Morgunblaðið - 02.11.2002, Síða 52
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 53
ÞAÐ var býsna merkileg niður-
staðan í fregn einni í DV nýlega þar
sem sagt var frá einhverri samkomu
framhaldsskólanemenda að Skóg-
um, samkomu sem greinilega var
þeim til sóma sem þar voru. Fregn-
in bar enda fyrirsögnina: Áfengis-
laus vinnu- og gleðiferð. Í niðurlagi
fregnarinnar stóð hins vegar orð-
rétt: „Kvöldinu var síðan eytt í góðu
yfirlæti á Skógum í gamla héraðs-
skólanum án áfengis. Því það var
ein meginreglan að helgin var með
öllu áfengislaus. Þrátt fyrir það áttu
allir hinar notalegustu stundir í
Skógum.
Síðasta setningin hefði nefnilega
einmitt átt að hljóða svo: Einmitt
þess vegna áttu allir hinar notaleg-
ustu stundir í Skógum.
Ekki ætla ég þeim sem skrifaði
annað en athugunarleysi sakir
ályktunar sinnar, en upp í hugann
kemur þó hið dæmigerða viðhorf
svo alltof margra að ekki sé unnt að
eiga notalega skemmtistund nema
hafa áfengið sem sjálfsagðan föru-
naut.
Hafi nemendurnir mikla þökk
fyrir sína góðu forsendu gleðiferð-
arinnar sem eðlilega afsannaði
þessa villukenningu.
Enn meiri athygli mína vakti þó
afbragðsvel skrifað Lesbókarrabb
þess ágæta manns Eysteins Björns-
sonar fyrir nokkru er bar heitið:
Menningar-nótt. Hann vekur verð-
uga athygli á ölæðinu, misþyrming-
unum og sóðaskapnum sem hafi
verið í himinhrópandi andstöðu við
það sem til var stofnað.
Eysteinn ræðir svo um fylleríið á
mannskapnum, feimnismál okkar og
ræðir svo um eiturlyfjafárið svokall-
aða og gerir að sjálfsögðu út af fyrir
sig ekki lítið úr þeirri vá, en víkur
svo að því viðhorfi sem búið sé að
hamra inn í fólk að hinn löglegi
vímugjafi alkóhól sé tiltölulega sak-
laus miðað við hin skelfilegu eit-
urlyf. Svo vitnað sé orðrétt til Ey-
steins í þessu beinskeytta og
raunsanna rabbi hans þá segir
hann: „Því það vita náttúrulega allir
sem nenna að hugsa heila hugsun til
enda að alkóhólið er eitthvert sterk-
asta fíkniefni sem til er og veldur að
minnsta kosti 99% af öllum þeim
hörmungum sem fíkniefni valda í
heiminum.
Eysteinn dregur ekkert úr
ábyrgð okkar allra á málunum með
sinnuleysi okkar og afneitun og kall-
ar þó eðlilega til meiri ábyrgðar
þeirra sem með völdin fara svo sem
hér í Reykjavík.
Eysteinn mælir hér sannkölluð
skynsemisorð og hafi hann fyrir
heila þökk. Alltof oft þegar þessi
mál eru rædd tvímenna tvískinn-
ungur og hræsni á sömu dróginni,
að ekki sé nú talað um hinn lúmska
áróður svo víða sem oft gengur svo
yfirgengilega á móti allri heilbrigðri
hugsun, Já, ólíkt var flest með
vinnu- og gleðiferð framhaldsskóla-
nemanna áður-nefndu og menning-
arnóttinni miklu í Reykjavík og
væri ekki ráð að bera saman fyrir
þá sem ferð ráða.
Og verum þess minnug varðandi
upphaf þessa greinarkorns að í stað-
inn fyrir „þrátt fyrir að áfengið var
útlægt gjört átti aðeins að standa:
Vegna þess að. Þar lá nefnilega öll
skýringin, svo einfalt er nú það
Til ærinnar
umhugsunar
Eftir Helga
Seljan
Höfundur er formaður
fjölmiðlanefndar IOGT.
„Alltof oft
þegar þessi
mál eru
rædd tví-
menna tví-
skinnungur og hræsni á
sömu dróginni.“
ÞEGAR ég segi orðið „ég“ er ég
ekki bara að meina mig sjálfa heldur
mjög marga sem ekki geta heyrt hið
talaða hljóð i sjónvarpi. Þessir mörgu
eru heyrnarlausir og heyrnarskertir
og telja um 10% þjóðarinnar. Í sem
stystu máli langar mig til að segja
ykkur frá afhverju ég og þessi 10%
þjóðarinnar viljum textun.
– til að geta fylgst með þjóðmála-
umræðunni i öllum aðal- og auka-
fréttatímum sjónvarpstöðvanna, í
Kastljósinu, i Silfri Egils, í Ísland í
Bítið, í Ísland í dag sem og öðrum
þáttum þar sem þjóðmálaumræða líð-
andi stundar er til umræðu og sér-
staklega það hverju þessar spennandi
persónur hafi frá að segja á laugar-
dagskvöldi með Gísla Marteini eða þá
hvað allt þetta sjálfstæða fólk hefur
að segja við Jón Ársæl í Sjálfstæðu
fólki.
– Vita hvað er svona spennandi í
Panorama, hjá Andreu, í Fólki hjá
Sirrý, í Innlit/Útlit, í Femin, í Djúpu
lauginni eða þá hvað unga fólkið hefur
að segja í Atinu og sér í lagi hvernig
þjóðmálin verða fyndin í Spaugstof-
unni.
– Vitað hvað menningu landans líð-
ur í Mosaik, jafnvel hverju vísindum
miðar í Nýjasta tækni og vísindi.
– Vil vita hvað sporin heita í Fínu
formi og út á hvað þau snúast og
hvernig ég ætti að elda veislumat á
mettíma í Einn, tveir og elda. Jafnvel
ég vil fá að vita út á hvað Þorsteinn
Joð fær keppendur til að rembast eins
og rjúpan við staurinn að svara
spurningum og vinna sér inn dágóðan
aur eða þá hvaða spurninga hann
Haukur í horni er að spyrja og enginn
fær aur fyrir svörin sín þar.
– Til að geta vitað hvað ég að að
gera þegar maður fær hjartaáfall fyr-
ir framan mig, ég vil vita af hverju ég
á að hnoða fyrst og hringja svo en
ekki blása. Jafnvel það hvað er bak-
flæði og af hverju ég ætti frekar að
drekka Coca Cola heldur en Pepsi eða
öfugt, jafnvel hvort ég ætti að nota
Ajax eða Mr.Proper. Já, sem sagt
auglýsingar og kynningarmyndbönd
hverskonar þurfa að vera textuð, það
myndi jafnvel víkka markhópinn.
– Horfa á íþróttir með texta er hið
besta mál. Allir íþróttaþættir hvers
konar ættu að vera textaðir, beinar
útsendingar er hægt að texta.
– Jafnvel mig langar til að geta
horft á barnaefni allra sjónvarps-
stöðvanna og geta tekið þátt í þeim
hugarheimi og boðskap sem sjón-
varpið færir börnum okkar. Allt
barnaefni á að vera textað.
Svo einfalt er þetta, textun ætti að
vera eitt af grunnskilyrðum í allri inn-
lendri þáttagerð á sama hátt og hljóð-
ið. Setjum textun til jafns við hið tal-
aða orð.
Mætum á Textaþing i dag kl. 13 á
Grand hótel, fræðumst um málefnið
og veitum því brautargengi.
Af hverju vil
ég textun?
Eftir Sigurlínu Margréti
Sigurðardóttur
„Svo einfalt
er þetta,
textun ætti
að vera eitt
af grunnskil-
yrðum í allri innlendri
þáttagerð.“
Höfundur er táknmálskennari og í
þrýstihópi fyrir textun á innlent
sjónvarpsefni.
Létt & laggott er viðbit með litlu fituinnihaldi og bragðast
líkt og smjör. Nú á 20% afslætti í næstu verslun.
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I •
N
M
0
7
7
1
8
/ sia
.is