Morgunblaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.11.2002, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 13 VÆNTINGAVÍSITALA Gallup hækkar um 6 stig á milli mánaða og mælist nú 107 stig. Þetta er tæpum 25 stigum hærra en meðaltal ársins 2001 en 6,5 stigum undir því hæsta sem vísitalan hefur mælst, en það var í september á þessu ári þegar hún náði 113,5 stigum. Væntingavísitalan mælir tiltrú og væntingar fólks til efnahagslífsins, atvinnuástandsins og heildartekna heimilisins. Vísitalan getur tekið gildi á bilinu 0–200. Hún tekur gildið 100 þegar jafn margir eru jákvæðir og neikvæðir, en er hærri þegar fleiri eru jákvæðir en neikvæðir.               Væntinga- vísitalan hækkar YFIRTAKA Kaupþings á JP Nordiska og skráning Kaupþings í kauphöllinni í Stokkhólmi dragast frá því sem greint var frá í útboðs- lýsingu. Í tilkynningu frá Kaup- þingi kemur fram að ekki sé hægt að ljúka yfirtökunni og ganga frá skráningunni fyrr en að fengnu samþykki fjármálaeftirlitsins í Sví- þjóð, sem vinni að málinu í sam- vinnu við Fjármálaeftirlitið hér á landi. Áætlað sé að samþykkið fáist í byrjun desember. Afhending tekur innan við viku eftir samþykki Í tilkynningunni, sem birt var í Kauphöll Íslands, segir einnig að afhending hluta í Kaupþingi muni taka innan við viku eftir að sam- þykki fjármálaeftirlitsins í Svíþjóð liggi fyrir og þá geti viðskipti með hlutabréf útgefin af Kaupþingi haf- ist á O-lista kauphallarinnar í Stokkhólmi. Yfirtökutilboð Kaupþings hefur þegar verið samþykkt af 81,5% hluthafa í JP Nordiska og hefur Kaupþing lýst því yfir að það muni efna tilboðið af sinni hálfu um leið og samþykki fáist í Svíþjóð. Kaup- þing hefur framlengt frest til að samþykkja yfirtökutilboðið til 29. þessa mánaðar þannig að þeim hluthöfum í JP Nordiska sem ekki hafa þegar samþykkt yfirtökutil- boðið gefist kostur á að taka tilboð- inu. Yfirtöku Kaup- þings á JP Nord- iska frestað HAGNAÐUR Samherja hf. á Ak- ureyri fyrstu níu mánuði ársins nam 1.950 milljónum króna sam- anborið við 269 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Miklar eignabreytingar einkenna rekstur félagsins á tímabilinu. Rekstrartekjur samstæðunnar fyrstu níu mánuði ársins námu 9.738 milljónum króna, rekstrar- gjöld voru 7.242 milljónir og hagn- aður án afskrifta og fjármagnsliða nam því 2.496 milljónum króna eða sem svarar 26% af rekstrartekjum. Afskriftir námu 693 milljónum og fjármagnsliðir voru jákvæðir um 576 milljónir króna, en þar munar mest um gengishagnað upp á 820 milljón króna sem er veruleg um- skipti frá sama tíma í fyrra en þá var gengistap í fjármagnsliðum upp á 1.377 milljónir króna. Hagn- aður fyrir skatta var 2.379 millj- ónir króna og hagnaður tímabils- ins, að teknu tilliti til skatta, 1.950 milljónir. Veltufé frá rekstri var á tímabilinu 2.003 milljónir króna eða sem svarar 21% af rekstrar- tekjum. Ekki er beitt verðleiðréttingum í reikningsskilum í samræmi við ákvörðun stjórnar félagsins. Ef beitt hefði verið sömu reiknings- skilaaðferðum og árið áður hefði hagnaður félagsins verið 56 millj- ónum króna hærri auk þess sem eigið fé félagsins væri 193 millj- ónum króna hærra en fram kemur í árshlutareikningnum. Heildareignir Samherja hf. í septemberlok voru bókfærðar á 21,3 milljarð króna. Þar af eru fastafjármunir tæplega 15,4 millj- arðar og veltufjármunir 5,9 millj- arðar. Skuldir félagsins námu rúm- lega 13 milljörðum króna og eigið fé var 8,3 milljarðar. Eiginfjárhlut- fall var í lok september tæp 39% og veltufjárhlutfall 1,21. Miklar eignabreytingar Í frétt frá Samherja kemur fram að miklar eignabreytingar hafa einnkennt árið. Fjárfestingar í eignarhlutum á tímabilinu námu 3.463 milljónum króna. Fjárfest var í Síldarvinnslunni hf. fyrir 1.320 milljónir króna og á Samherji nú 20,8% eignarhlut í félaginu. Keypt voru hlutabréf fyrir um 709 milljónir króna í SR-Mjöli eða sem svarar tæpum 13% í því félagi. Fjárfesting í Hraðfrystistöð Þórs- hafnar hf. var rétt um 290 milljónir króna og á Samherji nú tæp 50% eignarhlut í HÞ. Þá eignaðist fé- lagið ríflega 16% eignarhlut í fjár- festingarfélaginu Kaldbaki hf. fyrir um 794 milljónir króna. Breytingar á skipastól „Þá hafa verið gerðar allnokkrar breytingar á skipastól félagsins. Baldvin Þorsteinsson EA-10, sem verið hefur flaggskip félagsins, var seldur á tímabilinu auk Kamba- rastar EA. Þá var Akureyrin EA-110, sem var fyrsti frystitogari félagsins, seld í októbermánuði. Í ágúst fjárfesti félagið í Sléttbaki EA, sem fengið hefur nafnið Ak- ureyrin EA-110, og var fjárfesting vegna þess ríflega 200 milljónir króna. Ennfremur keypti félagið Hannover frá þýska félaginu DFFU, en skipið hefur fengið nafnið Baldvin Þorsteinsson, og er nú í lengingu í Lettlandi og búast má við því inn í flota félagsins á næstunni. Fjárfesting vegna þessa nam um 1.275 milljónum króna í lok september. Þá var ennfremur lokið við breytingar á Þorsteini EA-810 og var fjárfesting vegna þess ríflega 220 milljónir króna. Þá er vert að nefna að fjárfest var í Sæsilfri hf. í Mjóafirði fyrir 140 milljónir króna á tímabilinu,“ að því er segir í tilkynningu frá Sam- herja. Hagnaður Samherja 1.950 milljónir Mikill viðsnún- ingur í fjár- magnsliðum  Ársalir - fasteignamiðlun  Ársalir - fasteignamiðlun  Til sölu 340 fm vandað steinsteypt hús ásamt 30 fm samb. bílskúr. Mögul. að hafa séríbúð á neðri hæð. Húsið er vel staðsett, skammt frá Árbæjarsundlauginni. Ársalir ehf. - fasteignamiðlun 533 4200 Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali sími 892 0667 Opið hús í kvöld frá kl. 19.00-20.00 Heiðarás 14 - einbýli/tvíbýli Samrunagögn er hægt að nálgast á skrifstofu Íslenskra verðbréfa hf. á Strandgötu 3, Akureyri Hluthafafundur Hlutabréfasjóðs Íslands hf. vegna sameiningar við Kaldbak hf. verður haldinn 27. desember nk., fundurinn var áður auglýstur 9. desember. Stjórn Hlutabréfasjóðs Íslands hf. boðar til hluthafafundar föstudaginn 27. desember kl. 10 á Strandgötu 3, Akureyri. Á dagskrá fundarins er tillaga stjórnar sjóðsins um að Hluta- bréfasjóður Íslands hf. sameinist Kaldbaki hf. með skiptum á hlutabréfum í Hlutabréfasjóði Íslands hf. fyrir bréf í Kaldbaki hf. í samræmi við samrunaáætlun félaganna dagsetta 3. októ- ber 2002 Hluthafafundi Hlutabréfasjóðs Íslands frestað til 27. desember                                       !  "               #              $  % &         Málning fyrir vandláta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.