Morgunblaðið - 02.11.2002, Síða 58
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 59
ÁSTA Ragnheiður er stjórn-
málamaður sem kosið hefur að beita
áhrifum sínum og krafti fyrir þá sem
af ýmsum orsökum
eiga á brattann að
sækja í samfélaginu,
fatlaða, þroskahefta,
geðsjúka, foreldra
barna með langvinna
sjúkdóma, forræð-
islausa feður, aldr-
aða og öryrkja svo nokkrir hópar
séu nefndir.
Ég hef fylgst með því um árabil
hvernig hún berst fyrir og gætir
hagsmuna þessa fólks á Alþingi, í
fjölmiðlum, á þeirra eigin vettvangi
og ekki síst baráttu þeirra sem ein-
staklinga við oft á tíðum flókið og
miður notendavænt velferðarkerfi.
Ég hef fundið hversu annt henni er
um þetta fólk og málefni þess og
hversu ódrepandi hún er í baráttu
þeirra sem einstaklinga eða á vett-
vangi Alþingis.
Alþingi þarf á þingmönnum eins
og Ástu að halda, fólki sem hefur
hugsjónir og hefur kraft, hug-
kvæmni og hugekki til að fylgja
þeim eftir. Fólki sem lætur um sig
muna í samfélaginu.
Nú þarf Ásta hins vegar á okkur
að halda. Ég skora því á alla að vinna
að því ötullega að koma henni í
þriðja sæti Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Kjósum baráttu-
konuna Ástu
Ragnheiði í 3.
sætið
Þórey V. Ólafsdóttir, sálfræðingur og fé-
lagsráðgjafi, skrifar:
ÓLÍKAR leiðir koma til álita þegar
rætt er um að efla íslenskt atvinnulíf
og styrkja stoðir samfélagsins. Til eru
þeir sem sjá í hillingum álver við
hvern íslenskan fjörð og telja framtíð
Íslands fólgna í stóriðju. Aðrir finna
slíkum áformum allt til foráttu og
vilja leggja allt í sölurnar til að styðja
við hátækniiðnað og menntun. Þótt ég
sé síður en svo alfarið á móti virkj-
unum eða stóriðju þá hallast ég frekar
að síðara sjónarmiðinu. Þar bjóðast
lausnir sem hæfa betur íslenskri
menningu, hugviti og hugsun. Mér
sýnist að Finnar hafi að nokkru leyti
lagt okkur í hendur rök til að ræða um
framtíðarmöguleikana eftir nýjum
leiðum.
Finnska leiðin er einfaldlega sú að
veðja á skynsemina, veðja á menntun,
veðja á hugvitið og mannauðinn.
Finnar höfðu um langt árabil lagt
rækt við þunglamalegan og gamal-
dags iðnað og horft mest til austurs
eftir mörkuðum. Við breytta stöðu
heimsmála söðluðu þeir um á skömm-
um tíma með undraverðum árangri.
Öll áhersla var lögð á að efla rann-
sóknarstarf og menntun. Fjármagni
var beint inn á öll skólastig, allt frá
leikskólum til sérhæfðrar vísinda-
starfsemi. Núna, rétt rúmlega tíu ár-
um síðar, standa Finnar fremstir í
flokki tæknivæddra iðnþjóða með
bestu starfsskilyrði til atvinnurekstr-
ar, mikla útflutningsaukningu og hag-
vöxt eins og hann gerist bestur. Þeir
veðjuðu á réttan hest.
Ungir Íslendingar búa yfir ótrúleg-
um frumkrafti og sköpunargleði sem
þarf að virkja samfélaginu til góða.
Framtíðin krefst þess að við nýtum á
öllum sviðum þá möguleika sem frjó
hugsun og öflugt menntakerfi býður
upp á. Við eigum að opna skólana fyr-
ir foreldrum, fyrirtækjum og byggð-
arlögunum sem hýsa þá. Við eigum að
bjóða upp á sveigjanlegri áherslur
milli skóla og stuðla að flæði á milli
ólíkra skólastiga. Við verðum einfald-
lega að opna allt skólakerfið upp á
gátt og hleypa að nýjum straumum.
Aukið fjármagn er eitt af lykilatrið-
unum ef vel á til að takast. Kraftmikl-
ir kennarar skipta höfuðmáli við ný-
væðingu skólakerfisins. Við eigum því
að hvetja þá til að taka frumkvæðið og
fylgja eftir nýrri hugsun og hug-
myndafræði á tuttugustu og fyrstu
öld. Sóknarfærin eru í menntakerfinu
og rétta leiðin er sú finnska.
Mennt er allt
sem þarf!
Eftir Sigrúnu
Grendal
Höfundur tekur þátt í flokksvali
Samfylkingar í Reykjavík.
„Við verðum
einfaldlega
að opna allt
skólakerfið
upp á gátt.“
LAUGARDAGINN 9. nóv. nk.
veljum við sjálfstæðismenn, í hinu
nýja Norðvesturkjördæmi, þá sem
leiða lista okkar fyrir næstu al-
þingiskosningar.
Það er okkur mik-
ilvægt að horfa á
þetta nýja kjör-
dæmi sem eina
heild og gleyma
gömlu kjör-
dæmamörkunum,
þau heyra sögunni til. Ég kynntist
Einari Kristni Guðfinnssyni fyrst
er við sátum saman í stjórn Fiski-
félags Íslands þar sem hann
gegndi formennsku. Mér var strax
ljóst að þar fór mikill dugnaðar-
og forystumaður sem mikils mátti
vænta af.
Hann átti meðal annars stóran
þátt í því að gera Fiskifélagið að
þeim regnhlífarsamtökum hags-
munaaðila í sjávarútvegi, sem það
er í dag. Ég hef fylgst með störf-
um og málflutningi Einars Krist-
ins síðan og líkað vel hans
áherslur og barátta fyrir hags-
munum landsbyggðarinnar. Allur
hans málflutningur ber vitni þeim
metnaði sem hann hefur fyrir hin-
ar dreifðu byggðir. Ég skora á því
á okkur öll að tryggja, að Einar
Kristinn sé í forystusveit Sjálf-
stæðisflokkins í kosningunum vor.
Hann er traustur og öflugur bar-
áttumaður sem hefur hagsmuni
byggðanna að leiðarljósi. Kjósum
Einar Kristin í prófkjörinu hinn 9.
nóv. nk.
Einar Kristin
í forystusveit
Elínbjörg Magnúsdóttir, Akranesi, skrifar:
Láttu drauma þína rætast
Námskeið 8.-10. nóvember - 4 kvöld
Er það draumur þinn að lifa innihalds- og tilgangs-
ríku lífi og að vinna það starf sem þú ert fædd/ur til?
Á þessu námskeiði muntu uppgötva lífsstarf
þitt og læra lykilinn að velgengni.
Gitte Larsen, sími 861 3174
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ Í
KUMITE
Sunnudaginn 02. nóvember kl. 11:00
Fylkishöllinni við Fylkisveg 6
Úrslit hefjast kl. 15:00
Komdu og fylgstu með
bestu karatemönnum landsins
í frjálsum bardaga!
KARATESAMBAND ÍSLANDS
Laugar i . v r kl. :