Morgunblaðið - 02.11.2002, Qupperneq 45
MINNINGAR
46 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Soffía Aðalheið-ur Sigurðardótt-
ir fæddist í Vöglum í
Vatnsdal í A-Hún 22.
apríl 1908. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun-
inni á Blönduósi 24.
október síðastliðinn,
Foreldrar hennar
voru Pálína Þor-
björg Jósafatsdóttir,
f. 29. apríl 1877, d.
20. júní 1963 á
Blönduósi, og Sig-
urður Jónsson, f. 22.
okt. 1877, d. 15. okt.
1944, síðast bóndi á
Hamri í Svínavatnshreppi. Systk-
ini Soffíu voru sex: Sigríður, f.
1895, Anna, f. 1899, Margrét, f.
1904, Jón, f. 1905, Lárus Georg, f.
1906, og Ingibjörg, f. 1909. Þau
eru öll látin.
Soffía giftist 9. nóvember 1927
Jóhanni Hafsteini Jónassyni, f. í
Hamrakoti í Svínavatnshreppi 5.
okt. 1901, d. á Skagaströnd 11. júní
1975. Foreldrar hans voru Jó-
hanna Jóhannsdóttir, f. 15. ág.
1866, d. 25. mars 1906 á Litla-Búr-
felli í A-Hún. og Jónas Jóhannsson,
f. 7. febr. 1868, d. 28. júní 1937, í
Hvammi í Vatnsdal. Börn þeirra:
1) Guðrún, f. 7. apríl 1928, gift Páli
Aðalsteinssyni, f. 21. mars 1930.
Börn þeirra eru a) Hafsteinn, f. 7.
sept. 1952, kvæntur Láru Torfa-
dóttur, f. 16. ág. 1956. Börn þeirra:
Guðrún Erna, Jóhanna Rut og
Snævar Ingi. b) Bjarnveig, f. 6.
júní 1954, gift Ingimar Valdimars-
syni, f. 3. nóv. 1952, d. 17. nóv.
1995. Börn þeirra: Jóhann Páll,
Kristinn Már og Valdís. c) Björk, f.
22. ág. 1955, gift Páli Valdimars-
syni, f. 11. júní 1954. d) Hrönn, f.
23. sept. 1956, gift Magnúsi Lúther
Alexíussyni, f. 11. des. 1955. Börn
þeirra: Brynja og Sindri. Fyrri
maður hennar var Gunnar Gunn-
arsson, f. 8. júlí 1957. Sonur þeirra
er Kári. e) Aðalsteinn, f. 2. febr.
1958, kvæntur Helgu Jónu Gríms-
dóttur, f. 18. nóv. 1960. Börn
þeirra: Fannar Páll, Hlín Vala og
28. nóv. 1963, kvæntur Auði Elfu
Hauksdóttur, f. 18. júní 1964. Börn
þeirra eru Bjarni Haukur, Ragna
Björg, Sigrún Elfa og óskírður
sonur. e) Soffía Svala, f. 24. júní
1967, sambýlismaður hennar er
Benedikt Blöndal Lárusson, f. 19.
maí 1950. Sonur þeirra er Björn
Blöndal. Áður var Svala gift Hall-
grími Stefánssyni, f. 15. ág. 1962.
Börn þeirra eru Nína og Jón
Bjarni. 4) Jónas Benedikt, f. 16. ág.
1933, d. 22. nóv. 1995. Sambýlis-
kona I: Elísabet Ásmundsdóttir, f.
23. júlí 1941. Börn þeirra: a) Hörð-
ur, f. 2. júlí 1959, kvæntur Dýr-
finnu Petru Hansdóttur, f. 8. maí
1957. Börn þeirra eru Ásmundur
Tómas og Hanna Lára. b) Rut, f.
24. sept. 1961, maður hennar er
Kjartan Ólafsson, f. 11. mars 1959.
Dóttir þeirra er Hrönn. Áður var
hún gift Ragnari Högnasyni, f. 2.
júlí 1959. Börn þeirra eru Kolbrún
Jenný, Björgvin Örn og barna-
börnin Aron Máni og Alexander Ís-
ar. c) Soffía Sveinbjörg, f. 8. sept.
1972, móðir hennar er Guðrún
Sveinbjörnsdóttir, f. 18. ág. 1949.
Sambýliskona II: Anna Sigurlaug
Guðmannsdóttir, f. 12. ág. 1938.
Barn þeirra: d) Guðmann, f. 13.
jan. 1974.
Soffía og Hafsteinn byrjuðu sinn
búskap í Vöglum í Vatnsdal,
bjuggu í Hnausum í Þingi 1931–
1934 en þá fóru þau að Njálsstöð-
um í Vindhælishreppi. Árið 1962
fluttu þau til Skagastrandar en
eftir lát Hafsteins hefur Soffía
dvalið á Hnitbjörgum, dvalarheim-
ili aldraðra á Blönduósi, en fyrir
ári flutti hún á Heilbrigðisstofn-
unina á Blönduósi. Soffía ólst upp
á Másstöðum í Vatnsdal hjá Guð-
rúnu Jónsdóttur, ljósmóður, f. 21.
maí 1869, d. 15. okt. 1947. Hennar
ævistarf var fyrst og fremst að
vera húsmóðir á stóru heimili. Á
Skagastrandarárunum vann hún
við fiskvinnslu, en á síðari árum
hefur hún haft ánægju af að gera
ýmiss konar handavinnu. Hún var
formaður Kvenfélagsins í Vind-
hælishreppi um árabil og starfaði
einnig með kvenfélagskonum á
Skagaströnd.
Útför Soffíu verður gerð frá
Blönduóskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14. Jarðsett verður
í Höskuldsstaðakirkjugarði.
Arnór. f) Steinþór, f.
23. apríl 1960, kvænt-
ur Áslaugu Guðjóns-
dóttur, f. 22. júlí 1961.
Dætur þeirra eru
Hildur og Katrín. g)
Gunnar Páll, f. 5. okt.
1961, kvæntur Ástu
Pálsdóttur, f. 15. febr.
1965. Synir þeirra eru
Páll, Bjarni og Aðal-
steinn Ari. h) Snæ-
björn, f. 7. okt. 1963,
kvæntur Þórdísi
Gísladóttur, f. 14. júlí
1965. Synir þeirra eru
Vésteinn og Jökull. 2)
Jósefína Jóhanna, f. 20. júní 1930.
Sambýlismaður hennar er Jóhann-
es Reynir Albertsson, f. 17. ág.
1939. Hún var gift Þorgeiri Magn-
ússyni, f. 23. des. 1927, d. 29. maí
1997. Börn þeirra: a) Soffía Hafdís,
f. 20. nóv. 1952, gift Sigurði Jónasi
Þorbergssyni, f. 17. ág. 1949. Dótt-
ir þeirra er Laufey. Fyrri maður
hennar var Valgeir Hallvarðsson,
f. 15. okt. 1952. Dóttir þeirra er
Kolbrún. b) Guðrún Bryndís, f. 3.
jan. 1955, gift Jóni Kjartani Sig-
urfinnssyni, f. 13. maí 1953. Börn
þeirra eru Berglind Soffía, Eydís
Sigrún og barnabarnið Ástdís
Rakel. c) Magnús, f. 3. nóv. 1957,
kvæntur Ellý Björnsdóttur, f. 23.
febr. 1960. Börn þeirra: Jóhann,
Valdís, Þórdís, Elvar og barna-
barnið Arnar. 3) Sigurbjörg, f. 1.
nóv. 1931, gift Runólfi Aðalbjarn-
arsyni, f. 19. mars 1934. Börn
þeirra: a) Hafsteinn Aðalbjörn, f.
21. okt. 1957, sambýliskona hans
er Sigrún Dúna Karlsdóttir, f. 23.
febr. 1947. Áður var hann kvæntur
Sólveigu Maríu Jörgensen, f. 14.
ág. 1962. Dóttir þeirra er Sigur-
björg Sandra. b) Rannveig, f. 10.
des. 1958, gift Gauta Jónssyni, f.
14. jan. 1955. Börn þeirra eru Run-
ólfur Bjarni, Elín Valgerður, Jón
Gauti og Sigurbjörn Viðar. c)
Njáll, f. 28. mars 1962, kona hans
er Ingiríður Ásta Þórisdóttir, f. 6.
mars 1969. Synir þeirra eru Rúnar
Þór og Sigmar Ingi. d) Bjarni, f.
Nú er hún amma mín dáin.
Nú er ekki hægt að koma lengur í
heimsókn til hennar á Hnitbjörg.
Það var alltaf jafngaman að koma til
hennar í sumarleyfinu, alltaf tók hún
svo vel á móti manni, var alltaf tilbú-
in með kaffi og kökur. Hún var
meira að segja búin að skipuleggja
hvar maður fengi að borða kvöld-
matinn, því ekki vildi hún að maður
væri svangur á ferðalaginu. Þetta
voru skemmtilegar stundir sem ég
og mín fjölskylda áttum hjá henni.
Þegar ég og fjölskyldan ætluðum í
frí, var það alltaf fyrsti kostur að það
yrði að koma við á Hnitbjörgum á
Blönduósi, á okkar ferðalagi. Ég átti
þess kost á síðasta sumri að koma til
hennar tvisvar, en þá var hún amma
komin á sjúkrahúsið á Blönduósi.
Margar minningar koma upp í hug-
ann, nú þegar hún er dáin, enda ólst
ég upp hjá henni frá 7 ára aldri til 18
ára, fyrst hjá afa og ömmu á Skaga-
strönd og svo hjá ömmu eftir að afi
dó, þangað til ég fór suður í mennta-
skóla. Hún var mín stoð og stytta í
gegnum mína skólagöngu og er ég
henni ævinlega þakklátur fyrir það.
Blessuð sé minning hennar.
Hennar sonarsonur,
Hörður Jónasson.
Hún amma mín er búin að fá
hvíldina. Ég man hana ömmu þegar
hún átti heima á Skagaströnd, þá var
ég svo oft hjá henni þegar ég var lítil
stelpa, hún var alltaf svo blíð og góð
og glaðlynd. Það var svo gott að vera
hjá henni, hún söng mig oft í svefn á
kvöldin, að ég tali nú ekki um
prjónavélina sem lék undir söng
hennar, en það leið varla sá dagur að
ekki heyrðist í prjónavélinni því
amma var iðin við margskonar
handavinnu allt þar til á síðasta ári
er þrek hennar fór minnkandi. Og
kökurnar sem hún bakaði voru líka
svo góðar og alltaf var til nóg af
þeim, því ekki vildi hún að neinn færi
svangur frá sér. Þegar amma og afi
komu í heimsókn í sveitina fannst
mér alltaf sá dagur hátíð líkastur því
gleðin var alltaf með í för.
Eftir að afi dó og amma fluttist til
Blönduóss var það orðinn fastur lið-
ur í daglegu amstri að fara í heim-
sókn til ömmu og hlusta á hana segja
frá gamla tímanum og hennar bú-
skaparháttum í þá gömlu góðu daga.
Ég er þakklát fyrir það að ég og
börnin mín hafa fengið að njóta þinn-
ar einstöku hlýju og umhyggju, og
það er með söknuði sem við kveðjum
þig í hinsta sinn.
Rut Jónasdóttir.
Amma og afi bjuggu á Njálsstöð-
um í Vindhælishreppi, þaðan og úr
sveitinni á ég yndislegar bernsku-
minningar. Hjá ömmu og afa var
mjög gott að vera og þykjast hjálpa
til við heyskapinn eða sendast með
kaffi á engjarnar, það þótti mikið
sport. Þau sýndu mér alltaf mikla
þolinmæði og væntumþykju og tóku
meira að segja að sér að kenna mér
að lesa þegar ég var fimm ára, það ár
var ég hjá þeim fram eftir hausti.
Jónas móðurbróðir minn og Þor-
björg langamma hjálpuðu einnig til
við kennsluna. Þetta var mjög eft-
irminnilegur tími.
Amma var myndarleg húsmóðir
og hafði allt í röð og reglu. Á þessum
árum fékk ég að aðstoða hana við
morgunverkin eða vökva blómin og
sópa gólfin, hún kenndi mér líka að
sauma út. Amma hafði gaman af
söng og var í kirkjukór á sínum
yngri árum, þessi söngáhugi hefur
síðan erfst frá henni til næstu kyn-
slóða. Eftir að afi dó flutti amma til
Blönduóss. Þar bjó hún á Hnitbjörg-
um með Margréti systur sinni í rúm
20 ár. Þar var alltaf gott að koma og
jafnan tekið á móti mér og fjölskyldu
minni með hlaðborði af heimabök-
uðu bakkelsi og þá þýddi ekkert að
halda því fram að við værum ekki
svöng.
Amma var mikil hannyrðakona og
skilur eftir sig ógrynni af útsaums-
myndum og annarri handavinnu sem
við höfum notið góðs af. Það var
aldrei slegið slöku við, enda vön mik-
illi vinnu á sínum búskaparárum.
Ég veit að amma er ánægð með að
vera komin til afa, hann var búinn að
bíða svo lengi eftir henni.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Soffía Hafdís.
Hraði nútímans hefur sent mig í
fjarlægt heimshorn, þannig að ég á
þess ekki kost að fylgja Soffíu Sig-
urðardóttur til grafar. Mig langar
því til þess að minnast þessa glæsi-
lega fulltrúa þeirrar kynslóðar sem
nú er óðum að hverfa með nokkrum
orðum. Síðastliðin þrettán ár hef ég
farið að veiða silung í Vatnsdalsá, og
lokapunktur veiðiferðarinnar hefur
verið að fara til Soffíu, þiggja rjóma-
pönnukökur og kaffi að góðum
sveitasið og færa þessum gamla
Vatnsdælingi silung í soðið. Margra
ára veiðiskapur færði mér ekki minn
Maríulax, fyrr en ég hét honum á
Soffíu. Og við brá, Maríulaxinn
veiddist.
Hjá Soffíu hefur þessi sunnlenski
aðkomumaður verið umvafinn hlýju
og gestrisni hins gamla sveitasam-
félags. Þar voru dægurmálin rædd,
fréttir sagðar af skyldmennum og
vinum, eins og vera ber þegar gesti
ber að garði. Þar gat ég setið og lært
af henni, hvernig hægt er að láta við-
horf sín stjórnast af mannkærleik og
væntumþykju, og allt hæfilega
kryddað með skarpri og stundum
beittri kímni. Þessar stundir hafa
verið mér dýrmæt áminning um hve
auðvelt það er að missa sjónar á
þeirri staðreynd, að allt hið mikil-
væga í lífinu er einfalt.
Síðastliðið sumar var Soffía komin
á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi.
Hún hafði ekki tök eða getu til þess
að sjóða sinn silung, elli kerling hafði
minnt á sig. Hugurinn var ennþá
skarpur, en líkaminn orðinn slitinn.
Mig vantaði eitthvað eftir heimsókn-
ina, silungnum hafði ekki verið skil-
að, og það sat tómleiki eftir í hjart-
anu, tómleiki sem skyggði á
þakklætið yfir því að Soffíu skyldi
gefast næstum heil öld sem fyrir-
mynd okkar yngri.
Tímarnir breytast og fólkið með,
nú er það ekki lengur merkilegt að
vera sigldur eða mælandi á nokkrar
heimstungur. Hins vegar er söknuð-
ur að virðuleika, reisn og mannkær-
leika hins gamla samfélags, sem
Soffía var svo glæsilegur fulltrúi fyr-
ir. Guð blessi minningu Soffíu Sig-
urðardóttur.
Páll Valdimarsson.
Mig langar að minnast ömmu
minnar með örfáum orðum. Amma
var sjálfstæð, góð og kærleiksrík
manneskja. Það er mikið ríkidæmi
að eiga ömmu sem nær eins háum
aldri og amma. Hún minnti mann á
ýmis gildi lífsins sem maður átti
stundum til að gleyma í hraða nú-
tímans. Amma ætlaði alltaf að verða
gömul; eins og hún svo oft sagði sjálf
ætlaði hún að verða með elstu kell-
ingum á Íslandi. Hún vildi lengi vel
ekki vera minnt á aldurinn. Ég
minnist þess þegar hún varð áttræð
og við systkinin gáfum henni lampa
með stækkunargleri til að hún gæti
notið hannyrðanna lengur. Henni
hálfsárnaði gjöfin og lét okkur heyra
að hún væri ekki orðin það gömul að
hún þyrfti á þessu að halda. Amma
var mikil hannyrðakona og trúi ég
því að við afkomendur eigum öll eitt-
hvað frá henni.
Amma bjó sjálfstætt í eigin íbúð
þar til fyrir rúmu ári, en þá flutti hún
á öldrunardeild Heilbrigðisstofnun-
arinnar á Blönduósi. Þótti henni það
miður en aðlagaðist þó fljótt breytt-
um aðstæðum. Alltaf var gott og
mannbætandi að hitta ömmu, en við
Palli reyndum alltaf að koma við á
leið norður. Við gerðum það að venju
að ljúka alltaf árlegri veiðiferð okkar
í Vatnsdalsá hjá henni með því að
færa henni silung úr heimasveit
hennar. Yfir kaffinu var spjallað um
heima og geima, lífsreynslusögur og
stjórnmál. Á þessum stundum naut
ég líka leiðsagnar hennar um ættir
og staðhætti í Vatnsdalnum.
Góðar og ríkar minningar fylgja
ömmu, ömmu og Möggu frænku,
systur ömmu, á Hnitbjörgum. Einn-
ig minnist ég bernskunnar og ung-
lingsáranna þegar ég með foreldrum
og systkinum kom í heimsókn til afa
og ömmu á Skagaströnd og að Njáls-
stöðum. Þá minnist ég alltaf ömmu í
eldhúsinu og afa við útistörfin. Hlýja
og virðing einkenndi alla samveru.
Ég þakka fyrir að hafa átt ömmu
svo lengi og kynnst virðuleika og
reisn gamla samfélagsins. Minningin
mun lifa. Á heimili mínu tifar nú fal-
lega klukkan þeirra ömmu og afa
sem hljómaði í nær fimmtíu ár hjá
ömmu.
Guð geymi þig, elsku amma.
Þín
Björk Pálsdóttir.
SOFFÍA
SIGURÐARDÓTTIR
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför móður minnar og tengdamóður,
KRISTJÖNU MOONEY,
Borgarholtsbraut 20,
Kópavogi.
Ellen Mooney og Michael Kissane.
Yndislegi sonur okkar og bróðir,
KRISTJÁN ÁRNI GUNNARSSON,
Sjafnargötu 14,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 31. október.
Katrín Andrésdóttir, Gunnar Kristjánsson
og systkini hins látna. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÁSDÍSAR BÖÐVARSDÓTTUR,
Þórsmörk,
Djúpavogi.
Þórður Snjólfsson,
Sigmar Ægir Björgvinsson,
Ásdís Þórðardóttir,
Ólafur Böðvar Þórðarson,
Linda Heiðrún Þórðardóttir
og fjölskyldur.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar
og hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað.
Ætlast er til að þetta komi að-
eins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í greinun-
um sjálfum.
Formáli
minning-
argreina