Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 46

Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 46
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 47 ✝ Cesar Ólafssonvélstjóri fæddist á Kvígindisfelli í Tálknafirði 9. ágúst 1925. Hann lést 25. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru þau Sesselja Ólafs- dóttir frá Hellnafelli á Snæfellsnesi, f. 13.6. 1897, d. 28.4. 1988, dóttir Oddnýjar Björnsdóttur og Ólafs Magnússonar og Ólafur Jósúa Guð- mundsson frá Stóra- Laugardal í Tálkna- firði, f. 1.10. 1900, d. 5.11. 1993, sonur hjónanna Guðmundar Jó- hannesar Guðmundssonar frá Stóra-Laugardal og Svanborgar Einarsdóttur frá Geitargili í Rauðasandshreppi í V-Barð. Sess- elja og Ólafur hófu búskap í Litla- Laugardal og ólu flest börn sín þar upp, en fluttu síðan til Patreks- fjarðar árið 1949 og bjuggu þar uns þau fluttust til Hafnarfjarðar og bjuggu þau þar síðustu ár ævi sinnar. Systkini Ces- ars eru Guðmundur Jóhannes, f. 30.10. 1921, d. 31.8. 1997, Hulda, f. 16.12. 1922, Haraldur, f. 10.3. 1924, d. 5.6. 1990, Kristján Júlíus, f. 1.4. 1927, d. 16.11. 1993, Sverrir, f. 25.10. 1928, Aðalsteinn, f. 23.5. 1930, d. 5.6. 1945, Svanborg, f. 8.5. 1932, Gróa, f. 9.11. 1934, Oddný, f. 28.2. 1936, d. 5.5. 1936, og Erla Þor- gerður, f. 12.4. 1937. Cesar stundaði sjó og var m.a. háseti og kyndari á ýmsum bátum og togurum á síld, trolli og öðrum veiðarfærum. Cesar lauk vélskóla- prófi frá Ísafirði og vann við vél- stjórn bæði á sjó og í landi. Vann í vélsmiðju eftir að hann hætti á sjó. Stundaði síðan ýmis störf í landi. Útför Cesars verður gerð frá Patreksfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Það var ein okkar systkinina mesta gæfa að alast upp í skjóli afa og ömmu í Krók. Cesar var einn af mörgum móðurbræðrum sem var stór hluti af uppvexti okkar. Dedi eins og amma kallaði hann var alltaf litli strákurinn hennar, enda lengi stór hluti af heimilishaldinu í Krók. Oft hafði amma áhyggjur af drengnum og sérstaklega af því að hann hafði ekki enn fundið sér konu. Það var hins vegar alltaf ljóst að ömmu þóttu ekki margar konur á Patró nógu álitlegar fyrir dreng- inn. Fram koma minningar um há- degis- og kvöldmat í Krók þegar Cesi og afi voruð að koma heim að vinnu lokinni. Amma að snúast í kringum þá til að vera viss um að þá skorti ekkert. Cesi var ekki margmáll maður, en fylgdist vel með og aldrei fundum við krakk- arnir fyrir því að gassagangurinn í okkur, sem oft var nokkur, truflaði hann. Hann tók ýmsu með mikilli þolinmæði m.a. að vera árlega boll- aður og hlaðinn öskupokum. Þegar amma fór að eldast fengum við það verk að fara út í Ingólfsbúð og kaupa bók fyrir Cesa, en amma sá til þess að hann fengi alltaf bók eft- ir uppáhaldshöfundinn sinn. Cesi og amma voru að mörgu leyti lík. Allt- af kát, en létu samt ekki mikið fyrir sér fara. Þrjósk gátu þau líka verið og vildu lítið umstang í kringum sig, en voruð alltaf manna tilbúnust til að gera allt fyrir aðra. Systkinamót- in sem haldin hafa verið frá árinu 1975 vekja líka upp góðar minn- ingar en á þau mætti Cesi alltaf og tók þátt í glensinu og gamaninu á sinn hljóðláta hátt. Eftir að Cesi eignaðist tíkina hana Bollu kom hún með á mótin. Það var alveg ljóst að samband Cesa og Bollu var einstakt og sönnun þess hve djúp vinátta getur myndast á milli manna og dýra. Það kom því ekki á óvart að heyra að Bolla var við hlið Cesa þegar hann andaðist og hafði ekki vikið frá hlið hans. Kæri Cesi við þökkum þér sam- fylgdina og þann þátt sem þú áttir í því öryggi og þeim kærleika sem ætíð var til staðar hjá afa og ömmu í Krók. Samúðarkveðjur sendum við systkinum þínum og þeim ástvinum sem þér voru kærir. Kristjana, Eymundur og Sesselja. CESAR ÓLAFSSON ✝ Grímur StefánBachmann fæddist í Reykja- vík 1. desember 1921. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans-há- skólasjúkrahúss 22. október síðast- liðinn. Foreldrar hans voru þau Geir Bachmann vélstjóri, f. 1. maí 1892 í Reykjavík, d. 19. maí 1964, og Helga Magnús- dóttir, f. 12. okt. 1888 á Heylæk í Fljótshlíð, d. 7. okt. 1970. Jóna Sigríður Markúsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 30. maí 1923. Hún lést 6. mars 1988. For- Grímur og Jóna giftust 9. júlí 1949 og ættleiddu Önnu Þórdísi Grímsdóttur, f. 22. apríl 1955. Hún er gift Sveini Inga Lýðssyni, f. 10. mars 1955. Þau eiga a) Gerði Björk, f. 21. jan. 1977, í sambúð með Davíð Páli Bredesen, f. 24. okt. 1972, og eiga þau óskírða dóttur f. 6. okt. 2002, þau eru bú- sett á Patreksfirði; b) Ragnheiði Hörpu, f. 7. ágúst 1979; c) Hjalta Þór, f. 5. des. 1982; og d) Stefán Gauta, f. 14. sept. 1990. Grímur var rennismiður að mennt og vann við málmiðnað stærstan hluta starfsævinnar. Jóna var heimavinnandi en síðustu æviárin vann hún hluta dagsins í sælgætisgerð. Útför Jónu var gerð 10. mars 1988 en útför Gríms fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. eldrar hennar voru Markús Jóns- son, f. 26. júlí 1893, d. 3. mars 1924, sjómaður, og Þuríður Pálsdóttir, f. 2. júlí 1889, d. 23. sept. 1978, verkakona. Sumri hefur hallað, haustið er komið með kólnandi tíð og vetur á næsta leiti. Lífkeðjan hægir á sér og bíður átekta næsta vors. Á þessari tíð kvaddi minn kæri tengdafaðir, Grím- ur Stefán Bachmann, þetta líf, þrot- inn kröftum á krabbameinsdeild Landspítalans. Ég kynntist þeim hjónum Grími og Jónu síðla sumars fyrir 27 árum þeg- ar ég var að bera víurnar í einkadótt- urina, Önnu Þórdísi. Eins og margur var ég ekkert upplitsdjarfur og kannski kvíðinn að hitta þessa verð- andi tengdaforeldra í fyrsta sinn en sá kvíði hvarf strax því bæði tóku þau mér sem týndum syni og aldrei síðan hefur borið þar skugga á. Grímur var járniðnaðarmaður, hafði lært rennismíði hjá Lands- smiðjunni, og vann alla sína tíð við iðn sína hjá ýmsum vinnuveitendum, þó lengst hjá Glófaxa og síðar hjá Ísal allt þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir 1991. Á yngri árum hafði hann einnig sótt sjó með föður sínum á gömlu síðutogurunum. Um þriggja ára skeið varð ég þess aðnjótandi að hafa Grím sem vinnufélaga er við unnum báðir hjá Ísal. Jóna Sigríður Markúsdóttir varð mér strax sem önnur móðir og alveg einstök amma. Hún hafði ung veikst af berklum og dvaldi langdvölum á Vífilsstaðaspítala. Eins og títt var í þá daga var Jóna lengst af heimavinn- andi en síðustu árin vann hún úti hluta úr degi. Jóna dó síðan eftir stutta sjúkdómslegu í mars 1988 að- eins 64 ára. Þau Jóna og Grímur voru samhent hjón en að mörgu leyti ólík, hún lífs- glöð, drífandi og oft hæfilega ákveðin, hann rólyndur, glaðlyndur, vanafast- ur og traustur sem klettur. Fjöl- skyldugildin voru þar í heiðri höfð. Ekki hotnaðist þeim sú gæfa að eign- ast börn en ættleiddu dótturina Önnu Þórdísi sem alla tíð síðan var þeim augasteinn. Ekki var minna dálætið á barnabörnunum og fylgdust þau alla tíð nákvæmlega með hag þeirra með velferð þeirra að leiðarljósi. Grímur var félagi í Frímúrararegl- unni sem veitti honum gleði og lífs- fyllingu. Það vissu allir sem til þekktu. Þau hjónin höfðu mikla ánægju af ferðalögum og ferðuðst talsvert bæði innan sem utanlands. Eftir fráfall Jónu bjó Grímur einn en í nánu vinfengi við Ólafíu Guð- mundsdóttur (Lóu) sem einnig átti sitt heimili í húsinu í Stóragerði 12. Fyrir þeim var svipað komið en bæði höfðu þau misst maka sína og bjuggu ein í íbúðum sínum. Þau reyndust hvort öðru stoð og styrkur og svo var einnig um fjölskyldu Lóu. Grímur kenndi sér þess sjúkdóms sem nú lagði hann að velli fyrir 14 ár- um. Lengst af tókst að halda honum í skefjum en svo kom að því að sjúk- dómurinn tók sig upp þannig að ekki varð við ráðið. Hann lagðist inn á sjúkrahús í septemberbyrjun. Síð- ustu vikurnar naut hann umönnunar á deild 11E, krabbameinslækninga- deild Landspítala – Háskólasjúkra- húss. Ég og fjölskylda mín viljum þakka starfsfólki þar fyrir einstaka umhyggu og alúð. Sú erfiða vinna sem þar er unnin verður seint metin að verðleikum. Samfylgd tengdaforeldra minna, ástríki og vinátta er mér ómetanleg- ur fjársjóður við leiðarlok. Þessa samfylgd vil ég þakka. Minningin um þau heiðurshjón verður mér ætíð dýrmæt. Blessuð sé minning Jónu Sigríðar Markúsdóttur og Gríms Stefáns Bachmann. Sveinn Ingi Lýðsson. GRÍMUR STEFÁN BACHMANN OG JÓNA SIGRÍÐUR MARKÚSDÓTTIR Mér var alla tíð hlýtt til Örlygs Sigurðsson- ar og minnist ég hans fyrir margra hluta sakir. Örlygur var góð- vinur föður míns en þeir höfðu kynnst í Bandaríkjunum, á styrjaldarárunum, þar sem þeir voru báðir við nám. Við heimkom- una urðu þeir nágrannar í Laug- arneshverfinu, báðir komnir með trygga lífsförunauta. Vinskapur myndaðist á milli þeirra hjóna með tilheyrandi heimsóknum og oft fengum við krakkarnir að fljóta með. Sunnudagsheimsóknir á heim- ili listamannsins að Hafrafelli, í hin- um friðsæla Laugardal, eru eftir- minnilegar. Þá var oft glatt á hjalla og Örlygur lék á als oddi. Ég held að ekki sé hallað á neinn þó ég segi að Örlygur sé fyndnasti maður sem ég hef fyrir hitt um æfina. Ævinlega er ég mætti honum á förnum vegi var hann með veislu af húmor og skemmtilegheitum í farangrinum. ÖRLYGUR SIGURÐSSON ✝ Örlygur Sig-urðsson listmál- ari fæddist í Reykja- vík 13. febrúar 1920. Hann lést á Drop- laugarstöðum 24. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Langholts- kirkju 1. nóvember. Mér segir svo hugur, að Örlygi hafi fundist ríkari þörf fyrir húmor eftir því sem þjóðfélag- ið yrði tæknivæddara og ofstýrðara. Það bera bráðskemmtilegu bækurnar hans Örlygs svo sannarlega með sér sem útgáfufyritæk- ið hans Geðbót gaf út. Hann var einnig gædd- ur náðargáfu dráttlist- arinnar og teikningin var honum alla tíð afar hugleikin. Örlygur hef- ur með mannamyndum sínum kennt löndum sínum að sjá og meta teikninguna. Af mörgu er að taka en mér eru sérlega minni- stæðar myndir af grænlensku fólki sem Örlygur teiknaði af miklum næmleika og skilningi á viðfangs- efninu. Sjálfur segir Örlygur í bók sinni Nefskinnu, að þegar við hætt- um að teikna, hættum við að sjá. Eftirlifandi eiginkonu hans, Unni og börnum þeirra hjóna, Malín og Sig- urði, sendi ég einlægar samúðar- kveðjur. Ég þakka Örlygi margar góðar stundir og öll þau skipti sem hann kom mér og mínum til að hlæja. Því eins og hann sagði sjálfur „að framkalla bros á vör og gleðitár á brá hlýtur að vera guði þóknan- legt“. Dennis Davíð Jóhannesson. MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudagana, frá þriðjudegi til sunnudags. Greinunum er hægt að skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist), á disklingi eða í vélrituðu hand- riti. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Bréfsími fyrir afmælis- minningargreinar er 569 1115. Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangs- stræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Birting afmælis- og minningargreina Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts föður okkar, tengdaföður og afa, GUNNARS R. BJARNASONAR leikmyndateiknara. Sigurjón Páll Högnason, Halla Sólveig Halldórsdóttir, Jórunn Gunnarsdóttir, Skapti Valsson, Gunnar Snorri Gunnarsson, Nanna Herdís Eiríksdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, AÐALSTEINS SVEINSSONAR fyrrverandi bónda, Grund I, Smáragrund, Borgarfirði eystra, sem jarðsunginn var frá Bakkagerðiskirkju Borg- arfirði eystra laugardaginn 21. september síðastliðinn. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahússins á Egilsstöðum og íbúa á Borgarfirði eystra. Guð blessi ykkur öll. Guðlaug Aðalsteinsdóttir, Jóhann Jensson, Henny Nielsen, Þórarinn Gunnlaugsson, Marta Birna Aðalsteinsdóttir, Jóhann Tr. Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.