Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 43
MINNINGAR
44 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Hugborg Þuríð-ur Benedikts-
dóttir fæddist á
Kambsnesi í Laxár-
dal í Dalasýslu 27.
febrúar 1922. Hún
lést á Sjúkrahúsi
Suðurlands á Sel-
fossi 23. október
2002. Foreldrar
hennar voru hjónin
Herdís Guðmunds-
dóttir, f. í Fremsta
Skógskoti í Miðdöl-
um 2. mars 1887, d.
11.6. 1979 á Selfossi,
og Benedikt Bene-
diktsson bóndi, f. á Sauðhúsum 14.
maí 1886, d. 24. mars 1972 í
Reykjavík. Hálfsystir Hugborgar
var Kristín Benediktsdóttir, mað-
ur hennar var Stefán Ólafsson,
þau eru bæði látin. Alsystkini Hug-
borgar eru Egill Jón Benedikts-
son, f. 23.12. 1924, fyrrverandi
bóndi og hreppstjóri á Sauðhúsum
í Laxárdal, kvæntur Önnu Pálínu
Jónsdóttur frá Klakksvík í Færeyj-
um; og Guðlaug Munda Friedel
húsmóðir, f. 10.8. 1928, búsett í
Duisburg í Þýskalandi, eiginmað-
ur hennar er Rudolf Friedel sjón-
tækjameistari, f. 3. október 1927 í
Þýskalandi.
Hinn 22. ágúst 1947 gekk Hug-
1953. Börn þeirra eru Hugborg
Erla, f. 1981, í sambúð með Valdi-
mar Gunnarssyni, f. 1978, þau eru
við nám á Spáni, Ólafur, f. 1984,
nemi við Menntaskólann við Sund
og Anna Lísa, f. 1990. 3) Kjartan
Þorvarður Ólafsson, alþingismað-
ur og framkvæmdastjóri, f. 2. nóv-
ember 1953, eiginkona hans er
Arna Kristín Hjaltadóttir skrif-
stofumaður, f. 28. sept 1957. Börn
þeirra eru Hjalti Jón, f. 1980, nemi
í byggingaverkfræði við Háskóla
Íslands í sambúð með Sigríði Rós
Sigurðardóttur, f. 1979, nema við
Kennaraháskóla Íslands, Hug-
borg, f. 1982, nemi við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands í sambúð með
Grétari Magnússyni, f. 1980, nema
við Háskóla Reykjavíkur, og Her-
dís Ólöf, f. 1986 nemi við Verzl-
unarskóla Íslands.
Hugborg lauk námi frá Héraðs-
skólanum í Reykholti og Hús-
mæðraskólanum Laugalandi í
Eyjafirði. Hugborg og Ólafur
bjuggu lengst af á Selfossi þar sem
þau ráku verslunina Sölvason &
co, lakkrísgerðina Surtsey og síð-
ar varð Ólafur forstjóri Steypu-
stöðvar Suðurlands. Þau stofnuðu
lögbýlið Lækjartún í Ölfusi þar
sem þau bjuggu frá 1974. Hugborg
tók virkan þátt í félagsstarfi
heimabyggðar sinnar, starfaði
með Kvenfélagi Selfoss og var
lengi formaður Sjálfstæðiskvenn-
afélags Árnessýslu.
Útför Hugborgar verður gerð
frá Selfosskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
borg að eiga eftirlif-
andi eiginmann sinn
Ólaf Jónsson, f.v.
framkvæmdastjóra á
Selfossi, f. 29. mars
1922 á Reyðarfirði.
Synir þeirra eru: 1)
Jón Ólafsson, f. 11.
apríl 1948, fjármála-
stjóri og ræðismaður
Tékklands, kvæntur
Sigurborgu Valdi-
marsdóttur húsmóð-
ur, f. 14.12. 1949. Börn
þeirra eru: A) Þor-
geir, f. 1969, flugmað-
ur, kvæntur Unni
Ingibjörgu Jónsdóttur, f. 1969, við-
skiptafræðingi og eru börn þeirra
Jón Ingvar, f. 1994, og Anna Ingi-
björg, f. 1998; B) Ólafur, f. 1973,
starfsmaður Steypustöðvarinnar,
sambýliskona hans er Esther Ósk
Erlingsdóttir, f. 1973, og er sonur
þeirra Jón, f. 2000, fyrir átti Ólaf-
ur dótturina Þórunni, f. 1991; C)
Geirlaug Eva, f. 1980, nemi við
Viðskiptaháskólann á Bifröst; og
D) Tómas, f. 1970, dýralæknir, og
er sambýliskona hans Una Björk
Unnarsdóttir, f. 1972. 2) Benedikt
Þórir Ólafsson sjóntækjafræðing-
ur, f. 10. apríl 1950, eiginkona
hans er Ásta Ingibjörg Hallsdóttir
leikskólakennari, f. 13. janúar
Það er komið haust og veturinn á
næsta leiti. Ég er snemma á fótum
eins og vanalega. Ég horfi út um eld-
húsgluggann og sé hvernig haust-
vindarnir feykja laufum trjánna til
og frá í skjól uppi við húsið okkar,
alltaf á sömu staðina þar sem er
logn. Klukkan er ekki orðin hálfátta
og ég fer að hella upp á könnuna, þá
kvað við símhringing. Það var Kjart-
an Ólafsson alþingismaður, bróður-
sonur minn, sem var í símanum og
sagði mér að móðir sín hefði látist þá
snemma um morguninn. Þó að vitað
væri að dauðinn væri yfirvofandi var
eins og það kæmi á óvart – svona
fljótt. Mæt kona er fallin frá eftir
mjög erfið veikindi. Upp í hugann
kemur samlíkingin um mannlífið
sem tré með stofni, greinum og lauf-
blöðum sem falla til jarðar. Þennan
haustmorgun hinn 23. október hefur
fallið af fjölskyldutré okkar enn eitt
laufið, Hugborg mágkona mín hefur
fallið í bylnum mikla, sem við öll lút-
um í lægra haldi fyrir að lokum.
Nú þegar leiðir skilur langar mig
að minnast mágkonu minnar Hug-
borgar Benediktsdóttur með nokkr-
um orðum og þakka henni samfylgd-
ina og trausta vináttu við mig og
mína um árabil. Hugborg hafði ung
að árum komið til starfa hingað að
Selfossi og fljótlega tókust kynni
hennar og Ólafs bróður míns. Hug-
borg var ættuð vestan úr Dölum og
ekki löngu eftir að þau kynntust
héldu þau vestur í Dalina og létu
séra Ólaf Ólafsson á Kvennabrekku
gifta sig, þetta var á afmælisdaginn
minn 22. ágúst 1947. Þau hafa því
verið búin að vera gift í rúm 55 ár
þegar hún féll frá. Nokkru áður en
þau giftu sig hafði Ólafur byggt einn-
ar hæðar verslunarhús með kjallara
að Austurveg 22 hér á Selfossi og nú
byggði hann hæð ofan á verslun sína
og þar stofnuðu þau sitt fyrsta heim-
ili og bjuggu þar í fjölda ára. Þegar
foreldrar okkar Ólafs fluttu að
Hlaðavöllum 5 þar sem þau eyddu
elli sinni fluttu þau Hugborg og Ólaf-
ur í Hlaðir, æskuheimili okkar
bræðra og bjuggu þar þangað til árið
1974 þegar þau byggðu sér mjög
reisulegt hús úti við Árbæjarlæk og
nefndu Lækjartún. Þar hafa þau
plantað miklu af trjám og ræktað
fagran skrúðgarð og þar hafa þau
unað hag sínum vel. Hugborg var
mjög félagslega sinnuð. Hún starfaði
mjög mikið í Kvenfélagi Selfoss og
var ritari félagsins í mörg ár. Hún
var einnig rammpólitísk og var ein-
dreginn stuðningsmaður Sjálfstæð-
isflokksins og var í nokkur ár for-
maður í Sjálfstæðiskvennafélagi
Árnessýslu og var dugleg og drífandi
að vinna fyrir flokkinn.
Hugborg og Ólafur eignuðust þrjá
syni Jón, Benedikt og Kjartan, allir
eru þeir fjölskyldumenn og eru af-
komendur Ólafs og Hugborgar orðn-
ir 17 að tölu. Allt er þetta mikið
myndarfólk.
Þau Ólafur og Hugborg hafa alltaf
búið nálægt okkur Svövu og voru
næstum því dagleg samskipti milli
fjölskyldna okkar bræðra árum sam-
an. Þau samskipti hafa alltaf verið
með miklum ágætum þar hefur vin-
átta virðing og ættrækni verið ráð-
andi.
Lífshlaupi Hugborgar er nú lokið,
við Svava og fjölskyldur okkar
kveðjum hana hinstu kveðju og biðj-
um hinn hæsta höfuðsmið himins og
jarðar að færa Ólafi og fjölskyldu
hans innilegar samúðarkveðjur og
huggun í sorg þeirra.
Páll Jónsson.
Elsku amma. Þegar við heyrðum
fyrst að þú værir með þennan hræði-
lega sjúkdóm fannst okkur þetta allt
vera einn stór draumur og biðum
þess að vakna upp frá þessum slæma
draumi og vita að allt yrði eins á ný.
En þegar við áttuðum okkur á því að
þér myndi ekki batna og þú varðst
veikari og veikari varð þetta allt
raunverulegra og erfiðara.
Það eru óteljandi minningar sem
koma upp í huga okkar þegar við
hugsum til baka.
Ef við skrifuðum niður allar þær
minningar um þig sem koma í huga
okkar þá gætu þær fyllt heila bók.
En þær minningar sem eru efstar í
huga eru þær stundir sem við áttum
hvað mest saman áður en þú varðst
veik. Á sumrin var oft mikið af börn-
um heima í Lækjartúni og varst þú
mjög góður vinur okkar allra og
tókst alltaf vel á móti okkur. Þá
fórstu gjarnan með okkur í sund í
Hveragerði þar sem þú varst dugleg
að láta okkur taka sundtökin eða að
við sátum úti í garði á teppum með
djús og þínar dýrindis kökur sem þú
bakaðir svo oft.
Þegar hausta tók var það tilhlökk-
unarefni að fara með þér og afa í
berjamó um allar sveitir. Þá var öll-
um dollum og dósum safnað saman,
hrúgað inn í bíl og keyrt af stað og
helst ekki komið heim fyrr en þær
voru allar fullar. Á haustin þegar öll
barnabörnin nema Herdís voru farin
í skóla var Herdís send í ,,Ömmu
skóla“ þar sem hún lærði að lesa,
spila, baka og margt fleira sem enn
kemur henni til góða. Einnig kenndir
þú okkur að baka kleinur, hekla,
prjóna og enn og aftur að spila. Þeg-
ar jólin nálguðust vorum það við, þú
og mamma sem gerðum laufabrauð
sem mátti alls ekki vanta í jólaund-
irbúninginn. Á Þorláksmessu kom-
um við systurnar alltaf til að skreyta
jólatréð á Lækjó, því annan í jólum
hélduð þið afi alltaf glæsilega jóla-
veislu sem allir afkomendurnir
mættu svo í. Á vorin fannst þér
skemmtilegast að fara með okkur í
bíltúr og þá var oftast farið niður í
Votmúla til að telja folöldin eða á
ströndina og horfa í öldurnar og
brimið. Núna síðustu ár fannst ykk-
ur afa alltaf gott að keyra til Hvera-
gerðis og fá ykkur kaffi í bakaríinu
og var okkur þá oft boðið með. Þegar
upp er staðið áttum við okkur á því
hvað við höfum átt í gegnum öll þessi
ár og hvað við höfum misst mikið nú
þegar þú ert látin, en þó hefur afi
misst mest. Við sem eftir lifum erum
með stór sár í hjörtum okkar sem
seint munu gróa en okkur hlýnar
strax um hjartarætur að vita að þér
líður vel þar sem þú ert núna. Elsku
amma, hvíl þú í friði.
Þínar sonardætur,
Hugborg og Herdís
Ólöf Kjartansdætur.
Það voru váleg tíðindi, sem bárust
fjölskyldunni nú á haustmánuðum
þess efnis, að amma væri orðin al-
varlega veik af krabbameini. Hún,
sem alltaf hafði verið svo hraust og
aldrei kennt sér meins. Þessi illvígi
sjúkdómur var kominn það langt á
leið þegar hann uppgötvaðist, að
óvíst var um lækningu. Það hafði
hins vegar ekki sjáanleg áhrif á
ömmu. Þvert á móti lét hún engan
bilbug á sér finna þrátt fyrir erfið-
leikana. Hún bar sig ætíð vel og
sýndi yfirvegun og innri styrk þar til
yfir lauk. Það voru þessir eiginleikar
ömmu, sem voru svo einkennandi
fyrir hana og ég minnist sérstaklega
í fari hennar. Hún bar ávallt annarra
hag fyrir brjósti fremur en sinn eig-
in. Frá ungaaldri fram á unglingsár
dvaldi ég á sumrin hjá þeim ömmu
og afa, fyrst á Selfossi og síðar í Ölf-
usi þar sem þau bjuggu sér glæsilegt
heimili í Lækjartúni. Þangað var
alltaf gott að koma og næg voru
verkefnin hvort sem það var gróð-
ursetning, heyskapur eða önnur
verk, sem þurfti að vinna. Allar göt-
ur síðan höfðum við mikið samband
og var það ekki síst amma, sem
hringdi reglulega og vildi fá fréttir af
sínu fólki. Var henni ætíð umhugað
um, að allir væru við góða heilsu og
gengi vel í því, sem þeir tóku sér fyr-
ir hendur. Það var alltaf gaman að
ræða við ömmu um atburði líðandi
stundar en hún fylgdist vel með öll-
um fréttum og oftar en ekki barst
umræðan að pólitískum málefnum
þegar fjölskyldan kom í heimsókn.
Barnabarnabörnin höfðu ekki síður
gaman af því að heimsækja lang-
ömmu og langafa og tók amma á
móti þeim með kostum og kynjum og
var regla hjá henni að baka pönnu-
kökur og draga fram annað góðgæti,
sem vakti mikla gleði yngstu kyn-
slóðarinnar. Hún gaf sér iðulega
tíma til að spila við þau og lesa með
þeim og eru þau afar lánsöm að hafa
kynnst langömmu sinni. Það má
segja að hún og afi hafi verið horn-
steinn fjölskyldunnar, sem alltaf var
gott að leita til, og er því mikið skarð
fyrir skildi í fjölskyldunni við fráfall
ömmu. Ég vona að guð veiti afa og
okkur öllum styrk til að að takast á
við orðinn hlut. Eftir lifir minningin
um góða konu sem aldrei mun
gleymast.
Þorgeir Jónsson.
Það er kominn tími til að kveðja.
Amma okkar Hugborg Benedikts-
dóttir er látin eftir stutta en erfiða
sjúkrahúslegu. Fráfall ömmu var
óvænt, því hún var alla tíð mjög
heilsuhraust.
Að leiðarlokum langar okkur að
færa henni þakklæti okkar, því hún
var svo miklu meira en amma. Hún
var sannkallaður vinur sem var alltaf
til staðar og til hennar gat maður
leitað og verið þess fullviss að hún
væri að ráðleggja af heilum hug.
Amma okkar var yndisleg kona og
á langri ævi ávann hún sér marga
vini vegna persónutöfra sinna og út-
geislunar. Amma og afi voru ákaf-
lega samrýnd, þau áttu mörg góð og
viðburðarík ár og eignuðust yndis-
lega fjölskyldu.
Amma var alltaf síkát og brosandi,
hún tók vel á móti okkur og var alltaf
tilbúin að taka í spil. Hún hafði góða
kímnigáfu og sagði okkur oft brand-
ara. Hún var einstaklega jákvæð
gagnvart lífinu og horfði alltaf fram
á veginn.
Heimili þeirra hjóna, Lækjartún,
er sannkallað ættarsetur, þar undu
þau sér vel við trjárækt og gróður-
setningu, sem var þeirra líf og yndi
og er garðurinn svo sannarlega til
vitnis um það, eitt blómskrúð. Það
voru forréttindi að fara til ömmu og
afa í sveitina, draumur að komast
þangað frá stressinu í Reykjavík.
Lækjartúnið er sannkölluð para-
dís þar sem maður gat látið hugann
reika, leikið sér í læknum, klifrað í
trjánum og gróðursett blóm og
plöntur með afa og ömmu.
Amma okkar var kona sem við öll
litum upp til og munum gera um alla
ævi, hún var miðpunktur fjölskyld-
unnar og fyrirmynd allra. Við mun-
um sakna hennar og þökkum guði
fyrir þann tíma sem hún gaf okkur.
Megi guð gefa afa styrk í þessari
miklu sorg.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgr. Pét.)
Þín elskandi barnabörn
Hugborg Erla, Ólafur
og Anna Lísa.
Mér brá þegar ég frétti af alvar-
legum veikindum hennar Hugborgar
vinkonu minnar. Nú er vitað að Hug-
borg hafði veikst fyrir löngu án þess
að fundin væri skýring á. Þessi vík-
ingur hafði harkað af sér lengi án
þess að nokkur renndi grun í hve al-
varleg veikindin væru.
Hugborg var húsmóðir af gamla
skólanum og sinnti heimili sínu af
einstakri prýði og passasöm með
börnin sín að þau kæmust til manns.
Þetta fórst henni einstaklega vel úr
hendi. Þannig skilur hún eftir sig
þrjá myndardrengi sem hafa komið
sér upp glæsilegum hópi barna og
barnabarna sem Hugborg var ein-
staklega stolt af.
Ég var svo lánsamur að dveljast
oft hjá Hugborgu sem drengur. Það
var mér gott veganesti, enda var ég í
faðmi Hugborgar og Óla pabba, eins
og ég kallaði móðurbróður minn.
Hugborg reyndist mér alla tíð vel
þegar ég leitaði til hennar. Hún var
HUGBORG ÞURÍÐUR
BENEDIKTSDÓTTIR
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
RÖGNVALDUR RÖGNVALDSSON
bifreiðarstjóri,
Víghólastíg 17,
Kópavogi,
er látinn.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðrún Albertsdóttir,
Anna Rögnvaldsdóttir,
Þórdís Rögnvaldsdóttir, Páll Níels Þorsteinsson,
Gunnar Albert Rögnvaldsson, Sigrún G. Þormar,
Þorbjörg Rögnvaldsdóttir, Sveinn Ragnarsson.
Ástkær eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR JÓNSSON
rafvirkjameistari,
Hæðargarði 33,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum miðvikudaginn
30. október sl.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
5. nóvember nk. kl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Herdís Sigurðardóttir Lyngdal.