Morgunblaðið - 02.11.2002, Side 68
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 69
Laugardaginn 2. nóvember
með hljómsveitinni Þúsöld.
Kiddi K., Pétur og Simmi.
Vestfirðingadansleikur
í Ásgarði, Glæsibæ
Húsið opnað kl. 22 • Miðaverð kr. 1.000.
Í kvöld 2. nóvember
með hljómsveitinni Þúsöld.
Kiddi K., Pétur og Simmi.
EFTIR Herbergi 313 fóru hjólin að
snúast á fullu hjá Landi og sonum,
sem þá var eitt helsta ballband þjóð-
arinnar. Platan sú var metnaðarfull –
og um leið bara ári vel heppnuð – til-
raun til að brjótast undan þeim
söngvasmíðahlekkjum sem íslensk-
um ballpoppsveitum er oft gjarnt að
setja á sig. Í kjölfarið fóru erlendir
aðilar að sýna sveitinni áhuga og svo
fór að hún skrifaði undir samning við
London-Sire fyrirtækið, sem er eitt
undirfyrirtækja Warner. En ým-
islegt aftraði útgáfu erlendis, m.a.
var nefnt fyrirtæki lagt niður og
samningurinn þar með í lausu lofti.
En lögin sem til urðu á þessu tímabili
eru þó blessunarlega komin út, en
þau hefðu hæglega getað endað ofan
í skúffu. Hvað um það, gefum strák-
unum orðið.
Ekki ofan í skúffu
Birgir: „Loksins er þetta komið út.
Þessi töf tengist auðvitað þessum
málum erlendis, það er náttúrulega
stór hluti af þessari bið. Verkefni
okkar þar eru því í stoppi eins og
stendur en það breytir því ekki að
það er búið að eyða 25 milljónum í
þessa plötu og við setjum hana ekki
niður í skúffu. Hér eru allir textar á
ensku en það var hluti af þessu starfi
okkar í Bandaríkjunum. Það er ým-
islegt að gerast núna úti en við gátum
bara ekki beðið lengur.“
Hreimur: „Við hefðum helst ekki
viljað láta vita af því að við hefðum
gert samning af því að Íslendingum
er gjarnt á að blása allt svona upp.
Það er ekki eins og heimsfrægð sé á
næsta leiti en þarna fengum við færi
á því að vinna með frábæru fólki og
það hefði verið synd að láta þetta
enda ofan í skúffu. Við viljum leyfa
fólki að heyra þetta. Svona hljómar
þetta og þetta er helv... flott. Það eru
samt litlar líkur á að þessi plata komi
út erlendis í þessari mynd. Hún er
náttúrulega unnin á ákveðnu tíma-
skeiði sem markast af ákveðnum
stefnum. Þá var Blink 182 og þetta
háskólarokk í hávegum.“
B: „Jive Jones (upptökustjóri
þeirra ytra) stýrði okkur í þessa átt.
Og það var bara mjög gaman. Frá-
bært að vinna með upptökustjóra en
þetta var í fyrsta skipti sem við gerð-
um það. Einnig var þetta í fyrsta
skipti sem við vorum að vinna með
öðrum lagahöfundi.“
– Var einhver að segja ykkur að
láta upptökurnar niður í „skúffu“?
H: „Nei. Málið er það að nú er plat-
an tilbúin, við erum með samþykktan
„master“. Þrátt fyrir að London Sire
hafi verið lagt niður erum við enn þá
innan Warner kerfisins á einhverju
hringsóli. Ef eitthvað á að gerast þar
þarf maður að vera mjög þolinmóður
en við erum með fínan kall í vinnu hjá
okkur þar. Við hefðum ekki þurft að
gefa hana út núna en það var okkar
val að gera það engu að síður. Það er
líka orðið svo langt síðan síðasta
plata kom út.“
– Hvernig var eiginlega að starfa
þarna úti í Bandaríkjunum?
B: „Það sem mér fannst athyglis-
verðast er hvernig allt þarna úti ger-
ist rosalega hægt. Hér á landi er bara
hringt í Jóa frænda og hann kemur á
sendibílnum með allt sem vantar.
Hér hefur maður líka vanist því að
haga seglum eftir vindi, ef maður á
litla peninga þá reynir maður bara að
gera eins vel og efni og aðstæður
gefa tilefni til.“
H: „Þegar ég syng inn lag hér
heima er ég aldrei lengur en tvo
klukkutíma að því. Þegar ég var að
syngja fyrir Jive tók það heilan dag
og fullkomnunaráráttan kom okkur
svolítið í opna skjöldu.“
Mikið kjaftæði í gangi
– Finnst ykkur þið hafa náð fram
því sem þið stefnduð að með þessari
plötu?
H: „Ja ... kannski fórum við jafnvel
of langt á stöku stað. Það er mjög erf-
itt að átta sig á því sem maður er með
í höndunum þegar vinnslan stendur
yfir. En eftir á heyrir maður kannski:
„Ah, við fórum kannski aðeins of
langt þarna...“
B: „Á plötunni eru fjögur lög sem
við eigum alveg sjálfir („Smile“,
„Blowing you up“, „If“ og „Happy“).
Þar er hægt að heyra hvernig við
hljómum. Eins og t.d. í „Smile“.“
H: „Það má eiginlega segja að við
höfum fundið okkur svolítið í þessum
lögum og þau marka svolítið framtíð-
arstefnuna okkar. Hún verður ekki
eins nýjabrumsvæn og heyra má á
þessari plötu og við ætlum að reyna
að fara að vera aðeins fullorðnari
(hlær). Þessi plata er ákveðin byrjun
á ákveðnum verkefnum hjá okkur.“
– Þannig að þið eruð ekki orðnir
fráhverfir þessum útlenda bransa
þrátt fyrir þessar tafir?
B: „Alls ekki. Við gerum okkur líka
grein fyrir því að við erum ekki leng-
ur nýir á markaðnum. Við misstum
t.d. alveg ábyggilega einhverja aðdá-
endur með Herbergi 313, þar sem
það er bara þannig plata. Núna erum
við ábyggilega að missa einhverja á
líkan hátt en við fáum líka nýja inn í
staðinn.“
– Hvað með næsta ár?
H: „Það liggja fyrir upptökur strax
í nóvember. Ég get liggur við lofað
því að það kemur plata á næsta ári.
Við bara getum ekki beðið lengur.
Ég er búinn að semja aragrúa af lög-
um og það þarf að fara að losa þetta
út. Ég vil undirstrika það að allt sem
við gerum er ætlað númer 1, 2 og 3
fyrir Ísland. Þó svo að við höfum gert
samning úti þá er það bara bónus.“
Hreimur segir það t.d. hafa verið
mjög gaman að fá tækifæri til að
vinna með þekktu fólki.
„Þetta voru menn sem tóku eina
og hálfa milljón á dag fyrir að hljóð-
blanda eitt lag. Einn þeirra, Tom
Lord-Alge, gaf sér ekki meira en sex
tíma; að því loknu hætti hann.“
Þeir bera fólkinu sem þeir störf-
uðu með vel söguna en höfðu þó var-
ann á eins og sönnum Íslendingum
sæmir.
H: „Það er mikil hlýja í gangi og
allir mjög kurteisir. En maður finnur
líka að það er mikið kjaftæði í gangi.
Þetta eru óskaplegir hákarlar; allt er
voðalega frábært og æðislegt, burt-
séð frá gæðunum. En það var hægt
að sjá á þeim sem stóðu okkur næst
hvað væri satt og hvað ekki.“
– En eruð þið tilbúnir ef kallið
kemur; ef hlutirnir færu að ganga
eins og í sögu allt í einu?
B: „Ef það væri hringt í okkur í
kvöld og við værum beðnir um að
troða upp einhvers staðar í Banda-
ríkjunum á morgun, þá erum við
klárir. Við höfum mikla trú á þessari
hljómsveit. Við erum með gríðarlega
spilareynslu, okkur líður vel saman í
bandinu og við gefum þessum bönd-
um úti ekkert eftir.“
H: „Þetta er það sem við viljum
gera númer 1, 2 og 3 og þetta er í
raun það eina sem við höfum verið að
gera undanfarin fjögur ár.“
Happy Endings er nú komin í búð-
ir. Þess ber að geta að 30. október
kom platan út í takmörkuðu upplagi í
forláta pappírsumbúðum þar sem er
að finna sjö aukalög. M.a. prufuupp-
tökur af „If“ og „Blowing you up“ og
tónleikaútgáfu af „Summer“.
Land og synir hafa eytt miklum tíma í gerð nýju plötunnar.
Gátum ekki
beðið lengur
Þriðja plata Lands og sona, Happy Endings, er
loksins komin út. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi
við þá Hreim Heimisson og Birgi Nielsen um erfiða
en um leið ánægjulega vinnu við þennan grip.
arnart@mbl.is
Land og synir gefa út Happy Endings