Morgunblaðið - 02.11.2002, Qupperneq 65
DAGBÓK
66 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Laug-
arnes kemur í dag.
Bjarni Ólafsson fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Bremo kemur í dag.
Mannamót
Eldri borgarar. Sameig-
inlegur fundur með fé-
lögum eldri borgara í
Hafnarfirði, Bessa-
staðahreppi, Garðabæ
og Kópavogi verður í
Kirkjuhvoli, Garðabæ, í
dag, laugard. 2. nóv., kl.
14. Alþingismönnum
Reykjaneskjördæmis
hefur verið boðið á fund-
inn. Félögin hvetja eldri
borgara til að mæta á
fundinn.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Morg-
ungangan kl. 10 frá
Hraunseli. Á mánudag
púttað í Hraunseli kl.
10, félagsvist kl. 13.30.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Mánud.: Kl. 16 leikfimi.
Fimmtud.: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bóka-
safnið, kl. 15–16 bóka-
spjall, kl. 17–19 æfing
kórs eldri borgara í
Damos. Laugard.: kl.
10–12 bókband, línudans
kl. 11. Námskeið í postu-
línsmálun byrjar 18.
nóv. Skráning í s.
586 8014 e.h
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmud.: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Ferð í Borg-
arleikhúsið í kvöld kl. 20
að sjá Kryddlegin
hjörtu. Rúta frá Kirkju-
hvoli kl. 19.30. Kynning
frá Lyfju í Garðabergi
mánud. 4. nóv. kl. 14,
veitingar, spilað og
sungið. Opið hús í Holts-
búð 6. nóv. kl. 13.30 spil-
að o.fl. Bridgenámskeið
byrjar 6. nóv. í Garða-
bergi kl. 13 og verður 5
miðvikud. fyrir jól og 5
miðvikud. eftir jól.
Skráning hjá Hönnu í s.
565 6838 eða Margréti í
s. 820 8571. Allir vel-
komnir. Byrjenda-
námskeið í spænsku
byrjar 7. nóv. kl. 17.
Skráning hjá Margréti í
s. 820 8571 eftir hádegi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is. Kaffistofan
er lokuð vegna breyt-
inga í Glæsibæ.
Sunnud.: Dansleikur kl.
20 Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Mánud.: Brids kl.
13. Línudans fyrir byrj-
endur kl. 18. Dans-
kennsla í samkvæm-
isdönsum framhald kl.
19, byrjendur kl. 20.30.
Þriðjud.: Skák kl. 13, al-
kort spilað kl. 13.30.
Miðvikud.: Göngu-
Hrólfar ganga frá Ás-
garði kl. 10, söngvaka
kl. 20.45. Umsjón Sig-
urbjörg Hólmgríms-
dóttir. Baldvin Tryggva-
son verður með
fjármálaráðgjöf
fimmtud.7. nóv. Panta
þarf tíma. Árshátíð
FEB verður í Ásgarði,
Glæsibæ, föstud. 15.
nóv. Húsið opnað kl. 18,
borðhald hefst kl. 19.
Veislustjóri sr. Hjálmar
Jónsson. Hátíðarræðu
flytur Ellert B. Schram.
Þorvaldur Halldórsson
syngur og stjórnar
fjöldasöng. Jóhannes
Kristjánsson fer með
gamanmál. Kórsöngur
Söngfélags FEB.
Hljómsveitin Upplyfting
leikur fyrir dansi. Fé-
lagar fjölmennið. Miða-
pantanir á skrifstofu
FEB. Silfurlínan er opin
á mánu- og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12, s.
588 2111. Félagsstarfið
er áfram í Ásgarði,
Glæsibæ.
Gerðuberg, félagsstarf.
Myndlistarsýning
Brynju Þórðard. opin í
dag og á morgun frá kl.
13–16. Fölbreytt vetr-
ardagskrá. Miðvikudag-
inn 13. nóv. heimsókn til
eldri borgara í Rang-
árþingi, m.a. skemmti-
dagskrá í félagsheim-
ilinu Hvoli, skráning
hafin. Allar upplýsingar
um starfsemina á staðn-
um og í síma 575 7720.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Púttað á
Listatúni í dag kl. 10.30.
Vesturgata 7. Mánud. 4.
nóv. kl.13 veitir lyfja-
fræðingur lyfjaráðgjöf,
mælir blóðþrýsting og
svarar fyrirspurnum,
kaffiveitingar á eftir, all-
ir velkomnir. Fimmtud.
7. nóv. kl.10.30 verður
helgistund í umsjón séra
Hjálmars Jónssonar
dómkirkjuprests, kór
Félagsstarfs aldraðra
syngur undir stjórn Sig-
urbjargar Petru Hólm-
grímsdóttur. Myndlist-
arsýning Sigrúnar
Huldar Hrafnsdóttur er
opin virka daga á sama
tíma og þjónustu-
miðstöðin. Sýningin
stendur til 8. nóv., allir
velkomnir. Þriðjud. 19.
nóv. kemur hjúkr-
unarfræðingur og mælir
beinþéttni. Lyfjafræð-
ingur fer yfir lyfjanotk-
un. Fræðsla um lyf, vít-
amín, steinefni og fleira.
Vinsamlega pantið tíma
í viðtal í s. 562 7077.
Digraneskirkja, kirkju-
starf aldraðra. Opið hús
á þriðjud. frá kl. 11 leik-
fimi, léttur málsverður,
helgistund, fræðsluþátt-
ur, kaffi.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl. 10
laugardagsmorgna frá
Gjábakka. Krummakaffi
kl. 9. Allir velkomnir.
Félag einhleypra.
Fundur í kvöld kl. 21 í
Konnakoti, Hverfisgötu
105. Nýir félagar vel-
komnir. Munið gönguna
mánu- og fimmtudaga.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁA, Síðumúla
3–5 og í Kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigs-
veg á laugardögum kl.
10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
á Sólvallagötu 12. Stuðst
er við 12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, er opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Leiðir 10 og 110 ganga
að Kattholti.
Breiðfirðingafélagið. Á
morgun, sunnudag 3.
nóvember, kl. 14 annar
dagur í fjögurra daga
keppni. Kaffiveitingar
eftir spil.
Knattspyrnufélagið
Haukar. Bingó verður
haldið sunnudaginn 3.
nóv. kl. 17 á Ásvöllum.
Fjöldi glæsilegra vinn-
inga. Allir velkomnir.
Hallgrímskirkja eldri
borgarar. Opið hús
miðvikud. 6. nóv. kl. 14,
einsöngvararnir Erna
Blöndal og Örn Arn-
arson syngja, hugvekju
flytur sr. Jón Bjarman,
allir velkomnir. Leikfimi
fyrir eldri borgara er
þriðju- og föstudaga kl.
13. Jóhanna Sigríður
Sigurðardóttir sjúkra-
þjálfari annast leikfim-
ina.
Félag breiðfirskra
kvenna. Fundur mánud.
4. nóv. kl. 20, jólabingó,
ferðasaga, kaffi, skrán-
ing á jólafundinn.
Barðstrendingafélagið.
Basar verður haldinn í
Breiðfirðingabúð, Faxa-
feni 14 í dag kl. 14.
Vestfirðingafélagið í
Reykjavík heldur bað-
stofukvöld í kvöld, 2.
nóv., kl. 20 í Gjábakka,
Fannborg 8, Kópavogi.
Safnaðarfélag Graf-
arvogskirkju heldur
fund mánud. 4. nóv. kl.
20. Allir velkomnir.
Lífeyrisdeild Lands-
sambands lögreglu-
manna. Sunnudags-
fundur deildarinnar
verður á morgun, 3.
nóv., í félagsheimili LR í
Brautarholti 30 kl. 10.
Félagsmenn fjölmennið.
Í dag er laugardagur 2. nóvember,
306. dagur ársins 2002. Allra sálna
messa. Orð dagsins: Þess vegna,
mínir elskuðu bræður, verið stað-
fastir, óbifanlegir, síauðugir í verki
Drottins. Þér vitið að erfiði yðar er
ekki árangurslaust í Drottni.
(1 Kor. 15, 58.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 vandræðaleg, 8 þutum,
9 sjaldgæf, 10 bors, 11
verkfærin, 13 manns-
nafn, 15 fjárreksturs, 18
skriðdýrið, 21 álít, 22
fangbrögð, 23 afkomend-
ur, 24 vaxtarlag.
LÓÐRÉTT:
2 ljúf, 3 stúlkan, 4 hegna,
5 gosefnið, 6 liðið hjá, 7
innyfli, 12 greinir, 14
væn, 15 fokka, 16 heil-
brigð, 17 bikar, 18 hafði
lifað lengur, 19 horfðu,
20 fæða.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 áræði, 4 himna, 7 óskin, 8 gæðin, 9 afl, 11 nýra,
13 hrút, 14 undir, 15 þrær, 17 ábót, 20 hin, 22 gella, 23
ennið, 24 regns, 25 ausum.
Lóðrétt: 1 ásókn, 2 æskir, 3 iðna, 4 hagl, 5 múður, 6 af-
not, 10 fæddi, 12 aur, 13 hrá, 15 þægur, 16 ærleg, 18
bónus, 19 tíðum, 20 haus, 21 nema.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI átti leið heim fráBandaríkjunum í vikunni, flug-
leiðis með Flugleiðum, sem vart telst
til stórtíðinda hjá þessari vorri ferða-
glöðu þjóð. Að venju ferðaðist Vík-
verji á almennu farrými, svonefnd-
um „Business Class“, og fór ljómandi
vel um hann. Á flugvellinum vestra
hafði Víkverji hinsvegar hitt kunn-
ingja sinn, sem sömuleiðis var á
heimleið með sömu vél, þannig að
Víkverji og kunninginn hugsuðu sér
gott til glóðarinnar að eiga gott spjall
á heimleið. Við könnun á því hvar
kunninginn sæti, um miðbik farar-
innar eða svo, kom á daginn að úr
vöndu var að ráða, því kunninginn
var á Saga-farrými. Við nánari skoð-
un kom þó á daginn að sessunautur
kunningjans hafði brugðið sér frá,
þannig að Víkverji sá sér leik á borði
að smeygja sér í Saga-sætið í fjar-
veru hans, þegar kunninginn gaf
honum vink þar um. En hann komst
ekki upp með neina slíka ósvífni, því
sætalögregla Flugleiða, í gervi afar
strangrar flugfreyju, var umsvifa-
laust mætt á svæðið og sagði ströng-
um rómi: „Veistu, þetta er strang-
lega bannað! Má ég biðja þig að fara
þegar í stað í sæti þitt aftur í vél?“
Víkverji hundskaðist auðvitað þegar
í stað aftur í með djúpt andlegt skó-
far á afturendanum og tók sér sæti í
almenningnum og dauðskammaðist
sín fyrir framhleypnina, að hafa ætl-
að að eiga orðastað við kunningja
sinn, og hugsaði sem svo að það hlyti
að teljast algjört aukaatriði að kunn-
inginn hafði boðið honum sæti. Hvað
átti hann með það? Hann var að
brjóta sætareglur Flugleiða með
boðinu.
x x x
OG TALANDI um flug. Sjón-varpsþættirnir um Sögu flugs-
ins á Íslandi hafa vakið áhuga Vík-
verja. Þeir eru með afbrigðum
vandaðir og augljóst á öllu að heil-
mikil vinna hefur verið lögð í þá,
jafnt öflun heimilda sem úrvinnslu
þeirra. Tæknilega eru þættirnir og
með því besta sem sést hefur í ís-
lenskri heimildarmyndagerð. Einn
vankantur hefur þó verið á þáttun-
um, sjálf frásögnin, en hún hefur ver-
ið fulllaus í reipunum og vaðið um of
úr einu í annað. Þessi hætta er fyrir
hendi þegar reynt er að segja langa
og umfangsmikla sögu í réttri tíma-
röð. Hefði Víkverja því í þessu tilfelli
þótt gagnlegra að sjá frásögnina efn-
isskipta, að hvert viðfangsefni fyrir
sig, farmflugið, farþegaflugið, innan-
landsflugið, sjúkraflugið, flugum-
ferðarstjórn o.fl. hefði verið afgreitt
alfarið áður en farið yrði yfir í annað.
x x x
OG ENN um flug. Nýlega til-kynntu tvö flugfélög að á næsta
ári hygðust þau hefja lággjaldaflug
milli Íslands og meginlands Evrópu.
Húrra fyrir því. Lifi samkeppnin!
Þvílík himnasending sem þessi lág-
gjaldaflugfélög hafa reynst. Sum
hver þeirra hafa blómstrað og strítt
þeim gömlu ráðsettu allrækilega
enda hafa þau líka sýnt það sem Vík-
verji hefur alltaf verið sannfærður
um; neytendur vilja fyrst og fremst
geta ferðast ódýrt milli landa, jafnvel
þótt það þýði að þurfa að svelta í
heila tvo og hálfan tíma! Láta sig
hafa það að verða af heitri þriggja
rétta máltíð OG áfengum veigum til
að skola henni niður með. Það sem
menn eru tilbúnir að leggja á sig
vegna útþrárinnar!
Athugasemd
Í RÍKISSJÓNVARPINU
er byrjað að sýna fróðlegan
þátt sem nefnist Hafið, bláa
hafið, og er búið að sýna
fyrsta þátt af átta.
Í þætti sem þessum þar
sem þulur gegnir miklu
hlutaverki er röddin eins
mikilvæg og þátturinn
sjálfur og skiptir máli að
röddin sé hlutlaus. Þulur-
inn í þessum þætti les með
miklum tilfinningaþunga
og virkar það eins og verið
sé að lesa draugasögu og
finnst mér það skemma
fyrir þættinum.
Sjónvarpsáhorfandi.
Vantar ungt fólk
á Alþingi
ÉG er eldri maður sem
fylgist með fundarstörfum
Alþingis.
Í DV 8. okt. sl. var frétt
um að sumir þingmenn sjá-
ist aldrei í þingsal eða
ræðustól og voru sex þing-
menn nafnkenndir. Er ég
þessu sammála og man ég
ekki eftir að hafa séð þetta
fólk halda ræðu um eitt eða
annað og finnst mér að þeir
sem kosnir eru á þing ættu
að stíga í ræðustól annað
slagið.
Eins finnst mér vanta
ungt fólk á Alþingi og ættu
eldri þingmenn að víkja til
hliðar fyrir yngra fólki því
þarna vantar endurnýjun.
Óskar.
Erum við
að tapa áttum?
Í GÆRKVELDI lá leið
mín í Smáralindina í bíóhús
og langar mig að segja frá
þeirri ferð.
Þegar ég kem gangandi
inn eftir Smáralindinni sé
ég að kona ein tekur á rás
og hleypur hvað hún getur
lít ég þá til hliðar og sé hvað
það er sem hún hleypur út
af, og hleyp ég þá strax af
stað, litli drengurinn henn-
ar hafði klifrað upp eftir
rúllustiganum utanverðum
og var að missa takið, hann
hefur verið um 4 ára gam-
all, hann missir takið og er-
um við báðar of seinar að ná
til hans og dettur hann í
gólfið með miklum skelli.
Ekki veit ég hvort hann
hefur slasast við þetta en
við fyrstu athugun hafði
hann fengið kúlu á höfuðið
og skældi mikið.
Móðirin var að sjálfsögðu
í miklu uppnámi og fékk
sjokk þar sem ekki mátti
miklu muna að illa færi.
Þarna dreif að mann með
talstöð sem ég vænti að sé
frá Smáralindinni og talaði
við móðurina.
Það sem á mér brennur
mest er að enginn skyldi
gefa þessu gaum, það var
fólk allt í kring þar sem
þetta var við miðasöluna í
bíóinu. Hvers vegna erum
við orðin svona afskiptalus?
Við gefum ekki náunganum
gaum og látum hjá líða að
taka í taumana.
Íslendingar, vöknum og
berum meiri umhyggju fyr-
ir náunganum og því sem
er að gerast í kringum okk-
ur.
Einnig tel ég að starfs-
fólk Smáralindar megi at-
huga þetta með rúllustig-
ana þar sem litlir fætur
eiga auðvelt með að komast
meðfram stiganum og er
þetta slysagildra.
Birna.
Tveir hundar
í óskilum
TVEIR hundar eru í óskil-
um á Hundahótelinu Leir-
um; terrier tík grá/hvít/
svört smávaxin og blend-
ings-hvolpur svart-
ur/brúnn. Eigendur eru
vinsamlega beðnir að vitja
þeirra strax.
Upplýsingar í síma
566 8366 og 698 4967.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÞEGAR vetrarfrí skól-
anna eru og börnin í fríi
eru alltaf einhver börn
sem þurfa að vera í skól-
anum í lengri viðveru
vegna þess að foreldrar
þeirra geta einhverra
hluta vegna ekki tekið
sér frí frá vinnu, eða eiga
ekki rétt á vetrarorlofi.
Finnst mér þetta ósann-
gjarnt vegna barnanna,
þau þurfa jú að mæta í
skólann þó ekki sé verið
að kenna.
Er ekki tímabært að
fólk íhugi fyrir hvern
þessi vetrarfrí eru? Skól-
inn er vinna barnanna og
eru þessi frí sett á sam-
kvæmt lögum. Held ég að
allir hafi gott af þessu
fríi, bæði foreldrar og
börn, og þarna gæti
skapast tími fyrir góða
samveru foreldra og
barna.
Eða getur verið að það
sé til fólk sem finnist það
óþarfi að taka sér frí til
að vera hjá börnum sín-
um í vetrarfríum?
Var ég að velta því fyr-
ir mér hvort atvinnurek-
endur gætu ekki komið
til móts við foreldra, ann-
að hvort með því að gera
þeim auðveldara að taka
sér frí á þessum tíma eða
skapað aðstæður fyrir
börnin á vinnustað.
Veit ég að í Noregi
koma vinnuveitendur til
móts við foreldra og fá
foreldrar frí til að vera
heima hjá börnunum í
vetrarfríi.
Skólaliði.
Fyrir hvern er vetrarfrí í skólum?