Morgunblaðið - 02.11.2002, Side 66
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 67
DAGBÓK
SUÐUR spilar sex hjörtu. Í
sögnum hefur hann viðrað þá
hugmynd að spila alslemmu
og því er heiðurinn í húfi að
fara ekki niður á hálfslemmu:
Norður
♠ Á72
♥ DG107
♦ Á965
♣G2
Suður
♠ K4
♥ ÁK986
♦ KD84
♣Á10
Vestur Norður Austur Suður
– 1 tígull Pass 1 hjarta
Pass 2 hjörtu Pass 4 grönd
Pass 5 spaðar Pass 5 grönd
Pass 6 hjörtu Allir pass
Fjögur grönd er spurning
um lykilspil og norður kveðst
eiga tvo ása og drottninguna
í trompi. Með fimm gröndum
er suður að leita eftir ósögð-
um styrk sem gæti dugað í
sjö, en norður á ekkert af-
gangs og slær af í sex hjört-
um.
Vestur spilar út spaða-
drottningu. Suður tekur
slaginn heima og aftrompar
AV í tveimur umferðum.
Hvernig á hann nú að
tryggja tólf slagi?
Þetta er borðleggjandi spil
ef tígulinn kemur 3–2. En ef
liturinn brotnar 4–1 þarf suð-
ur að vanda sig: Hann byrjar
á því að trompa út spaðann.
Tekur síðan einn slag á tígul
heima og spilar loks laufás og
laufi:
Norður
♠ Á72
♥ DG107
♦ Á965
♣G2
Vestur Austur
♠ DG10 ♠ 98653
♥ 53 ♥ 42
♦ G1073 ♦ 2
♣K984 ♣D7653
Suður
♠ K4
♥ ÁK986
♦ KD84
♣Á10
Vörnin á ekkert svar við
þessu: Ef austur tekur slag-
inn þarf hann að spila spaða
eða laufi út í tvöfalda eyðu og
þá hverfur einn tígull heima.
Og ekki er betra að vestur
taki á laufkóng og spili tígli,
því það kostar slag að hreyfa
litinn frá G107.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert fyrirhyggjusamur og
reynir að hafa allt þitt á
þurru. Þetta kunna aðrir að
meta í þínu fari.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Óvæntur gestur veitir þér
nýja sýn á mál sem þú hefur
lengi verið að glíma við.
Vertu sveigjanlegur og
gamansamur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það eru ýms tækifæri sem
bíða þín. Allir sem þú talar
við munu taka vel í hug-
myndir þínar og samþykkja
það sem þú segir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það leysir engin vandamál
að sópa þeim undir teppið.
Gefist ekki upp fyrr en í
fulla hnefana.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Allt í einu uppgötvar þú að
það sem þú hélst að væri
leyndarmál er á allra vitorði.
Vertu varkár og segðu ekk-
ert fyrr en þú ert alveg viss.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Öllu gríni fylgir einhver al-
vara svo þú skalt gæta orða
þinna og hafa aðgát í nær-
veru sálar. Sýndu öðrum þá
tillitssemi sem þarf.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Margar hendur vinna létt
verk. Sláðu ekki hendinni á
móti þeirri aðstoð sem býðst
þér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þótt mikið fjör ríki þessa
stundina og gaman sé að
taka þátt í því, máttu ekki
gleyma alvöru lífsins. Gefðu
þér samt tíma til að setjast
niður og ræða málin.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu ekki undan síga þótt
þér finnist að þér sótt úr öll-
um áttum. Vertu því á varð-
bergi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft áreiðanlega að
kyngja ýmsu til þess að
halda friðinn á vinnustaðn-
um. Haltu þig við áætlanir
þínar og fáðu alla þá í lið
með þér sem þú mögulega
getur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Margar forvitnilegar hug-
myndir rekur á fjörur þínar
þessa dagana. Vertu því
reiðubúinn að hefjast handa.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er góð regla að skrifa
niður verkefnalistann þegar
margt er á döfinni. Vertu
óhræddur við að leita að-
stoðar á þeim sviðum, sem
ekki eru á þínu valdi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Vertu á verði því eitthvað
óvænt kann að gerast í
vinnunni sem getur komið
sér illa fyrir þig ef þú ert
óviðbúinn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
SMALADRENGURINN
Út um græna grundu
gakktu, hjörðin mín;
yndi vorsins undu,
eg skal gæta þín.
Sól og vor ég syng um,
snerti gleðistreng;
leikið, lömb, í kringum
lítinn smaladreng.
Steingrímur Thorsteinsson
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5
e6 7. f4 Be7 8. Df3
Dc7 9. 0–0–0 Bd7 10.
g4 Rc6 11. Rb3 Hc8
12. Bxf6 Bxf6 13. g5
Be7 14. Kb1 b5 15.
Hd2 Ra5 16. h4 Rc4
17. Bxc4 bxc4 18.
Rd4 Hb8 19. f5 Db7
20. Rd1 g6 21. f6 Bf8
22. h5 Hg8 23. hxg6
hxg6 24. Hdh2 d5 25.
Hh8 Hxh8 26. Hxh8
dxe4
Staðan kom upp í
fyrri hluta Íslands-
móts skákfélaga sem
fór fram í húsakynn-
um B&L. Davíð Ólafsson
(2320) hafði hvítt gegn
Bergsteini Einarssyni
(2245). 27. Hxf8+! Kxf8 28.
Dh3 og svartur gafst upp
enda að verða mát.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
60ÁRA afmæli. Á morg-un, sunnudaginn 3.
nóvember, er sextug Anna
Sigmarsdóttir frá Löndum,
Vestmannaeyjum. Í tilefni
þessa býður hún vini og vel-
unnara velkomna í afmælis-
fagnað í dag, laugardaginn
2. nóvember, eftir kl. 18 í
Drífanda, húsinu við Mið-
stræti, Vestmannaeyjum.
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 2. nóv-
ember, er fimmtugur Snæ-
björn Gíslason, Spóahöfða
6, Mosfellsbæ. Eiginkona
hans er Kristín Finnboga-
dóttir. Snæbjörn er staddur
á Old Trafford í Manchester
ásamt sonum sínum.
60 ÁRA afmæli Í dag,laugardaginn 2. nóv-
ember, verður sextugur
Tómas Helgason, flugstjóri
hjá Landhelgisgæslu Ís-
lands, Sóltúni 7, Reykjavík.
Eiginkona Tómasar er Ólöf
S. Eysteinsdóttir. Tómas og
Ólöf taka á móti ættingjum
og vinum í Félagsheimili
Seltjarnarness á milli kl. 16
og 19.
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 2. nóv-
ember, er áttræð Ólöf P. Jó-
hannsdóttir frá Hellissandi,
Gautlandi 19, Reykjavík.
Þessar duglegu stúlkur, Elín Lind, Helga og Vaka, héldu
hlutaveltu og rann ágóðinn, 2.841 kr., til ABC-hjálpar-
starfs.
Hlutavelta
Augustsilk
Augustsilk
Opið í dag kl. 13-17 í Síðumúla 35 3. hæð
Heildsöluverð 100% Silki
Stutterma og langerma silkipeysur, sloppar, náttkjólar,
perlusaumaðir dúkar, pashminur o.fl.
Engin kort - lægra verð
G
æ
ð
i
á
N
e
tt
o
v
e
rð
i.
..
TILBOÐIÐ STENDUR
til 10. nóv.
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
35% afsláttur af öllum Nettoline
innréttingum - frábær tilboð á ELBA
og Snaigé raftækjum...
NÚ ER LAG!35%
Eldhús Bað Fataskápar Þvottahús
laugardag 2/11 kl. 10–16
sunnudag 3/11 kl. 13–16
opið aðra daga kl. 9–18
OFNAR - HELLUBORÐ - VIFTUR ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR KÆLI- OG FRYSTISKÁPAR
HELGAROPNUN:
Bowen tækni
Einföld, mild og áhrifarík meðferð
Byrjendanámskeið 4 dagar: 9.-12. nóv. 2002
Kennari er Julian Baker,
stofnandi og skólastjóri European College of Bowen Studies.
www.thebowentechnique.com
Skráning/uppl. í síma 897 7469, 699 8064 og 564 1803.
Boðið verður upp á ýmis námskeið
sem tengjast fæðingarundirbúningi:
Opnuð hefur verið ný fræðslumiðstöð
fyrir verðandi og nýorðna foreldra í
Fákafeni 9
Foreldrafræðsla
Tvíburameðgöngufræðsla
Táningameðgöngufræðsla
Sérstakir feðratímar
Nudd á meðgöngu
Heima- og vatnsfæðing
Undirbúningur f. brjóstagjöf
Um vandamál tengd brjóstagjöf
Ungbarnanudd
Ungbarnafæði og matargerð
Að njóta foreldrahlutverksins; um
fyrsta árið í lífi barnsins
Einnig verður boðið upp á námskeið eftir fæðingu:
Leiðbeinendur Magna Mater eru:
Hrefna Einarsdóttir, ljósmóðir, Active Birth leiðbeinandi og aromatherapisti.
Guðrún Ólöf Jónsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur.
Unnur B. Friðriksdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur.
Anna Eðvaldsdóttir, ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur og nuddari.
Kári Eyþórsson, ráðgjafi CMH, CHYP, PNLP, MPMLP.
Sigrún Sól Sólmundsdóttir, svæða- og viðbragðafræðingur, aromatherapisti, Kinesilegoie.
Áslaug Hauksdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur.
Katrín Edda Magnúsdóttir, ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur og brjóstaráðgjafi.
Elsa Lára Arnardóttir, sjúkranuddari.
Svala Ólafsdóttir, matgæðingur.
Hertha W. Jónsdóttir, barnahjúkrunarfræðingur.
Kristín Guðmundsdóttir, barnahjúkrunarfræðingur.
Skráning á námskeiðin fara fram í síma 533 5355
milli kl. 12.30 og 16.00 á virkum dögum. Símsvari á öðrum tíma.
Upplýsingar um námskeiðin liggja frammi á öllum heilsugæslustöðum.
Opið hús verður milli kl. 13 og 17 sunnudaginn 3. nóv.
Allir velkomnir, heitt á könnunni.