Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Valkostur
vandlátra
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
DELTA hf., dótturfélag Pharmaco hf., hefur gert
samstarfssamning við lyfjafyrirtækið Purepac
Pharmaceutical Co., dótturfélag Alpharma Inc. í
Bandaríkjunum, um þróun samheitalyfja fyrir
Bandaríkjamarkað. Samkvæmt samningnum
verða lyf þróuð af Delta en framleidd og markaðs-
sett af Alpharma. Áætlað er að samningurinn byrji
að skila Delta tekjum á árinu 2005.
Róbert Wessman, forstjóri rekstrar Pharmaco,
segir að áætlað sé að framtíðartekjur Delta vegna
þessa samnings geti verið umtalsverðar. Tekjur
velti hins vegar töluvert á því hvort félögin verði
meðal þeirra fyrstu á markað eftir að einkaleyfi við-
komandi frumlyfs rennur út.
Hann segir að Delta muni njóta samlegðar af
þeim lyfjum sem þróuð eru fyrir Evrópumarkað og
jafnframt fyrir Bandaríkin. Kostnaður við þró-
unina fyrir Bandaríkjamarkað verði því hlutfalls-
lega mun minni en ella.
Delta hefur einnig nýlega verið samþykkt af heil-
brigðisyfirvöldum í Sádí-Arabíu, sem gefur mögu-
leika á sölu lyfja fyrirtækisins þar í landi og á ná-
lægum mörkuðum í Mið-Austurlöndum.
Opnar leið inn á stærsta markað í heimi
Samkvæmt samstarfssamningi Delta og Pure-
pac munu fyrirtækin skipta með sér hagnaði af sölu
lyfsins eftir að það kemur á markað.
Róbert segir að það frumlyf sem um ræðir sam-
kvæmt samningnum sé meðal söluhæstu lyfja í
heiminum í dag. Nafn þess og velta sé hins vegar
trúnaðarmál milli aðila. Söluhæstu frumlyfin í dag
séu að velta um 7 milljörðum Bandaríkjadala á
heimsvísu. Þá hafi fyrirtækin bæði hug á að fjölga
samstarfsverkefnum fyrir Bandaríkjamarkað í
framtíðinni. Samningurinn opni Delta leið inn á
þennan mikilvæga markað.
Róbert segir að Bandaríkjamarkaður sé stærsti
markaður fyrir lyf í heiminum. Velta samheitalyfja-
markaðarins þar í landi í dag sé um 15 milljarðar
dala á ári en áætlanir fyrir árið 2005 geri ráð fyrir
að veltan verði tæpir 22 milljarðar dala, sem svari
til um 1.900 milljarða íslenskra króna.
Um 40% af heildarsölu samheitalyfja í heiminum
sé í Bandaríkjunum. Næststærsti markaðurinn sé
Evrópa með um 26%. Hann segir því augljóst að
samstarfssamningurinn hafi mikla þýðingu fyrir
Delta og geti opnað ýmsa möguleika í framtíðinni.
Delta þróar samheitalyf
fyrir Bandaríkjamarkað
Morgunblaðið/Sigurgeir
Fimmti og
stærsti kján-
inn í land
SKIPVERJAR á Bylgju VE færðu
Náttúrugripasafninu í Vest-
mannaeyjum furðufisk, svo-
nefndan kjána, í gær. Er þetta
fimmti kjáninn og jafnframt sá
stærsti, sem veiðst hefur við
strendur landsins, að sögn Gunn-
ars Jónssonar, fiskifræðings hjá
Hafrannsóknastofnun.
Kjáninn er fjarskyldur skötusel,
af sama ættbálki en af annarri
ætt. Gunnar gaf þessum furðufiski
kjánanafnið, en vísindanafnið er
chaunax og tegundarnafnið sutt-
kusi. Fiskurinn getur orðið um
eða yfir 30 sm langur og hefur
veiðst á um 220 til 1.050 metra
dýpi. Gunnar segir að hann hafi
veiðst beggja vegna í Atlantshaf-
inu, við Bandaríkin, norðan og
vestan Írlands, í Biscayflóa undan
Portúgal og í Miðjarðarhafinu.
SIGURBJÖRG Þrastardóttir hlýtur bók-
menntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár,
fyrir handrit að skáldsögunni Sólar sögu.
Borgarstjóri afhenti Sigurbjörgu verðlaunin
við athöfn í Höfða í gær. Sigurbjörg var
ánægð með verðlaunin, sem hún fær fyrir sína
fyrstu skáldsögu, en hún hefur áður gefið út
tvær ljóðabækur. Bókin er saga ungrar ís-
lenskrar stúlku, Sólar, sem býr í erlendri borg,
ratar í erfiðleika og tekst á við þá með sínum
hætti.
Sigurbjörg segir að hún hafi alltaf brugðist
illa við þegar fólk spurði hvenær hún ætlaði að
skrifa bók og átti við skáldsögu. „Mér fannst
það af og frá að ég myndi semja skáldsögu,
fannst þetta alveg sitt hvor greinin.“ Það fór
hins vegar á annan veg: „En þessi skáldsaga
byrjaði að vaxa einhvern veginn inni í mér
smám saman og mér fannst ég ekki geta skor-
ast undan því að skrá hana,“ segir Sigurbjörg.
„Fannst það af og frá að ég
myndi semja skáldsögu“
Sigurbjörg Þrastardóttir ásamt foreldrum sínum, Þresti Stefánssyni og Guðmundu Ólafsdóttur, og
ömmu og afa, Ólafi B. Ólafssyni og Öldu Jóhannesdóttur, í Höfða í gær.
Saga Sólar/34
Sólar saga Sigurbjargar hlaut Tómasarverðlaunin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HÉRAÐSDÓMUR
Reykjavíkur staðfestir í
öllum meginatriðum úr-
skurð áfrýjunarnefndar
samkeppnismála frá því í
fyrrasumar um ólögmætt
samráð fyrirtækjanna
Mötu, Banana og Sölu-
félags garðyrkjumanna
en lækkar heildarsekt á
fyrirtækin um tíu milljón-
ir eða í 37 milljónir.
Guðmundur Sigurðs-
son, forstöðumaður sam-
keppnissviðs Samkeppn-
isstofnunar, segir að
þarna hafi verið tekist á
um túlkun á grundvallaratriðum í sambandi við
samráð fyrirtækja: „Miðað við það sem lögmaður
okkar hefur tjáð okkur er túlkun Samkeppnisráðs
staðfest. Við hljótum að vera mjög sátt við það,
ekki síst vegna þess að þetta er fyrsta mál sinnar
tegundar sem kemur til kasta dómstólanna.“
Pálmi Haraldsson, stjórnarformaður Banana og
fyrrverandi framkvæmdastjóri Sölufélags garð-
yrkjumanna, segir menn auðvitað vera ánægða
með að sektirnar séu lækkaðar um sem nemur um
20%. „Enn er verið að lækka sektirnar og það kem-
ur fram í dómnum að Samkeppnisstofnun er gagn-
rýnd fyrir ákveðin vinnubrögð. En þetta er enginn
fullnaðarsigur hjá okkur og við munum áfrýja dóm-
inum til Hæstaréttar og leita þar eftir fullri leið-
réttingu á okkar málum og réttlæti.“
Ætla að áfrýja dóm-
inum til Hæstaréttar
0 ( 12
*!--,.
!/#0!)
!,
),)!
! #%
!##/ ",#
&
#, 1
%!--!,# 13($
12
2 1
%
.
*!--,
#)(#%
.+!##/ 1(
- 2
3%/!
+!
!.
, 1
% #%
#) .+ !##/ Ólögmætt
samráð stað-
fest – sektir
lækkaðar
Sektir hafa lækkað/6
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur í
kærumáli Þróunarfélags miðborgar-
innar gegn Markaðstorgi ehf. þess
efnis að bera kærða út með beinni
aðfarargerð úr húsnæði á 1. hæð toll-
hússins við Tryggvagötu í Reykjavík
vegna þess að ekki var staðið við
leigusamning. Í dómnum var m.a.
stuðst við norsk lög Kristjáns V frá
árinu 1687.
Þegar ekki var staðið við leigu-
samning var honum rift og málinu
skotið til Héraðsdóms Reykjavíkur.
Hann féllst á kröfu gerðarbeiðanda
um útburð með beinni aðfarargerð
og taldi rétt að gerðarþoli greiddi
gerðarbeiðanda 40.000 kr. í máls-
kostnað.
Sóknaraðili skaut málinu til
Hæstaréttar og kærði úrskurð Hér-
aðsdóms. Í dómi Hæstaréttar er m.a.
vitnað í norsk lög Kristjáns V frá 15.
apríl 1687, þar sem m.a. kemur fram
að vilji maður ekki flytjast úr leigu-
húsnæði á fardegi réttum, þótt hon-
um hafi löglega verið út byggt, eða
hann hafist við í húsi, sem hann á
engan rétt til eða hafi verið dæmdur
úr, að ólofi eiganda, þá megi „eigandi
án frekara dóms láta þjóna réttarins
ryðja húsið“. Í dómi Hæstaréttar
segir að þessi réttur flytjist í hendur
leigutaka, ef hann framleigir hús-
næðið með viðhlítandi heimild frá
eiganda þess. „Verður því ekki fallist
á með sóknaraðila að varnaraðili sé
ekki réttur aðili til að leita útburð-
argerðar.“
Dæmt eftir lögum frá 1687
Góður sigur
skákkvenna
ÍSLENSKU stúlkurnar sigr-
uðu lið Makedóníu, 2–1, í sjö-
undu umferð Ólympíumótsins í
skák í Slóveníu í gær. Harpa
Ingólfsdóttir og Guðfríður Lilja
Grétardsóttir lögðu báðar
stigahærri andstæðinga.
Karlaliðið gerði hins vegar
jafntefli, 2–2, við Portúgala.
Hannes Hlífar Stefánsson hef-
ur farið mikinn og er nú í hópi
þeirra tíu skákmanna sem hafa
náð bestum árangri á mótinu.
Konurnar mæta Mongólíu og
karlarnir Tadsjikistan í átt-
undu umferðinni í dag.
Ingvar Ásmundsson hefur
7,5 vinninga og er í 4.–9. sæti á
Heimsmeistaramóti öldunga í
Þýskalandi.
Jafntefli/60