Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 59
ÚR VESTURHEIMI
60 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR farþegar með Flugleiðum
koma til Minneapolis tekur ljós-
hærð kona á móti þeim, innileg og
brosandi, og býður þá velkomna.
Hún kveður þá líka á sama hátt
við brottför og þekkir orðið marga
ferðalangana. Þeir muna líka eftir
henni enda er hún einstaklega al-
mennileg við alla. „Þegar ég var í
Reykjavík í stuttri helgarferð í
haust mætti ég tveimur mönnum á
gangi í miðborginni,“ segir Jessica
Ginger, stöðvarstjóri Flugleiða í
Minneapolis. „Ég brosti til þeirra
og þá sagði annar: „Þú vinnur hjá
Flugleiðum í Minneapolis.“ Þarna
var ég með íslenskum vinum mín-
um langt frá heimili mínu og
vinnustað en vegfarendur mundu
eftir mér og það kunni ég vel að
meta.“
Stórt hjarta
Jessica hefur unnið hjá Flug-
leiðum síðan í mars 1999, en tók
við stöðvarstjórastarfinu í desem-
ber í fyrra. Hún vann áður í 14 ár
hjá bandaríska flugfélaginu North
West Airlines, sem er einmitt með
höfuðstöðvar sínar í Minneapolis,
og sem slík aðstoðaði hún Flug-
leiðir við að koma sér fyrir á flug-
vellinum. Að undanförnu hafa ver-
ið sex flugferðir á viku á sumrin
en fjórar á veturna. Jessica er eini
starfsmaður Flugleiða í Minnea-
polis, er með skrifstofu á flugvell-
inum og sinnir því sem sinna þarf,
hvort sem það tengist farþegum,
farangri þeirra eða frakt. NWA
sér um almenna þjónustu og fjórir
starfsmenn félagsins aðstoða Jes-
sicu við innritunina. „Það hjálpar
mér í þessu starfi að hafa unnið
hjá North West,“ segir hún. „Ég
veit hvernig félagið starfar og
starfsmönnum þess er kunnugt
um þarfir mínar en vegna þessa
gagnkvæma skilnings ganga hlut-
irnir upp. Hins vegar er því ekki
að neita að stundum þarf ég að
vera á þremur stöðum í einu.“
Eins og gefur að skilja ferðast
nær allir íslenskir gestir til Vest-
urheims með Flugleiðum og síðan
í apríl 1998 hafa mjög margir
þeirra farið um Minneapolis, en þá
hófu Flugleiðir áætlunarflug til
borgarinnar. Á svæðinu eru marg-
ir af norrænum uppruna og þeir
sem fara frá Minneapolis til Norð-
urlandanna notfæra sér gjarnan
þjónustu félagsins. Að sögn Guð-
jóns Arngrímssonar, upplýsinga-
fulltrúa Flugleiða, flutti félagið
um 50 þúsund farþega á flugleið-
inni milli Minneapolis og Íslands
fyrsta árið og hefur þeim fjölgað
mikið síðan. Jessica segir að fjölg-
un farþega megi rekja til mjög
góðrar þjónustu við farþegana.
Eins hafi vinsældir Íslands sem
áfangastaðar aukist og hafa beri í
huga norrænan uppruna margra
íbúa Minneasota. Á sumrin leiti
Bandaríkjamenn af norrænum
ættum oft uppruna síns og þá
ferðist fjölskyldurnar gjarnan til
Norðurlandanna, en allir áfanga-
staðir Flugleiða í Evrópu séu
reyndar vinsælir. „Það tók tíma að
festa rætur enda eru íbúar Minne-
sota íhaldssamir í eðli sínu og
tregir til að breyta. Þeir hafa allt-
af haft North West og það tók þá
tíma að samþykkja nýtt flugfélag.
Ég hef alltaf sagt að við værum
lítið flugfélag með stórt hjarta og
lagt áherslu á að byggja upp gott
samband við viðskiptavinina með
þeim árangri að þeir koma aftur
ár eftir ár.“
Vinalegt umhverfi
Hún leggur áherslu á að farþeg-
arnir á austurleið komi alls staðar
frá. „Minneapolis er vel í sveit
sett í sambandi við tengiflug og
við njótum góðs af því – fáum ekki
bara farþega frá næsta umhverfi
heldur líka frá vesturströndinni og
Kanada svo dæmi séu tekin. Auk
þess ekur fólk til Minneapolis frá
til dæmis Norður- og Suður-
Dakota, Iowa, Kansas, Wisconsin
og Illinois til að fljúga með okkur.
Eftir 11. september í fyrra skiptir
líka máli hérna að Flugleiðir eru
erlent flugfélag, því hryðjuverk
hafa fyrst og fremst beinst að
bandarískum flugfélögum. Auk
þess erum við lítið félag sem ekki
fer mikið fyrir í samanburði við
stóru, bandarísku félögin og við
höfum sannað okkur í samkeppn-
inni.“
Glaðlyndi og kátína eru áber-
andi í fari Jessicu og aðspurð seg-
ir hún að ekkert vandamál hafi
verið svo stórt að ekki hafi verið
hægt að leysa það, en það megi
meðal annars þakka góðu og
traustu aðstoðarfólki, sem hafi
starfað með henni í þrjú og hálft
ár. Eins hafi aðstaðan mikið að
segja. „Þó að flugstöðin hérna sé
stór er auðvelt að rata um bygg-
inguna. Minnesota er vingjarnlegt
ríki og flugvöllurinn vinalegur.“
„Íslensk“ áhugamál
Hún er frá Norður-Wales og
þar fékk hún áhuga á að renna sér
á skíðum auk þess sem hún tók
ástfóstri við Liverpool í ensku
knattspyrnunni. „Kevin Keegan,
fyrrverandi leikmaður Liverpool,
bjó rétt hjá góðum vinum mínum
og ég fór stundum út að ganga
með hundinn hans.“
Á sumrin fljúga Flugleiðir m.a.
á sunnudögum til og frá Minnea-
polis, en ekki á veturna og því átti
Jessica allt í einu frí síðastliðinn
sunnudag. „Ég er alltaf í vinnunni
og vissi ekki hvað ég átti að gera
af mér en nýtti tímann til að
standsetja kjallarann heima. Ann-
ars þykir mér gaman á skíðum og
fer gjarnan til Montana á skíði
þegar ég á frí á veturna. En fram-
undan er flug og því þýðir ekki að
hugsa um frístundir.“
Brosandi
við komu og
brottför
Flugvöllurinn í Minneapolis í Bandaríkjunum er ein helsta tenging gesta á leið til Íslendinga-
byggða í Vesturheimi. Jessica Ginger, stöðvarstjóri Flugleiða í Minneapolis, er allt í öllu hjá félag-
inu á flugvellinum og fékk Steinþór Guðbjartsson ýmislegt að heyra hjá henni á vellinum.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Jessica Ginger, stöðvarstjóri Flugleiða í Minneapolis, framan við skrifstofu
sína á flugvellinum.
steg@mbl.is
ÍSLENSKA karlalandsliðið
mætti Indónesíu í sjöttu umferð
Ólympíumótsins í Bled, en konurn-
ar tefldu við lið Bangladesh. Báð-
um viðureignunum lauk með jafn-
tefli. Jón Garðar Viðarsson var sá
eini sem sigraði
andstæðing sinn
í karlaliðinu, en
þeir Hannes
Hlífar Stefáns-
son og Stefán
Kristjánsson
gerðu jafntefli.
Indónesía er í
55. sæti í styrk-
leikaröðinni og
meðalstig sveit-
arinnar eru
2.425. Á tímabili gerðu menn sér
vonir um góðan sigur Íslands, en
smám saman varð ljóst að þær von-
ir mundu ekki rætast og úrslitin
urðu 2–2:
1. N. Situru (2.377) – Hannes
½–½
2. Þröstur Þórhallss. – C. Barus
(2.479 ) 0–1
3. S. Megaranto (2.420) – Stefán
½–½
4. Jón Garðar – A. Wahono
(2.386 ) 1–0
Bangladesh er í 58. sæti í styrk-
leikaröðinni í kvennaflokki og því
nokkru stigahærra en íslenska lið-
ið. Enn á ný kom íslenska liðið þó á
óvart og mesta athygli vakti glæsi-
leg taflmennska Guðfríðar Lilju
Grétarsdóttur sem kom andstæð-
ingum sínum á óvart með skemmti-
legri mannsfórn sem leiddi til sig-
urs. Harpa Ingólfsdóttir gerði
jafntefli, en Aldís Rún Lárusdóttir
tapaði. Lokaúrslitin urðu því
1½–1½.
Guðfríður Lilja – R. Hamid
(2.148) 1–0
S. Zakia – Harpa ½–½
Aldís Rún – A. Khanam (2.029)
0–1
Eftir sex umferðir hefur karla-
liðið 13½ vinning, en konurnar 9½
vinning. Rússar leiða í karlaflokki
og hafa fengið 18½ vinning eftir yf-
irburðasigur gegn Bosníu 3½–½. Í
kvennaflokki leiða Georgíukonur
með 15 vinninga, en þær sigruðu
Hollendinga 3–0.
Frábær frammistaða
Ingvar Ásmundsson virðist
óstöðvandi og sigraði alþjóðlega
meistarann Vladimir Karasev sem
er með 2.450 skákstig í níundu um-
ferð Heimsmeistaramóts öldunga í
Naumburg í Þýskalandi. Hann er
nú í 2.–10. sæti á mótinu. Í 10. og
næstsíðustu umferð mætir Ingvar
stórmeistaranum og píanóleikaran-
um Mark Taimanov sem er með
2.406 skákstig. Taimanov er vel
þekktur í skáksögunni. Hann tefldi
hér á landi á Reykjavíkurskák-
mótinu 1968, Fiske-mótinu. Hann
sigraði á mótinu ásamt landa sín-
um E. Vasjukov, en Friðrik Ólafs-
son varð í þriðja sæti. Ingvar var
ekki með í því móti. Einna þekkt-
astur er Taimanov fyrir áskorenda-
einvígið við Bobby Fischer í Van-
couver í Kanada 1981. Líklega er
Taimanov löngu búinn að gleyma
því einvígi, enda tapaði hann 6–0.
Hann gat þó huggað sig við að vera
ekki sá eini til að sæta þeim örlög-
um að tapa með núlli gegn Fischer
í áskorendaeinvígi. Sigur Fischers
í áskorendaeinvígjunum tryggðu
honum réttinn til að tefla við
Spassky hér í Reykjavík 1972.
Taflfélag Garðabæjar og
ChessBase í samstarf
Taflfélag Garðabæjar og Chess-
Base hafa gert með sér samstarfs-
samning. Við framkvæmd samn-
ingsins verður lögð áhersla á gott
samstarf við félög um allt land,
Skákskólann og SÍ. Þessi samning-
ur gerir TG kleift að bjóða börnum
og unglingum (6–16 ára) um allt
land aðgang að skákþjóninum
www.playchess.com þeim að kostn-
aðarlausu í eitt ár. TG mun bjóða
félagsmönnum þeirra aðildarfélaga
SÍ sem þess óska upp á það sama.
TG hefur undirbúið mót fyrir
U-20 ára landslið Íslands, Þýska-
lands, Frakklands og Svíþjóðar, en
mótið fer fram á skákþjóni þeirra
og er liður í Guðmundar Arasonar-
hátíðinni sem er upphitunarhátíð
fyrir úrslitaleikinn í Bikarkeppni
ÍAV. TG og Chessbase halda mótið
í sameiningu og fá allir þátttak-
endur Friz 7-skákforritið fyrir
þátttökuna í boði TG og Chess-
Base.
Annað mót í sömu hátíð verður í
beinu framhaldi af U-20-mótinu á
sama skákþjóni. Í því taka þátt
u.þ.b. 40 manns. Þar verða öll lið
U-20-mótsins, auk varamanna og
liðsstjóra, tveir frá TG, tveir frá
þeim liðum sem detta úr undan-
úrslitunum og sex efstu á úrtöku-
móti sem fer fram á skákþjóninum.
Heildarverðlaunafé á þessu móti
verður bæði í formi peninga og
skákforrita. Fyrstu verðlaun verða
t.d. 250 evrur.
Hinn 8. desember verður síðan
mót fyrir efnilega þýska og ís-
lenska skákmenn á skákþjóninum.
Leiðbeiningar á íslensku um skák-
þjóninn verða settar upp á heima-
síðu TG.
Halló!-mót á sunnudag á ICC
Taflfélagið Hellir, Halló! og ICC
standa sameiginlega að 10 móta
röð á ICC sem kallast Bikarsyrpa
Halló! Sjöunda mótið fer fram 3.
nóvember, en það síðasta verður
haldið 24. nóvember og verður það
jafnframt Íslandsmótið í netskák.
Þeir sem hafa teflt í einhverju af
fyrri mótum bikarsyrpunnar þurfa
ekki að skrá sig, heldur er nægi-
legt að tengjast ICC fyrir kl. 20:00
á sunnudagskvöld. Aðrir þurfa að
skrá sig á www.hellir.is
Tefldar verða níu umferðir. Um-
hugsunartími er fjórar mínútur á
skák auk þess sem tvær sekúndur
bætast við eftir hvern leik.
Góð verðlaun verða í boði bæði
fyrir Bikarsyrpuna og svo sjálft Ís-
landsmótið, en sigurvegarinn á
báðum viðburðum fær ADSL-teng-
ingu frá Halló! í eitt ár. Jafnframt
gefur ICC frímánuði í verðlaun.
Alls munu tuttugu skákmenn
taka þátt í landsliðsflokki Íslands-
mótsins í netskák sem verður loka-
punktur Bikarkeppninnar, en það
verða þeir tuttugu sem flesta vinn-
inga hafa í átta mótum í Bikar-
syrpu Halló! fyrir Íslandsmótið.
Aðrir skákmenn tefla í opnum
flokki.
Bikarsyrpa Halló! á ICC er
keppni um hver fær flesta vinninga
samtals í átta af tíu mótum syrp-
unnar. Vinningar í landsliðsflokki
Íslandsmótsins gilda tvöfalt.
Röð efstu manna í Bikarsyrp-
unni:
1. Björn Þorfinnsson 43½ v.
2. Snorri G. Bergsson 38 v.
3. Rúnar Sigurpálsson 35 v.
4. Arnar E. Gunnarsson 34½ v.
5. Hrannar Baldursson 33½ v.
6. Arnar Þorsteinsson 33 v.
7.–8. Davíð Ólafsson og Magnús
Magnússon 32½ v.
9. Gunnar Björnsson 32 v.
10. Gylfi Þórhallsson 30½ v.
Undir 2.100 stigum:
1. Hrannar Baldursson 33½ v.
2. Magnús Magnússon 32½ v.
3. Gunnar Björnsson 32 v.
Undir 1.800 stigum:
1. Tómas Veigar Sigurðarson
21½ v.
2. Sigurður Ingason 21 v.
3. Atli Antonsson og Þórður
Hrafnsson 16½ v.
Stigalausir:
1. Þórður Hrafnsson 16½ v.
2. Hlynur Gylfason 13 v.
3. Sveinn Rúnar Eiríksson 4 v.
Nánari upplýsingar um bikar-
syrpuna er að finna á www.hellir.is.
Atkvöld hjá Helli á mánudag
Taflfélagið Hellir heldur atkvöld
mánudaginn 4. nóvember og hefst
mótið kl. 20. Fyrst verða tefldar
þrjár hraðskákir þar sem hvor
keppandi hefur fimm mínútur til að
ljúka skákinni og síðan þrjár at-
skákir með tuttugu mínútna um-
hugsun.
Sigurvegarinn fær verðlaun, mat
fyrir tvo frá Dominos-pítsum. Þá
verður annar keppandi dreginn út
af handahófi, sem einnig fær máltíð
fyrir tvo hjá Dominos-pítsum. Þar
eiga allir jafna möguleika, án tillits
til árangurs á mótinu.
Þátttökugjald er kr. 300 fyrir fé-
lagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og
yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300
fyrir 15 ára og yngri). Teflt verður
í Hellisheimilinu, Álfabakka 14a í
Mjódd. Allir velkomnir.
Jafntefli við Indónesíu
og Bangladesh
SKÁK
Bled, Slóvenía
25. okt. – 10. nóv. 2002
35. ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ
Daði Örn Jónsson
Jón Garðar
Viðarsson