeirra til hreysti, árangurs og
betra lífs er jafnlítið og hinna.
Sigurður Guðmundsson landlæknir.
Frá landlæknisembættinu.
Heilsan í brennidepli
Fæðubótarefni
ekki rétta leiðin
Áhugi á hreyfingu
er vaxandi
FÁTÆKT fólk er líklegra til þess að
vera flogaveikt, samkvæmt nýjum
rannsóknum breskra vísindamanna.
Þeir sem tilheyra hinum verst settu í
samfélaginu eru tvisvar sinnum lík-
legri til þess að vera flogaveikir en
þeir sem eru meðal hinna best settu.
Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Skýringarnar kunna að vera ýms-
ar, að mati vísindamanna frá Bresku
taugafræðistofnuninni. Það var til að
mynda vitað að flogaveikt fólk er lík-
legra til að vera fátækt vegna þess
að það getur ekki sinnt vinnu. Þetta
er hins vegar fyrsta rannsóknin sem
sýnir fram á að fátækt getur beinlín-
is verið orsök flogaveiki. Áhættu-
þættir flogaveiki, eins og fæðinga-
gallar og næringarskortur, eru t.d.
algengari meðal fátækra. Gen sem
bera flogaveiki gætu einnig ákvarð-
að námsgetu og aðra þætti heilbrigð-
is, segja vísindamennirnir.
Prófessor Ley Sander, sem stýrði
rannsókninni, sagði að skýringarnar
á þessum tengslum fátæktar og
flogaveiki væru sennilega fleiri en
ein og væntanlega samtengdar. „Ef
þú ert fátækur muntu leita þér lækn-
inga seinna en ella,“ bætti hann við-
.Talsmenn flogaveikra í Bretlandi
sögðust vilja sjá niðurstöður frekari
rannsókna áður en þeir drægju ein-
hverjar ályktanir af þessu.
Flogaveiki
tengd
fátækt
TEPPI Á
STIGAHÚS
- got t verð -
komum og gerum verðtilboð